Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 15
Landsmenn eru eindregið hvattir til að láta bólusetja sig
gegn svínainflúensu á næstu dögum og vikum til að verjast
veikinni enda eru miklar líkur á nýju áhlaupi
inflúensunnar síðar á þessu ári eða því næsta. Best er að
verjast svínainflúensunni með bólusetningu og það strax
enda nóg til af bóluefni í landinu.
Við boðum bólusetningarátak um allt land!
� Íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta nú gengið inn
á næstu heilsugæslustöð á almennum þjónustutíma
alla virka daga og látið bólusetja sig. Ekki þarf lengur
að skrá sig í bólusetningu fyrir fram!
� Áfram þarf hins vegar að panta tíma í bólusetningu á
heilsugæslustöðvum utan höfuðborgarsvæðisins.
Tveir Íslendingar af hverjum fimm hafa látið sprauta sig
gegn svínainflúensu á undanförum mánuðum sem er eitt
hæsta hlutfall sem þekkist meðal þjóða.
Íslendingar eiga hrós skilið fyrir að bregðast hratt og
ákveðið við inflúensufaraldrinum með því að mæta til
bólusetningar, tileinka sér tíða handþvotta, bera spritt á
hendur, nota pappírsklúta og gera fleira sem stuðlar að
heilsuvernd.
Fullvíst er að allar þessar ráðstafanir hafa komið í veg fyrir
að tugir þúsunda Íslendinga sýktust af svínainflúensunni
fyrr í vetur.
Verjumst nýju áhlaupi
svínainflúensunnar A(H1N1)!
Nánari upplýsingar um bóluefnið og bólusetningu vegna svínainflúensu A(H1N1) er að finna á influensa.is.
Tilkynningar og upplýsingar um viðbúnað vegna inflúensu A(H1N1) eru á influensa.is og á almannavarnir.is.
Landlæknisembættið
sóttvarnalæknir
Ríkislögreglustjórinn
almannavarnadeild
Veggspjald fjarlægt?
Samkvæmt rússnesku vefsíðunni
nr2.ru var í bænum Omsk fjarlægt
veggspjald sem á stóð „Við bíðum
eftir þér káti dvergur“ rétt áður en
Dmitry Medvedev, forseti Rússlands,
sótti bæinn heim. Umrætt veggspjald
var auglýsing fyrir barnasýningu og
var fjarlægt við götu eina sem forset-
inn og fylgdarlið hans myndu fara um
í heimsókninni, sem átti sér stað 12.
febrúar.
Samkvæmt þarlendum miðlum
er Dmitry Medvedev 165 sentimetrar
á hæð.
Leikföng á ferðalagi
Ný tékknesk ferðaskrifstofa, Toy Tra-
veling, býður upp á ferðir fyrir for-
dekruð leikföng. Á vefsíðu Reuters
segir frá leikfangaferðaskrifstofu sem
var sett á laggirnar vegna áhrifa frá
kvikmyndinni „Amelie frá Montmar-
tre“ þar sem aðalhetjan sendir föður
sínum ljósmyndir af garðálfi föðurins
í grennd við fræg kennileiti víða um
lönd.
Fólki býðst að senda uppáhalds-
leikfangið til ferðaskrifstofunnar og
starfsmenn hennar munu „sýna“ því
það helsta í Prag og taka af því ljós-
myndir á vinsælum viðkomustöðum.
Kostnaðurinn er frá 90 evrum til 150
evra, eða um 15 til 26 þúsund krónur.
Fjölgar í hópi þeirra sem grunaðir eru um morðið á Hamas-liðanum Mahmoud al-Mabhouh í Dúbaí:
FLEIRI BRESK VEGABRÉF
FÖLSUÐ FYRIR MORÐIN
Í ljós hefur komið að átta fölsuð
bresk vegabréf voru notuð við laun-
morðið á Hamas-liðanum Mah-
moud al-Mabhouh í Dúbaí í janúar.
Áður var talið að sex bresk vega-
bréf hefðu verið notuð. Ekki lá fyr-
ir á þriðjudag hvort þau tvö bresku
vegabréf sem tengjast launmorð-
inu, auk hinna sex, séu afrit af raun-
verulegum vegabréfum eða ekki.
Bresk stjórnvöld tilkynntu í gær
að þau hefðu fengið upplýsingar frá
yfirvöldum í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum þess eðlis að þau
hefðu hnotið um upplýsingar sem
bentu til þess að tveir í viðbót grun-
aðir um aðild að morðinu hefðu
notað bresk vegabréf. Írsk stjórn-
völd höfðu svipaða sögu að segja
og höfðu fengið viðlíka upplýsing-
ar frá Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum. Hvað írsku vegabréf-
in áhrærir höfðu þau raunveruleg
vegabréfsnúmer en uppdiktuð nöfn
og falsaðar ljósmyndir.
Upphaflega var talið að ell-
efu manns hefðu verið viðriðnir
morðið á Mahmoud al-Mabhouh.
Sex voru með breskt vegabréf, þrír
notuðu írskt vegabréf, einn notaði
þýskt vegabréf og einn franskt.
Nú er vitað um átta bresk vega-
bréf sem koma við sögu og fimm
írsk og í ljósi síðustu upplýsinga er
ekki talið útilokað að vegabréf fleiri
Breta hafi verið fölsuð.
Ísraelsk yfirvöld sæta mikl-
um þrýstingi af hálfu Evrópusam-
bandsins um að sýna samstarfsvilja
vegna málsins. Lítið vantaði upp á
að tuttugu og sjö evrópskir utan-
ríkisráðherrar fullyrtu að Ísrael ætti
einhvern hlut að máli og fordæmdu
ráðherrarnir notkun falsaðra evr-
ópskra vegabréfa við glæpinn. Ísra-
elsk stjórnvöld hafa neitað að segja
af eða á hvað varðar aðkomu að
málinu.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Ellefu meintir launmorðingjar
Talið er að tilræðismennirnir hafi
verið fleiri en upphaflega var ætlað.
Meint morðkvendi
skráir sig inn Stilla úr
eftirlitsmyndavél hótels
í Dúbaí. MYNDIR AFP