Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2010, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2010, Blaðsíða 29
SVIÐSLJÓS 10. maí 2010 MÁNUDAGUR 29 Kjóll söngkonunnar Katy Perry á Costume Institute Gala sem fór fram í síðustu viku á Metropolitan-safninu í New York vakti mikla athygli. Ástæðan er sú að klaufin á kjólnum var svo há að það sást alla leið upp í klof söngkonunnar. Erfitt er að greina á myndunum hvort Katy sé klædd í nærbuxur eða sé hreinlega ber- rössuð. Þótt há klauf þyki vissulega kynþokkafull og klassísk í kjólavali kvenna þá er klauf Katy aðeins of mikið af hinu góða. En það var ekki bara klaufin á kjól Katy sem vakti athygli því hún var í upplýstum kjól sem saumuð voru í svokölluð LED-ljós. Katy Perry með himin- háa klauf á kjólnum: KLOBBA- SÝNING KATY HÉLT AFTUR FRAMHJÁ Mel Gibson getur ekki verið trúr: Hin 26 ára gamla Violet Kowal hefur stigið fram og sagst vera ástæðan fyrir því að Mel Gib- son og barnsmóðir hans, hin rússneska Oksana Grigorieva, hafi hætt saman. Kowal, sem er klámmyndaframleiðandi, segist hafa átt í þriggja mánaða löngu ástarsambandi við Gibson. 30.október 2009 eignuðust Gibs- on og Oksana dótturina Luciu en þau hættu saman í apríl. „Sambandsslitin koma mér ekkert á óvart,“ segir Violet í samtali við The Enquir- er. „Það er greinilegt að Mel getur ekki haldið sig við eina konu,“ en Violet segist hafa átt kyn- ferðismök átta sinnum með Gibson árið 2009. Lögfræðingar hans segja hins vegar að ásakanir Violet séu gjörsamlega ósannar. Í apríl 2009 skildi fyrrverandi eiginkona Gibsons, Robyn, við hann en þau voru gift í 28 ár og eiga sjö börn saman. Þau höfðu ekki verið saman í ein þrjú ár þegar skiln- aðurinn gekk í gegn en orðið á götunni þá sagði að framhjáhald Gibsons hefði ver- ið ástæðan. Mel Gibson Virðist ekki geta haldið sig við ein a konu. Katy Perry Brókarlaus eða ekki? Söngkonan Jessica Simpson var einn af aðalgestum góð-gerðarsamkomunnar 2010 Operation Smile Gala sem fram fór í New York á fimmtudag. Samtökin hjálpa börnum um heim allan sem eru með skarð í vör eða klofinn góm. Reynt var að safna eins miklu fé og hægt var til að tryggja börn- um um allan heim nauðsynlegar aðgerir vegna þessa fæðingagalla. Jessica var glæsileg til fara á samkomunni en hún var klædd í kjól frá Carolinu Herrera, skó frá Brian Atwood, með tösku frá Ferragamo og skart frá Sutra. Jessica Simpson: Styrkir gott málefni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.