Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Blaðsíða 22
22 lífsstíll 15. nóvember 2010 mánudagur
S
amkvæmt nýrri rannsókn
London School of Econ-
omics and Political Sci-
ence eru skilnaðir fátíð-
ari í fjölskyldum þar sem
karlmaðurinn tekur þátt
í húsverkum, innkaupum og barna-
uppeldi. Rannsóknin náði til 3.500
breskra hjóna og birtist í tímaritinu
Feminist Economics. Niðurstöðurn-
ar kollvarpa fyrri kenningum um að
hjónabandið sé stöðugast ef karlmað-
urinn sér um að skaffa á meðan kon-
an hugsar um heimili og fjölskyldu.
Það hvort eiginkonan væri útivinn-
andi eða heimavinnandi hafði ekki
mælandi áhrif á útkomuna.
Svíar líklegastir til að skilja
Samkvæmt lista samtaka Americans
for Divorce Reform eru Svíar líkleg-
astir allra jarðarbúa til að skilja en
meira en helmingur allra hjónabanda
í Svíþjóð endar með skilnaði (54,9%).
Ísland er í 16. sæti á listanum með
skilnaðarhlutfallið 39,5%. Banda-
rískur pistlahöfundur segir banda-
ríska fjölmiðla draga upp afar glyðru-
legt orðspor af sænskum konum sem
hann segir rangtúlkun. Sænskar stúlk-
ur séu upp til hópa íhaldssamar. Há
tíðni skilnaða sé frekar sænska hug-
takinu „lagom“ um að kenna en laus-
leg þýðing á orðinu gæti verið „allt er
gott í hófi“. Svíar séu ekkert að stressa
sig á hlutunum sem er hugarfar sem
smitast út í ástarsambönd þeirra. Ef
vandamál koma upp, sem óhjákvæm-
lega gerist, gefast þeir upp í stað þess
að reyna að taka á erfiðleikunum.
Makanum skipt út
Annar óþekktur bloggari útskýrir
háa skilnaðartíðni Svía út frá reynslu
þeirra á hlutum sem ekki eru byggð-
ir til að endast, samanber húsgögn
IKEA og föt úr H&M. Vörumerk-
in tengjast hugtökum eins og „nú-
tímaleg“, „trendí“ og „flott“ en einnig
orðunum „einnota“, „ódýr“, „bráða-
birgða“ og „hverful“. Viðskiptavinir
IKEA og H&M séu fólk sem er með á
nótunum og leiti eftir snöggu fixi. Það
veit hvað er inn og hvað er út og skipta
hratt út hlutum sem detta úr móð fyr-
ir nýjasta nýtt án þess að depla auga.
Það, útskýrir bloggarinn, gæti ver-
ið vandamálið. Hjónabandið á ekki
að vera einnota. Makanum á ekki að
skipta út um leið og sætari eða ríkari
kostur skýtur upp kollinum. Þriðja
mögulega útskýringin gæti snúist um
sænska velferðarkerfið. Kerfið sjái svo
vel um einstæða foreldra og því þurfi
hjón ekki á hvort öðru að halda fjár-
hagslega.
Tími, kynlíf og peningar
Rannsókn Creighton-háskólans í
Kaliforníu gefur til kynna að lítill tími,
skortur á kynlífi og ágreiningur með
peninga spili mestan þátt í skilnaði
hjóna. Rannsóknin tók annars veg-
ar á skilnaði hjóna undir 29 ára aldri
og hins vegar þeirra sem voru komn-
ir yfir þrítugt. Þau atriði sem reyndust
viðamest í ákvörðun yngri hjóna um
að slíta hjónabandinu voru; skuld-
ir sem einstaklingar komu með inn í
sambandið, fjárhagsleg staða þeirra,
erfiðleikar við að ná jafnvægi milli
fjölskyldu og vinnu og skortur á kyn-
lífi. Eldri hópurinn kenndi sömu hlut-
um um en að auki tíðum rifrildum og
ágreiningi vegna skiptingu og ábyrgð-
ar á heimilsverkum. Önnur algeng
óyfirstíganleg vandamál mældust at-
vinnuleysi eiginmanns og erfið sam-
skipti við maka, foreldra eða tengda-
fjölskyldu.
Eru vandamál
í hjónabandinu?
ný rannsókn London School of Economics and Political Science gefur til kynna að hjón sem deila með
sér heimilisverkum og uppeldi barna séu ólíklegri til að skilja en þegar eiginmaðurinn sér um að skaffa
á meðan konan hugsar um fjölskylduna. Svíar eru líklegastir allra þjóða til að skilja. Sumir útskýra háa
skilnaðartíðni þessara frænda okkar út frá áralangri reynslu þeirra á hlutum sem eru
ekki byggðir til að endast, aðrir kenna sænska velferðarkerfinu um.
1Vertu skuldbundin/n skuldbindingunniHjón sem haldast gift í áratugaraðir
taka heit sín alvarlega. „Þar til dauðinn
aðskilur okkur“ þýðir nákvæmlega það.
Skilnaður kemur einfaldlega ekki til
greina. Þessi hjón hlaupa ekki til lögfræð-
inga um leið og óhjákvæmileg togstreita
og vandamál koma upp. Þau takast á við
erfiðleikana í sameiningu.
2 Gefðu allt sem þú geturHjón í löngu farsælu hjónabandi vinna ekki af hálfum huga að
sambandinu. Báðir aðilar leggja sig 100
prósent fram og treysta á að hitt geri
það líka.
3 Vertu þúSetningin „þú fullkomnar mig“ er aðeins rómantísk í ævintýraheimi
bíómyndanna. Löng og farsæl hjóna-
bönd eru skipuð tveimur sterkum og
sjálfstæðum einstaklingum sem hafa jafn
mikinn áhuga hvor á hinum. Hvor um
sig á sína vini, áhugamál og hugðarefni.
Þessi hjón líta ekki á sjálf sig sem hvort
sinn helminginn heldur tvær heilar
einingar sem styrkja hvora aðra.
4 Gefðu makanum tímaAðskild áhugamál þurfa ekki að þýða aðskilin líf. Gefðu þér tíma
til að kynnast hugðarefnum makans og
kynnast hans vinum.
5 Þið eruð liðHjón sem hafa verið gift í langan tíma kunna að meta hvort annað.
Þau upplifa jafnrétti í sambandinu.
Jafnrétti þarf ekki að þýða nákvæmlega
eins líf og sömu verkefni og skyldur
heldur verður að ríkja skilningur og sátt
varðandi hlutverk, ábyrgð og ákvarðan-
artöku.
6 Lærðu að rífast í góðuÖll pör lenda í ágreiningi. Hjón í farsælu hjónabandi eru í sama
liðinu og takast á við vandamálin saman
í stað þess að takast á við hvort annað.
Þegar þau eru ósammála fara þau eftir
fyrirfram ákveðnum reglum. Haltu þér
við efnið og hlustaðu á það sem makinn
hefur að segja. Forðastu ljót uppnefni og
ekki þráast við að hafa rétt fyrir þér, sama
hvað það kostar.
7 Ekki láta litlu hlutina pirra þig Hjón í löngu farsælu hjónabandi líta fram hjá litlu atriðunum. Þau
vita að það er óraunhæft að búast við
fullkomnun. Litlir kækir og óvani eru
einmitt það – eitthvað lítið.
8Passaðu litlu atriðinÁ hinn bóginn vita þeir sem ætla sér að vera giftir sama einstakl-
ingnum út ævina að mörg lítil atriði geta
orðið að stórum vandamálum yfir langan
tíma. Reyndu að vinna á eigin kækjum
og óvana. Skoðaðu og reyndu að breyta
þeim atriðum sem þú veist að fara í
taugarnar á maka þínum en hafðu í huga
að enginn er fullkominn.
9 Fylgdu „gylltu reglunni“Komdu fram við makann eins og þú vilt að hann komi fram við þig.
Ef þú kannt að meta kærleika og virðingu
skaltu tileinka þér kærleika og virðingu í
samskiptum þínum við makann. Það er
ekkert pláss fyrir tvískinnung í hjóna-
bandi. Ef þú vilt geta treyst makanum
vertu viss um að makinn geti treyst þér.
10 Vertu tryggasti aðdáandinnAllir þurfa á því að halda að
upplifa manneskjuna næst þeim sem
þeirra helsta málsvara og unnanda.
Hamingjusamlega gift hjón gagnrýna
ekki né leiðrétta hvort annað fyrir
framan aðra. Þau líta á hið jákvæða. Þau
passa að allar umvandanir séu settar
fram af virðingu. Þessi hjón tileinka sér
hvatningu og hvetja hvort annað til að
láta drauma sína rætast.
11 Haltu þér viðKynferðisleg spenna dvínar óhjákvæmilega með tímanum.
Ef þú klæðir þig upp og hugsar um útlitið
sýnirðu bæði þér og makanum virðingu.
12 Virtu fjölskyldu makansSiðir og venjur fjölskyldu þinnar eru líklega frábrugðin
siðum og venjum fjölskyldu makans.
Líkur eru á að þú þolir einfaldlega ekki
einhvern úr hans/hennar fjölskyldu. Settu
upp sparibrosið og mættu í veislurnar
og afmælin. Ræðið saman og setið upp
reglur varðandi tímalengd fjölskyldu-
boða. Hjálpið hvort öðru að takast á við
erfiða fjölskyldumeðlimi. Þú þarft ekkert
að elska alla tengdafjölskylduna eins og
hún leggur sig en makinn mun virða þig
fyrir að reyna.
13 Taktu frá dagaGerið eitthvað saman. Það þarf ekki að vera dýrt. Hjón í
farsælu hjónabandi setja eigin stefnumót
í forgang. Það er nóg af gagnrýni, sorg
og leiðindum í lífinu. Láttu makann finna
að hann sé mikilsmetinn.
Láttu hjónabandið ganga
Listinn er skrifaður af bandaríska sálfræðingnum og fjölskylduráðgjafanum Marie Hartwell-Walker.