Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Qupperneq 17
Margir myndu segja að breski tón-
listarmaðurinn Elton John hafi
þegið illa fengið fé, þegar hann tróð
upp í einkasamkvæmum íslenskra
útrásarvíkinga. Augljóslega er þó
lítið við Elton að sakast, en nú er
hann aftur kominn í fréttirnar fyrir
sambærilegt en þó öllu alvarlegra
mál því peningarnir sem hann fékk
fyrir að troða upp í ítölsku borg-
inni Napólí eru sagðir hafa ver-
ið illa fengnir. Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins rannsakar nú
ásakanir þess efnis, að fé úr byggða-
þróunarsjóðum sambandsins hafi
verið notað til að borga fyrir tón-
leika Eltons í ítölsku borginni fyrir
rétt rúmu ári.
Gagnrýnir spillingu í
suðurhluta Ítalíu
Mario Borghezio er Evrópuþing-
maður og kennir sig við svokallaða
Norðurdeild á Ítalíu. Er það flokks-
brot sem er að finna á norðurhluta
Ítalíu, og beitir sér sérstaklega gegn
skipulagðri glæpastarfsemi og pólit-
ískri spillingu sem fyrirfinnst í hin-
um fátæka suðurhluta landsins.
Borghezio hefur bent framkvæmda-
stjórninni á að fjármálamisferli hafi
átt sér stað, og að minnsta kosti hluti
þeirra peninga sem átti að nota í
verkefni tengd efnahagsþróun, hafi
í raun verið notaðir til að borga fyrir
risatónleika Eltons á Piazza Plecis-
cito-torginu í Napólí.
Á eftir að úrskurða
Talsmaður Johannesar Hahns,
framkvæmdastjóra byggðarmála
í Evrópusambandinu, hefur stað-
fest að rannsókn sé hafin. „Fé úr
byggðaþróunarsjóðum sambands-
ins var notað til að fjármagna þetta
verkefni og nú þurfum við að meta
hvort þessi eyðsla falli innan ramm-
areglna okkar um notkun á byggða-
styrkjum. Við teljum málið alvarlegt
en áður en hægt er að úrskurða í
málinu verða öll kurl að vera komin
til grafar.“
Verði úrskurður framkvæmda-
stjórnarinnar sá að um fjármálamis-
ferli hafi verið að ræða, sem hlýtur
að teljast líklegt, mun Napólí og
Campania-héraðið, þar sem borg-
in er staðsett, fá upphæðina dregna
frá framtíðarstyrkjum. Gæti það
sett uppbyggingu á svæðinu í mikið
uppnám, en þar um slóðir er staðan
í atvinnumálum einkar bágborin.
Ekki ódýr
Tónleikar Eltons Johns í Napólí voru
þeir fyrstu sem hann hélt á Ítalíu í
36 ár. Íbúar Napólí munu þó hafa
skemmt sér konunglega, en fyr-
ir skemmtunina tók Elton 600 þús-
und evrur – eða rúmlega 90 milljón-
ir íslenskra króna. Til samanburðar
þáði Elton ríflega eina milljón doll-
ara fyrir að troða upp í einkasam-
kvæmi Ólafs Ólafssonar, eins aðal-
eiganda Samskipa, en á núverandi
gengi myndi það teljast til um 112
milljóna íslenskra króna.
mánudagur 15. nóvember 2010 erlent 17
Framkvæmdstjórn Evrópusam-
bandsins, í samvinnu við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn, er að leggja
lokahönd á fjárhagslegar björg-
unaraðgerðir írska efnahagskerf-
isins. Sögusagnir eru á kreiki um
björgunaraðgerðirnar, sem munu
telja 80 milljarða evra, þrátt fyrir
að hvorki embættismenn í Brus-
sel né í Dublin hafi staðfest að
málið sé í vinnslu. Breska blað-
ið The Times greindi frá þessu
um helgina. Það sem hefur gefið
sögusögnunum byr undir báða
vængi eru viðbrögð embættis-
mannanna í Brussel þegar þeir
hafa verið spurðir um hvort efna-
hagsaðstoð til Íra sé á næsta leiti,
en nákvæmlega sömu viðbrögð
fengust frá þeim í aðdraganda
björgunaraðgerða gríska efna-
hagskerfisins fyrr á þessu ári.
Brian Lenihan, fjármálaráð-
herra Írlands, neitar því staðfast-
lega að Írland hafi óskað eftir að-
stoð Evrópusambandsins. „Við
höfum tryggt fjármögnun til júní
á næsta ári. Við eigum umtals-
verða varasjóði, þannig að við
erum alls ekki í aðstöðu til þess
að óska eftir aðstoð. Það myndi
einungis senda fjármálamörkuð-
um þau skilaboð að við séum ekki
í stöðu til þess að sjá um okkar
mál sjálfir.“
Þegar fjármálakreppan skall á
Írum árið 2008 brást ríkið meðal
annars við með því að gefa út gíf-
urlegt magn ríkisskuldabréfa. Í síð-
ustu viku hækkuðu vextir þessara
bréfa, og ótti greip um sig að vaxta-
hækkunin gæti smitast til annarra
ríkja á evrusvæðinu – sérstaklega
ríkja sem veik eru fyrir, eins og
Portúgal eða Spánn. Ákveðnum
stöðugleika var þó náð á skulda-
bréfamörkuðum þegar Bretland,
Frakkland, Þýskaland, Ítalía og
Spánn sendu frá sér sameiginlega
yfirlýsingu á G20-fundinum í síð-
ustu viku, þess efnis að skuldaeig-
endur myndu ekki tapa sínum hlut
– kæmi til fjárhagslegra björgunar-
aðgerða á evrusvæðinu.
bjorn@dv.is
Sögusagnir í Brussel um björgunaraðgerðir handa Írum ganga fjöllum hærra:
Írar fái björgunarpakka
ESB-styrkur notaður í
tónleika Eltons Johns
Fjármunir sem áttu að fara í efnahagsþróun í Campania héraði á Ítalíu voru notaðir
til að borga tónleika Eltons Johns.
bJörn tEitsson
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
Elton John Vakti
lukku í Napólí fyrir ári.
mynd rEutErs
Við teljum málið alvarlegt en áður
en hægt er að úrskurða í
málinu verða öll kurl að
vera komin til grafar.
brian Lenihan Fjármála-
ráðherra Írlands.
mynd rEutErs
Suu Kyi vill
tjáningarfrelsi
Á laugardaginn losnaði baráttukon-
an Aung San Suu Kyi úr stofufang-
elsi sínu í Búrma, en hún hafði verið
í stofufangelsi síðan árið 2003. Í gær
var henni ákaft fagnað í borginni
Rangoon, fyrir utan höfuðstöðvar
stjórnmálaflokks hennar, Þjóðardeild
um lýðræði. Sagði Suu Kyi meðal
annars að að grunnurinn að lýðræði
væri tjáningarfrelsi og lagði áherslu
á að umbótum yrði komið á í Búrma
„á réttan hátt.“ Suu Kyi var látin laus
aðeins sex dögum eftir kosningar þar
í landi, en flokki hennar var meinuð
þátttaka í þeim. David Cameron, for-
sætisráðherra Bretlands, og Barack
Obama, forseti Bandaríkjanna, eru
meðal þjóðarleiðtoga sem hafa fagn-
að frelsi Suu Kyi.
Ísbjörn skotinn
af leyniskyttu
Ísbjörninn Wrangler, sem býr í
dýragarðinum í Moskvu, er nú að
ná sér eftir að hafa verið skotinn
nokkrum sinnum af leyniskyttu.
Wrangler er mjög vinsæll í dýra-
garðinum og dregur að fjölda
fólks á degi hverjum. Hann er
þó orðinn 20 ára gamall og eyðir
mestum tíma í sínu eigin rými
innandyra. En frá íbúðarblokk í
nágrenninu er bein sjónlína í rými
Wranglers, sem skyttan hefur nýtt
sér til að skjóta bjarndýrið. Sagði
í yfirlýsingu frá dýragarðinum:
„Við erum hneyksluð yfir hegð-
un þeirra sem frömdu þennan
hörmulega glæp.“
Ber brjóst fæli burtu
bókstafs trúarmenn
Danski þjóðarflokkurinn, sem hefur
löngum lýst sig andvígan innflytj-
endum, vill nú berjast fyrir því að
hafa myndskeið af berbrjósta kon-
um í kynningarmynd sem stendur til
að framleiða fyrir tilvonandi danska
ríkisborgara. Peter Skaarup, tals-
maður flokksins, segir að með því
að hafa myndir af berbrjósta konum
muni bókstafstrúarmenn síður vilja
flytja til Danmerkur. „Ef þú þolir ekki
að sjá nokkur dönsk brjóst, þá held
ég þú sleppir því bara að koma hing-
að,“ sagði Skaarup í viðtali við Berl-
ingske Tidende.