Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Blaðsíða 4
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is Slakaðu á heima • Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd • Djúpslökun með infrarauðum hita • Sjálfvirkt og stillanlegt nudd Verið velkomin í verslun okkar prófið og sannfærist! Úrval nuddsæta Verð frá 29.750 kr. Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 4 FRÉTTIR 1. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR Geirmundur Vilhjálmsson var fanga- vörður á Kvíabryggju þegar Árni Johnsen afplánaði dóm sinn þar fyrir fjársvik og varð þeim vel til vina. Sam- kvæmt heimildum DV hjálpaði Geir- mundur Árna mikið þegar hann var að vinna listaverk sín úr grundfirsku grjóti á Kvíabryggju. Þegar Árni var laus úr prísundinni fóru Geirmund- ur og Guðbjörg Friðfinnsdóttir, eig- inkona hans, með Árna Johnsen og konu hans, Halldóru Filipusdóttur, í skemmtisiglingu um Karíbahaf- ið í tilefni af sextugsafmæli Árna. Í samtali við DV sagðist Árni Johnsen ekki vilja tjá sig um mál Geirmundar en sagist jafnframt trúa því að vinur sinn væri saklaus af ásökunum sem á hann hafa verið bornar. Tengdur svikara fjölskyldu- böndum Sveinn Friðfinnson sem grunað- ur er um að hafa staðið á bak við milljarða gjaldeyrissvindl í Svíþjóð og Danmörku er mágur Geirmund- ar, en hann og Guðbjörg eiginkona hans eru systkini. Meintum brotum Sveins hefur verið líkt við svikamyllu Bernards Madoffs og bitnuðu á þús- undum manna sem lofað var mik- illi ávöxtun en fengu ekki krónu af fjárfestingum sínum til baka. Upp- hæðirnar skiptu milljörðum. Sveinn dvaldi mikið á Grundarfirði árið 2009 og fjárfesti í nokkrum fasteignum þar. Hann keypti meðal annars veit- ingahúsið Krákuna af foreldrum sín- um og réðist í miklar endurbætur á húsnæðinu. Það var þó aldrei klárað og var húsnæðið síðar selt á nauð- ungaruppboði. Þegar Sveinn mætti í brúðkaup bróður síns í janúar 2009 var hann með tvo lífverði sér við hlið og sagði hann að það tilheyrði því að stunda viðskipti í Frakklandi og það hefði hann verið að gera. Féll á lyfjaprófi Geirmundur var á árum áður farsæll frjálsíþróttamaður en árið 1993 var hann dæmdur í tveggja ára keppnis- bann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Hann viðurkenndi í kjölfarið að hafa neytt ólöglegra lyfja fyrir bikarkeppni Frjálsíþróttasambandsins það árið. Rannsókn á meintum brotum Geirmundar er nú í höndum ríkis- endurskoðanda sem segir að erf- itt sé að segja til um hversu langan tíma rannsóknin taki en lagt sé upp með að vinna hana hratt og klára sem allra fyrst. Sem stendur vinna þrjár manneskjur við að fara yfir bókhald og reikninga Kvíabryggju en málið er umfangsmikið og ekki er vitað hve mörg ár aftur í tímann hin meintu brot ná. Eins og DV hefur greint frá er marg- ar dularfullar úttektir að finna í reikn- ingum fangelsisins á Kvíabryggju. DV hefur undir höndum gögn sem sýna meðal annars að keyptir voru fimm handfærakrókar út á reikning fangels- isins, en forstöðumaðurinn, sem nú er kominn í leyfi, á sjálfur handfæra- bát. Þá voru keypt Kenwood-bíltæki, demparar, fjórir rafgeymar og margt fleira. Torfæruhjól á Kvíabryggju Í samtali við DV sagði Páll Winkel fangelsismálastjóri að farið hefði verið yfir starfsemi fangelsisins eftir starfs- mannfund þar um daginn. Hann sagði talsvert af tækjum og tólum hafa fundist sem ekki ættu heima þar og nefndi sem dæmi mótorhjól, tor- færuhjól og fjórhjól. Hann sagði líka talsvert af hlutum vera þar sem hann viti ekki hverjum tilheyri. „Allt sem á ekki heima í fangelsinu verður fjarlægt þegar búið er að skrásetja það.“ Fjölskyldan í fangelsinu Geirmundur Vilhjálmsson hefur ver- ið forstöðumaður á Kvíabryggju frá árinu 2006 en áður starfaði hann þar sem fangavörður. Hann tók við starf- inu af föður sínum Vilhjálmi Pét- urssyni en Vilhjálmur var forstöðu- maður þar frá 1981 og hafði sjálfur starfað sem fangavörður við fangels- ið frá 1971. Móðir Geirmundar vann einnig á Kvíabryggju, en hún var þar matráðskona. Eiginkona Geirmund- ar starfar þar nú sem matráðskona en samkvæmt heimildum DV hefur hún tekið sér leyfi frá störfum á meðan rannsókninni stendur. Geirmundur Vilhjálmsson var fangavörður á Kvíabryggju þegar Árni Johnsen sat þar inni fyrir brot sín. Þeir urðu miklir vinir í kjölfarið og fóru saman ásamt eiginkonum sínum í skemmtisiglingu til Karíbahafsins. Árni Johnsen trúir á sakleysi Geirmund- ar vinar síns í þessu meinta fjársvikamáli. Í KARÍBAHAFINU MEÐ ÁRNA JOHNSEN HANNA ÓLAFSDÓTTIR blaðamaður skrifar: hanna@dv.is Í samtali við DV sagðist Árni Johnsen ekki vilja tjá sig um mál Geirmundar en sagist þó trúa því að vin- ur sinn væri saklaus af ásökunum sem á hann hafa verið bornar. Féll á lyfjaprófi Geirmundurvarfar- sællfrjálsíþróttamaðurenvardæmdur ítveggjaárakeppnisbann1993eftirað hafafalliðályfjaprófi. Vinir ÁrniJohnsenog Geirmundururðugóðir vinirmeðanÁrniafplánaði dómsinnáKvíabryggju. Héraðsdýralæknir telur áhyggjur af svínaflensu óþarfar: Enginhættaáferð „Þetta gengur venjulega yfir á sex til átta vikum svo er þetta afstaðið eins og hver önnur flensa,“ segir Gunnar Gauti Gunnarsson, héraðsdýralæknir Borg- arfjarðar- og Mýrasýslu, um svína- flensuna sem hefur greinst á tveimur svínabúum Stjörnugríss hf. Búin sem um ræðir eru á Hýrumelum í Hálsa- sveit og Melum í Hvalfjarðarsveit. Gunnar Gauti segir að ekki sé nein hætta á ferð þó svo að H1N1-veiran hafi greinst í nokkrum svínum. „Ég tók sýni á Hýrumel á mánudaginn. Þetta eru svokölluð PCR-sýni sem eru mjög nákvæm og eru tiltölulega fjótleg og nákvæm í greiningu. Það er ekki enn komið út úr þeim en sýnin sem ég tók á Melum í síðustu viku sögðu til um að átta af þeim þrettán dýrum sem sýni voru tekin úr, væru með veiruna,“ segir Gunnar Gauti. Þau dýr sem hafa verið skoðuð sýndu engin sjúkdómseinkenni og eru ekki með hita. Einnig hafa þeir sem að dýrunum koma verið endurbólusettir. „Ég hef heyrt talað um að þetta sé önn- ur týpa af veirunni og þess vegna hafi menn verið bólusettir á ný. Ég er ekki með áreiðanlegar heimildir fyrir því en reynt er að hafa allan varann á og því hefur verið endurbólusett,“ segir hann. Sölubann er sett á þau bú þar sem svínaflensa greinist og sex önn- ur svínabú sem er í eigu sömu aðila eru í bráðabirgðabanni. Gunnar Gauti undirstrikar þó að það sé engin hætta á ferð. Svínin séu skoðuð og lagt mat á hvort þau séu veik áður en þau eru send í slátrun. Eins sé ekki hættulegt fyrir fólk að neyta kjötsins enda borði fólk ekki hrátt svínakjöt. gunnhildur@dv.is Svín Flensanhefurgreinstá tveimursvínabúum.MYND REUTERS Kastaði af sér vatni á löggubíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði hendur í hári karlmanns á fer- tugsaldri á sunnudagskvöld eftir að hann kastaði af sér vatni á almanna- færi. Til að gera illt verra fyrir þá valdi maðurinn sér einmitt lögreglu- bíl til að pissa á og var því gripinn glóðvolgur við að kasta af sér vatni. Þegar lögreglumenn ætluðu að hafa af honum afskipti reyndi mað- urinn að flýja en það reyndist hæg- ara sagt en gert að hlaupa undan laganna vörðum með buxurnar á hælunum. Vill útskýringar á ógildum atkvæðum Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað formlega eftir fundi í allsherjarnefnd með landskjörstjórn og yfirlögfræð- ingi Alþingis vegna stjórnlagaþings- kosninganna um helgina. „Það sem slær mig mest er allt þetta magn ógildra og gallaðra at- kvæðaseðla. Tíu þúsund seðlar, það þarf að fara yfir kosningarnar.“ Hún segir að svara verði spurn- ingum um dræma kosningaþátt- töku og flókið kosningakerfi. Vigdís kveðst hafa lagt til að þetta yrði raf- ræn kosning, því var hafnað. Hún hafi lagt til að það yrðu krossar í stað númera, en því var hafnað. „Ég vil fá útskýringar á þessu.“ Rúður brotnar í kirkju Á sunnudag barst lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynning um að skemmdarverk hefðu ver- ið unnin á safnaðarheimilinu og Landskirkju í bænum. Rúður höfðu verið brotnar á báðum stöð- um. Þá voru skemmdir unnar á þak- glugga safnaðarheimilisins og ljós- kastara á lóð kirkjunnar. Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir upp- lýsingum um þá sem þarna kunna að hafa verið að verki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.