Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2010, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2010, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR 6. desember 2010 MÁNUDAGUR Tryggvi Rúnar Leifsson lést á líkn- ardeild Landspítalans 1. maí í fyrra 58 ára að aldri. Í desember 1977 var Tryggvi Rúnar Leifsson í undirrétti dæmdur í 16 ára fangelsi í svokölluðu Geirfinns- og Guðmundarmáli. Báð- ir höfðu Geirfinnur og Guðmundur horfið með óútskýrðum hætti og enn þann dag í dag hefur hvorki tangur né tetur fundist af þeim. Dómstól- ar töldu sannað að þeir hefðu verið myrtir. Tryggvi Rúnar var einn sex ung- menna sem handtekin voru eftir um- fangsmikla leit og rannsókn á hvarfi Geirfinns í nóvember 1974. Tryggvi Rúnar er nú allur; krabbamein í vé- linda dró hann til dauða þann 1. maí í fyrra eftir langvinn og erfið veikindi. Hann hélt fram sakleysi sínu til hinsta dags og átti erfitt með að skilja hvernig þjóðfélaginu tókst að smíða sannleik- ann um sekt sexmenninganna. Líkin fundust aldrei. Morðvopn og ástæður skorti eins og Haukur Guðmundsson fyrrverandi rannsóknarlögreglumað- ur bendir á í bókinni „19. nóvember“ sem kom út nú fyrir jólin. Þar rekur Haukur málavexti frá hvarfi Geirfinns í Keflavík 19. nóvember 1974. Sjálfur vann Haukur að rannsókninni lengi framan af án þess að sannfærast um sekt ungmennanna. „Í mínum huga leikur enginn vafi á að Tryggvi Rúnar og hin fimm, sem dæmd voru, höfðu ekkert með hvarf Geirfinns Einarssonar og Guðmund- ar Einarssonar að gera,“ segir Sigríð- ur Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, eftirlifandi eiginkona Tryggva Rúnars í samtali við DV, sem hér fer á eftir. Kristján Viðar Viðarsson og Sæv- ar Marinó Ciesielski fengu báðir lífs- tíðardóm. Guðjón Skarphéðinsson fékk tólf ára dóm. Erla Bolladóttir og Albert Klahn Skaftason fengu væg- ari dóma. Dómararnir í Sakadómi Reykjavíkur, þeir Gunnlaugur Briem, Ármann Kristinsson og Haraldur Henrýson, voru sammála um niður- stöðuna. Aldrei höfðu verið kveðn- ir upp svo þungir dómar frá því nú- gildandi hegningarlög tóku gildi árið 1940. Allir sakborningarnir, að und- anskildum Guðjóni Skarphéðinssyni voru um eða innan við tvítugt þegar Guðmundur hvarf í Hafnarfirði og Geirfinnur í Keflavík, Guðjón var þá um þrítugt. Umdeildar játningar Í febrúar 1980 kvað Hæstiréttur upp sinn dóm. Dómarar voru Björn Svein- björnsson, Ármann Snævarr, Bene- dikt Sigurjónsson, Logi Einarsson og Þór Vilhjálmsson. Þeir milduðu dóm- ana yfir Sævari og Kristjáni Viðari; sá fyrrnefndi fékk 17 ára fangelsi en sá síðarnefndi 16 ára. Dómurinn yfir Tryggva Rúnari var styttur í 13 ár, Guð- jóni í 10 ár og Alberti Klahn í 12 mán- uði. Hann var hins vegar staðfestur yfir Erlu Bolladóttur. Alls var þetta 60 til 70 ára fangelsisdómur. Í forsendum dóms Hæstaréttar var talið ómögulegt að taka mark á því að sakborningar höfðu dregið framburð sinn til baka. Vísað var til þess að Geir- finnur hefði horfið í nóvember 1974 en framburður ekki dreginn til baka fyrr en árið 1977. Einn af stjórnendum rannsóknarinnar, Örn Höskuldsson dómarafulltrúi, hafði þó bréflega gert grein fyrir því að hann tæki ekki mark á játningu Sævars, fáeinum dögum eftir að hún lá fyrir. Talið var sannað að Tryggvi Rún- ar hefð átt aðild að því að svipta Guð- mund Einarsson lífi auk annarra brota. Hann var á sjó þegar Geirfinn- ur hvarf og hafði því fjarvistarsönnun varðandi hvarf hans. Ljúfmenni Tryggvi Rúnar var Reykvíkingur, ólst upp í Laugarnesinu til unglingsára en flutti þaðan í Selásinn. Hann út- skrifaðist sem rafsuðumaður frá Fjöl- brautaskóla Suðurlands árið 1980 en hann hafði þá frá handtöku setið nokkur ár í gæsluvarðhaldi og fang- elsi. Sjöfn og Tryggvi Rúnar hittust fyrst árið 1968, þá afar ung að árum. Þau gengu í hjónaband árið 1979. Dóttir þeirra, Kristín Anna, var þá 4 ára. Sjöfn dregur ekki fjöður yfir það að Tryggvi Rúnar var óreglusamur og fetaði óheillabrautir á þessum tíma. „En morðingi var hann ekki, svo mik- ið er víst. Það gekk á ýmsu hjá hon- um og við höfðum byrjað saman og hætt. En eftir að Geirfinnsmálið kom upp og Tryggvi Rúnar var handtek- inn vorum við saman allan tímann í gegnum fangelsisvist hans og eft- ir að hann kom út af Litla-Hrauni. Hann sat af sér um það bil helming- inn af tímanum, líklega ein sjö til átta ár. Hann var algert ljúfmenni. Ég veit að allir sem þekktu Tryggva Rúnar eru sammála um það. Hann velti sér ekki mikið upp úr örlögum sínum og því að hafa verið dæmdur fyrir morð. En honum gekk ekki sérlega vel eftir að hann slapp út. Hann fór að nota áfengi í óhófi sem hann þoldi ekki. Hann breyttist undir áhrifum til hins verra. En morðingi var hann ekki, svo mikið er víst. Ég endurtek, að allir sem hittu Tryggva Rúnar á lífs- leiðinni, væru sammála um að hann hafi verið algert ljúfmenni og mjög góður maður. En hann umturnað- ist með víni, djammaði hraustlega í slíku ástandi og hélt sig úti á jaðri samfélagsins þegar svo bar undir. Við drögum ekkert fjöður yfir það. Þannig var það meðan hann drakk. En hann drap engan,“ segir Sjöfn og leggur áherslu á orð sín. „Þetta voru pyntingar“ „Það sem ég vil draga fram í þessu sambandi eru pyntingarnar sem hann og hinir sakborningarnir sættu í gæsluvarðhaldinu. Ég nota orðið pyntingar því þau sættu miklu harð- ræði í Síðumúlafangelsinu mánuð- um saman. Það var ekki eins og þetta væru neinir bógar þegar þau voru handtekin, flest um eða innan við tvítugt og í óreglu og jafnvel fíkniefn- um. Þetta voru hræðilegar pyntingar. Hann fékk ekki að tala við mig, hann fékk ekki að tala við neinn, hann fékk ekki að fara á klósettið, ljósið var ekki slökkt hjá honum dögum saman, þau fengu lyf sem setti þau úr lagi. Dæmi voru um að límband væri sett fyrir munn þeirra og þau voru í ein- angrun, ekki bara í mánuði heldur ár. Hver mundi ekki gangast við brotum eftir slíka meðferð í von um að sleppa út. Þetta byrjaði með einhverjum óskiljanlegum hætti með framburði Sævars og Erlu. Ég botna ekkert í því enn. Tryggvi var á sjó þegar Geir- finnur hvarf og hafði fjarvistarsönn- un. Það var hins vegar ekki jafn ljóst varðandi Guðmund. Tryggvi hélt alltaf í vonina um að sannleikurinn kæmi í ljós. Hann fór í skóla með- an hann sat inni á Litla-Hrauni og var búinn að fá vinnu í Héðni áður en hann hafði lokið afplánun. Hann vann þar í mörg ár og það gekk mjög vel. En hann var áfengissjúklingur og það hafði ekkert með fangavistina að gera. Hann var lentur á þeirri óheilla- braut áður en Geirfinnsmálið kom upp. Hann vildi breyta þessu, hætta að drekka og standa sig og fór því oft í meðferð.“ JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Tryggvi Rúnar Leifsson hélt fram sakleysi sínu til hinsta dags, en hann dó í fyrra. Fyrir meira en 30 árum var hann dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir aðild sína að Geir- finnsmálinu, Því er stundum er lýst sem mesta hneyksli íslenska dómskerfisins frá því núgildandi hegningarlög tóku gildi árið 1940. „Tryggvi Rúnar var ofboðslega góður maður. Og alveg þangað til hann dó hélt hann fram sakleysi sínu,“ segir Sig- ríður Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, eftirlifandi eiginkona Tryggva í viðtali við DV. „Égvilekkigefamérneittumhlutiseméghefengavitneskjuum.Enéghallaðist fljótlegaaðþvíaðþettahefðiveriðeinhverskonarslys.Égveitekkihvernigþað hefurviljaðtil.Enþegarviðvorumbúniraðgrafauppalltsemviðgátumum Geirfinn,lífshlauphans,reikningaogviðskipti,fundumviðengarvísbendingar eðaneittannaðsemgatkomiðokkuráeinhverjaslóð.Égfullyrðiaðsjaldanhefur veriðsafnaðjafnmiklumupplýsingumumnokkurnmannírannsóknafþessutagi. Viðvorumeinfaldlegaaðreynaaðsvaraspurningunum:Hvaðgerðist?Afhverju? ViðgátumhvergitengtGeirfinnviðnokkurnskapaðanhlut.Ímínumhugaeru afdrifGeirfinnsalgerlegaóupplýstmál.“ „Ég,einsogaðrir,varífyrstuánægðurmeðþegarfréttirbárustafþvíaðbúiðværi aðupplýsaGeirfinnsmálið.Égkomekkertaðrannsókninnisemleidditilþeirrar niðurstöðu.Enþegaréglasyfirgögnmálsinsrunnuámigtværgrímursvoekki sémeirasagt.Églasdómanaogforsendurþeirraoftareneinusinni.Allargötur síðanhefégveriðþessfullvissaðsaklausireinstaklingarvorusakfelldirogdæmd- irtillangrarfangelsisvistar.Hverginokkursstaðareraðfinnalögfullasönnun umeitteðaneitt.Ekkertvarlagttilgrundvallardómunumannaðenframburður sakborninga.Þaðvantaðiástæðu,vantaðimorðvopn,vantaðilík.“ (Haukur Guðmundsson, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður segir frá í bókinni „19. nóvember“.) ÚR BÓKINNI „19. NÓVEMBER“ Tryggvi hélt fram sakleysi sínu fram í andlátið SigríðurSjöfnSigurbjörns- dóttir,eftirlifandieiginkona TryggvaRúnars,stóðvið hliðhansígegnumáralanga fangelsisvist.„Hannvar algertljúfmenni.“ HÉLT FRAM SAKLEYSI SÍNU Á DÁNARBEÐI Tryggvi Rúnar Leifsson     F.  2 .  o k t ó b e r .  1 9 5 1     D .  0 1 .  m a í  2 0 0 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.