Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Blaðsíða 51
Lífsstíll | 51Helgarblað 7.–9. janúar 2011
Kate Moss mynduð af Mario Testino fyrir
Vogue.
Góð kaup á útsölum eru ekki sjálf-
sögð þar sem margir falla alltaf í þá
gryfju að kaupa eitthvað, bara af því
að það er á svo góðu verði en átta
sig á því um leið og heim er kom-
ið að flíkin hentar hvorki stíl þeirra
né vaxtarlagi. Klassískur fatnaður er
það sem þú ættir helst að leita að á
útsölum. Skór eru kostakaup sem og
góð taska, hvítir bolir, skyrtur, brún
leðurbelti og annað sem fer aldrei
úr tísku. Eins ætti að vera auðvelt
að finna góðar kápur á útsölu en
slíkar flíkur endast þér um árarað-
ir. Það gerir litli svarti kjóllinn líka,
en hann er nánast skyldueign hverr-
ar konu því hann er ekki bara tíma-
laus heldur gengur hann við nán-
ast öll tækifæri og það er dásamlega
auðvelt að breyta honum með fylgi-
hlutum. Annað sem þú ættir líka að
huga að eru nærföt. Ef þér líður vel
í nærfötunum sem þú klæðist líð-
ur þér einfaldlega bara betur. Það
er því mikilvægt að eiga góð nærföt
og sem betur fer fylgja fæstar konur
tískustraumum þegar kemur að vali
á undirfatnaði en velja þess í stað
flíkur sem henta þeirra vaxtarlagi.
Þetta eru hins vegar dýrar flíkur og
því er um að gera að nýta útsölurn-
ar vel til þess að endurnýja fataskáp-
inn. Góða skemmtun!
Það er ákveðin list að gera góð kaup á útsölum. Ekki elta tískustrauma sem eru
allsráðandi um þessar mundir, reyndu frekar að horfa fram á veginn með því að
skoða vortískuna. Eða finna klassískar flíkur sem munu endast þér um áraraðir.
Bestu kaupin
á útsölum
Djarfar rendur Prada og Jil Sander voru með áberandi og litríkar
rendur í vorlínunni svo þú getur kíkt eftir kjólum sem þessum.
PraDa vor/sumar 2011
sterkir litir Sterkir litir eru áberandi í
vortískunni.
NiNa ricci vor/sumar 2011
Fljótandi pastelkjólar Þó að það sé erfitt að
hugsa sér fljótandi siffonkjóla í þessu veðri skaltu
samt hafa augun opin fyrir þeim. Þegar sólin brýst
loksins fram muntu sjá eftir því ef þú kippir ekki einum
slíkum með þér heim af útsölunni. cHaNel cruise collectioN 2011
Hvít blúnda Eflaust er auðveldara að
finna svarta blúndu á útsölunum en hvít
blúnda er það sem koma skal. Reyndu að
finna hana. Dolce & GabbaNa vor/sumar 2011