Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Blaðsíða 48
Þ að er Shakespeare á Shake- speare ofan: fyrst Lér í Þjóð- leikhúsinu, svo Ofviðrið í Borg- arleikhúsinu. Eftir margra ára Shakespeare-leysi á sviðum Reykja- víkurleikhúsanna er þetta óneitanlega býsna stór skammtur svona í einu lagi. Og vel má spyrja, hvort þessi tvö verk séu sérlega vel valin sem fyrsta kynning á skáldinu. Því við skulum ekki gleyma því: hér er nú vaxin upp heil kynslóð sem hefur fengið mjög takmarkaða og jafnvel brenglaða mynd af skáldskap þess á sviðinu. Lér og Ofviðrið eru af ýmsum ástæðum með erfiðustu verk- um Shakespeares: söguþráðurinn í Lé flókinn og ekki alltaf trúverðugur, í Of- viðrið skortir dramatísk átök; það ork- ar í rauninni fremur sem fantasía og ljóðræn hugleiðing um lífið og listina en heilsteypt drama, síðasta verk höf- undar sem vissi að hann gat ekki leng- ur magnað upp svo volduga anda sem fyrr. Fyrir mitt leyti held ég að Kaup- maðurinn í Feneyjum, sem hefur ekki sést hér síðan 1974, eða fyrri hlutinn af Henriki fjórða, sem hefur aldrei ver- ið settur hér á svið, nú eða einhver af kómedíunum, sem sumar hafa aldrei verið leiknar af okkar atvinnufólki, hefðu verið betri kostir. En það er svo sem önnur saga og útúrdúr. Hinn merki breski leikstjóri og leik- kennari John Barton mun hafa sagt að Ofviðrið, sem er almennt talið síð- asta verk Shakespeares, sé versta leikrit hans. Það sé aðeins hægt að setja upp á tvo vegu: annað hvort í anda upp- hafins einfaldleika (leið Peter Brooks) eða sem effekta-sýningu með miklu galdraverki og sjónarspili. Fyrri aðferð- in, á Barton að hafa sagt, virkar aldrei af því að hún gerir leikinn of þyngsla- legan, auk þess sem plottið í honum sé of kjánalegt til að standa undir slík- um lestri. Síðari aðferðin sé skárri; þó að hún bjóði upp á yfirborðsmennsku og jafnvel stæla geti hún fætt af sér skemmtilegar sýningar. Ekki er ég nú viss um að ég sé sammála Barton um þetta, því ég hef alltaf haft miklar taugar til Ofviðrisins frá því ég heyrði það leik- ið hér í útvarpinu fyrir hartnær hálfri öld og varð alveg heillaður. Ævintýrið í því fór beint inn í barnssálina og situr í henni enn. Um eitt er ég hins vegar viss: Ofviðr- ið virkar ekki nema það sé hörkuleikari sem leikur burðarhlutverkið, töfrakarl- inn mikla Prosperó. Hann er landflótta hertogi á eyðieyju sem lætur anda og furðuskepnur þjóna sér og nýtir kunnáttu sína til að gera upp sakir við gamla fjandmenn. Í Prosperó þarf leik- ara með sterka sviðsnærveru, óþving- aðan myndugleik og þunga dramat- íska undiröldu. Leikara sem getur gert kallinn hættulegan, óútreiknanlegan, jafnvel svolítið spilltan af öllum þeim galdrakúnstum sem hann er búinn að fremja. Ein besta sýning sem ég hef séð á Ofviðrinu var hjá Royal Shakespeare Company með Derek Jacobi sem Prosperó og sá kunni að halda athygli manns (minni á að við fáum bráðum að sjá hann leika Lé í beinni útsend- ingu í Sambíóunum). Prosperó hef- ur löngum verið skoðaður sem sjálfs- mynd skáldsins við lok ferilsins, en það er ekki einhlít túlkun; hann hef- ur líka verið túlkaður sem mynd hins evrópska nýlenduherra, kúgarans sem undirokar varnarlausa frumbyggja, rænir þá auðæfum þeirra og lætur þá búa sér þægilegt líf. Það er engin leið að segja að önnur túlkunin sé hinni fremri; þær eru báðar fyllilega raun- hæfar; hin fræga shakespearska marg- ræðni nær á sinn hátt hátindi í þessum leik. Það er margt sem vantar í sýningu Litháans Oskaras Korsunovas á Of- viðrinu á stóra sviði Borgarleikhúss- ins og eitt af því er góður Prosperó. Á einhvern hátt naut Ingvar E. Sigurðs- son sín engan veginn í hlutverkinu. Kannski er hann ekki rétt týpa í það, kannski var það leikstjórnin sem var sumsstaðar mjög skrýtin, ekki síst í lokaatriðinu þar sem Prosperó fer allt í einu að barma sér og væla, alveg upp úr þurru; slík lögn hefur engan stuðn- ing af textanum, það ég fæ séð. Fábrot- inn klæðaburður í svörtu hjálpaði leik- aranum ekki heldur; hann hvarf nánast innan um allt það fataskraut sem þarna var til sýnis. Mér heyrðist Ingvar raunar vera kvefaður á sýningunni sem ég var á (það var önnur sýning); má vera það hafi átt sinn þátt í því hversu illa hann beitti röddinni og klemmdi hana, nán- ast eins og salurinn væri honum of- viða og hann þyrfti að rífa sig upp úr öllu valdi til að láta heyrast í sér. Annars finnst mér raddbeitingin vera sá tækni- þáttur sem Ingvar – eins og svo margir fleiri – þyrfti að taka sér tak í. Um uppsetningu Korsunovas er það almennt að segja að hún er und- arlega hæggeng og jafnvel brotakennd. Upphafið, fyrsti hálftíminn eða svo, var ekki sem verstur, hin löngu ræðuhöld Prosperós voru brotin frekar snoturlega upp, en síðan tók mjög að dofna yfir og færð að þyngjast. Tal leikenda drukkn- aði á köflum í hljóðlistinni sem ymur undir meira eða minna samfellt, skelf- ing fábreytilega (maður sem sat á þrett- ánda bekk sagði mér í hlénu að hann skildi ekki orð). Talsvert hefur verið strikað í textann, sleppt úr og þjappað saman atriðum; lokaræða Prosperós er til dæmis ekki frumtextans, heldur sambræðingur úr tveimur fyrri ræðum sem leikstjórinn hefur kosið að fórna í uppstokkun sinni. Uppgjörið mikla í leikslok leit helst út fyrir að vera hálfæft. Dansflokkurinn tekur þátt í sýningunni og nærvera hans kom sumsstaðar ekki illa út, til dæmis í fyrrnefndu upphafs- atriði. Þegar upp var staðið var hann þó ofnotaður. Korsunovas veit, eins og fleiri, að Shakespeare var leikhúsið sem fyrir- bæri mjög hugleikið. Hann líkti lífinu gjarnan við leiksvið, okkur mönnum við leikara í hlutverkum sem ókunn- ur höfundur hefði fengið okkur – leik- stjórar voru óþekkt fyrirbæri á hans dögum, alltént í þeirri mynd sem við þekkjum þá, þó að vísu megi segja að Prosperó hagi sér sem leikstjóri í því “sjói” sem hann stendur þarna fyrir. Á þessu þema Shakespeares hamrar Korsunovas af slíkri elju, að á endan- um er lítið sem ekkert eftir nema vísan- ir og myndir af leiklist, leikarar að leika leikara að leika leikara ... ? Strengbrúð- ur sem öðlast aldrei lifandi og sjálfstæð persónueinkenni, en skortir þó þann stíllega hreinleik, sem symbólskar leik- sviðsverur mega ekki án vera. Víða var sálfræðilegri undirbyggingu áfátt; ég bendi sem dæmi á samskipti Prosper- ós og loftandans Aríels í upphafskafl- anum, þar sem skáldið lýsir þvinguðu sambandi þeirra. Þar eiga leikendur að fá góð tækifæri til að sýna bæði skaps- muni Prosperós og vanlíðan Aríels í þrældómnum, en hér varð ekki neitt úr því. Og með stöku undantekningum í smærri hlutverkum var ljóst að lang- flestir leikenda náðu aldrei almenni- lega að hvíla í hlutverkunum; Ingvar var alls ekki einn um það. Aríel er leik- in af kvenmanni, svo sem oft tíðkast; leikstjórar fara hins vegar gjarnan þá leið að undirstrika kynleysi hans, en það er ekki gert hér, öðru nær. Kristín Þóra Haraldsdóttir hefur veika rödd og á löngum kafla drukknaði texti henn- ar í hlaupum og hávaða; leikstjórinn gerði henni sannarlega ekki alltaf auð- velt fyrir. Um nýliðann Láru Jóhönnu Jónsdóttur í hlutverki Míröndu gegndi talsvert öðru máli; hún vakti athygli fyr- ir styrkan róm og skýra framsögn. Strax eftir hlé lifnaði um stund yfir þegar Guðjón Davíð, Hilmir Snær og Hilmar Guðjónsson birtust sem hið kómíska tríó leiksins. Alveg er það makalaust með þessa fyllibyttukómík Shake- speares, hvað hún virkar alltaf vel hjá góðum leikurum – og svo eru menn að segja að allur húmor úreldist! Hví- lík fjarstæða! Sjáið bara Falstaff (sem hefur ekki enn klæðst holdi og blóði á íslensku sviði), grafarann í Hamlet, dyravörðinn í Macbeth. Hilmir Snær er ófreskjan Kalíban, eitt hinna þriggja meginhlutverka, en var ekki í essinu sínu fremur en Ingvar eða Kristín Þóra; náði hvergi að láta mann hvarfla á milli viðbjóðs og aðdáunar eins og verður þegar góðir leikarar ná réttum tökum á Kalíban – síðustu stóru persónusköp- un Shakespeares. Vissulega er þarna sitthvað sem gleður augað, eins og sagt er, en það er bara ekki nóg. Leikmyndin á einn- ig sinn þátt í að halda aftur af flæðinu. Það er sá snjalli Narbutas sem stendur fyrir henni, en mig grunar að leikstjór- inn hafi ráðið þar mestu um. Fram- partur hennar er lokað rými, sam- hverft, leikhússtúkur til hliða og lítill sviðspallur innst; handan þess tjöld sem varpað er á miklum myndasýn- ingum með endurreisnarblæ. Þarna eru ýmsar vísanir í hið klassíska bar- okkleikhús, svið Elísarbetartímans, commedia dell´arte; um stund fannst mér ég aftur kominn í tíma í leiklistar- sögu. Þessu fremra rými er svo skipt niður í nokkur minni sem leikurinn berst um, en þær tilfærslur verða fljótt fremur einhæfar og fyrirsjáanlegar; fátt um óvænt tilþrif sem hefðu get- að lífgað upp á. Þegar leiðindin surfu fastast að, varð mér hugsað til snúru- loftsins: var virkilega ekki hægt að láta andana fljúga svoldið um og dingla sér í köðlunum? Gísli Örn og félagar hefðu sko ekki haft Aríel svona jarð- bundinn, sá hefði fengið að hendast um háloftin hjá þeim! Með flottri mús- ík og leiftrandi ljósagangi! Leikurinn er fluttur í þýðingu eft- ir Sölva Björn Sigurðsson. Mér er hul- in ráðgáta hvers vegna ný þýðing er pöntuð á þessu verki, jafn góð og þýð- ing Helga Hálfdanarsonar er. Getur hugsast að sumum leikhúsmönnum sé orðin það allt að því trúarsetning að þýðingar hans séu ónothæfar; þær séu svo fullar af málskrúði, eða hvað það nú er sem menn þykjast geta að þeim fundið, að þær geti ekki hljómað „eðli- lega“ í munni leikara? Ég hygg að þeir sem þannig tala séu á miklum villigöt- um. Þýðingar Helga eru ekki fullkomn- ar, og honum tekst ekki jafn vel upp alls staðar; sumt lætur honum betur en annað; það finnst mér að minnsta kosti. En um hvaða stórþýðanda verð- ur það ekki sagt? Og heldur fólk í al- vöru að frumtextinn sé alltaf einfaldur og auðskilinn? Á löngum köflum eru þessir textar Helga hreinasta snilld, ekkert minna, og þýðing Sölva Björns stenst ekki á nokkurn hátt samanburð við þýðingu hans. Sölvi leyfir sér mik- ið frelsi gagnvart hinni pentajambísku ljóðlínu Shakespeares, sem Helgi leit- ast mjög við að virða, eins og sjálfsagt er, og gengur Sölvi þar, ef nokkuð er, mun lengra en Þórarinn Eldjárn sem fer þó ekki ósvipaða leið í Lés-þýðingu sinni. Pentajambinn er byggður upp af öfugum tvíliðum, en þegar þýtt er á ís- lensku getur verið freistandi að grípa til þríliða sem bitnar strax á hljómfeg- urð og léttleika bragsins, ef ekki er mjög varlega að farið. Í þá gryfju fellur Sölvi mjög oft. Í leikskrá er heilmikið lesmál um Shakespeare, en ekki orði vikið að hinni nýju þýðingu eða tilkoma hennar útskýrð. Þar er og að finna upplýsing- ar um alla sem að sýningunni koma, nema – já, hvern haldið þið? Þýðendur eru greinilega hátt skrifaðir hjá þeim í Leikfélagi Reykjavíkur, eða hitt þó held- ur! Við leikslok birtist bráðskemmti- leg og einstaklega viðeigandi mynd á baktjaldinu (hún mun verk Vytautasar og einnig prentuð í leikskrá). Hún sýn- ir Shakespeare skáld sitjandi upp við dogg, steinsofandi. Hann sagði margt gott um svefn og drauma, ekki bara í Ofviðrinu, heldur líka í Jónsmessu- draumnum, Hamlet, Macbeth og víð- ar. En það dreymir ekki alla vel í leik- ritum Shakespeares. Suma dreymir djöfla og afturgöngur; sumir geta ekki sofið fyrir djöflum og afturgöngum. En hann virðist bara hafa góðar draumfar- ir þarna, gamli maðurinn. Það lá við að maður öfundaði hann. 48 | Fókus 7.–9. janúar 2011 Helgarblað Ofviðrið Leikfélag Reykjavíkur Höfundur: William Shakespeare Þýðing: Sölvi Björn Sigurðsson Leikstjóri: Oskaras Korsunovas Leikmynd: Vytautas Narbutas Búningar: Filippía Elísdóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Tónlist: Högni Egilsson Hreyfingar: Katrín Hall Leikdómur Jón Viðar Jónsson Þegar Shakespeare sofnaði Erfið verk sett á fjalir leikhúsanna Lér og Ofviðrið eru af ýmsum ástæðum með erfiðustu verkum Shakespeares: söguþráðurinn í Lé flókinn og ekki alltaf trúverðugur, í Ofviðrið skortir dramatísk átök; það orkar í rauninni fremur sem fantasía og ljóðræn hugleiðing um lífið og listina en heilsteypt drama, síðasta verk höfundar sem vissi að hann gat ekki lengur magnað upp svo volduga anda sem fyrr. „Um uppsetningu Korsunovas er það almennt að segja að hún er undarlega hæggeng og jafnvel brotakennd. KANDÍLAND Nýtt sviðsverk eftir Íslensku hreyfiþró- unarsamsteypuna í leikstjórn Víkings Kristjánssonar, Kandíland, var frum- sýnt 30. desember. Sýningin er unnin upp úr konungaverkum Shakespeares og rannsakar valdaþörf manneskjunnar með líkamann að vopni. Kandíland er samstarfsverkefni Íslensku hreyfiþró- unarsamsteypunnar og Þjóðleikhússins. Verkefnið er styrkt af Prologos, leiklistarráði, Reykjavíkurborg og Evrópu unga fólksins. Næstu sýningar eru 7. og 8. janúar. LEIKRIT UM SANNLEIKA OG LYGI Elsku barn er heimildaleikrit eftir eitt fremsta leikskáld Breta, Dennis Kelly, sem fjallar um tilraunir fo´lks til að leita sann- leikans. Kelly hefur á undanfo¨rnum á rum fest sig í sessi sem eitt á hugaverðasta leikská ld Evro ṕu. Frá á rinu 2003 hefur hann skrifað alls á tta leikrit, m.a. Love and Money, sem var tilnefnt til Olivier-verðlaun- anna, og Munaðarlaus sem sy ńt var he ŕ á landi sí ðasta vetur við go´ðar undirtektir. ROCKY HORROR AFTUR Á FJALIRNAR Tæplega 12 þúsund gestir sáu sýninguna Rocky Horror í Leikfélagi Akureyrar síðasta haust. Vegna fjölda áskorana verður nokkrum sýningum bætt við í febrúar og verður fyrsta sýningin 11. febrúar. Miðasala er þegar hafin og miðarnir rjúka út. Lífið í leikhúsinu METAÐSÓKN Í TJARNARBÍÓ Metaðsókn var í Tjarnarbíó árið 2010 og sóttu 6.000 manns sýningar og viðburði á árinu. Það er margt fram undan í Tjarnarbíó á nýju ári. 14. janúar verður frumsýnt nýtt íslenskt leikverk, Súldasker eftir Sölku Guðmundsdóttur. Þá halda fjölskyldudagarnir áfram eftir áramót og 14. janúar verður Sirkus Íslands með sína síðustu sýningu í vetur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.