Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Blaðsíða 20
Fiðrað kókaín Græna ljósið slær enn og aftur upp mikilli kvikmyndaveislu og nú fara
herlegeitin fram í Bíó Paradís. Aðalmynd veislunnar er Feathered Cocaine, íslensk heimilarmynd sem
hefur vakið heimsathygli. Kvikmyndagerðarmennirnir Þorkell og Örn Marinó hafa unnið að þessari
mynd árum saman og ferðast víða um heim. Myndin var frumsýnd á Tribeca-kvikmyndahátíðinni
í New York í vor. Olíufurstarnir í Persaflóanum eru helteknir af veiðifálkum og borga allt að einni
milljón dala fyrir góðan fugl. En það eru fleiri en olíufurstarnir sem stunda fálkaveiðar: Osama bin
Laden er heltekinn fálkaveiðimaður og notar fálkana til fjármögnunar á al-Kaída. Í Fálkasögu er
skyggnst inn í lokaðan heim sem örfáir aðilar í veröldinni hafa haft aðgang að. Umhverfisvernd,
heimspólitík og hryðjuverk fléttast saman í þessari ótrúlegu sögu.
20 fókus 15. nóvember 2010 mánudagur
Fordrykkur á
Forsýningu
Mojito er nýtt, íslenskt leikverk eftir
leikskáldið Jón Atla Jónasson sem
verður forsýnt í Tjarnarbíói á þriðju-
dagskvöldið. Söguþráðurinn mynd-
ar hliðstæðu við atburði efnahags-
hrunsins. Tveir menn hittast fyrir
tilviljun og annar þeirra fer að rifja
upp heimsókn sína á indversk/pak-
istanskan veitingastað í Reykjavík
sem endaði með ósköpum. Glös
voru brotin, líka borð og stólar.
Slagsmál brutust út og grátur og
gnístran tanna fylgdu í kjölfarið. Hér
er á ferðinni glænýtt, bráðfyndið og
sjóðandi heitt leikverk úr íslensk-
um raunveruleika. Og að sjálfsögðu
er spurningin hvort ískaldur Mojito
nægi til að kæla blóðið eitthvað nið-
ur. Gestir fá fordrykk fyrir sýning-
una, væntanlega mojito!
HöFundar
kynntir
Bókasafn Seltjarnarness held-
ur sína árlegu höfundakynn-
ingu þriðjudaginn 16. nóvem-
ber klukkan 20.00. Kynningarnar
hafa verið vel sóttar undanfar-
in ár og eru orðnar fastur liður
hjá Seltirningum. Kynnt verða
verk misreyndra höfunda. Frá
byrjanda til verðlaunahöfunda
og söguformin eru einnig ólík.
Allt frá ævisögu, smásagnasafni,
spennusögu og til skáldsögu. Að
þessu sinni lesa fjórir höfundar
úr bókum sínum og taka þátt í
umræðum. Þeir eru Árni Þórar-
insson, Bragi Ólafsson, Guðni Th.
Jóhannesson og Sigríður Péturs-
dóttir. Hjalti Snær Ægisson bók-
menntafræðingur stjórnar um-
ræðum í framhaldi af lestrinum.
Hvað Heitir lagið?
„Þó að leiðin sé
þyrnum stráð, við
látum það ekki á
okkur fá.“ svar: Gakktu alla leið – Hjálmar
Til að fagna nýútkominni geislaplötu,
Best of Bang Gang, mun hljómsveit
Barða Jóhannssonar, Bang Gang,
halda tónleika í Þjóðleikhúsinu á
þriðjudagskvöld. Mun sveitin leika
sín þekktustu lög og eins munu fjöl-
margir góðir gestir stíga á svið með
sveitinni. „Þetta eru allt miklir leyni-
gestir,“ segir Barði. Þó er líklegt að vís-
bendingar um þá sé að finna í auka-
efni sem fylgir með nýútgefinni plötu
minni.“ Barði vísar í aukadisk sem
fylgir með samansafni af bestu lög-
um sveitarinnar þar sem þekktir flytj-
endur landsins gera lög Bang Gang að
sínum eigin. Þeirra á meðal er hljóm-
sveitin Dikta, Bloodgroup, Mammút,
Singapore Sling, Daníel Ágúst, Eberg
og Páll Óskar.
Aðspurður hvaða lög honum þyki
vænst um segir hann að sér þyki vænt
um öll þau lög sem hann hefur gefið
út. Hann sé ekki einn þeirra tónlistar-
manna sem gefi út disk vegna þess að
„það sé kominn tími á það“, þeir sem
hugsi þannig ættu endilega að finna
sér eitthvað annað að gera. „Ég gef út
plötu þegar ég er ánægður með efn-
ið sem ég hef samið. Lögin sem ég gef
út hafa farið í gegnum mikla síu, ef til
vill hef ég samið allt að 20–30 lög og 11
þeirra enda á plötu.“
Barði situr ekki auðum hönd-
um þessa dagana og vinnur að því
með samstarfskonu sinni Kerin Ann
að semja óperu. Hann segist sjald-
an hlusta á óperu og að í rauninni
sé það ástæðan fyrir því að hann
taki að sér verkefnið. Það sé krefj-
andi. „Við reynum að hafa söguþráð-
inn skemmtilegan og viljum ekki að
söngvarinn syngi hátt eins og það sé
verið að pynta hann, rauður í fram-
an af áreynslu. Við viljum fara aðr-
ar leiðir.“ Barði og Kerin Ann munu
opna óperuhátíð í Normandí með
verkinu og ferðast svo með sýning-
una til Parísar og víða um Frakk-
land. „Síðan er spurning hvort það sé
áhugi fyrir verkinu hér,“ segir Barði.
Útgáfutónleikar Bang Gang í Þjóðleikhúsinu á þriðjudagskvöld:
Stórtónleikar Bang Gang
Leynigestir á stórtónleikum Barða í Bang Gang þykir vænt um öll lögin sín.
ný veFsíða
Vesturport hefur opnað nýja heim-
síðu á slóðinni vesturport.com. Á
síðunni er hægt að skoða hundruð
ljósmynda, tugi myndbanda, fréttir
og margt annað sem tengist leik-
hópnum og ferðalögum hans um
allan heim. Ákveðið var að endur-
hanna síðuna eftir að Vesturport
vann til Evrópsku leiklistarverðlaun-
anna. Þetta er í 12. skiptið sem Sam-
band leikhúsa í Evrópu veitir verð-
laun fyrir frumleika og nýsköpun í
leiklist og er verðlaununum ætlað
að ýta undir nýja strauma og stefnur
innan leiklistar í Evrópu. Verðlaunin
verða afhent í St. Pétursborg í Rúss-
landi í apríl á næsta ári.
Mikið fjaðra-
fok var í aðdrag-
anda þessarar
heimildamynd-
ar. Vinnufélagar
núverandi borg-
arstjóra höfðu
miklar áhyggj-
ur af útkomunni
sem er nú orðin
opinber. Hér er
sögð lygileg saga
af innkomu Jóns
Gnarr og Besta
flokksins í borgarpólitíkina. Bak-
grunnur hans er ítrekaður með inn-
skotum af grínefni hans með Tví-
höfða og Fóstbræðrum. Farið er í
ástæðurnar sem liggja að baki, per-
sónulegt líf Jóns kemur við sögu en
fyrst og fremst hugsjónirnar sem
búa að baki og jarðvegurinn í kjölfar
hrunsins sem bauð upp á möguleik-
ann að sýna gamla apparatinu hvað
væri að frétta. Hér er svipt hulunni af
framboði sem var uppspretta enda-
lausra vangaveltna og samsæris-
kenninga.
Hreinskilinn Jón Gnarr segir
stuttlega frá óvenjulegum uppvexti
sem hann auðveldar sér til muna í
krafti kímnigáfu. Ætti það ekki að
hjálpa okkur öllum að rúlla gegnum
ástandið eins og það blasir við okk-
ur í dag í krafti þess að geta hlegið að
sem flestu? Við sjáum hvernig vel-
gengni flokksins fer fram úr vænting-
um og hlátur andstæðinganna breyt-
ist í djúpan pirring. Hvernig Jón fer á
skjön við það drepleiðinlega format
sem er á umræðunni og hneyksl-
ar nálæga með yfirlýsingum um hið
hokþreytta andrúmsloft á nefndar-
fundum borgarinnar.
Jón Gnarr meikar alveg sens
þótt það sé vissulega fyndið að nota
Múmínfjölskylduna í líkingar hans
um aðlögun nýbúa. Myndin sýnir
það sem fólk hrífst af í framkomu
Jóns en finnst skorta hjá atvinnu-
pólitíkusum, hvað hann er hrein-
skilinn, opinn og venjulegur maður.
Hann talar um veru sína á barna-
geðdeild, vandræðaheimilum og
svo flakka með hlutir eins og frá-
sagnir af krakkreykingum og strippi
á hommaklúbb sem menn þurfa
endilega ekki að leggja trúnað á. Að-
almálið er að Jón þykist ekki vita allt
eins og almennt þykir flott í stjórn-
málum. Hann hóar heldur í ráð-
gjafa/aðstoðarmenn sem hvort eð
er eru á kaupi hjá borginni.
Hið meinta einelti sem hann var
sakaður um af andstæðingum sín-
um í borgarmálunum er að mínu
mati ekki til staðar hér. Það heitir
ekki einelti þegar beyglaða barnið,
nýr í bekknum, sparkar upp á við og
djöflast í risunum öllum jafnt.
Löng halarófa af skemmtilegu
fólki kemur við sögu, Þorsteinn Guð-
mundsson fær frítt spil á kosninga-
fundi í Grafarvogi sem er fyrst og
fremst fyndið. Myndin er leidd áfram
af góðu grínfíneríi svo auðvitað er
myndin mikið til háð því að fólki
finnist Jón Gnarr fyndinn. Sá hópur
er ansi stór en aðalmálið er að grunn-
urinn í myndinni er mjög réttmæt
stúdía á því sem ýmsir stjórnmála-
fræðingar kalla ein allra merkileg-
ustu kosningaúrslit Íslandssögunnar.
Við erum að tala um að fjórflokkur-
inn mun reyna að losna við Gnarr
og Besta flokkinn en engu að síður
taka mark á skilaboðunum og læra af
þeim vonandi.
Hljóðið er mjög gott sem skiptir
öllu máli í heimildamynd af þessu
tagi. Grafík og hraði eru fín þótt það
megi vissulega stytta myndina þótt
ekki væri nema um korter. Þegar liðið
er á myndina koma kaflar sem mætti
hæglega grisja og þannig styrkja
myndina. Að öðru leyti er ég sáttur
þótt ég hafi aldrei nennt að horfa á
The Wire. Myndin hefur eðlilega al-
þjóðlega skírskotun og gæti hæglega
farið víða. Réttast væri að undirbún-
ingur væri hafinn á Gnarr 2 – Alþingi,
Gnarr 3 – forsetaembættið og jafnvel
Gnarr 4? Gnarr er helvíti hressandi
mynd. Án gríns!
gnarr
Heimildamynd
Leikstjórn: Gaukur Úlfarsson.
94 mínútur
erpur
eyvindarson
skrifar
án gríns
Gnarr „Réttast væri að undir-
búningur væri hafinn á Gnarr
2 – Alþingi, Gnarr 3 – forsetaemb-
ættið og jafnvel Gnarr 4? Gnarr er
helvíti hressandi mynd. Án gríns!“