Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Qupperneq 11
miðvikudagur 1. desember 2010 fréttir 11
Hildur Ósk Ragnarsdóttir er búsett í Danmörku og æfir rúbbí af miklum krafti. Hún varð nýlega Danmerk-
urmeistari kvenna í rúbbí með liði sínu Exiles. Hildur hefur hlotið verðlaun fyrir miklar framfarir og verið
boðuð á landsliðsæfingar hjá danska rúbbílandsliðinu. Þetta er ótrúlegur árangur í ljósi þess að Hildur
hefur einungis æft í eitt ár. Hún segir rúbbí vera fyrir konur á öllum aldri.
Ekki bara tröllskEssur
mEð brjálað skap Þetta er mjög góð út-rás og maður er alltaf afslappaður eftir æfingar
Hildur Ósk Ragnarsdóttir varð í októ-
ber síðastliðnum Danmerkurmeistari
kvenna í rúbbí með liði sínu Exiles í
Kaupmannahöfn og hefur fengið boð
um að koma á æfingar með kvenna-
landsliði Danmerkur í íþóttinni. „Ég
hef verið boðuð núna tvisvar sinnum
í ár en hef því miður ekki komist hing-
að til, en núna erum við komin í jóla-
frí frá æfingum. Það verða landsliðs-
æfingar í mars næst og þeir reyna að
fá sem flesta til að mæta og sjá hvað
er hægt að gera með hópinn og síð-
an er valið í landsliðið út frá því. Þeir
reyna að fá alla til að koma í úrtökur,
eða alla vega þá sem hafa leyfi til þess
og þar sem ég er búin að búa svo lengi
úti þá fell ég inn í þann hóp.“ Hildur,
sem er einungis búin að æfa rúbbí í
um ár, fékk framfararverðlaunin á síð-
ustu árshátíð og er komin í góða stöðu
í liðinu sínu. „Ég er samt ekkert mjög
góð sko, bara svona allt í lagi,“ segir
Hildur hógværðin uppmáluð. „Mað-
ur kemst auðvitað áfram á skapinu og
maður þarf að hafa rétt „mentalitet“
í þetta. Þetta er samt bara ótrúlega
mikið tækni og ef maður lærir hana
ágætlega þá kemst maður vel áfram.
Þetta er mjög gaman og það er einfalt
að læra þetta.“
Alls ekki karlaíþrótt
Hildur lék bæði handbolta og fótbolta
með Breiðablik áður en hún flutti til
Danmerkur fyrir 9 árum og sá grunn-
ur hefur nýst henni vel í rúbbí. Hún
segir íþróttagreinina þó ekki vera um-
fangsmikla í Danmörku. Karladeild-
in hafi um 30 lið en kvennadeildin sé
mjög fámenn. Hildur segir íþrótta-
greinina þó alls ekki vera frekar karla-
íþrótt. „Það er nefnilega mikill mis-
skilningur. Þetta er auðvitað vinsælla
hjá karlmönnunum og það eru ekki
það margar stelpur í þessu. Ég held
að konur haldi að þær geti ekki spilað
þetta, að þetta sé allt of gróft en það er
bara stór misskilningur. Það þarf allar
týpur í þetta, litlar og snöggar og svo
auðvitað stórar og sterkar líka. þannig
það er á misskilningi byggt að maður
þurfi að vera tröllskessa með brjálað
skap. Þetta er bara aðallega spurn-
ing um tækni þannig séð.“ Hún segir
rúbbí vera heldur grófari íþrótt en
fótbolta og handbolta og það sé eitt-
hvað um meiðsl en yfirleitt ekki alvar-
leg. „Maður er alltaf með skrámur og
marbletti eftir leiki, tognun og annað
slíkt en þetta er ekkert brjálað. Þetta
er mjög góð útrás og maður er alltaf
afslappaður eftir æfingar,“ segir Hild-
ur og hlær.
Vantar meiri umfjöllun
„Rúbbílið eru yfirleitt fimmtán
manna en við spilum alla jafna í sjö
eða tíu manna liðum þegar við spil-
um í deildinni. Okkar lið er langstærst
svo það fer eftir því hvað hin liðin hafa
upp á að bjóða. Fer eftir meiðslum
og slíku. Við reynum samt reglulega
að fá erlend lið í heimsókn og förum
líka út að spila og þá erum við með
fullt fimmtán manna lið,“ segir Hild-
ur. Hún segir Dani ekki vera fram-
arlega í rúbbí í heiminum og henni
finnst vanta meiri umfjöllun um
íþróttina. „Það eru nokkrir mjög góð-
ir leikmenn í landsliðinu, sérstaklega
karlalandsliðinu, en þeir sem heild
hafa ekki náð mjög góðum árangri,
því miður. Það er aðeins betur séð um
þetta til dæmis í Svíþjóð og Noregi,
sérstaklega kvennadeildirnar og það
eru mun fleiri sem æfa þar.“
Hún segir konur á öllum aldri geta
spilað rúbbí. „Yngsta konan hjá okk-
ur er 18 ára og svo held ég að sú elsta
sé að verða fertug þannig að þetta
er mjög breiður hópur, sjálf er ég 33
ára og var að byrja. Það hefur ekkert
hamlað mér neitt,“ segir Hildur sem
er ekkert á leiðinni heim frá Dan-
mörku og hyggst halda ótrauð áfram
að æfa.
Aðspurð hvort einhver rúbbí-
leikmaður sé í sérstöku uppá-
haldi hjá henni segir hún að Tana
Umaga, sem spilaði með Nýja-Sjá-
landi, komi sterkur inn. „Því mið-
ur spilar hann ekki lengur en hann
er einn af bestu og þekktustu leik-
mönnunum innan rúbbísins,“ seg-
ir Hildur sem vill endilega hvetja
íslenskar konur til að kynna sér
rúbbí.
SÓlRún liljA RAgnARSdÓttiR
blaðamaður skrifar: solrun@dv.is
Exiles Leikmennliðsinseruáldrinumfrá18áratilfertugs.Hildurerþriðjafráhægrií
fremriröð.