Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Síða 15
M j ö l l - F r i g g h f . · N o rð u r h e l l u 10 · 221 H a f n a r fi rð i · S í m i 512 3 0 0 0 · w w w.m j o l l f r i g g . i s Hrein fagmennska og sérhæfing Mjöll Frigg sérhæfir sig í framleiðslu fullkominna hreinsiefna fyrir: • Landbúnað • Sjávarútveg • Framleiðslu- og iðnaðarfyrirtæki • Matvælaiðnað; kjöt- og fiskvinnslu, mjólkurvinnslu • Almenn fyrirtæki og stofnanir, m.a. heilbrigðisstofnanir • Heimili Mjöll Frigg veitir ennfremur tæknilega þjónustu og ráðleggingar og hægt er að velja um stærðir pakkninga eftir þörfum. Neytendur | 15Miðvikudagur 23. mars 2011 „Ég get eiginlega ekki sagt neitt um þetta nema það liggi fyrir óyggjandi prófanir á þessum búnaði. Það bend- ir hins vegar ýmislegt til þess að þetta sé gabb,“ segir Stefán Ásgrímsson, rit- stjóri hjá Félagi íslenskra bifreiðaeig- enda. Sparar bensín og dregur úr mengun Fyrir skömmu fjallaði sjónvarps- frétt Morgunblaðsins um íslenskan undrabúnað sem bæði sparar bens- ín um allt að 30 prósent auk þess sem hann dregur úr mengun um 60 til 80 prósent. Rætt var við starfsmenn fyr- irtækisins Thor Energy Zolutions sem fræddi fréttamann um virkni búnað- arins. Búnaðurinn á að virka á þann veg að hann sé í raun rafgreiningar- tæki sem skilur að vetnis- og súrefnis- atómin í venjulegu vatni. Vetninu er svo dælt inn á brunahólf vélarinn- ar þar sem það blandast eldsneyt- inu. Ekki náðist í forsvarsmenn Thor Energy Zolutions við gerð fréttarinn- ar. Stangast á við grundvallarlög- mál eðlisfræðinnar Félag íslenskra bifreiðaeigenda dregur eiginleika búnaðarins í efa á heimasíðu sinni en þar segir að bún- aðurinn standi, eins og aðrar töfra- lausnir, alls ekki undir væntingum. Staðhæfð virkni hans stangist jafn- framt á við grundvallarlögmál eðl- isfræðinnar. Þar er einnig vitnað í Ágústu Loftsdóttur, eðlisfræðing hjá Orkustofnun, sem sagði í samtali við RÚV að við það að framleiða vetni í bílnum sé maður farinn að brenna eldsneyti sem nemi því vetni sem framleitt var í bílnum. Orkuávinn- ingurinn sé því í rauninni enginn og eldsneytissparnaður upp á 30 prósent óhugsandi. Hún benti einnig á að ef Thor Energy Zolutions hefði virkilega fundið upp slíkan búnað ættu þeir ekki að fá „...einhverja þúsundkalla fyrir græjurnar sínar heldur Nóbels- verðlaunin – hvorki meira né minna. Jafnframt þyrfti að endurhugsa og endurskrifa flest grundvallarlögmál eðlisfræðinnar.“ Engin þessara tækja virka Stefán segir að það sé alltaf verið að reyna að plata fólk með einhverjum hólkum eða tækjum sem eigi að spara svo og svo mikið bensín. „Það koma alltaf svona hlutir upp á sjónarsviðið þegar eldsneytisverðið er hátt og það er töluvert mikið af þessu núna. Við erum í miklu samstarfi við þýskt syst- urfélag okkar en þeir eru með gríð- arlega öfluga tækniþjónustu sem við njótum góðs af. Þeir hafa prófað tugi svona tækja í gegnum árin og ekkert þeirra hefur virkað,“ segir hann. Stefán segir að það sem þessi tæki geti þó gert sé að hafa sálræn áhrif á fólk en þegar fólk greiði tugi eða hundruð þúsunda fyrir slík tæki fari það ósjálfrátt að keyra betur. Það fer að keyra betur og finnur allt í einu fyrir smásparnaði. Það sé hins vegar fólkið sjálft sem sé ástæðan fyrir því en ekki tækið sem það keypti. Bíðum eftir opinberri prófun Aðspurður hvað félagið ráðleggi neyt- endum sem hafa hug á að kaupa slík- an búnað í bílinn sinn, segir Stefán að best sé að bíða eftir opinberri prófun marktæks aðila. „Opinber aðili eða einhver sem er vottaður af opinberum aðila þyrfti að gera prófun á slíkum búnaði. Maður þarf að sjá slíkar nið- urstöður fyrst. Hins vegar gengur þetta ekki upp því í þessu tilfelli er það bíllinn sjálfur sem á að búa til vetni sem er svo sett inn í brunahólfið með bensíninu. Orkan er alltaf sú sama þó hún sé færð úr olíu í vetni og þaðan yfir í bensín. Það er að segja þótt hún breytist úr einni mynd í aðra. Það væri annað ef vetnið væri búið til fyrir utan bílinn en þetta gengur hreinlega ekki upp,“ segir hann að lokum. n Hér á landi er seldur búnaður sem á að spara bensín og draga úr mengun n FÍB dregur búnaðinn í efa n Eðlis- fræðingur segir orkuávinning engan og eldsneytissparnað upp á 30 prósent óhugsandi „Efast um að þetta sé töfralausn“ Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Stefán Ásgrímsson hjá FÍB Hann segir að alltaf sé verið að reyna að plata fólk með tækjum sem eigi að spara pening. Mynd StEFÁn KarlSSon „Það koma alltaf svona hlutir upp á sjónarsviðið þegar eldsneytisverðið er hátt og það er töluvert mikið af þessu núna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.