Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2010, Blaðsíða 19
Sannast sagna hélt ég að flestir sæju
að skortur á gagnsæi og lýðræði ættu
drjúgan þátt í efnahagshruninu.
Hjarðhegðun hefur líka verið nefnd
og tvíburasystir hennar, forræðis-
hyggjan. Hvarvetna þar sem fólk
kemur saman til að ræða nýútkomna
rannsóknarskýrslu ber þetta hæst.
Ekki þó hjá öllum. Ekki hjá starfs-
hópi forsætisráðuneytisins sem í lok
síðustu viku skilaði tillögum til rík-
isstjórnarinnar um breytta og bætta
stjórnsýslu með hliðsjón af efnahags-
hruninu og lærdómum sem af því
hafa verið dregnir. Í skýrslu hópsins
er vissulega sitthvað ágætt að finna.
Vilja styrkja yfirvaldið
En ekki er mikið að finna um leiðir til
að komast hjá hjarðhegðun og for-
ræðishyggju eða hvernig megi auka
gagnsæi og lýðræði hjá hinu opin-
bera. Þvert á móti er talað um að þörf
sé á að „skerpa á forystuhlutverki
forsætisráðherra í ríkisstjórn“;
aðrir ráðherrar eigi að sitja „í skjóli“
hans og megi ekki orka tvímælis
hverjum beri „að knýja á um ábyrgð
þeirra eða afsögn þegar ástæða þykir
til“. Nefndin virðist ekki vera í vafa um
að allt hnígi þarna í sömu átt, yfir-
vald beri að styrkja. Aðrar leiðir hygg
ég að séu vænlegri til að veita ráð-
herrum nauðsynlegt aðhald. Það er
einfaldlega að gera þá ábyrgari gagn-
vart þinginu og þingið ábyrgara gagn-
vart þeim.
Ráðherrar ábyrgir
gagnvart þingi
Þannig tel ég að það eigi að vera op-
inn og eðlilegur framgangsmáti að
þingið taki störf ráðherra til skoðun-
ar og samþykki traust eða vantraust
á þá eftir atvikum. Þetta á við þeg-
ar ráðherra hefur að mati þingsins
orðið á í messunni. Einnig vakna
spurningar þegar ágreiningur rís
innan ríkisstjórnar. Ef ráðherra er
á skjön við ríkisstjórnarviljann en
ekki þingmeirihlutann má spyrja
hvort eðlilegra sé að hann lúti vilja
forsætisráðherrans og víki eða þing-
meirihlutans og sitji. Þessi álitamál
eru sem áður segir afgreidd í starfs-
hópi ríkisstjórnarinnar á þann veg
að forræði forsætisráðherra eigi að
efla. Þetta þarf að ræða miklu betur
en gert er í skýrslunni því einfalt er
málið ekki. Sama gildir um staðhæf-
ingar sem fram eru settar um breyt-
ingar á stjórnarráðinu. Þar er margt
sagt sem þarf allavega miklu meiri
skoðunar við. Þá vil ég einnig nefna
afstöðuna til stjórnunar almennt.
Hrunverjarnir töluðu einsog við
munum mikið um hina miklu stjórn-
endur sem allt áttu að vita og kunna.
Allir voru þeir á alls kyns hvatalaun-
um og bónusum. Aðrir áttu að hlýða
leiðsögn þeirra - vafningalaust. Á
Alþingi voru sömu formúlur uppi.
Laun og hlunnindi voru aukin við
ráðherra og stjórnendur, því á þá áttu
aðrir að geta reitt sig.
Meiriháttar og minniháttar
Nú hefur komið á daginn að heppi-
legra hefði verið að virkja marga
en ekki fáa, lýðræðið en ekki ein-
ræðið. Hvað skyldi starfshópurinn
segja um þetta? Jú, talað er fyrir fag-
mennsku við ráðningar, sérstaklega
á stjórnendum. En einmitt þar – hjá
foringjunum er staðnæmst því tek-
ið er fram að „þróa þurfi áherslur í
starfsmannamálum þannig að hún
(stjórnsýslan) veiti stjórnendum
hæfilega umbun og aðhald.“ Hvað
með aðra starfsmenn? Eru það bara
stjórnendur sem eiga að fá umbun
fyrir vel unnin störf? Svolítið minnir
þetta á gamalt frumvarp Sjálfstæðis-
flokksins frá árinu 1996 þar sem tal-
að var um „meiriháttar“ og „minni-
háttar“ starfsmenn í stjórnsýslunni!
Allt á þetta að vera liðin tíð. En nú
þarf að ræða ábendingar starfshóps-
ins. Þær eru umræðugrunnur en
ekki forskrift fyrir framtíðina.
ARON KRISTJÁNSSON þjálfari
Hauka í N1-deildinni, gerði liðið að
Íslandsmeisturum þriðja árið í röð. Það
sem meira er unnu Haukar alla titla
sem í boði voru. Aron kveður nú
Haukana og tekur við Burgdorf í
þýsku úrvalsdeildinni.
FRÁBÆR LEIÐ TIL
AÐ KVEÐJA
Enn er boðuð forræðishyggja
UMRÆÐA 10. maí 2010 MÁNUDAGUR 19
1 VIÐSKIPTI ÁN VÍKINGA Hér á landi er erfitt að eiga viðskipti við fyrirtæki
án þess að þau tengist útrásarvík-
ingunum.
2 STÆRSTI SVARTAMARKAÐUR SUÐUR-AMERÍKU Í borginni Ciudad
del Este í Paragvæ er hægt að kaupa
allt milli himins og jarðar.
3 DRUNUR Í VESTMANNAEYJUM Gosið í Eyjafjallajökli er enn í fullum
gangi og heyrðust drunurnar til
Vestmannaeyja í gær.
4 KVEIKT Í BÍL Á SELFOSSI Eldur kom upp í bíl á Selfossi aðfaranótt
sunnudags. Talið er að kveikt hafi
verið í bílnum.
5 ÚRSKURÐAÐUR Í GÆSLUVARÐ-HALD Karlmaður á þrítugsaldri var
úrskurðaður í viku gæsluvarðhald
vegna gruns um manndráp.
6 HANNES HÓLMSTEINN KALLAR RÁÐHERRA LITLA KARLA Hannes
segir ríkisstjórnina aldrei hafa
státað af jafnlitlum körlum af báðum
kynjum og nú.
7 TALSVERÐAR TRUFLANIR Á FLUGI Truflanir urðu á flugi um allt land í
gær vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN MAÐUR DAGSINS
KJALLARI
„Já, heilmikil. Ég komst ekki í sumarfrí
því flugið féll niður.“
HALLDÓR ÞÓRHALLSON
52 ÁRA MATREIÐSLUMAÐUR
„Já, það hefur vakið minningar frá
Ekvador þaðan sem ég er.“
GLADYS RAMOS
STARFSMAÐUR Á GRUND
„Nei, það hefur ekki haft nein áhrif.“
HELGI BJARNASON
STARFSMAÐUR Í ÍÞRÓTTAHÚSINU
AUSTURBERGI
„Nei, ekki nein áhrif.“
KRISTINN VILHJÁLMSSON
34 ÁRA RAFVIRKI
„Nei, ekkert sérstaklega nema þegar
mökkurinn var hér yfir þá þurfti ég nota
grímuna út af því að ég er með asma.“
MONIKA PÁLSDÓTTIR
64 ÁRA ÖRYRKI
HEFUR ELDGOSIÐ HAFT EINHVER ÁHRIF Á ÞIG?
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
alþingismaður skrifar
„Nú hefur komið á
daginn að heppilegra
hefði verið að virkja
marga en ekki fáa,
lýðræðið en ekki
einræðið.“
Flott sjónarspil Áhorfendur á leik KFR og Árborgar hefðu vart getað fengið betri aðstæður til að horfa á leikinn sem fram fór á
Hvolsvelli á laugardag. Eins og sjá má var veður með besta móti en í baksýn má sjá kraftinn sem enn er í eldgosinu í Eyjafjallajökli.
Leikurinn endaði með sigri KFR, 5-3. MYND ÞORSTEINN JÓNSSON Hver er maðurinn?
„Aron Kristjánsson.“
Hvar ertu uppalinn?
„Í Stykkishólmi og í Hafnafirði.“
Hvað drífur þig áfram?
„Metnaður og lífsgleði.“
Hvar vildirðu helst búa ef ekki á Ís-
landi? „Ég er að fara flytja til Þýskalands
og það verður gaman en ég væri líka til í
að búa í Danmörku.“
Hvaða bók lastu síðast? „Það var
einhver sálfræðibók í þjálfaranáminu.“
Með hverjum heldurðu í enska?
„Liverpool... því miður.“
Var titillinn á laugardaginn sætari
en hinir tveir? „Já, mér fannst það. Það
var alveg virkilega sætt að taka þetta í
oddaleik í frábæru einvígi. Við vorum
búnir að vera í erfiðleikum og Gunnar
Berg var í banni þannig að ýmislegt var á
móti okkur.“
Hvernig vinnur lið alla titla sem í
boði eru? „Með gríðarlegum metnaði
og einbeitingu en það er það sem við
höfum haft í vetur.“
Kveðurðu Hauka með söknuði? „Já,
ég verð að segja það. Það var samt ekki
hægt að fá betri dag til að kveðja en að
taka Íslandsmeistaratitilinn í oddaleik fyrir
framan troðfullt hús. Það var algjör snilld.“
Hefjast nú búferlaflutningar til
Þýskalands? „Já, nú fer maður bara að
huga að því að pakka í gám. Ætli ég flytji
svo ekki út í kringum tíunda júní.“
Er ekki borðleggjandi að ná sama
árangri með Burgdorf? „Nú er maður
að fara í öðruvísi umhverfi. Burgdorf er
lið sem kom á óvart með því að halda sér
uppi í deildinni. Það væri því gaman að
taka liðið á næsta stig og reyna að gera
liðið að stöðugu liði í þýsku úrvalsdeild-
inni en ekki vera alltaf í fallbaráttu til
lokadags.“
Verða Haukar alltaf bestir? „Haukar
eru alltaf toppklúbbur. Í þriðja leiknum
lifnaði félagið við aftur og ef það verður
svona samstaða áfram munu Haukar
alltaf vera á meðal þeirra bestu.“