Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Side 30
FYRIRLIÐINN
LÆSTUR ÚTI
KÁRI ÁRSÆLSSON:
Kári Ársælsson, fyrirliði
Breiðabliks í knattspyrnu,
keypti sér fyrir nokkrum vik-
um forláta BMW-bifreið.
Silfraðan glæsikagga sem Kári
tók sig vel út í á götum Kópavogs.
Fyrir nokkrum vikum mætti
Kári á æfingu og lagði bílnum
uppi á kanti þar sem oft er erftt að
fá stæði á háannatíma í Fífunni, en
þar æfir öll hersingin í Breiðabliki.
Á meðan Kári var á æfingu fór
einhver óprúttinn aðili inn í
klefa meistaraflokks karla og rændi og ru-
plaði. Tók þjófurinn, eða þjófarnir, með-
al annars jakka fyrirliðans. Í honum voru
meðal annars bíllyklarnir að nýja kagg-
anum og þurfti Kári því að fá far heim.
Bíllinn hefur staðið óhreyfður síðan
því Kári átti aðeins einn lykil. Lyklar af
þessari tegund eru dýrir enda þjófavarn-
arkerfið í BMW-glæsibifreiðum ekkert
slor. Kosta svona lyklar allt að 50 þúsund
krónum og er ekki hlaupið að því fyrir
unga námsmenn að reiða fram slíka upp-
hæð. Því miður fyrir Kára er bílnum ekki
sérstaklega vel lagt eins og sést á mynd-
inni en honum er eflaust fyrirgefið það
enda fyrirliði bikarmeistaraliðs Breiða-
bliks.
Hann þarf ekki að hafa miklar áhyggj-
ur af bílnum því mikið og gott öryggis-
kerfi með myndavélum er úti um allt við
Smárann og Fífuna. Það er því lán í óláni
að kagginn standi óhreyfður þar en ekki á
óvöktuðum stað.
Ekki hefur náðst í Kára sökum þess að
síminn hans er læstur inni í bílnum.
benni@dv.is
Kári Ársælsson, fyrirliði bikarmeistara Breiðabliks í knatt-
spyrnu, getur ekki keyrt nýjan BMW-bíl sinn. Hann varð fyrir
því óláni að jakkanum hans var stolið á æfingu með bíllyklun-
um í. Bíllinn hefur staðið óhreyfður í tæpar tvær vikur.
Sjónvarpsþulan fagra Katrín Brynja
Hermannsdóttir eignaðist dreng á
laugardaginn. Fyrir áttu þau hjónin tvo
stráka, Mána Frey sjö ára og Nóa Bald-
ur tveggja ára. Drengurinn var rúm-
ar 11 merkur og samkvæmt heimild-
um blaðsins lá honum ansi mikið á að
komast í heiminn en samkvæmt sömu
heimildum hafa mæðginin það gott
heima fyrir. Katrín Brynja sagðist, í við-
tali við blaðið rétt áður en drengurinn
kom í heiminn, hafa það gott. „Ég hef
það ofsalega fínt og það fyndna er að
þetta er auðveldasta meðgangan hing-
að til. Það er gaman að vera ófrísk og
ég æfi hjá þeim í Fullfrísk í Sporthús-
inu, sem er frábært. Ég þarf fjör og helst
læti, er ekki þessi jógatýpa,“ sagði þulan
í viðtalinu.
Mikil barnasprengja er á RÚV þessa
dagana. Auk Katrínar Brynju eiga þul-
urnar Matthildur Magnúsdóttir og
Anna Rún Frímannsdóttir einnig von
á barni sem og kynnar Söngvakeppni
Sjónvarpsins, Ragnhildur Steinunn og
Eva María Jónsdóttir. Eva María með
kærastanum sínum, hjartalækninum
Sigurpáli Scheving, en Ragnhildur með
sínum kærasta, knattspyrnustjörnunni
Hauki Inga Guðnasyni. Fréttakonan
Lillý Valgerður Pétursdóttir á Stöð 2 er
einnig ófrísk en hún á að eiga í maí.
Katrín Brynja birtist landsmönnum
á skjánum fram á síðasta dag en það er
spurning hvort hún eigi eftir að birtast
aftur í þuluhlutverkinu þar sem öllum
þulunum hefur verið sagt upp störfum.
ÞRIÐJI SONURINN FÆDDUR
FYRSTA RÚV-BARNIÐ KOMIÐ Í HEIMINN:
30 MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 2010 FÓLKIÐ
Fegursta kona Íslands um þessar
mundir, Guðrún Dögg Rún-
arsdóttir ungfrú Ísland 2009, er
einhleyp á ný eftir að sambandi
hennar og Björns Bergmann Sig-
urðssonar lauk nýverið. Parið var
á forsíðu Séð og Heyrt í janúar
en þar sagði Guðrún þau ekki
láta það aftra sér þótt Björn væri
búsettur í Noregi þar sem hann
leikur með Lilleström. Björn,
sem Séð og Heyrt nefnir Beck-
ham Íslands, er frá Akranesi, líkt
og Guðrún, en samband þeirra
hófst um jólin og var því nokkuð
skammlíft.
EINHLEYP Á NÝ
„Ég er búinn að vera lengi með
byssuleyfi og búinn að skjóta frá
því ég man eftir mér. Ég á samt
ekki vopn í þetta. Ég fæ það lán-
að,“ segir Skjöldur Sigurjónsson,
eigandi verslunarinnar Kormáks
og Skjaldar, en hann var einn af
þeim heppnu sem fengu hrein-
dýraleyfi úthlutað þegar Um-
hverfisstofnun dró úr umsókn-
um. Skjöldur hefur oft sótt um
að fá að veiða hreindýr áður en
aldrei fengið fyrr en nú. „Ég hef
farið á hreindýraveiðar áður, en
ekki skotið dýr. Ég hef farið með
og fundist mjög gaman,“ segir
Skjöldur en hann mun væntan-
lega slá í gegn uppi á heiði, enda
þekktur fyrir að klæðast flottum
fötum – hvar og hvenær sem er.
FÉKK HREINDÝR
SKJÖLDUR
Þriðji sonurinn Katrín Brynja ásamt þeim
Mána Frey og Nóa Baldri. Nú hefur þriðji
sonurinn bæst í hópinn og eflaust mikil
hamingja á heimilinu.
Óheppinn fyrirliði Kári
Ársælsson grætur bíllykl-
ana og jakkann sem stolið
var úr klefa Breiðabliks.
BMW-inn Bíll Kára hefur staðið
fyrir utan vel vaktaða Fífuna.