Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Blaðsíða 17
Kínverjar kaupa upp Bordeaux Eskihlíð 3 105 Reykjavík S: 552 9500 info@icelandcongress.is www.icelandcongress.is Er ráðstefna eða fundur á döfinni? Hjá Iceland Congress vinnur vel menntað og sérhæft starfsfólk með yfir tuttugu ára reynslu á sínu sviði. Við aðstoðum viðskiptavini okkar við að skipuleggja og undirbúa allar stærðir og gerðir af fund um, ráðstefnum og öðrum atburðum. Iceland Congress býður persónulega þjónustu og hefur áhuga á þér og þínum markmiðum. Blaðamenn New York Times Lausir úr prísundinni ásamt sendiherra Tyrklands í Líbíu. Addario er önnur frá hægri. Miðvikudagur 23. mars 2011 Erlent | 17 eaux-vínin sem gerir þau sérstaklega vinsæl í Kína, umfram önnur vín. Stephane Toutoundji er vínsérfræð- ingur sem hefur starfað sem ráðgjafi fyrir kínverska fjárfesta. Hann segir að fjárfestingar Kínverja í Bordeaux séu góðar fréttir fyrir alla sem eiga hlut að máli. „Þeir kaupa upp vínekru, end- urbæta vínhúsið og koma fyrir nýj- um vinnslubúnaði. Bordeaux-svæðið hefur ávallt laðað að sér erlenda aðila, en það sem gerir kínversku fjárfestana frábrugðna er að þeir byrja frá byrjun svo þeir geti stjórnað framleiðslunni eftir sínum smekk, stjórnað gæðaeft- irliti og markaðssetningu.“ Toutoundji segir Kínverja ekki heldur drekka hvað sem er. „Við reyn- um að stjórna framleiðslunni til að mæta kröfum þeirra. Kínversk menn- ing byggist að miklu leyti á tedrykkju, eða öðrum heitum drykkjum. Þess vegna eru bragðlaukar þeirra við- kvæmir fyrir skörpum og tannínrík- um vínum. Þeir vilja eitthvað mýkra, ávaxtarík vín sem eru ekki hvöss á nokkurn hátt.“ Ekki slæmar fréttir Þrátt fyrir allt virðast franskir vín- sérfræðingar taka fréttunum af hin- um nýju kínversku eigendum vel, þó annað gæti átt við um fransk- an almenning. Staðreyndin er sú, að vegna franskra erfðalaga hefur reynst erfitt að halda við bestu vín- ekrunum í Bordeaux – sem og ann- ars staðar í Frakklandi. Samkvæmt erfðalögum eiga allir afkomendur rétt á jöfnum hlut í jarðareign, sem þýðir að mörgum bestu vínekrum Frakklands hefur verið skipt upp í aldanna rás. Erfingjarnir hafa jafn- an verið latir og ef til vill ekki tilbúnir til að helga sig vínrækt líkt og forfeð- ur þeirra. Vínsérfræðingar segja að Bordeaux-vín hafi náð botninum á síðasta áratug síðustu aldar, þar sem gæðin hafi einfaldlega ekki verið þau sömu og áður fyrr. Olli það því að markaðurinn hrundi og í staðinn urðu vín frá „nýja heiminum“ (Síle, Suður-Afríku og Ástralíu sem dæmi) þeim mun vinsælli og náðu með- al annars yfirráðum á breska mark- aðnum. „Eigendurnir voru orðnir gaml- ir og börn þeirra vildu ekki taka við,“ segir Sophie Roussov, sem rekur vín- ekru í eigu Kínverja í Saint Martin de Puy. „Við erum að endurbyggja vín- húsin og endurplanta vínviðnum og í því felast atvinnutækifæri fyr- ir heimamenn. Hvað er neikvætt við það? Frönsk menning og menningar- arfleifð tapar engu.“ n Kínverskir fjárfestar hafa keypt upp stór svæði í vínræktarhéruðum í ná- grenni við Bordeaux í Frakklandi n Kínverjar neyta rauðvíns í sífellt meira mæli n Vínsérfræðingar ánægðir þó almenningur óttist erlend yfirráð„Þeir kaupa upp vínekru, endur- bæta vínhúsið og koma fyrir nýjum vinnslubúnaði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.