Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Side 14
Dísilolía Algengt verð verð á lítra 198,6 kr. verð á lítra 198,6 kr. Algengt verð verð á lítra 198,4 kr. verð á lítra 198,4 kr. Algengt verð verð á lítra 199,9 kr. verð á lítra 199,7 kr. bensín Höfuðb.svæðið verð á lítra 198,3 kr. verð á lítra 198,3 kr. Bæjarlind verð á lítra 198,4 kr. verð á lítra 198,4 kr. Algengt verð verð á lítra 198,6 kr. verð á lítra 198,6 kr. DAuðAslysin eru Dýr Skýrsla sem gerð var fyrir danska samgönguráðuneytið leiðir í ljós að hvert dauðaslys í umferðinni kostar samfélagið jafnvirði 356,2 milljóna íslenskra króna. Frá þessu er greint í Motor, tímariti FDM í Danmörku en það er systurfélag FÍB á Íslandi. FÍB tekur málið upp. Þar segir að útreikningarnir sýni að meðal- kostnaður á hvern þann sem slas- ast alvarlega í umferðarslyi sé um 62 milljónir króna og hvert minni háttar slysatilfelli kosti að meðal- tali 9,3 milljónir króna. Í útreikn- ingunum eru lagðir til grundvallar þættir eins og kostnaður vegna lög- reglu og björgunarliða, kostnaður í heilbrigðiskerfinu vegna þjónustu lækna og hjúkrunarliðs, vinnu- og framleiðslutap, eignatjón og vel- ferðartjón. BArA Heimskuleg erinDi? n „Sömu sögu er ekki að segja af starfsfólki Ríkisskattstjóra. Þetta fólk þyrfti á námskeiði hjá Fæðingaror- lofssjóði í mannlegum samskipt- um og kurteisi að halda. Maður fær á tilfinninguna að öll erindi séu heimskuleg og ekki þess virði að ómaka þetta mikilvæga fólk. Spurn- ing um að lækka niður í yfirlætistóninum,“ sagði hún en fyrir fáeinum dögum fékk DV ann- að last sem sneri að sömu stofnun. Efnis- lega var það sambærileg kvörtun. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS góð við mæður á „HormónAflippi“ n „Starfsfólkið hjá Fæðingarorlofs- sjóði er alltaf boðið og búið og ekk- ert nema almennilegheitin,“ sagði ung kona sem hringdi í DV. Hún bætti við: „Þau vita greinilega að við- kvæmar konur á hormónaflippi eru meirihluti þeirra sem hringja inn. Það skiptir ekki máli hvert erindið er, þjónustan er allt- af góð og það er allt gert til að hjálpa manni,“ sagði hún en hafði ekki eins góða sögu um skattinn að segja – sjá lastið að neðan. LOF&LAST 14 neyTendur UmSjóN: baldur guðmundsson baldur@dv.is 15. nóvember 2010 mánudagur ÁFengiSLÁSAr í vörubíLA Stjórnendur bjórfram- leiðandans Carlsberg hafa brugðið á það ráð að setja áfengislása í alla bíla fyrirtækisins. Þeir segja að borið hafi á því að áfengið hafi ekki aðeins verið á pallinum heldur líka í blóði ökumannanna. FÍB greinir frá. Þar segir að mikil reiði hafi blossað upp meðal bílstjóra og verkalýðsfélaga þeirra þegar reynt hafi verið að láta bílstjórana blása í áfengismæla. Þeir fóru í verkfall til að endurheimta réttinn til að drekka bjór í vinnunni eins og þeir hefðu alltaf gert. Carlsberg brást við þessu með því að setja lása í alla bíla þannig að bílarnir fara ekki í gang nema bílstjórarnir blási og reynist edrú.e L d S n e y T i Iðnaðarframleidd matvæli mega ekki innihalda meira en 2 grömm af transfitusýrum í hverjum 100, samkvæmt drögum að reglugerð Jóns bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Reglugerðin nær ekki til dýraafurða og mun því ekki koma í veg fyrir að bakkelsi á borð við kleinur verði steiktar upp úr tólg eða annarri dýrafitu. Væntanleg reglugerð Jóns Bjarna- sonar, sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra, sem takmarka á transfitusýrur í matvælum kemur í veg fyrir að fólk geti keypt mat- væli sem innihalda meira en tvö grömm af transfitusýrum í hverj- um hundrað. Reglugerðin, sem er í smíð- um í ráðuneytinu, mun þó ekki ná til afurða dýra. Samkvæmt ráðu- neytinu er óvíst hvar línan verður dregin en talað er um að iðnaðar- framleiddar vörur megi ekki inni- halda meira en áðurnefnt magn. Ef að líkum lætur mun fólk því áfram geta keypt tólg og steikt upp úr henni kleinur og annað góð- gæti, þó slík matvæli verði ekki á boðstólum í búðum. Í tólg eru 4,3 grömm af transfitusýrum í hverj- um 100 grömmum. Ekki í fiskfitu Transfitusýrur myndast við herð- ingu einómettaðrar fitu og eru því til staðar í öllu smjörlíki sem gert er úr hertri jurtafeiti eða hertu lýsi. Þær er hins vegar ekki að finna í jurtaolíum eða fiskfitu. Rannsókn- ir hafa sýnt að neysla á matvörum sem innihalda transfitusýrur eykur líkur á hjarta- og æðasjúkdómum. Því er ráðlagt að fólk borði eins lít- ið af transfitusýrum úr iðnaðarhrá- efni og hægt er en einnig er ráðlagt að takmarka neyslu á mettuðum fitusýrum, eða harðri fitu. Reglu- gerð Jóns er ætlað að draga úr neyslu Íslendinga á transfitusýr- um, að því er fram kemur í tilkynn- ingu, en kemur þó ekki í veg fyrir að fólk neyti heimagerðra matvæla sem innihalda hátt hlutfall trans- fitusýra. Þeim, sem neyta mikils magns heimagerðra, djúpsteikt- ra afurða úr tólg eins og kleina og ástarpunga, getur því áfram stafað hætta af transfitusýrum. dönsk fyrirmynd Meðalneysla transfitusýra mæld- ist mun hærri á Íslandi en í ná- grannalöndunum árið 1995, eða 5,4 grömm á dag. Manneldis- ráð Íslands framkvæmdi athugun í hitteðfyrra sem leiddi í ljós að meðalneyslan var komin niður í 3,5 grömm á dag. Til samanburð- ar má nefna að í Danmörku var meðalneyslan á sama tíma eitt til tvö grömm á dag en reglugerð Jóns Bjarnasonar er einmitt unnin að danskri fyrirmynd. „Talið er að meðalneysla Íslendinga á trans- fitusýrum hafi farið lækkandi á undanförnum árum en jafnframt eru vísbendingar um að ákveðinn hluti fólks neyti meira af trans- fitusýrum en þau viðmið sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur birt,“ segir í frétt á vef ráðu- neytisins. Þess má geta að þrjátíu og sex prósent þeirra Íslendinga sem lét- ust í fyrra dóu vegna sjúkdóma í blóðrásarkerfi, að því er fram kem- ur í tölum frá Hagstofunni. Það er sama hlutfall og árið áður og raun- ar svipað hlutfall og verið hefur undanfarin ár. Neysla á harðri fitu og hátt kólesteról er einn orsaka- þáttur sjúkdóma í blóðrásarkerfi. Þá má einnig taka fram að Geir Gunnlaugsson landlæknir hefur látið þá skoðun sína í ljós að blátt bann eigi að leggja við transfitu- sýrum í matvælum. 18 grömm af transfitusýrum Matís framkvæmdi í fyrra fitusýru- greiningar á 51 sýni af matvörum. Lögð var áhersla á að kanna magn transfitusýra í unnum matvælum og því voru tekin sýni af smjörlíki, bökunarvörum, djúpsteikingarfeiti, mat frá skyndibitastöðum, ís, kexi, snakki og sælgæti. Þær leiddu í ljós að í smjörlíki voru allt að 18 grömm af transfitusýrum í hverjum hund- rað, örbylgjupopp innihélt um sex grömm, eins og sú tegund kleina sem verst kom út. Nánar má sjá niðurstöðurnar í meðfylgjandi töflu en ekki er útilokað að framleiðend- ur hafi breytt uppskriftum sínum til að minnka hlutfall transfitusýra frá því rannsóknin var gerð. Gert er ráð fyrir að reglugerð ráðherra muni kveða á um að framleiðendur fái aðlögunarfrest áður en þeim verður gert að minnka magn transfitusýra í vör- um sínum. baldur guðmundsson blaðamaður skrifar: baldur@dv.is Hættulegur Heimabakstur Geir Gunnlaugs-son landlæknir hefur látið þá skoðun sína í ljós að blátt bann eigi að leggja við trans- fitusýrum í matvælum. n Transfitusýrur myndast þegar olía er hert. Herðing olíu er aðferð sem notuð er í matvælaiðnaði til að gera fitu harðari þannig að vörurnar fái ákveðna eiginlega sem sumir telja æskilega. Að auki geta transfitusýrur myndast þegar olía er hituð óæskilega mikið, t.d. við steikingu. Transfitusýrur myndast einnig á náttúrulegan hátt í vömb jórturdýra, þegar bakteríur sem þar er að finna breyta ómettaðri fitu í transfitusýrur. n Faraldsfræðilegar rannsóknir hafa sýnt að neysla á matvörum sem innihalda transfitusýrur eykur líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, einkum vegna áhrifa þeirra til hækkunar á LDL- kólesteróli í blóði (slæma kólesterólinu) og lækkunar á HDL-kólesteróli (góða kólesterólinu). n Hert fita er notuð við framleiðslu margra matvæla og því er transfitusýrur víða að finna. Einkum er um að ræða matvörur þar sem bökunarsmjörlíki eða djúpsteikingarfeiti, sem inniheldur herta fitu, eru notuð við framleiðslu. – Lýðheilsustöð Hvað eru transfitusýrur? – Magn í hverjum 100 grömmum. n Smjörlíki Olivía 18,1 g. n Kleinur Gæðabakstur 6,1 g. n Örbylgjupopp Pop Secret 5,9 g. n Kleinur Ömmubakstur 2,9 g. n Smjörlíki Akra 2,8 g. n Örbylgjupopp Richfood Light 2,2 g. n Smjörlíki Kjarna 1,7 g. n Smjörlíki mH 0,4 g. n Kleinur myllan 0,1 g. n Örbylgjupopp First Price 0,1 g. Transfitusýrur Tólg verður áfram á boðstólum Reglugerð jóns Bjarnasonar nær að líkindum ekki til tólgar eða annarra dýraafurða. mynd phoTos.com

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.