Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 1. desember 2010 FRÉTTIR 13
Á forseti Íslands áfram að hafa
málskotsrétt?
Hver eftirfarandi möguleika lýsir
þínum áherslum um kjördæmaskip-
an á Íslandi best?
Eiga þjóðaratkvæðagreiðslur að
vera ráðgefandi eða bindandi?
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því
að tryggja jafnrétti óháð kynhneigð
í stjórnarskrá?
Á að kjósa ríkisstjórn beinni
kosningu?
Hver er afstaða þín til atkvæðavæg-
is í Alþingiskosningum?
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því
að hafa ákvæði um þjóðkirkju á
Íslandi í stjórnarskránni?
Á að draga úr eða auka valdheim-
ildir forsetans í stjórnarskránni?
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því
að heimilaðar verði opnar yfir-
heyrslur á Alþingi?
Á að fjölga eða fækka þingmönn-
um?
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því
að réttur almennings til upplýsinga
sem varða almannahag verði
tryggður í stjórnarskrá?
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því
að takmarka hversu lengi forseti
getur setið?
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) að
viðhafa þjóðaratkvæðagreiðslu í
auknum mæli?
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því
að stjórnarskrá kveði á um að Ísland
verði ávallt kjarnorkuvopnalaust
land?
Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur)
persónukjöri?
Hvort vilt þú heldur að ríki á Íslandi
þingræði eða forsetaræði?
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því
að ráðherrar geti setið á Alþingi?
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur)
að eignarhald þjóðarinnar á
náttúruauðlindum verði bundið í
stjórnarskrá?
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því
að takmarka hversu lengi forsætis-
ráðherra getur setið?
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því
að vald til að veita opinberar stöður
sé hjá einum pólitískum ráðherra?
Telur þú ástæðu til að breyta
stjórnarskránni?
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því
að íslenska verði bundin í stjórnar-
skrá sem þjóðtunga?
Landið verði eitt kjördæmi
Óbreytt kjördæmaskipun
Fækka kjördæmum Fjölga
kjördæmum Taka ekki afstöðu
Já Nei Taka ekki afstöðu Bindandi Ýmist ráðgefandi eða
bindandi eftir atvikum
Mjög hlynnt(ur) Frekar
hlynnt(ur) Hlutlaus
Já Nei Taka ekki afstöðu
Sama vægi óháð búsetu Ólíkt
vægi eftir landshlutum Taka ekki
afstöðu
Hlynntur Andvígur Taka ekki
afstöðu
Auka valdheimildir Draga úr
valdheimildum Taka ekki afstöðu
Hlynntur Andvígur Taka ekki
afstöðu
Fækka Óbreyttur fjöldi Taka
ekki afstöðu
Hlynntur Andvígur Taka ekki
afstöðu
Hlynntur Andvígur Taka ekki
afstöðu
Hlynntur Andvígur
Hlynntur Andvígur Taka ekki
afstöðu
Hlynntur Andvígur Taka ekki
afstöðu
Forsetaræði Þingræði Taka
ekki afstöðu
Hlynntur Andvígur Taka ekki
afstöðu
Hlynntur Andvígur
Hlynntur Andvígur Taka ekki
afstöðu
Hlynntur Andvígur Taka ekki
afstöðu
Hvorki né Mikla Litla
Mjög mikla
Hlynntur Andvígur Taka ekki
afstöðu
Fulltrúarnir 25 sem náðu kjöri á
stjórnlagaþing virðast vera sammála
um mörg veigamikil atriði. Þannig
leiðir samantekt DV, sem unnin var
upp úr svörum þeirra á stjórnlaga-
þingsvef DV, í ljós að meirihluti þeirra
sem náðu kjöri er hlynntur persónu-
kjöri. Meirihluti vill að forseti hafi
áfram málskotsrétt og yfirgnæfandi
meirihluti er andvígur því að ráðherr-
ar geti setið á Alþingi. Þó ber að hafa
þann fyrirvara á að tveir sem náðu
kjöri svöruðu ekki spurningum DV
um helstu álitamál stjórnarskrárinn-
ar. Þetta eru þeir Pétur Gunnlaugsson
lögmaður og Guðmundur Gunnars-
son, formaður Rafiðnaðarsambands-
ins.
Samkvæmt niðurstöðunum tel-
ur mikill meirihluti stjórnlagaþing-
manna að þörf sé á að breyta stjórn-
arskránni, eða rúmlega 80 prósent. Þó
virðast nokkrir frambjóðendur, eða
þrettán prósent, vilja standa vörð um
hana og telja að lítil þörf sé á breyt-
ingum á meðan fjögur prósent kusu
að svara ekki þeirri spurningu. Þing-
menn eru nánast allir á sama máli um
að eignarhald á auðlindum þjóðar-
innar verði bundið í stjórnarskrá, eða
96 prósent. Þá vill stór meirihluti, eða
91 prósent, að þjóðaratkvæðagreiðsla
verði viðhöfð í auknum mæli.
Samkvæmt lögum á stjórnlaga-
þing að koma saman í febrúar á næsta
ári. Þingið mun standa í tvo til fjóra
mánuði og munu þingmenn fá greitt
samkvæmt þingfararkaupi, 520 þús-
und krónur á mánuði.
Þetta vilja þingmennirnir
Könnun DV um afstöðu kjörinna þingmanna til stjórnarskrár: