Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2010, Qupperneq 29
SVIÐSLJÓS 10. maí 2010 MÁNUDAGUR 29
Kjóll söngkonunnar Katy Perry á Costume Institute Gala sem fór fram í síðustu
viku á Metropolitan-safninu í New
York vakti mikla athygli. Ástæðan
er sú að klaufin á kjólnum var svo
há að það sást alla leið upp í klof
söngkonunnar. Erfitt er að greina
á myndunum hvort Katy sé klædd
í nærbuxur eða sé hreinlega ber-
rössuð. Þótt há klauf þyki vissulega
kynþokkafull og klassísk í kjólavali
kvenna þá er klauf Katy aðeins of
mikið af hinu góða.
En það var ekki bara klaufin á
kjól Katy sem vakti athygli því hún
var í upplýstum kjól sem saumuð
voru í svokölluð LED-ljós.
Katy Perry með himin-
háa klauf á kjólnum:
KLOBBA-
SÝNING
KATY
HÉLT AFTUR
FRAMHJÁ
Mel Gibson getur ekki verið trúr:
Hin 26 ára gamla Violet Kowal hefur stigið fram og sagst vera ástæðan fyrir því að Mel Gib-
son og barnsmóðir hans, hin rússneska
Oksana Grigorieva, hafi hætt saman. Kowal,
sem er klámmyndaframleiðandi, segist hafa
átt í þriggja mánaða löngu ástarsambandi
við Gibson. 30.október 2009 eignuðust Gibs-
on og Oksana dótturina Luciu en þau hættu
saman í apríl.
„Sambandsslitin koma mér ekkert á
óvart,“ segir Violet í samtali við The Enquir-
er. „Það er greinilegt að Mel getur ekki haldið
sig við eina konu,“ en Violet segist hafa átt kyn-
ferðismök átta sinnum með Gibson árið 2009.
Lögfræðingar hans segja hins vegar að ásakanir
Violet séu gjörsamlega ósannar.
Í apríl 2009 skildi fyrrverandi eiginkona
Gibsons, Robyn, við hann en þau voru gift
í 28 ár og eiga sjö börn saman. Þau höfðu
ekki verið saman í ein þrjú ár þegar skiln-
aðurinn gekk í gegn en orðið á götunni þá
sagði að framhjáhald Gibsons hefði ver-
ið ástæðan.
Mel Gibson Virðist ekki geta haldið sig við ein
a konu.
Katy Perry
Brókarlaus
eða ekki?
Söngkonan Jessica Simpson var einn af aðalgestum góð-gerðarsamkomunnar 2010
Operation Smile Gala sem fram fór
í New York á fimmtudag. Samtökin
hjálpa börnum um heim allan sem
eru með skarð í vör eða klofinn
góm. Reynt var að safna eins miklu
fé og hægt var til að tryggja börn-
um um allan heim nauðsynlegar
aðgerir vegna þessa fæðingagalla.
Jessica var glæsileg til fara á
samkomunni en hún var klædd
í kjól frá Carolinu Herrera, skó
frá Brian Atwood, með tösku frá
Ferragamo og skart frá Sutra.
Jessica Simpson:
Styrkir gott
málefni