Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Síða 33
vilja halda gunnari Norska knattspyrnuliðið Fred-
rikstad sem Eyjapeyinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék með síðla sum-
ars vill halda framherjanum hjá liðinu en hann var á láni frá Esbjerg.
Þótti Gunnar Heiðar standa sig vel með Fredrikstad sem vann sér aftur
sæti í norsku úrvalsdeildinni með því að leggja Hönefoss í umspili.
„Gunnar átti við smávægileg meiðsl að stríða undir lok tímabilsins en
fram að því hafði hann skorað fjögur mörk og sýnt hversu vinnusamur
hann er. Hann er góður leikmaður og hefur staðið sig vel,“ segir Joacim
Jonsson, íþróttastjóri Fredrikstad, en Norðmennirnir vilja fá hann frítt.
dæmir tvo evrópuleiki Körfuknatt-
leiksdómarinn Sigmundur Már Herbertsson dæmir í kvöld
leik Lotto Young Cats og ESB Lille Metropole í Evrópu-
bikar kvenna en það er annar leikurinn á tveimur dögum
sem hann tekur þátt í að dæma. Á þriðjudagskvöldið var
hann meðdómari í leik Antwerp Giants og Enterprice BC
Dynamo í Evrópubikar karla en aðaldómari í þeim leik var
Lettinn Juris Kokanis. Sigmundur og Juris dæma kvenna-
leikinn svo tveir saman í kvöld.
molar
Fjögurra hesta
kapphlaup
n Silfurmeistarinn í Formúlu 1,
Fernando Alonso á Ferrari, býst
við að fjögur lið berjist um titlana á
næsta tímabili
í Formúlunni.
Hann er viss
um að Merced-
es-liðið sem
olli nokkrum
vonbrigðum og
vann ekki eitt
mót í ár komi
sterkt til baka.
„Ég býst fastlega við því að Mer-
cedes muni berjast á toppnum með
okkur, McLaren og Red Bull,“ segir
Spánverjinn geðstirði. Ólíklegt
þykir að Mercedes geri einhverjar
breytingar hvað varðar ökuþóra en
fyrir liðið aka þeir Nico Rosberg og
sjöfaldi heimsmeistarinn Michael
Schumacher.
Fjórir enskir á
topp níu
n Enskir kylfingar hafa gert það gott
undanfarin misseri og eins og stað-
an er eiga Englendingar fjóra af níu
efstu kylfingum
heimslistans
í golfi. Lee
Westwood
er stigahæsti
kylfingur heims
en svo koma
þeir í sjöunda til
níunda sæti, Paul
Casey, Ian Poult-
er og Luke Donald. Norður-Írinn
ungi, Rory McIlroy er eini Írinn
á topp tíu en landi hans, Graeme
McDowell sem tryggði Evrópu sigur
í Ryder-bikarnum er í ellefta sæti.
Pádraig Harrington sem tvívegis
hefur unnið opna breska meistara-
mótið er í 22. sæti
Bernie rændur
n Yfirmaður Formúlu 1, Bernie
Ecclestone, var rændur og barinn í
jörðina þegar misyndismenn réðust
á hann og stálu
af honum og
kærustu hans,
Fabiönu Flosi,
skartgripum
að verðmæti
200.000 punda.
Ræningjarnir
fjórir fóru svo illa
með Ecclestone
að það þurfti að flytja hann á næsta
sjúkrahús vegna höfuðáverka. „Við
vorum kallaðir á staðinn þegar
maður og kona voru rænd í suðvest-
urhluta Lundúna um hálf ellefuleyt-
ið. Maðurinn, sem er um áttrætt, var
fluttur á sjúkrahús en konan slapp
ómeidd,“ segir í skýrslu lögreglu.
arsenal nálgast
gameiro
n Enska úrvalsdeildarliðið Arsenal
er nú nálægt því að landa franska
landsliðsframherjanum Kevin
Gameiro en liðið
mun fá harða
samkeppni
um undirskrift
Frakkans frá
Liverpool og
Tottenham á
lokametrunum.
Gameiro er
sagður vera í
viðræðum við Arsenal, en hann mun
kosta Lundúnaliðið tíu milljónir
punda. Roy Hodgson er sagður vilja
fá Frakkann til að bólstra framlínu
sína en nýir eigendur Liverpool
ætla að leyfa Hodgson að eyða
aðeins í janúar. Þá ætlar Tottenham
einnig að opna veskið og vill Harry
Redknapp sjá Gameiro í hvítu 1.
janúar.
miðvikudagur 1. desember 2010 sport 33
Varaforseti alþjóðaknattspyrnu-
sambandsins, FIFA, Jack Warner,
hefur vísað því sem kom fram í sjón-
varpsþættinum Panorama á BBC á
bug en þar var hann sagður hafa
keypt miða á heimsmeistaramótið í
knattspyrnu og selt svo aftur. Einn-
ig kom fram að þrír meðlimir fram-
kvæmdastjórnar FIFA hefðu þegið
mútur frá íþróttatengdu markaðs-
fyrirtæki um miðjan tíunda áratug
síðustu aldar. Hayatou, einn vara-
forseta FIFA, er einn þeirra en hann
er jafnframt meðlimur í IOC, Al-
þjóða Ólympíunefndinni.
„Ég hef engan áhuga á þessu
málefni, hvorki núna né seinna,“
sagði Warner aðspurður um efni
þáttarins og vísaði öllu á bug. Talið
er að rannsókn BBC á þessum mál-
efnum skaði stórlega boð Englands
um að halda heimsmeistarakeppn-
ina í knattspyrnu árið 2018. Warn-
er er gífurlega mikilvægur sendi-
boði Englands en hann á að snæða
hádegisverð með forsætisráðherra
Bretlands á fimmtudaginn.
„Ég held að þessi þáttur muni
ekki hafa áhrif á boð Englands,
nei. Það sem ég held að muni hafa
áhrif aftur á móti er það sem breska
pressan hefur skrifað um FIFA núna
í mörg ár,“ segir forseti evrópska
knattspyrnusambandsins, Michel
Platini.
Hinir tveir eru Ricardo Teixeira
frá Brasilíu og Nicolas Leoz, forseti
suðurameríska knattspyrnusam-
bandsins, en allir þrír eiga að taka
þátt í atkvæðagreiðslu um hvar HM
í knattspyrnu fer fram árin 2018 og
2022. tomas@dv.is
England gæti misst af því að halda HM vegna þáttar BBC:
Hneyksli skaðar tilboð Englands
Kylfingurinn Birgir
Leifur Hafþórsson
mun leika á loka-
úrtökumótinu fyrir
Evrópumótaröðina.
Birgir Leifur lenti í
2. sæti á móti á öðru
stigi úrtökumóts-
ins sem lauk í gær.
Hundrað og fimm-
tíu kylfingar spila
nú um 30 laus sæti á
næststærstu móta-
röð heims.
Ætlar sér alla leið
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfing-
ur úr GKG, hefur leik næsta laugar-
dag á lokastigi úrtökumótsins fyrir
Evrópumótaröðina í golfi, þá næst-
stærstu í heiminum. Birgir Leifur
lauk í gær leik á öðru stigi úrtök-
umótsins en hann náði þar þeim
glæsilega árangri að verða í öðru
sæti á móti sem fram fór á Arcos
Garden-vellinum við suðurströnd
Spánar. Birgir Leifur lék hringina
fjóra samtals á sex höggum und-
ir pari en lokahringinn lék hann
á fjórum undir. Veður setti strik í
reikninginn en ekki náðist að ljúka
mótinu fyrr en í gær en Birgir Leifur
átti þá eftir tíu holur. Þar small allt
saman og landaði hann öðru sæt-
inu sem tryggir honum keppnis-
rétt á lokaúrtökumótinu og 150.000
krónum í verðlaunafé.
Spilaði vel allt mótið
Birgir Leifur var nýbúinn að frétta
að hann hefði náð öðru sætinu þeg-
ar DV náði á hann en hann sat þá á
flugvelli og beið eftir flugi til Barce-
lona þar sem lokaúrtökumótið fer
fram. „Ég er alveg í skýjunum. Það
var virkilega gaman að komast í
gegnum þetta og klára mótið með
stæl,“ segir Birgir Leifur. „Ég spilaði
vel allt mótið og nokkuð stöðugt.
Ég get ekki annað en verið rosalega
sáttur,“ segir hann, en tók biðin á
meðan ofsaveðrið gekk yfir ekkert á
taugarnar?
„Það er hvort eð er alltaf mik-
il taugaspenna á þessum mótum.
Það er samt alltaf erfiðara að spila
þennan „waiting game“. Ég hef lent
í þessari stöðu áður og sú reynsla
hjálpar alltaf til. Það var samt erfitt
að spila þarna. Menn voru að missa
mörg högg og svoleiðis þannig að
ég þurfti að bjarga mér öðru hvoru
líka. Þetta small allt saman á síðustu
tíu holunum. Þar fór ég að slá vel og
pútta vel,“ segir Birgir Leifur.
30 komast inn af 150
Lokastig úrtökumótsins hefst á laug-
ardaginn. Þar munu hundrað og
fimmtíu kylfingar hefja leik og leika
fjóra hringi. Að þeim fjórum hringj-
um loknum verður skorið niður um
áttatíu manns og berjast þá sjötíu
kylfingar í tvo daga um þrjátíu laus
sæti á Evrópumótaröðinni. Er Birgir
ekki bara nokkuð brattur fyrir loka-
mótið miðað við úrslitin um þessa
helgi?
„Jú, ég er andlega í góðum gír og
líður vel með það sem ég er að gera.
Við verðum að setja niðru gott leik-
skipulag því völlurinn í Barcelona
er allt öðruvísi en sá sem ég var að
spila á. Ég verð bara að vera ákveð-
inn og hafa trú á þessu. Þetta verður
náttúrulega allt að ganga upp því á
svona mótum er stutt í báðar áttir. Ég
ætla mér samt alla leið,“ segir Birgir
Leifur Hafþórsson.
tóMAS þóR þóRðARSoN
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Kampakátur Birgir Leifur er hæstánægður
með frammistöðu sína á næstsíðasta
úrtökumótinu og ætlar sér alla leið.
MyND RóBERt REyNISSoN
Forsetinn Sepp Blatter, forseti FIFA,
þarf nú að fara redda málunum.