Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2010, Blaðsíða 16
Verkamannaflokkurinn, undir forystu
Gordons Brown, missti 92 þingsæti í
nýafstöðnum kosningum í Bretlandi
og bendir flest til þess að Brown hætti
sem forsætisráðherra eftir þriggja ára
setu. Frjálslyndir demókratar fengu
57 sæti sem er fimm sætum færra en
í síðustu kosningum. Íhaldsflokkur-
inn er hins vegar ótvíræður sigur-
vegari kosninganna; bætti við sig 98
þingsætum sem varð til þess að Dav-
id Cameron fékk umboð til að hefja
stjórnarmyndunarviðræður.
Frjálsir fái ráðherrastóla
Eftir að niðurstöðurnar urðu ljósar á
föstudag hófust viðræður milli Íhalds-
flokksins og Frjálsyndra demókrata.
Lítið hefur frést af framgangi við-
ræðnanna og hafa Nick Glegg, leið-
togi Frjálsyndra demókrata, og David
Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, lít-
ið viljað gefa út um hvenær ný ríkis-
stjórn verður mynduð.
Stóra málið í viðræðum flokkanna,
og það sem talið er geta siglt þeim í
strand, er breytingar á kosningakerf-
inu. Frjálslyndir demókratar vilja af-
nema svokallaða einmenningskjör-
dæmaskipan en það er eitthvað sem
David Cameron er ekki reiðubúinn
að gera. Hefur hann lagt til að nefnd
verði skipuð til að fjalla um breyting-
arnar á kosningareglum og jafnvel
boðið frjálslyndum demókrötum ráð-
herraembætti.
Að því er fram kom í vefútgáfu Da-
ily Mail í gær er Cameron undir þrýst-
ingi frá öðrum flokksmönnum um
að beygja sig ekki undir kröfur frjáls-
lyndra. Þannig segir Heseltine lávarð-
ur, sem gegndi ráðherraembætti fyrir
Íhaldsflokkinn fyrir margt löngu, að
staða Camerons eftir kosningarnar sé
það sterk að hann þurfi ekki að gefa
tommu eftir í viðræðunum við frjáls-
lynda.Hann muni verða forsætisráð-
herra sama hvernig fer.
Brown gefst ekki upp
Þó svo að útlitið sé svart fyrir Gord-
on Brown hefur hann neitað að gefast
upp. Ríkisstjórn hans situr enn og ætl-
ar hann ekki að segja af sér fyrr en nið-
urstaða er fengin í viðræður Camer-
ons og Cleggs. Hefur Brown boðið
frjálslyndum demókrötum til við-
ræðna ef upp úr viðræðum þeirra við
Íhaldsflokkinn slitnar. Síðdegis í gær
bárust svo fréttir af því að Clegg og
Brown hafi átt fund saman en ekki lá
fyrir á sunnudagskvöld hvað fór þeim
á milli. Ekki er talið ólíklegt að Clegg
hafi verið að upplýsa Brown um gang
viðræðnanna við Íhaldsflokkinn.
Michael Gove, einn af stórlöx-
unum í Íhaldsflokknum, hefur verið
nefndur sem hugsanlegur mennta-
málaráðherra fyrir flokkinn. Á sunnu-
dag sagðist hann þó vera reiðubú-
inn að gefa ráðherraembættið eftir til
frjálslyndra demókrata ef það myndi
hjálpa til við myndum nýrrar stjórn-
ar og þvinga þannig Brown úr Dow-
ningsstræti 10. Það er því ljóst að
Íhaldsmenn eru tilbúnir að ganga
langt til að koma Verkamannaflokkn-
um frá völdum.
Erfitt verkefni
David Cameron hefur verið nokk-
uð brattur í viðtölum við breska
16 MÁNUDAGUR 10. maí 2010 FRÉTTIR
Útlit er fyrir að Gordon Brown, maðurinn
sem setti Ísland á lista með hryðjuverkasam-
tökum, stígi til hliðar eftir að niðurstöður
bresku þingkosninganna urðu ljósar. Íhalds-
flokkurinn undir forystu Davids Camerons
og Frjálslyndir demókratar undir forystu
Nicks Gleggs eiga í viðræðum þessa dagana
um myndun nýrrar ríkisstjórnar.
EINAR ÞÓR SIGURÐSSON
blaðamaður skrifar: einar@dv.is
BLESS, BLESS, BROWN
Virðast Bret-ar vera á þeirri
skoðun að tími Browns
sé liðinn.
Kennari með
kanínufælni
Kennari frá bænum Vechta í Þýska-
landi hefur höfðað mál á hendur
fjórtán ára gömlum nemanda sín-
um eftir að hún teiknaði mynd af
kanínu og skildi hana eftir á borðinu
hjá henni. Það væri vart í frásögur
færandi nema fyrir það að kenn-
arinn þjáist af kanínufælni; verður
logandi hrædd í hvert skipti sem
hún sér kanínu. Konan var nýbúin
að hefja störf í öðrum skóla og hitti
þar fyrir gamlan nemanda sinn sem
sagði samnemendum sínum frá ótta
kennarans. Kennarinn hefur nú farið
fram á háar bætur vegna málsins.
Skuggalegur
kennari
29 ára gömlum íþróttakennara frá
Stuttgart í Þýskalandi hefur verið
hótað uppsögn eftir að í ljós kom að
hann er meðlimur í svæsinni dauða-
rokkhljómsveit. Hljómsveitin sem
um ræðir heitir Debauchery og er
sveitin þekkt fyrir líflega sviðsfram-
komu. Þekktust er hún þó fyrir að
hafa fáklæddar konur á sviðinu sem
eru útaðar í blóði. Kennarinn, sem
heitir Thomas Gurrath, segir að það sé
óskiljanlegt að honum séu settir afar-
kostir vegna málsins. „Ég myndi aldrei
gefa tónlistarferil minn upp á bátinn
bara vegna þess að menntamálayfir-
völd krefjast þess,“ segir hann.
Hættulegt kynlíf
Um það bil átján milljónir Breta, eða
einn af hverjum þremur fullorðn-
um, hafa slasað sig í ástarleikjum
undanfarna tólf mánuði, samkvæmt
nýrri könnun. Flestir hafa tognað,
meitt sig í bakinu eða fengið slink á
hálsinn. Um það bil fimm prósent
sem tóku þátt í könnuninni sögð-
ust hafa meitt sig það illa að þeir
þurftu að taka sér frí frá vinnu. Tvö
prósent aðspurðra viðurkenndu að
hafa beinbrotnað í ástarleikjum. Þá
kom í ljós í könnuninni að hættuleg-
usti staðurinn til að stunda kynlíf á
er sófinn. Í næstu sætum þar á eftir
komu stigar, bílar og sturtur.
Heldur ekki með
Bandaríkjunum
Yfirmaður lögreglunnar í Suður-Afr-
íku á þá ósk heitasta að Bandaríkja-
menn falli snemma úr leik á Heims-
meistaramótinu í knattspyrnu sem
þar fer fram í sumar. Ástæðan er sú
að von er á Barack Obama Banda-
ríkjaforseta til landsins komist liðið í
útsláttarkeppnina og óttast lögreglu-
foringinn, Bheki Cele, álagið sem því
muni fylgja. Fjörutíu og þrír þjóð-
arleiðtogar hafa þegar boðað komu
sína á mótið en Cele segir að álagið
á lögreglumenn muni tvöfaldast
komi Obama til landsins.
Útlitið skiptir meira máli en þjónustan:
Stærri brjóst, meira þjórfé
Gengilbeinur með stór brjóst fá
meira þjórfé frá viðskiptavinum sín-
um en stöllur þeirra sem eru með
lítil eða meðalstór brjóst. Þetta leiðir
rannsókn sem Michael Lynn, próf-
essor við Cornell-háskóla, fram-
kvæmdi meðal 374 gengilbeina.
Rannsóknir hafa áður sýnt að
það sem skiptir mestu máli hjá
kúnnum sé þjónustan en sam-
kvæmt rannsókn Lynn skiptir útlitið
langmestu máli. Það voru ekki ein-
ungis gengilbeinur með stór brjóst
sem fengu hærra þjórfé; ljóshærðar
fengu meira þjórfé en dökkhærðar
og grannar meira þjórfé en feitar.
Lynn segir að rannsóknin sé mik-
ilvæg fyrir vinnuveitendur því með
henni fái þeir betri vísbendingu
um hvaða starfsfólk sé æskilegast
að ráða. „Starfsfólk sem fær meira
þjórfé er líklegra til að endast lengur
í starfi og viðskiptavinir sem greiða
meira þjórfé eru líklegri til að koma
aftur,“ segir hann.
Lynn bendir á raunverulegt
dæmi þessu til staðfestingar. Hoot-
ers-veitingahúsakeðjan í Banda-
ríkjunum nýtur mikilla vinsælda,
ekki síst í ljósi þess að þar starfa ein-
ungis föngulegar gengilbeinur sem
þykja myndarlegri en meðalkonan.
Þar greiða viðskiptavinir að jafnaði
hærra þjórfé en á öðrum veitinga-
húsum.
Lynn segir að hægt sé að yfirfæra
rannsóknina yfir á fleiri þætti dag-
legs lífs og bendir á rannsóknir sem
sýna fram á að aðlaðandi fólk fær
jafnan hærri laun en annað, ekki svo
aðlaðandi, fólk.
einar@dv.is
Downingsstræti 10 Búist er við að
Gordon Brown verði ekki forsætisráð-
herra mikið lengur.
Hærra þjórfé Gengilbeinur með stór brjóst þéna meira en gengilbeinur með lítil
eða meðalstór brjóst.
MYND PHOTOS.COM
Clegg og Cameron Ræða saman þessa
dagana um myndun nýrrar stjórnar.