Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2010, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2010, Side 16
16 erlent 6. desember 2010 mánudagur Roman Abramovich, eigandi Chel- sea, er sagður gegna lykilhlutverki í skipulagningu í kringum heims- meistaramótið í knattspyrnu sem fram fer í Rússlandi árið 2018. Það var sjálfur Vladimír Pútín sem fór þess á leit við auðkýfingin að hann tæki upp veskið í tengslum við keppnina. Abramovich er nú þegar helsti styrktaraðili rússneska landsliðsins í fótbolta. Hann var áberandi í Zürich í síðustu viku þegar tilkynnt var að Rússar hefðu verið valdir til að halda mótið. Sást til hans faðma samlanda sinn, knattspyrnumanninn Andrei Arshavin, leikmann Arsenal. Búist er við því að Abramovich leggi milljónir dollara í mótið, en tal- ið er að Rússar ætli að verja 2,4 millj- örðum dollara til þess að byggja og laga 13 leikvanga fyrir mótið. Alls ætla þeir að verja 7 milljörðum doll- ara í að styrkja innviði ferðamanna- iðnaðarins fyrir mótið sjálft. Pútín sagði eftir tilkynninguna að Abram- ovich gæti hlaupið undir bagga með ríkinu með því að fjárfesta sjálfur á þessum sviðum. „Ég útiloka ekki að hann taki þátt í þessum verkefnum. Leyfum honum að taka upp veskið aðeins. Hann á nóg af peningum og mun ekkert finna fyrir þessu,“ sagði Pútín við blaðamenn. Talsmaður Abramovich staðfest- ir að hann sé tilbúinn til þess að fjár- festa í tengslum við heimsmeistara- mótið. Samkvæmt Forbes-tímaritinu er Abramovich í fimmtugasta sæti á lista yfir ríkustu menn heims. Vladimír Pútín vill að Abramovich taki upp veskið: Abramovich fjárfestir fyrir HM Allt er í hers höndum á Fílabeins- ströndinni eftir að úrslit í forsetakosn- ingum voru gerð kunn. Fyrstu tölur frá kjörstjórn voru birtar í síðustu viku og þær sýndu glögglega að Alassane Ou- attara, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, hefði borið sigurorð á núverandi for- seta, Laurent Gbagbo. Hlaut Ouattara 54 prósent atkvæða á meðan Gbagbo fékk 46 prósent í kosningu milli þeirra tveggja. Kosningarnar fóru fram þann 28. nóvember en þær áttu upphaflega að fara fram árið 2005. Þeim hefur verið frestað margoft síðan þá, með- al annars vegna blóðugrar borgara- styrjaldar sem hefur geisað í landinu undanfarinn áratug. Ouattara hefur löngum sakað Gbagbo um að fresta kosningunum til þess eins að ríghalda í forsetaembættið. Nú hafa kosning- arnar farið fram en þá neitar Gbagbo að viðurkenna ósigur. Gbagbo segir að úrslitin eigi ekki að viðurkenna, þar sem kjörstjórn skilaði úrslitunum ekki á tilskildum tíma. Lokaorðið í deilunni mun falla í hlut Paul Yao N'Dre, en hann leiðir stjórnlagaráð Fílabeinsstrandarinn- ar. Gallinn er hins vegar sá að N'Dre er skjólstæðingur Gbagbo, og því má gera ráð fyrir að kosningarnar, sem beðið hafði verið eftir með eftirvænt- ingu, verði gerðar ómerkar. Landið í lás Í kjölfar mikilla blóðsúthellinga und- anfarna daga var send út tilkynning frá hernum á fimmtudaginn. Kem- ur þar fram að „landamæri til lands, lofts og sjávar eru lokuð, sem og fólks- eða vöruflutningar, þangað til annað verður tilkynnt.“ Skömmu síð- ar lokaði ríkisstjórnin á útsendingar erlendra miðla. Útvarpsstöðinni Rad- io France var lokað sem og sjónvarps- fréttastöðvunum France 24 og CNN. Ríkisstjórnin sagði að það hefði verið gert „til að halda friðinn.“ Árás frá hernum Í síðustu viku greindu vitni frá voða- verkum af hendi hersins, sem er enn undir stjórn Gbagbo. Gerðu nokkr- ir hermenn skotárás á kosningaskrif- stofu Ouattara í hafnarborginni Abi- djan. Lágu átta fórnarlömb eftir í valnum. Yfirmenn hersins staðfestu að skotárás hefði átt sér stað, en sögðu að hermennirnir hefðu ekki hleypt af fyrstu skotunum og jafnframt að fórn- arlömbin hefðu aðeins verið fjögur. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hvatt er til þess að deilurnar um for- setakosningarnar verði leiddar til lykta á friðsamlegan hátt. Ellegar myndu fylgja afleiðingar, jafnvel efnahags- legar refsiaðgerðir. Fílabeinsströnd- in er stærsti framleiðandi kakóbauna í heiminum og hefur óstöðugt ástand stjórnmála þar í landi haft áhrif á hækkandi verð súkkulaðis í heimin- um. Landamæri til lands, lofts og sjávar eru lokuð, sem og fólks- eða vöruflutn- ingar, þangað til annað verður tilkynnt. björn teitsson blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is Langþráðar forsetakosningar fóru fram á Fílabeinsströndinni í lok nóvember. Núver- andi forseti, Laurent Gbagbo, neitar að viðurkenna ósigur. Landamærum hefur verið lokað og erlendum miðlum úthýst frá landinu. Laurent Gbagbo Neitaraðviðurkenna ósigur. stuðningsmenn ouattara fagna Hélduaðsigurinnværiíhöfn. Vladimír Pútín Forsætisráðherra RússlandsvillaðeigandiChelsea fjárfestifyrirHMíRússlandi2018. Hákarl réðst á konu Þýsk kona lét lífið eftir árás hákarls í Rauðahafi. Hákarlar hafa ráðist á þrjár manneskjur í Rauðahafi á ein- ungis viku. Áður hafði verið bitinn handleggur af sundmanni og annar missti fótinn eftir árás hákarla. Var annað fórnarlambið frá Rússlandi en hitt frá Úkraínu. Var ráðist á þýsku konuna við Naama-flóa en stutt er síðan strönd- in þar var opnuð aftur eftir að henni var lokað vegna árásar hákarls. Um fjórar milljónir ferðamanna heim- sækja strendur Rauðahafs á hverju ári. Skotinn af veiðimanni Sjötugur sænskur maður lést um helgina þegar hann var fyrir mistök skotinn af veiðimanni. Var veiði- maðurinn á elgsveiðum en missti marks og skaut hinn 70 ára gamla Svía í stað elgsins. Slysið átti sér stað nærri bænum Ljungby í Svíþjóð. Maðurinn var látinn þegar björgun- arfólk kom á staðinn. „Við teljum þetta einstaklega hörmulegt slys,“ sagði lögreglumað- urinn Robert Loeffel við sænsku fréttastofnuna TT. Atvikið átti sér stað eftir hádegi á laugardag. Ótrúleg björgun Karlmanni var giftusamlega bjargað af lestarteinum í Madríd á dögun- um, nánast í sömu andrá og lestin fór hjá . Hann hafði fallið af braut- arpallinum á teinana og björguðu nærstaddir honum á síðustu stundu. Atvikið náðist á myndband en frá því er greint á fréttavef The Tele- graph. Þar má sjá fólk á brautapall- inum bjarga manninum á síðustu stundu áður en lestin fór framhjá. Maðurinn hrasaði niður af braut- arpalli neðanjarðarlestar í Madríd og má sjá fólk hinum megin reyna að vekja athygli lestarstjórans á aðstæðum. Á endanum var það lögreglumaður á stöðinni sem náði manninum af teinunum. Landamæri Lokuð á FíLabeinSStrö d

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.