Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Blaðsíða 13
Hermann Gunnarsson, forstjóri N1, segir síðustu bensínhækkanir óhjákvæmilegar:
„ÞETTA ER HÖRMUNGARÁSTAND“
NEYTENDUR 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 13
AMERICAN EXPRESS FÆR Á BAUKINN Neytendastofa
hefur bannað American Express að birta auglýsingar þar sem segir að
viðskiptavinir fyrirtækisins safni vildarpunktum tvöfalt hraðar en þeir
sem skipti við VISA. Neytendastofa segir í ákvörðun sinni að fyrirtækið
hafi ekki getað sannað þá fullyrðingu né heldur fullyrðinguna: „Með
Premium Icelandair American Express færðu bestu ferðatryggingu
sem völ er á,“ eins og segi á vefsíðu fyrirtækisins. Því brjóti fyrirtækið
gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
MARGIR NÝTT ÚRRÆÐIN Fimmtán þúsund einstaklingar og
fyrirtæki hafa nýtt sér þau úrræði sem Íslandsbanki hefur boðið við-
skiptavinum sínum í greiðsluerfiðleikum, samkvæmt tilkynningu
frá Má Mássyni, upplýsingafulltrúa bankans. Þar segir að af þessum
fimmtán þúsundum hafi rúmlega fimm þúsund nýtt sér úrræði vegna
bílalána. Enn fremur segir að þeir sem nýti sér úrræði bankans til höf-
uðstólslækkunar hafi ekki fyrirgert mögulegum rétti sínum komist
Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að gengistryggð bíalán séu ólögleg.
en ég bendi á að þar af fara um 103
krónur beint til ríkisins,“ segir Her-
mann og bætir við að sú tala hafi fyr-
ir örfáum misserum verið 73 krónur.
Skattahækkanirnar hafi átt sinn þátt
í hækkandi bensínverði.
Hann spáir frekari hækkunum á
næstu mánuðum, þar sem heims-
markaðsverð sé venjulega hærra á
sumrin en á veturna. Hann bendir
þó á að það sé hagur olíufyrirtækj-
anna að hafa verðið sem lægst. Þá
fari fleiri lítrar í gegnum leiðslurn-
ar og veltan sé meiri. „Eftir því sem
verðið hækkar fækkar seldum lítr-
um,“ útskýrir hann og bætir við:
„Þetta er hörmungarástand.“
„Samtökin hvetja því fólk til að
vera á varðbergi og vara eindregið
við töku þessara lána. Þá lýsa sam-
tökin undrun sinni á því að Hrað-
peningum hafi tekist að safna hátt
í 15.000 aðdáendum á Facebook,
en samtökin hafa hingað til ekki
heyrt frá aðdáendum okurlána-
starfsemi af þessu tagi,“ segir á
heimasíðu Neytendasamtakanna.
Hraðpeningar er nýtt fyrirtæki
sem veitir svipuð lán og smálána-
fyrirtækið Kredia. Lánastarfsem-
in byggir á því að lána allt að 40
þúsund krónur til tveggja vikna.
Upphæðin er svo innheimt með
25 prósenta vöxtum. „Þjónust-
an er ekki hugsuð sem lausn fyrir
fólk í fjárhagsvandræðum heldur
sem lausn fyrir fólk sem tilbúið er
að greiða þjónustugjald fyrir auk-
in þægindi. Við stuðlum að heil-
brigðri notkun og ýtum undir að
viðskiptavinir okkar sýni skyn-
semi,“ segir á heimasíðu Hrað-
peninga.
Neytendasamtökunum reikn-
ast til að á ársgrundvelli nemi
kostnaðurinn við lánin allt að 600
prósentum. „Á hverjum degi fá
Neytendasamtökin athugasemd-
ir um starfsemi þessara okur-
lánafyrirtækja, ýmist ábendingar
frá almenningi eða reynslusög-
ur frá reiðum lántakendum og/
eða aðstandendum þeirra,“ segir
á heimasíðu samtakanna en þau
hafa hvatt stjórnvöld til aðgerða
sem sporni við lánveitingum af
þessu tagi, enda hafi bæði efna-
hags- og viðskiptaráðherra og fé-
lags- og tryggingamálaráðherra
lýst yfir áhyggjum sínum af þess-
um smálánum. „Samtökin hvetja
þá til að láta ekki staðar numið
við þær yfirlýsingar heldur grípa
til aðgerða er komi í veg fyrir veit-
ingu SMS-lána en SMS-lánin hafa
t.a.m. komið illa niður á ungu fólki
í nágrannalöndum okkar.“
Fimmtán þúsund manns að baki smálánafyrirtæki:
„Aðdáendur okurlána“
Smálán Eigandi símanúmersins þarf
að hafa náð 18 ára aldri til að hægt sé
að fá lánað.
SVONA SKALTU VELJA ÁVEXTI
BANANAR
n Þeir eru skornir frá móðurplöntu óþroskaðir
og fluttir þannig milli landa. Á áfangastað eru
þeir geymdir í etýlen-blönduðu lofti sem flýtir
fyrir þroska þeirra. Veljið banana sem eru
ekki marðir eða of grænir. Bananar sem eru
gráleitir hafa líklega lent í of miklum kulda
og ná því aldrei að verða fagurgulir. Þeir
sem eru enn með græna enda eru harðari
og bragðmeiri en þegar þeir eru fullþrosk-
aðir. Þó svo að bananar séu komnir yfir
það þroskastig sem hentar til átu, þá er
alveg upplagt að nota þá þannig í ýmsa
rétti og í brauð og kökur. Geymið banana
við stofuhita en þó ekki úti í glugga þegar
von er á sól. Aldrei setja banana í kæli því
þá verða þeir aldrei gulir; aðeins brúnir eða
gráleitir.
JARÐARBER
n Best er að smakka ber áður en þau eru keypt en það er ekki alltaf vel séð eða
mögulegt. Ef jarðarber eru grænleit eru þau stíf og óþroskuð. Ber (til dæmis jarðarber,
brómber, bláber) geymast best við 0 gráður, þá geymast þau allt að þrisvar sinnum
lengur en við ísskápshita. Ef þú átt ekki ísskáp með
köldu svæði skaltu skola berin og setja
þau í sigti inn í kæli. Þar geymast
þau betur en ber geymast
almennt frekar illa.
EPLI
n Veljið ávallt epli sem er með óskaddað hýði og engar
sjáanlegar skemmdir. Handleikið eplið til að finna hvort það
sé ekki stinnt. Ekki láta litinn á eplinu eingöngu ráða valinu
þar sem eldrauð epli, með þykkt og vaxkennt hýði, geta verið
mjölkennd og bragðlaus. Fyrsta sending af nýjum eplum frá
Ameríku kemur til Íslands í nóvember en uppskeran er geymd
við kjöraðstæður fram á vor, eftir því sem birgðir endast. Epli
gefa frá sér vaxtarhormón sem gengur
undir nafninu etýlen. Efnið getur flýtt fyrir
þroskun á öðrum ávöxtum og grænmeti
sem geymd eru í nánd við eplin, svo
þau eru varhugaverðir nágrannar.
Besti árstími: Á haustin og til
áramóta.
AVÓKADÓ
n Á Íslandi fást tvær
tegundir af avókadói;
hefðbundið avókadó og
svokallað hass-avókadó
sem stundum hefur
brúnan eða fjólubláan
og hrjúfan börk. Það
þýðir ekki að ávöxturinn
sé ónýtur. Þvert á móti
bragðast hann yfirleitt
betur en sá sem er með
grænum og sléttum
berki. Avókadó kemur
oftast frá Ísrael, Spáni eða
Perú.
Besti árstími: Síðla hausts
og á sumrin.
VÍNBER
n Þær tegundir vínberja sem ekki innihalda steina hafa oft bitrara bragð en þau
ber sem í eru steinar. Hægt er að flokka þau í græn afbrigði, rauð eða fjólublá og
muscat sem eru yfirleitt stór og rauð eða svört og afskaplega bragðgóð. Þar sem sum
vínber eru seld óþroskuð er gott ráð að lauma einu upp í sig til að meta þroskastigið.
Fullkomið berjaknippi ætti að samanstanda af berjum af sömu stærð, lögun og
lit. Rauð knippi ættu ekki að innihalda grænleit ber. Geymast í kæli í plastpoka en
fjarlægið skemmd ber strax. Rauðu vínberin eru nær aldrei súr en þau grænu, sem
hafa hvanngrænan lit, geta verið það. Grænu vínberin eru ekki endilega ónýt þótt
brún slikja sé á þeim; þau eru eingungis sætari.
Besti árstími: Bestu berin eru í ágúst og september (frá Spáni og Grikklandi) og svo í
janúar og febrúar (frá Suður-Afríku).
KÍVÍ
n Kíví er ávöxtur sem best er að kaupa nokkuð
stinnan, með óskemmt hýði. Kíví þroskast hratt
við stofuhita heima við en geym-
ist í margar vikur í kæli. Á
Íslandi fæst kíví aðallega
frá Ítalíu og Chile en
ítalskt kíví er mýkra.
Ef kíví er hart er það
yfirleitt merki um
að ávöxturinn sé
óþroskaður.
ANANAS
n Veljið ananas sem
er þungur miðað við
stærð og skæra liti.
Til að kanna þroskastig
er ágætt að toga létt í
neðsta laufið og ef það er
laust er ávöxturinn þroskað-
ur. Forðist líflausan ananas
þar sem blöðin eru farin að
verða brún. Ananas geymist
best við 10 gráður en það
er ef til vill ekki auðvelt að
finna það hitastig á heimlinu.
Ananas sem er brúnn er
orðinn verulega þroskaður
en þarf ekki að vera ónýtur.
Veljið grænleitan ananas frekar
ef þið ætlið ekki að borða
hann alveg strax.