Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Side 11
FRÉTTIR 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 11 Sjálfstæðisflokkurinn greinir ekki frá því hvaðan framlögin komu sem bárust flokknum á árunum 2002 til ársins 2006, en samtals námu þau um 330 milljónum króna. Ekkert er gefið upp um fjárhag 85 undirfélaga flokksins, en fjáröflun þeirra er umtalsverð, ekki síst fyrir alþingis- og sveitarstjórnarkosningar. LEYND YFIR FRAM- LÖGUM FYRIRTÆKJA Á fimm ára tímabili, árin 2002 til 2006, lét ónafngreint fyrirtæki 44 milljónir króna renna til flokksskrif- stofu Sjálfstæðisflokksins. Sam- kvæmt framtali flokksins til Rík- isendurskoðunar um síðastliðin áramót tók Sjálfstæðisflokkurinn við 30 milljóna króna framlagi frá tveim- ur aðilum árið 2006, síðasta árið áður en ný lög um fjármál stjórn- málaflokkanna tóku gildi. Gerð hefur verið grein fyrir slíkum fram- lögum frá FL Group og Landsbank- anum það ár. Þau ollu hneyksli fyrir þingkosningarnar á síðastliðnu ári. Geir H. Haarde, fyrrverandi formað- ur flokksins, kvaðst bera ábyrgð á móttöku fjárins í lok árs 2006 og hét Bjarni Benediktsson, nýkjörinn for- maður flokksins, að því yrði skilað. Margt bendir til þess að milljón- irnar 44 hafi komið frá Landsbank- anum, en í bankaráðinu sat Kjart- an Gunnarsson, framkvæmdastjóri flokksins á þeim tíma. Samkvæmt sérstökum lögum frá því í fyrra var til þess ætlast að stjórnmálaflokkarnir gerðu opin- berlega grein fyrir fjárreiðum sínum síðustu fimm árin fyrir gildistöku nýju laganna. Auk þess var gert ráð fyrir því að einstakir frambjóðendur gerðu grein fyrir framlögum vegna prófkjara og kosningabaráttu árin 2005 og 2006. Sjálfstæðisflokkurinn skilaði eins og aðrir stjórnmálaflokkar yf- irliti fyrir lok síðasta árs um fram- lög á árunum 2002 til ársins 2006. Ólíkt öðrum stjórnmálaflokkum gerði Sjálfstæðisflokkurinn ekki grein fyrir því hvaða fyrirtæki og einstaklingar létu fé af hendi rakna á framangreindu tímabili. Saman- lögð framlög til flokksskrifstofunnar í Reykjavík námu um 330 milljónum króna samkvæmt gögnum ríkisend- urskoðanda. Að gefa og þiggja Við þetta má bæta 17,9 milljónum króna frá einstökum frambjóðend- um í Reykjavík árið 2006. Sá listi er ekki tæmandi og er aðeins birt- ur útdráttur á vefsíðu Ríkisendur- skoðunar um framlög til einstakra frambjóðenda. Þannig er að finna greinargerð, þótt ófullnægjandi sé, fyrir um 348 milljónum króna. Ljóst er að formenn flokka og flokksskrifstofa bera ábyrgð á mót- töku fjár og jafnvel því að afþakka fé eða gjafir ef svo ber undir. Geir H. Haarde axlaði í fyrra ábyrgð á 55 milljóna króna framlögunum frá Landsbankanum og FL Group árið 2006 eins og áður greinir. Af því leiðir að flokksformenn og framkvæmda- stjórar stjórnmálaflokkanna bera að líkindum endanlega ábyrgð á viðtöku framlaga, að minnsta kosti til aðal- skrifstofu flokkanna eða höfuðstöðva. Árin 2002 til 2005 var Davíð Oddsson formað- ur Sjálfstæðisflokksins. Kjartan Gunnarsson var framkvæmdastjóri flokks- ins og Hanna Birna Krist- jánsdóttir varafram- kvæmdastjóri. Á þessu tímabili tók aðalskrifstof- an við 225 milljónum króna. Árið 2006, síðasta árið áður en nýju lögin um fjármál stjórnmálaflokk- anna tóku gildi, var Geir H. Haarde orðinn for- maður. Kjartan Gunn- arsson var áfram fram- kvæmdastjóri en Andri Óttarsson tók við af honum. Reyndar sagði Andri Óttarsson starfi sínu lausu er upp komst um stóru framlögin frá FL Group og Landsbankanum í fyrra. Þetta ár tók aðalskrifstofa Sjálfstæðisflokksins við liðlega 104 milljónum króna. Meira en milljarður? Þegar Ríkisendurskoðun birti gögn þau sem henni hafa borist frá stjórnmálaflokkunum lögum sam- kvæmt veltu menn því fyrir sér hver fjárhagur einstakra flokksfélaga, hverfisfélaga, landshlutafélaga eða ungliðahreyfinga væru, en ekkert er að finna um þau í gögnunum. Ljóst má vera að framlögin sem hér hafa verið tilgreind eru að mestu leyti til flokksskrifstofu Sjálfstæðisflokks- ins. Innan vébanda flokksins er að finna um 85 undirfélög sjálfstæð- iskvenna, ungliða, fulltrúaráða og hverfisfélaga. Um 70 þessara félaga geta hæglega haft sjálfstæðan fjár- hag sem hverfisfélög eða staðbund- in flokksfélög eða fulltrúaráð um land allt. Fjárráð annarra félaga er að verulegum hluta tengt aðalskrif- stofu flokksins. Á tímabilinu 2002 til 2006 voru þingkosningar 2003 og sveitar- stjórnarkosningar árin 2002 og 2006, en fjáröflun er meiri á kosn- ingaárum, ekki síst á snærum stað- bundinna félaga þau ár sem sveitar- stjórnarkosningar fara fram. Ef gefið er að hvert þessara 70 fé- laga hafi aflað 5 milljóna króna að jafnaði á tímabilinu 2002 til 2006 jafngildir það um 350 milljónum króna samtals. Hafi þau aflað að meðaltali 10 milljóna króna tvöfald- ast upphæðin og verður 700 millj- ónir króna. Varlega má því áætla að heildar- framlög til Sjálfstæðisflokksins frá einstaklingum og fyrirtækjum árin 2002 til 2006 hafi verið á bilinu 700 til 1.100 milljónir króna. n Vörður – fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík n Félag sjálfstæðismanna í Vesturbæ og Miðbæ n Félag sjálfstæðismanna í Austurbæ og Norðurmýri n Félag sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi n Félag sjálfstæðismanna í Lauganes- og Túnahverfi n Félag sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi n Félag sjálfstæðismanna í Langholtshverfi n Félag sjálfstæðismanna í Háaleitishverfi n Félag sjálfstæðismanna í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi n Félag sjálfstæðismanna í Árbæ, Selás og Ártúnsholti n Félag sjálfstæðismanna á Kjalarnesi n Félag sjálfstæðismanna í Grafarholti n Félag sjálfstæðismanna í Grafarvogi n Félag sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi n Félag sjálfstæðismanna í Skóga- og Seljahverfi n Félag sjálfstæðismanna í Hóla- og Fellahverfi n Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík n Málfundafélagið Óðinn n Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík n Samband ungra sjálfstæðismanna n Samtök eldri sjálfstæðismanna n Landssamband sjálfstæðiskvenna n Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins n Sjálfstæðisfélag A-Skaftafellssýslu n Félag ungra sjálfstæðismanna á Hornafirði n Fulltrúaráðið Árnessýslu n Sjálfstæðisfélag Hveragerðis n Sjálfstæðisfélagið Huginn n Sjálfstæðisfélagið Óðinn, Selfossi n Sjálfstæðisfélagið Trausti í Flóa n Sjálfstæðisfélagið Muninn n Sjálfstæðisfélagið Ægir n Sjálfstæðisfélag Eyrarbakka n Sjálfstæðisfélag Stokkseyrar n Sjálfstæðiskvenfélag Árnessýslu n Hersir, félag ungra sjálfstæðismanna í Árnessýslu n Sjálfstæðisfélagið Fróði, Hellu n Sjálfstæðisfélag Kári, Hvolsvelli n Fjölnir, félag ungra sjálfstæðismanna n Fulltrúaráð V-Skaftafellssýslu n Sjálfstæðisfélag V-Skaftafellssýslu n Fulltrúaráðið Vestmannaeyjum n Sjálfstæðisfélag Vestmannaeyja n Eyverjar, félag ungra sjálfstæðismanna n Fulltrúaráð Grindavíkur n Fulltrúaráðið Gullbringusýslu n Sjálfstæðisfélag Grindavík n Sjálfstæðisfélag Sandgerðis n Sjálfstæðisfélagið Garður n Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaga í Reykjanesbæ n Sjálfstæðisfélag Keflavíkur n FUS Heimir, Reykjanesbær n Sjálfstæðisfélagið Njarðvíkingur n Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn n FUS Loki, Garði, Sandgerði og Vogum n FUS Freyja, Grindavík n Sjálfstæðisfélagið Þór, Akranesi n Sjálfstæðisfélagið Egill, Borgarnesi n Sjálfstæðisfélagið Forseti, Snæfellsbæ n Sjálfstæðisfélagið Gjafi, Grundarfirði n Sjálfstæðisfélagið Sif, Stykkishólmi n Sjálfstæðisfélagið Fylkir, Ísafirði n Sjálfstæðisfélagið Mímir, Norður-Ísafjarðarsýslu n Sjálfstæðisfélagið Bersi, Vestur-Húnavatnssýslu n Sjálfstæðisfélagið Jörundur, Austur-Húnavatnssýslu n Sjálfstæðisfélagið Víkingur, Sauðárkróki n Sjálfstæðisfélagið Vörður, Akureyri n Sjálfstæðisfélagið Verðandi, Dalvík n Sjálfstæðisfélagið Mjölnir, Húsavík n Sjálfstæðisfélagið Lögurinn, Egilsstöðum n Sjálfstæðisfélagið Óðinn, Seyðisfirði n Sjálfstæðisfélagið Hávarr, Fjarðabyggð n Sjálfstæðisfélagið Stefnir, Hafnarfirði n FUS Bessastaðahreppi n Sjálfstæðisfélagið Huginn, Garðabæ n Sjálfstæðisfélagið Týr, Kópavogi n Sjálfstæðisfélagið Baldur, Seltjarnarnesi n Sjálfstæðisfélagið Viljinn, Mosfellsbæ n Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi n Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi n Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi n Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi n Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Ekkert er vitað um fjármál undirfélaga Sjálfstæðisflokksins Hafi 70 neðangreindra félaga hlotið að meðaltali 10 milljónir króna samtals á árunum 2002 til 2006 bætast 700 milljónir við önnur óþekkt framlög til flokksins á tímabilinu. JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Afrit úr gögnum Ríkisendurskoðunar Eins og sjá má er aðeins að finna stafina NN við hvert framlag til Sjálfstæðisflokksins öll árin 2002 til 2006. Axlaði ábyrgð á stórframlögum „Við höfum ekki neitt að fela í þessu og höfum aldrei haft,“ sagði Geir H. Haarde er hann kynnti blaðamönnum samkomulag um fjármál stjórnmála- flokkanna 22. nóvember 2006.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.