Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Blaðsíða 29
Leikstjórinn Christopher Nolan leitar nú að aðalleik-konum fyrir þriðju mynd-
ina sína um grímuklæddu hetjuna
Batman. Sú heitir The Dark Knight
Rises og verður jafnframt síðasta
myndin í röðinni. Samkvæmt hin-
um ýmsu miðlum eru nú sex stór-
leikkonur sem koma til greina í
tvö hlutverk. Það eru þær Anne
Hathaway, Rachel Weisz, Naomi
Watts, Blake Lively, Natalie Port-
man og Keira Knightley.
Allt eru þetta frábærar leikkon-
ur en hlutverkin sem eru í boði eru
mjög ólík. Annars vegar ástkona
Leðurblökumannsins og hins veg-
ar illmenni og andstæðingur hans.
Sem fyrr er það Christian Bale
sem fer með hlutverk Batmans. Þá
munu þeir Morgan Freeman, Mi-
chael Caine og Gary Oldman allir
verða á sínum stað.
Það ríkir mikil eftirvænting
varðandi það hvaða illmenni
verða í myndinni en hinir ýmsu
óþokkar hafa verið nefndir til sög-
unnar. Nolan hefur gefið það út
að myndin verði í þrívídd en það
hefur ekki lagst vel í aðdáendur.
Nolan fullvissar þá þó um að
myndin verði einstök í útliti og
að þar muni bíógestir sjá eitthvað
alveg nýtt. Myndin verður sýnd
sumarið 2012.
mánudagur 15. nóvember 2010 sviðsLjós 29
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Christopher
Nolan leitar að
aðalleikkonum
fyrir næstu Bat-
man-mynd:
Velur úr
stórstjörnum
Nolan og Bale Hafa gert það
gott með Batman-myndunum.
John Hamm, betur þekktur sem sögupersónan Don Draper í Mad Men-þáttaröðinni, hefur verið
kosinn kynþokkafyllsti karlmaður
heims af tímaritinu Star.
Þetta er ekki fyrsti titillinn í þessa
veru sem Hamm hlýtur. Hann var
kosinn kynþokkafyllsti maður árs-
ins 2007 á salon.com og nefndur sem
einn af kynþokkafyllstu mönnum
heims í People Magazine. GQ stillti
kappanum upp á forsíðu í septem-
bermánuði og afhenti honum alþjóð-
legu „herraverðlaunin“ 2010. Að sögn
aðstandenda blaðsins seldist blaðið
eins og heitar lummur. „Megan Fox
laut í lægra haldi fyrir forsíðuefninu
John Hamm,“ sagði ritstjórinn.
Hamm hefur verið á föstu með
leikkonunni og handritshöfundinum
Jennifer Westfeldt í meira en 10 ár og
því geta konur gleymt því að kaupa
sér farmiða til Los Angeles í von um
að heilla kappann. Hamm er sérstak-
ur golfáhugamaður og leikur tennis
sér til skemmtunar.
Í þáttunum Mad Men reykir Don
Draper hverja sígarettuna á eftir ann-
arri. Reykingar eru þó ekki hluti af
lífsstíl hans og hætti hann reyndar að
reykja 24 ára. Það eru því ekki alvöru
sígarettur sem John Hamm reykir
heldur jurtasígarettur.
Don Draper heillar Sjarmi fimmta
áratugarins bræðir hjörtu kvenna. John
Hamm sem leikur Don Draper er kosinn
kynþokkafyllstur trekk í trekk.
Kynþokkafyllsti
karlmaður heims
mad men-stjarnan John Hamm
heldur áfram að heilla konur:
John og kærastan John og Jennifer
hafa verið saman í meira en 10 ár
Michael Clarke Duncan og Omarosa:
Jakuxinn Michael Clarke Duncan
og Omarosa Manigault-Stallworth
eiga von á barni saman. Duncan
er þekktastur fyrir hlutverk sitt í
myndinni The Green Mile þar sem
hann lék aðalhlutverkið á móti Tom
Hanks en Omarosa vakti mikla at-
hygli í þáttum Donalds Trump, The
Apprentice, á sínum tíma. Þá aðal-
lega fyrir mjög umdeilda framkomu
og frekju. Omarosa varð í kjölfarið
konan sem Bandaríkjamenn elsk-
uðu að hata.
Duncan, sem er yfirleitt kallaður
Big Mike, leikur í myndinni The Riot
sem kemur út á næsta ári. Íslands-
vinurinn Ron Perlman leikur þar að-
alhlutverkið á móti honum.
Eiga von á barni
Michael Clarke
Duncan og
Omarosa Ekki er
langt síðan þau
byrjuðu saman
en þau eiga von á
barni.
Glæsilegur hópur Anne Hathaway, Rachel Weisz, Naomi Watts, Blake
Lively, Natalie Portman og Keira Knightley.