Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2010, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2010, Blaðsíða 20
Óvænt atriði Jóladagatal Norræna hússins býður upp á fjöl- breytta dagskrá á aðventunni að venju. Á hverjum degi, 1.–23.desember, kl. 12.34 verða óvænt atriði í jóladagatali Norræna hússins. Í síðustu viku spilaði íslenska ungmennahljómsveitin Útidúr og vakti mikla lukku gesta, Matti Kallio og Andrés Þór Guðlaugsson léku djassskotin þjóðlög af Norðurlönd- unum og á sunnudaginn spilaði Eiríkur Guðmundsson fyrir gesti. Markmiðið með jóladagatali Norræna hússins er að bjóða upp á öðruvísi dagskrá á aðventunni þar sem jólin sjálf koma ekki endilega við sögu heldur lagt upp með að skapa stemningu fjarri því amstri sem vill fylgja jólaundirbúningi. JÓnas og ritvélar framtíðar Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar fylgja eftir plötunni „Allt er eitthvað“ með tónleikum í Tjarnarbíói þriðjudaginn 7. desember. „Allt er eitthvað“ er önnur sólóplata Jónasar Sigurðssonar og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Hún fékk til að mynda fullt hús stiga hjá þremur gagnrýnendum á blöðum og í útvarpi. Á nýju plöt- unni er meðal annars að finna sumarsmellinn „Hamingjan er hér“ sem lengi var á toppi vinsældalista Rásar 2. 20 fókus 6. desember 2010 mánudagur JÓlaleikrit BorgarBarna Leikfangalíf – jólaleikrit Borgarbarna er sýnt í Iðnó um þessar mundir. Sýningar fara fram á skólatíma á virkum dögum og um eftirmiðdag- inn og um helgar. Sem fyrr munu Borgarbörn bjóða upp á djús og pip- arkökur að sýningu lokinni. Borg- arbörn voru stofnuð árið 2006 og hafa sex verk verið sett upp á þeirra vegum. Sýningargestum stendur til boða að koma með jólapakka merktum kyni og aldri viðtakenda sem Borg- arbörn munu síðan koma til skila til Mæðrastyrksnefndar. HádegistÓn- leikar við tJörnina Hin sívinsæla hádegistónleika- röð Ljáðu okkur eyra undir stjórn Gerrit Schuil er alla miðviku- daga  kl. 12.15 í Fríkirkjunni. Dagskrá hverra tónleika er ekki auglýst fyrirfram né flytj- endur. Hvort tveggja er hluti af þeirri uppgötvun sem bíður þeirra sem sjá ástæðu til að líta við í kirkjunni um hádegisbil og njóta þar framlags ágætustu tón- listarmanna Íslendinga – hljóð- færaleikara og söngvara. Það má hiklaust mæla með því að fá sér göngutúr meðfram Reykjavíkur- tjörn á miðvikudögum og leyfa tónlistinni að næra sig og auðga. Jesús litli á táknmáli Á þriðjudagskvöld verður aukasýn- ing á Jesú litla í Borgarleikhúsinu og verður hún túlkuð yfir á táknmál. Jesús litli var ótvíræður sigur- vegari íslensku leiklistarverðlaun- anna, Grímunnar nú í vor. Jesús litli var valin sýning ársins og leikverkið sjálft var valið leikrit ársins auk þess sem sýningin hlaut sjö tilnefningar. Gagnrýnendur hlóðu sýninguna lofi og áhorfendur voru hrærðir og yfir sig hrifnir og nú fá fleiri að njóta. Leikbrúðan er elsti leikarinn, segja sumir. Vel má vera að svo sé, þó að upp- runi þessarar undarlegu listar sé að vísu myrkri og móðu hulinn. Brúðuleiklistin er eflaust sá þátt- ur leiklistarinnar sem okkur hættir hvað mest til að vanmeta, gleyma jafnvel alveg. Hún er í vitund margra, kannski flestra, einungis barnalist, barnaleg eins og börnin sjálf, en vitaskuld er hún það ekki ef hún er skoðuð undir sjónar- horni sögunnar eða heimsins alls. Leikbrúðan hefur alltaf fylgt mann- inum, einnig þegar ráðandi öfl hafa lokað leikhúsum í nafni trúarbragða eða hugmyndafræði; þá hefur ver- ið hentugt að grípa til hennar, því að það er auðveldara að fela hana en eitt stykki leikara sem er að brjóta gegn leikbanni yfirvalda. Og maðurinn get- ur ekki lifað án leiklistar, ekki frekar en sagna- eða tónlistar, það er gömul saga og ný. Hér á landi á brúðuleiklistin sér ekki langa samfellda sögu; hún er ekki nema rétt rúmlega hálfrar aldar löng. Myndlistarmaðurinn Jón E. Guð- mundsson, Brúðu-Jón eins og hann var oftast kallaður, kom hér fyrstur á fót brúðuleikhúsi; það var Íslenska brúðuleikhúsið sem hann stofnaði árið 1954 og rak síðan áratugum sam- an, eins lengi og kraftar entust; flestir sem komnir eru á miðjan aldur muna eftir honum sjálfum og brúðunum hans, sem nú eru orðnar eign Leik- minjasafns Íslands. Þær voru kannski ekkert allar mjög liprar í hreyfingum, en ásjónurnar margar hreinustu lista- verk í útskurði; það hefur verið gam- an að finna hversu sterk viðbrögð þær vekja þegar þær hafa verið tekn- ar fram. Íslenska brúðuleikhúsið var lengst af ferðaleikhús, það höfðaði vissulega fyrst og fremst til barnanna, sagði þeim gömul ævintýri og þjóð- sögur; því má segja að brúðumeist- arinn Bernd Ogrodnik hafi nokkra hefð við að styðjast, þegar hann legg- ur á þessi mið, hefð sem konurnar í Leikbrúðulandi og fáeinir aðrir góð- ir listamenn hafa einnig leitast við að halda á lofti. Um þetta allt getið þið sótt ykkur nokkurn fróðleik á slóðina leikminjasafn.is/annall/1954brud, þá hafa samtök brúðuleikara nýlega komið upp heimasíðu, unima.is. Um tíma virtist brúðuleiklistin hér stödd í lægð; það var ekki mikið um endurnýjun, ekki mikið nýtt að ger- ast, svolítið eins og menn hjökkuðu í sama fari. Á því hefur orðið merkj- anleg breyting á allra síðustu árum. Þar munar ekki minnst um tilkomu fyrrnefnds Bernds Ogrodniks, sem nú hefur opnað leikbrúðumiðstöð í Borgarnesi. Bernd, sem er þýskur að uppruna, kom hingað ungur, starfaði í áratug í Bandaríkjunum og Kanada, en er nú fluttur hingað aftur og hefur starfað hér undanfarin ár; við höfum meðal annars fengið að kynnast list hans í Þjóðleikhúsinu, auk þess sem hann hefur verið ötull við að ferð- ast um landið með alls kyns sýning- ar. Brúðumiðstöðin, sem Bernd rek- ur ásamt konu sinni, Hildi Magneu Jónsdóttur, er í gömlu Kaupfélags- húsunum niðri við sjóinn, skammt frá Landnámssetrinu. Þarna hafa þau fyllt þrjú hús af leikbrúðum og brúðu- leiklist; já, ævintýrin gerast enn, það má nú segja. Landnámssetrið kom Borgarnesi á leiklistarkortið og nú fylgja Brúðuheimar fast á hæla þess; þannig á þetta að vera, hvað byggir annað upp og veitir um leið örvun og samkeppni. Það er heillandi að ganga inn í þann heim sem Bernd hefur skapað, því að Brúðuheimar eru í raun lifandi safn um list hans sjálfs, þar sem gaml- ir kunningjar og nýir blasa við á pöll- um og í hornum: ljóti andarunginn, Einar Áskell, litla stúlkan með eld- spýturnar og margir fleiri sem mað- ur kann ekki að nefna alla. En um leið gefur sýningin merkilega góða mynd af því hversu víðfeðm brúðuleiklistin er: þarna er hægt að búa til skugga- myndir með puttum og höndum, setja á sig handbrúður, toga í strengi og ýta á takka, því að þetta er ekki svona safn þar sem alltaf er verið að banna manni að snerta á hlutunum, nei það er nú öðru nær; hér ræður ímyndunaraflið ríkjum og gesturinn er ekki bara óvirkur skoðandi, heldur fær hann að prófa sjálfur, skapa. Á einum vegg er til dæmis fullt af litlum gægjugötum og þegar inn um þau er litið sést í dulúðugan heim trölla og tröllabarna; áður en maður veit af er maður farinn að spinna upp sögur út frá því sem þar grillir í. Auðvitað er bíó þarna líka: lítil sjónvarpsmynd af fyrri verkum meistarans gengur í einu tæki jafnt og þétt, og svo hefur Bernd gert heila bíómynd sem einnig eru sýnd brot úr. Þegar ég kom inn tók ég eftir því að brúðurnar voru ekkert merktar, og hafði orð á því við hann, en hann sagði mér að það væri með ráðum gert, hugsunin væri sú að leyfa gest- inum einfaldlega að njóta þess sem í boði væri; ef menn vildu vita eitthvað meir, gætu þeir kíkt í sýningarskrána sem hægt er að fá í miðasölunni; og ég sá að þetta var hárrétt athugað og að það var ég sem var fastur í gamalli vanahugsun um hvernig það ætti að vera á söfnum. Í neðsta húsinu niðri við sjóinn er leikhúsið sjálft á sögulofti undir súð; þar er hún Gilitrutt gamla nú mætt til leiks, lata bóndakonan og bóndinn sem var svo heppinn að eiga að vini hrafninn. Það kom sér líka vel þegar Gilitrutt var búin að vinna ullina fyrir bóndakonuna og ætlaði að fara með hana inn í fjallið til sín; þá gat hrafn- inn bjargað málunum. Hinn dyggð- ugi fær sín laun og hinn ódyggðugi rétt sleppur fyrir horn, þökk sé hinum dyggðuga, en það er ekki alltaf sem svo vel fer í ævintýrunum. Bernd segir okkur þessa gamalkunnu sögu í um- gerð sem gæti ekki verið þjóðlegri og rómantískari; fyrir enda söguloftsins blasir við íslenska sveitin í allri sinni dýrð, grænar grundir, fjallasýn og hraun, sveitabærinn fyrir miðju, bú- sældarlegt um að litast; þetta er land- ið með augum naívistans sem lítur til baka og sér allt í hillingum hins liðna. Sögumaður og brúðustjóri stendur sjálfur í þessari umgerð, fer ekki í fel- ur með eigin návist, heldur tekur á brúðunum, leiðir þær fram og talar fyrir þær og lætur sig ekki muna um að búa til ýmis aukahljóð sem til þarf, málar upp sögusviðið með orðum og athöfnum, lífið á sveitabænum, og síðan hefst sagan. Þetta tekur ei- lítið langan tíma stundum, en börn- in fylgdust þó með full athygli, þeim lá greinilega ekkert á, misstu aldrei áhugann, enda fá þau að taka þátt í leiknum, hjálpa til við að reka féð af fjalli og jarma með kindunum sem þau gerðu af innlifun. Bernd gætir þess að gera ekki of mikið úr hrolli sögunnar og þó er Gilitrutt sjálfsagt alveg nógu hættuleg í augum sumra, þar sem hún situr í helli sínum, en það rak enginn upp óp eða fór að gráta á sýningunni sem ég var á. Ekki spillir heldur tónlistin sem sagnaþul- urinn býr að hluta til sjálfur á harm- onikku, auk þess sem ýmsum öðrum hljóðfærum bregður fyrir í upptöku, þar á meðal langspili. Að sýningu lokinni er tilvalið að setjast niður í litla veitingahúsinu sem er í efsta húsinu. Þar er meðal annars að finna gott úrval bóka um brúðuleiklist, sem bókabéus getur auðveldlega gleymt sér við að blaða í, á meðan hann dreypir á kaffinu eða nartar í girnilega grænmetisrétti. Er þetta ekki annars eina leikhúsbóka- kaffið hér á landi um þessar mundir? Og börnin, jú þau geta á meðan skoð- að alla fallegu útskurðargripina sem meistarinn hefur galdrað fram undan tálguhnífnum og eru til sýnis og sölu, það má líka handleika þá. Það er ekki hægt annað en að óska Borgnesing- um til hamingju með þessa glæsilegu viðbót við lista- og menningarlíf stað- arins og um leið að þeir kunni að not- færa sér hana og þau sóknarfæri sem hún býður augljóslega upp á.   JónViðarJónsson elsti leikarinn í Borgarnesi leiklist jón viðar jónsson leikhúsfræðingur skrifar BRÚðuHEiMAR Í BoRGARNESi: Gilitrutt eftirBerndOgrodnik Leikstjórn: Benedikt Erlingsson Búningar: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir Ljós: Jóhann Bjarni Pálmason Leikmunagerð: Móeiður Helgadóttir Benedikt Erlingsson og Bernd Ogrodnik „Brúðuleiklistin er eflaust sá þáttur leiklistarinnar sem okkur hættir hvað mest til að vanmeta, gleyma jafnvel alveg.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.