Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Blaðsíða 17
Erlent | 17Helgarblað 7.–9. janúar 2011 Aðdáendur ósáttir við breytingar á sögunni um Stikilsberja-Finn: N-orðið afmáð úr sögum Twains Met var slegið á fiskmarkaðnum í Tsukiji í Japan þegar 342 kíló- gramma bláuggatúnfiskur var seldur á jafnvirði 46 milljóna ís- lenskra króna. Tsukiji-fiskmark- aðurinn er sá stærsti sinnar teg- undar í heiminum og þar er bláuggatúnfiskur vinsælasta af- urðin. Túnfiskur nýtur nú vaxandi vinsælda um allan heim og sér- staklega á meginlandi Asíu. Eftir því sem japönsk matseld verður sífellt vinsælli á heimsvísu eykst eftirspurnin eftir túnfiski sem er jafnan notaður í sushi og sashimi- rétti. Ofveiði og auknar vinsældir Kaupendur risatúnfisksins voru eigendur tveggja veitingastaða sem ákváðu að skipta fiskinum á milli sín. Annar veitingastaðurinn er í Tokyo en hinn er í Hong Kong. Ricky Cheng er eigandi veitinga- staðarins í Hong Kong. „Góður túnfiskur selst vel í Hong Kong og í Kína yfirhöfuð og þetta var einstaklega góður fiskur,“ sagði Cheng þegar hann var spurð- ur um það af hverju hann borg- aði svo himinhátt verð fyrir einn fisk. En þrátt fyrir vaxandi neyslu á heimsvísu á túnfiski stendur heimsbyggðin Japönum enn þá langt að baki. Japanir kaupa upp um 80 prósent alls túnfisksafla eða rúmlega 600 þúsund tonn á hverju ári. Til að setja þessar töl- ur í samhengi má geta þess að heildaraflaheimildir fyrir túnfisk í Atlantshafi eru ekki nema 12.900 tonn fyrir árið 2011. Túnfiskur verði útdauður í Atlantshafi Umhverfisverndarsamtök eins og World Wildlife Fund hafa lýst yfir miklum áhyggjum af því að tún- fisksveiðar séu alls ekki sjálfbær- ar eins og staðan er í dag. Vör- uðu samtökin til að mynda við því að bláuggatúnfiskur yrði brátt útdauður í Atlantshafi, þrátt fyr- ir sílækkaðar aflaheimildir. Tals- maður Grænfriðunga, Oliver Knowles, sagði á fundi alþjóð- legra verndarsamtaka um tún- fisksstofninn í Atlantshafi (Int- ernational Commission for the Conservation of Atlantic Tunas) að aflaheimildir hafi ekki verið lækkaðar nærri því nógu mikið. „Það ætti að taka orðið „vernd“ úr nafni samtakanna.“ Sjálfbærni ekki í orðaforða Japana Japönum virðist í öllu falli standa á sama um sjálfbærni túnfisks- stofnsins, sérstaklega stofnsins í Atlantshafi. Miðað við núverandi þróun standa þeir þó frammi fyr- ir tveimur vandamálum. Í fyrsta lagi veiðist nú sífellt minna af túnfiski vegna mikils ágangs á stofninn, sem einnig veldur því að hætta er á að stofninn eigi erfitt uppdráttar við að ná jafn- vægi á nýjan leik. Í öðru lagi fer japönsk matseld eins og eldur í sinu yfir heimsbyggðina alla, sem eykur eftirspurn eftir hágæða- túnfiski – sem Japanir gátu áður keypt upp óáreittir. Þessi vanda- mál hafa orðið til þess að verðið á túnfiski fer ört hækkandi og er því spáð að innan skamms eigi fáir Japanir eftir að hafa efni á því að leggja sér túnfisk til munns í jafnmiklum mæli og hingað til. Verð á túnfiski í hæstu hæðum n Met var slegið á fiskmarkaði í Japan þegar einn fiskur var seldur á 46 milljónir íslenskra króna n Til marks um rjúkandi verðhækkanir á túnfiski n Umhverfisverndarsinnar spá því að túnfiskur verði útdauður í Atlantshafi Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is „Bæði þessi vanda- mál hafa orðið til þess að verðið á túnfiski fer ört hækkandi og er því spáð að innan skamms eigi fáir Japanir eftir að eiga efni á því að leggja sér túnfisk til munns. Stór fiskur Á myndinni má sjá risatúnfiskinn sem seldist á jafnvirði 46 milljóna íslenskra króna í vikunni. Í Bandaríkjunum er nú komin út ný útgáfa af Ævintýrum Stikilsberja- Finns eftir Mark Twain, sem margir telja mesta rithöfund í sögu Banda- ríkjanna. Hin nýja útgáfa sker sig frá öðrum að því leyti að búið er að þurrka út orðið „niggari“ (e. nigger) sem kemur fyrir á mörgum stöðum í upprunalegri útgáfu. Er markmið bókaútgefandans, New South Books, að þannig megi bókin rata til sem flestra lesenda án þess að fara fyrir brjóstið á þeim. Í stað orðsins niggari verður notað orðið „þræll“ (e. slave). Það er Alan Gribben, prófessor við Auburn-háskóla, sem er ritstjóri hinnar nýju útgáfu. „Þetta er ekki til- raun til að láta líta út fyrir að Tumi litli og Stikilsberja-Finnur hafi ver- ið litblindir. Málefni kynþátta voru áberandi í bókunum, en það er bara spurning hvernig þú miðlar þeim til lesenda á 21. öldinni.“ Gribben við- urkenndi þó að nýja útgáfan myndi líklega fara fyrir brjóstið á mörgum, enda er texti Twains svo gott sem heilagur í augum aðdáenda hans. „Nú þegar hefur einn prófessor sagt mér að hann hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum.“ Kaldhæðnislegt er auðvitað að Twain var sjálfur mikill andstæðing- ur kynþáttafordóma. Eitt af ævintýr- unum um Stikilsberja-Finn fjallar til að mynda um baráttu Finns fyrir því að vinur hans Jim, sem var þræll, verði frelsaður. Rithöfundurinn gaf einnig háar upphæðir til hvers konar samtaka sem börðust fyrir réttindum blökkumanna á ofanverðri 19. öld og í byrjun 20. aldar. Mark Twain Brjóstmynd af Twain á heimili hans í Hartford í Connecticut sem nú er safn. Börn Jackson grétu Nú standa yfir vitnaleiðslur í Los Angeles í máli Conrads Murray, einkalækni Michaels Jackson. Á fimmtudag bar lífvörður Jackson, Alberto Alvarez, vitni. Lýsti hann því þegar hann mætti inn í herbergi Jackson og sá þar konung poppsins þar sem hann hafði greinilega fengið lyf í æð auk þess að vera tengdur við þvaglegg. Yfir Jackson stóð Murray, sem barði með annarri hendi á brjóst söngvarans til að reyna að vekja hann til lífsins. Á eftir honum komu börn Jackson hlaupandi inn í herbergið og voru skelfingu lostin. Þau kölluðu grátandi á pabba sinn um leið og Murray skipaði Alvarez að koma börnunum strax úr her- berginu, þau ættu alls ekki að sjá pabba sinn í andarslitrunum. Hrægammur handtekinn Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa hand- tekið hrægamm sem þau grunar að hafi verið að njósna fyrir ísraelsku leyniþjónustuna Mossad. Það voru tveir menn sem náðu að handsama fuglinn rétt fyrir utan borgina Hya- al, en þeim fannst grunsamlegt að hrægammurinn hafði GPS-staðsetn- ingartæki um hálsinn og var með merkimiða frá háskólanum í Tel Avív vafinn um löppina. Töldu þeir að um „síonistasamsæri“ væri að ræða. Í ljós kom að hrægammurinn var hluti af rannsókn á hegðun fugla sem háskólinn stóð fyrir. Nýr skrifstofu- stjóri í Hvíta húsinu William Daley hefur verið fengið starf skrifstofustjóra Hvíta hússins í Washington. Staðan er ein sú mikil- vægasta í ríkisstjórn Bandaríkjana, þar sem skrifstofustjórinn hefur beinan aðgang að forsetanum og er hans nánasti ráðgjafi. Staðan hafði verið laus síðan Rahm Emanuel sagði starfinu lausu í nóvember er hann ákvað að freista þess að verða næsti borgarstjóri í Chicago. Daley er einnig frá Chicago, rétt eins og Obama. Faðir Daley, Richard, var borgarstjóri í Chicago í 21 ár frá 1955 til 1976 og bróðir hans Richard M. Daley er núverandi borgarstjóri Chicago en lætur brátt af embætti sínu. Ljóst er að Chicago á nóg af fulltrúum í Washington eins og sakir standa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.