Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Blaðsíða 20
20 | Fréttir 7.–9. janúar 2011 Helgarblað „Ég finn ekkert fyrir því þegar ég sofna fyrst, ég bara sofna. Ég veit samt að ég er sofandi þegar ég er sofandi en ég veit ekki hvað ég er búin að vera sofandi lengi, ég dett bara alveg út,“ segir Sandra Daða- dóttir, 17 ára, þegar hún reynir að lýsa því hvað gerist þegar hún fær svefnköstin. Það er þó misjafnt hvað hún þarf að sofa mikið á með- an á köstunum stendur. „Það fer bara eftir svo mörgu. Í síðasta kast- inu mínu, sem var bara núna fyrir tveimur vikum, svaf ég alveg rosa- lega mikið. En það minnkar yfir- leitt þegar líður á köstin hvað ég sef lengi,“ segir Sandra. „Síðasta kast var svefn út í eitt, þá svaf hún 22 til 23 tíma á sólar- hring. Það varði í 9 daga og var mjög stutt kast, en svefninn var meiri en í köstunum á undan. Hún hafði fengið kast mánuði áður sem varði í 15 daga, sem var hennar lengsta kast. Hún er alveg út úr heiminum, þannig lagað, meðan köstin vara,“ bætir Daði Hreinsson við, faðir Söndru. Sandra þjáist af því sem í fjöl- miðlum erlendis er kallað „Sleep- ing beauty syndrome“ eða Þyrni- rósarheilkennið. Fjölskyldan hefur ekki áður vilj- að tjá sig opinberlega um veikindi Söndru en þau ákváðu að segja DV sögu sína nú því þau hafa heyrt utan að sér að fólk haldi jafnvel að hún sé að spila með þetta. „Það hafa verið sagðar fréttir af breskri stúlku með þennan sjúkdóm og maður hefur heyrt af krökkum í öðrum skólum sem þykjast ekki geta mætt í skól- ann því að þau séu með Sleeping beauty syndrome,“ segir Daði. Þeim finnst því gott að það komi fram að sjúkdómurinn sé í raun og veru til og að það sé ekkert grín að þjást af honum. Það eru tvö ár síðan Sandra greindist með sjúkdóminn sem á fræðimáli kallast Kleine-Levin Syn- drome og er afar sjaldgæfur tauga- sjúkdómur. Talið er að Kleine- Levin hafi einungis lagst á um 1.000 manns frá því að hann var fyrst greindur í kringum 1950. Vart þarf að taka það fram að Sandra er eini einstaklingurinn á Íslandi sem greinst hefur með sjúkdóminn, svo vitað sé. Kleine-Levin veldur því að Sandra fær svefnköst sem vara yfir- leitt í 12 til 15 daga í senn. Meðan á köstunum stendur verður hún al- gjörlega ófær um að lifa eðlilegu lífi. Gleymir að hún sé búin að borða Foreldrar Söndru segja að það sé í raun ekki hægt að vekja hana á meðan hún sefur í köstunum. Í fyrstu hafi þau reynt að vekja hana til að borða og fara á klósettið en það hafi verið vonlaust. Hún snéri sé bara á hina hliðina og svaf áfram. Nú leyfa þau henni því bara að sofa á meðan hún þarf og hún vaknar sjálf til að borða og fara á klósettið. Sjúkdómurinn eykur ekki bara svefnþörf Söndru gífurlega held- ur breytist persónuleiki hennar og hegðun á meðan á köstunum stendur. Þann tíma sem hún er vak- andi í köstunum er hún gjörsam- lega óþekkjanleg og ófær um að sinna bæði skóla og vinnu. „Hún verður rosalega orðljót þegar hún er veik,“ segir Lene Bernhöj, móð- ir Söndru. Hún kallar foreldra sína meðal annars ýmsum ljótum nöfn- um sem óþarfi er að hafa eftir á prenti. „Þegar ég segi henni að hún megi ekki tala svona við mig þá seg- ir hún bara ha? Og man ekkert eft- ir því sem hún var að segja.“ Það er eins og skammtímaminnið hverfi að miklu leyti þegar Sandra er veik og það hefur líka áhrif á matarvenj- ur hennar. „Ég verð náttúrulega svöng og borða og svo gleymi ég því að ég sé búin að borða og þá líð- ur mér eins og ég sé svöng aftur og borða meira. Ég bara gleymi því að ég hafi borðað og er ekki södd. Ég er kannski ennþá jafn svöng og ég var fyrir fimm mínútum.“ Lene segir að í fyrstu hafi hún ekki þorað annað en að taka sér frí úr vinnu þegar Sandra var veik eða að veikjast. „Þegar hún kemur fram, þá kannski tæmir hún ísskáp- inn eða eitthvað. Það þarf að passa upp á hana. Í fyrsta kastinu þyngd- ist hún örugglega um 5 kíló. Svo fór- um við að fela allt sem er óhollt. Við erum bara með eitthvað hollt í boði, því hún biður um það sjálf þegar hún finnur að hún er að verða veik.“ „Ég verð bara rosalega reið og ljót“ Sandra segist alla jafna vera ótrúlega ljúf en hún gjörsamlega umturnast í köstunum. „Ef ég fæ ekki það sem ég vil, kannski að borða, þá skipa ég þeim að fara út í búð að kaupa það sem ég vil.“ Miðað við lýsingar, bæði hennar og foreldranna, getur ýmis- legt gengið á þegar verst lætur. „Ég verð bara rosalega reið og ljót. Öll reiði eða eitthvað sem er í mér brýst þarna út,“ segir Sandra. „Til að byrja með var hún líka barnaleg í hegðun og söng kannski sama lagið aftur og Sefur tvær vikur í einu Sandra Daðadóttir er 17 ára mennta- skólastúlka sem gengur í Menntaskólann við Hamrahlíð. Hún vinnur á elliheimili með skólanum, stundar félagslífið og þykir skemmtilegast að hanga með vinum sínum í frítímanum. Þetta hljómar eins og lýsing á venjulegri íslenskri unglingsstúlku sem er að stíga sín fyrstu skref út í lífið. Sandra er þó svo sannarlega engin venjuleg stúlka og það er ekki orðum aukið að segja að hún sé alveg einstök. Hún hefur töluvert aðrar svefnvenjur en flestir jafnaldrar hennar, því að nokkrum sinnum á ári þarf hún að leggj- ast í hálfgerðan dvala og sefur þá nánast samfellt í 12 til 15 daga. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Sefur og sefur Sandra er alla jafna mjög ljúf stúlka en þegar hún fær köstin umturnast hún og verður bæði skapstygg og orðljót. mynd RóbeRt ReyniSSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.