Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 7.–9. janúar 2011 Helgarblað
Bjarni Benediktsson tengist viðskiptum Sjóvár sem saksóknari rannsakar:
Segist ekki hafa verið yfirheyrður
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
EURO Panelofn 50x120 cm
12.390
Hágæða ofnar á áður
óþekktu verði
MARGAR STÆRÐIR
EURO handklæðaofn beinn
hvítur 50x80 cm
7.290
EURO handklæðaofn kúptur króm
50x80 cm
13.490
VOTTUÐ GÆÐAVARA
KRANAR OG
HITASTILLAR FRÁ
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum - Flúðum
MARGAR STÆRÐIR
Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri
ÍNN, hefur verið ákærður af ríkislög-
reglustjóra fyrir meint skattalaga-
brot. Segir hann að ríkisskattstjóri
fari fram á rúmar tíu milljónir króna.
„Ég er í skattakæruveseni, en aldrei
hef ég heyrt talað um fjársvik,“ seg-
ir Ingvi Hrafn aðspurður um málið.
Málið snýr að meintri rangri með-
ferð virðisaukaskatts í tengslum við
vegagerð og vatnsveitu en Ingvi seg-
ir að málið teygi sig í margar áttir
og segir þar skipta máli 25 milljónir
sem hann eigi inni hjá gamla Glitni.
Í klóm gjaldþrota banka
„Þetta er svona þegar maður lendir
í klónum á svikulum og gjaldþrota
banka og vondum endurskoðend-
um. Þá lendir maður í alls konar
skít.“ Hann neitar þó að hafa gert
nokkuð rangt varðandi virðisauka-
skattinn sem ríkisskattstjóri segir
hann skulda. „Ég fékk bara vondan
endurskoðanda, ég tel að hann hafi
brugðist mér illa. Þetta er afar flók-
ið mál,“ segir Ingvi. „Ég tek bara til
varna eins og menn gera og er ekk-
ert auðmjúkur á einn eða neinn hátt.
Ég á þarna kröfu upp á 25 milljón-
ir sem slitastjórnin lögmat og liggur
þar inni og býður einhvers konar af-
greiðslu. Það hefur bara keðjuáhrif
út í allt sýstemið.“
Verst ákærunni
„Ég verð bara að verjast ákæru. Það
er ekkert flóknara en það,“ segir Ingvi
en hann kennir vondum endurskoð-
endum um að málið sé komið í þann
farveg sem það er í. „Ekki samkvæmt
mínum viðskiptum og allri minni
framgöngu í málinu gagnvart endur-
skoðendum,“ segir hann aðspurður
um hvort hann telji sig skulda skatt-
inum. „Við lentum í því fyrir tveimur
árum að Glitnir, hann sveik okkur um
greiðslur upp á 25 milljónir. Krafa sem
liggur inni hjá skilastjórninni.“ Ljóst er
að skattayfirvöld telja sig hafa næga
ástæðu til að ætla að Ingvi skuldi þeim
í raun þennan pening þar sem málið er
komið jafnlangt og raun ber vitni. Það
verður þingfest um miðjan mánuðinn.
Ógreidd veiðileyfi
„Þeir keyptu veiðileyfi hjá okkur sem
þeir svo neituðu að borga þegar fór
að halla undan fæti,“ segir Ingvi um
25 milljónirnar sem hann telur Glitni
skulda sér. „Þetta tengist Langárveið-
um. Þeir gera kröfu um það, en það er
erfitt fyrir mig að borga skatta af ein-
hverju sem ég hef ekki fengið greitt.“
Hann segir málið vera mjög flókið
og að hann eigi erfitt með að útskýra
nákvæmlega út á hvað það gengur.
„Þetta er bara í höndum lögfræðings-
ins míns. Svo verður bara að sjá hvað
kemur út úr því,“ segir hann.
Ingvi Hrafn og eiginkona hans,
Ragnheiður Sara Hafsteinsdóttir,
eiga og reka Langárveiðar ehf. sem
var rekstraraðili Langár á Mýrum allt
til ársins 2009. Áin var mjög vinsæl
meðal bankamanna fyrir hrun. Langá
þykir ein af betri laxveiðiám landsins
og veiddust nærri 2.300 laxar í ánni í
fyrra.
n Ríkisskattstjóri krefst tíu milljóna frá Ingva Hrafni Jónssyni n Ingvi segist
fórnarlamb svikuls banka n Segir Glitni skulda sér 25 milljónir fyrir veiðileyfi
IngvI Hrafn verst
fyrIr dómstólum
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Sjónvarpsstjórinn Ingvi
Hrafn er sjónvarpsstjóri á ÍNN
en skatturinn krefur hann um
margar milljónir króna.
„Þetta er tómt kjaftæði eins og ann-
að sem þið skrifið,“ segir Bjarni Bene-
diktsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, þegar blaðamaður spyr hann hvort
embætti sérstaks saksóknara hafi rætt
við hann í tengslum við rannsóknina
á tryggingafélaginu Sjóvá. Rætt hefur
verið við marga þá er tengdust trygg-
ingafélaginu fyrir efnahagshrunið í
tengslum við rannsóknina. Það virðist
þó vera hægt að skilja Bjarna á þann
veg að hann hafi ekki verið yfirheyrður.
Hann vildi ítrekað ekki svara spurn-
ingu blaðamanns um hvort hann hefði
verið yfirheyrður fyrr en í lok samtals-
ins þegar hann hækkaði róminn og
sagði þetta vera tómt bull og kjaftæði.
„Ég tek ekki þátt í svona skollaleik,“
sagði hann meðal annars í símtalinu.
Meðal þeirra sem yfirheyrðir hafa
verið í tengslum við rannsóknina
á Sjóvá er föðurbróðir Bjarna, Ein-
ar Sveinsson. Þeir tengjast ekki bara
blóðböndum heldur einnig viðskipta-
böndum í gegnum fjárfestingafélag
fjölskyldu Bjarna, BNT ehf., þar sem
Bjarni var fyrir efnahagshrun hluthafi
og stjórnar formaður. Bjarni fékk fullt
og óskorað umboð frá Hafsilfri, Hró-
mundi og BNT, eigendum fjárfestinga-
félagsins Vafnings, til að veðsetja eign-
arhluti fjölskyldufélaganna þriggja
í Vafningi hjá Glitni banka í febrú-
ar 2008. Um svipað leyti, í lok febrúar
2008, lánaði Sjóvá Vafningi 10 millj-
arða króna með víkjandi láni. Ástæð-
an fyrir því að lánið var víkjandi er sú
hversu stóran þátt Sjóvá og eigend-
ur félagsins, þeir Karl og Steingrímur,
áttu í félaginu. Lánið fékkst ekki greitt
til baka og átti þátt í að skilja eftir millj-
arða króna gat í eignasafni Sjóvár sem
meðal annars hafði þær afleiðingar að
íslenska ríkið þurfti að lána trygginga-
félaginu fé til að fjármagna bótasjóð
félagsins aftur.
Samkvæmt heimildum DV hefur
embætti sérstaks saksóknara vitað um
aðkomu Bjarna að viðskiptum Vafn-
ings frá því byrjað var að rannsaka Sjó-
vá. adalsteinn@dv.is
Ekki yfirheyrður Bjarni segir það vera
kjaftæði að embætti sérstaks saksóknara
hafi rætt við hann í tengslum við Sjóvá.
Tilboð RÚV
kom of seint
Páll Magnússon útvarpsstjóri
sendi Ara Edwald, forstjóra
365, formlegt tilboð um að RÚV
keypti sýningarréttinn að heims-
meistaramótinu í handbolta.
Páll sendi Ara bréf þess efnis á
fimmtudag en þar kom fram að
RÚV væri tilbúið að kaupa sýn-
ingarréttinn af 365 á sama verði
og 365 greiddi fyrir hann auk 20%
álags til að bæta 365 undirbún-
ingskostnað af ýmsu tagi.
Ari Edwald svaraði því til í
samtali við Vísi að tilboðið kæmi
allt of seint til að hægt væri að
bregðast við því. „Ég lít frekar á
þetta sem framhald af áramóta-
skaupinu,“ sagði Ari en HM í
handbolta hefst í næstu viku.
Metinn ósakhæfur:
Gunnar Rúnar
fluttur á Sogn
Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem
játað hefur að hafa orðið Hannesi
Þór Helgasyni að bana 15. ágúst í
sumar, hefur verið færður af Litla-
Hrauni yfir á réttargeðdeildina að
Sogni.
Samkvæmt heimildum DV fluttist
hann yfir á Sogn í byrjun vikunnar.
Þar lætur hann lítið fyrir sér fara og
heldur sig út af fyrir sig.
Guðrún Sesselja Arnardóttir, lög-
maður Gunnars Rúnars, staðfestir
þetta í samtali við DV.
Ljóst er að Gunnar Rúnar var í
geðrofsástandi þegar hann myrti
Hannes Þór. Geðrof er ástand þar
sem fólk getur upplifað bæði rang-
hugmyndir og ofskynjanir sem hafa
áhrif á líðan og geta líka haft áhrif á
hegðun.
Þar sem Gunnar Rúnar var met-
inn ósakhæfur af þremur geðlækn-
um, bæði í undir– og yfirmati, þykir
réttast að hann verði vistaður á við-
eigandi stofnun.
Réttarhöldunum yfir Gunnari
Rúnari er þó ekki lokið og fer aðal-
meðferð málsins fram í Héraðsdómi
Reykjaness 7. febrúar næstkomandi.