Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Page 6
2 dálkar = 9,9 *10
Opið: má-fö. 12:30 -18:00, lau 11-16
Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp.201
S: 517 7727 nora.is , facebook.com/noraisland
opið laugardaga til jóla 11-16
Fyrir bústaðinn og heimilið
6 FRÉTTIR 1. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Gefa Fjölskyldu-
hjálp skemmtiefni
Sena hefur ákveðið að gefa við-
skiptavinum sínum ekki jólagjafir
þetta árið en þess í stað styrkja gott
málefni. Fyrirtækið mun styrkja
Fjölskylduhjálp Íslands með ýmsu
fjölskyldu- og barnaefni að and-
virði 2,5 milljóna króna. Forsvars-
menn fyrirtækisins skora á önnur
fyrirtæki að gera slíkt hið sama.
Í pakkanum til Fjölskylduhjálp-
ar er meðal annars að finna 180
miða á jólagesti Björgvins í Laug-
ardalshöllinni um næstu helgi, 50
DVD-barnamyndir og 100 barna-
plötur.
Brynjólfur hættir
hjá Skiptum
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Skipta, tilkynnti nýrri stjórn Exista,
eiganda Skipta, á þriðjudag að hann
segði starfi sínu lausu frá og með
þeim degi. Að ósk eigenda mun
hann stýra félaginu uns ákvarðan-
ir hafa verið teknar um framhald-
ið. Brynjólfur tók við starfi forstjóra
Símans árið 2002 og við stofnun
Skipta árið 2007 varð hann forstjóri
þess félags. Í tilkynningu frá Skiptum
segir Brynjólfur að ástæða þess að
hann hætti sé sú að nýir eigendur
hafi tekið við félaginu. Segist hann
telja það við hæfi að ný stjórn hafi
óbundnar hendur við að skipa mál-
um fyrirtækisins.
Björgólfur skoðar
fréttaflutning
Björgólfur Thor Björgólfsson fjár-
festir hefur látið gera rannsókn á
umfjöllun íslenskra dagblaða um
alla þá sem voru í forystu fjármála-
fyrirtækja fyrir hrun, þar á með-
al hann sjálfan. Í niðurstöðunum
kemur fram að Fréttablaðið, sem er
í eigu fjölskyldu Jóns Ásgeirs, fjallar
áberandi minna um Jón og við-
skiptafélaga hans, Pálma Haralds-
son, en aðrir prentmiðlar. DV er með
áberandi stærsta hlutdeild í umfjöll-
un um útrásarvíkingana Jón Ásgeir
Jóhannesson, Björgólf Thor, Sigurð
Einarsson, Hreiðar Má Sigurðsson
og Pálma Haraldsson, samkvæmt
niðurstöðunum.
Fjörutíu og fimm ára gamall fjöl-
skyldumaður, sem um miðjan nóv-
ember var úrskurðaður í tveggja
vikna gæsluvarðhald vegna gruns
um kynferðislega misnotkun á
börnum, hefur verið látinn laus.
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu gerði kröfu um áframhald-
andi gæsluvarðhald en þeirri kröfu
hafnaði Héraðsdómur Reykjavík-
ur. Tvö meint fórnarlömb manns-
ins hafa stigið fram og lagt fram
kæru en þau eru af báðum kynj-
um. Grunur leikur á að hin meinta
kynferðislega misnotkun hafi stað-
ið yfir um árabil.
Fyrst tilkynnt fyrir sjö árum
DV hefur hins vegar heimildir fyr-
ir því að lögreglunni hafi fyrst verið
gert viðvart um hugsanlegt barn-
aníð mannsins fyrir sjö árum. Þá
gerði kona, sem tengist fjölskyldu
mannsins, lögreglu viðvart um
meinta misnotkun á tveimur börn-
um. Teknar voru skýrslur af henni
og fleirum vegna málsins en það
fór af einhverjum ástæðum aldrei
lengra. Nú sjö árum síðar hafa
ungur maður og ung kona kom-
ið fram og kært manninn. Konan
sem sem vakti athygli lögreglu á að
ekki væri allt með felldu árið 2003
óttast að á þessu sjö ára tímabili
hafi maðurinn hugsanlega getað
misnotað fleiri börn.
Ábending ekki rannsökuð
Friðrik Smári Björgvinsson, yfir-
lögregluþjónn rannsóknardeildar,
staðfestir heimildir DV. Lögreglu
barst ábending árið 2003 um að
maðurinn leitaði á ung börn en
Friðrik segir að sú ábending hafi
aldrei leitt til lögreglurannsóknar.
Aðspurður um hvað hafi valdið því
kveðst Friðrik ekki geta svarað því.
Langt sé um liðið og annað emb-
ætti hafi farið með það mál. Hann
vill heldur ekki, né getur, sagt hvort
koma hefði mátt í veg fyrir frekari
brot hefði málið verið rannsakað á
sínum tíma.
Faðir vinar
Friðrik Smári staðfestir sömuleiðis
að annað fórnarlambanna sem nú
hefur kært sé sami aðili og ábend-
ing barst um árið 2003. Lögregl-
an hafði á dögunum sam-
band við konuna sem vakti
athygli á málinu árið 2003
til að spyrjast fyrir um það
í tengslum við rannsókn
lögreglu á málinu nú.
Þrátt fyrir að maðurinn
sé laus úr haldi held-
ur rannsókn lögreglu
áfram.
Heimildir DV
herma að hinn 45 ára
sakborningur sé fað-
ir vinar annars fórn-
arlambanna sem hafa
kært. Hin meintu brot
mannsins gegn hon-
um eiga að hafa byrj-
að þegar fórnarlamb-
ið var sex ára gamalt.
Fjörutíu og fimm ára maður sem grunaður er um að hafa misnotað tvö börn um ára-
bil er laus úr haldi. Lögreglunni var fyrst gert viðvart um meint brot mannsins gegn
börnum fyrir sjö árum en sú ábending leiddi aldrei til lögreglurannsóknar.
MEINTUR NÍÐINGUR
EKKI RANNSAKAÐUR
SIGURÐUR MIKAEL JÓNSSON
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Grunur leikur á að hin meinta
kynferðislega mis-
notkun hafi staðið yfir
um árabil.
Áralöng þögn Maðurinn er
grunaður um að hafa misnotað börn
af báðum kynjum um árabil. Tvær
kærur hafa borist. Fyrst var tilkynnt
um meinta misnotkun mannsins á
börnum árið 2003. MYNDIN ER SVIÐSETT
Ólafur Þórðarson er kominn af gjörgæsludeild:
Ólafur úr lífshættu
Tónlistarmaðurinn Ólafur Tryggvi
Þórðarson er kominn af gjörgæslu-
deild Landspítalans í Fossvogi en
hann varð fyrir fólskulegri líkams-
árás á heimili sínu þann 14. nóv-
ember. Ólafur er ekki lengur talinn
í lífshættu þrátt fyrir að líðan hans
sé að mestu óbreytt. Hann er ekki
kominn til meðvitundar en liggur
nú á heila- og taugadeild Landspít-
alans.
Það var Þorvarður Davíð Ólafs-
son, sonur Ólafs Tryggva, sem réðst
á hann á æskuheimili sínu á Urð-
arstíg í Reykjavík. Árásin var sér-
lega hrottafengin og áverkar Ól-
afs þess eðlis að lögreglan telur að
Þorvarður Davíð hafi notað hnúa-
járn eða önnur vopn eða áhöld til
að veita föður sínum hina lífshættu-
legu áverka. Þorvarður var hand-
tekinn síðar um daginn á öðrum
stað í Reykjavík og hefur játað að
hafa ráðist á föður sinn. Hann var
úrskurðaður í gæsluvarðhald um-
svifalaust og hefur það gæsluvarð-
hald verið framlengt til 27. desem-
ber næstkomandi.
Eins og DV hefur áður greint frá
er talið að Þorvarður Davíð hafi átt
í útistöðum við föður sinn í ein-
hvern tíma fyrir árásina. Heimild-
ir DV herma að hann hafi talið sig
eiga inni peninga hjá föður sínum
og haft í hótunum við hann vegna
þess. Aðili sem þekkir vel til fjöl-
skyldunnar sagði í samtali við DV
á dögunum að málið snérist um
ógreiddan móðurarf sem Þorvarður
taldi sig eiga eftir móður sína sem
lést fyrir 16 árum. Þorvarður Davíð
var undir áhrifum fíkniefna þegar
árásin var gerð en hann hefur hlot-
ið nokkra dóma í gegnum tíðina,
meðal annars fyrir hrottaleg ofbeld-
isbrot og fíkniefnamisferli.