Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Blaðsíða 22
22 | Úttekt 23. mars 2011 Miðvikudagur
Leikskólann Grænuborg átti að sam-
eina Lindarborg eins og fram kemur
í skýrslu starfshóps frá 9. febrúar. Í
lokatillögum sem kynntar voru fyrir
borgarbúum sést hins vegar að fallið
hefur verið frá þeim áformum. Þess
í stað á að sameina þrjá leikskóla;
Lindarborg, Njálsborg og Baróns-
borg. Á Grænuborg verður ekki skor-
ið niður í þetta skiptið.
Leikskólastjórar leikskólanna og
hópur foreldra gagnrýna þessa stað-
reynd en á leikskólunum þremur er
hátt hlutfall barna af erlendum upp-
runa. Á Grænuborg er hlutfallið hins
vegar lágt og leikskólastjóri Lindar-
borgar, Ragnheiður Halldórsdóttir,
segir þjóðfélagshópinn annan. Þar
sé fremur um börn efnaðra foreldra
að ræða. „Eftir að þessir þrír leik-
skólar verða sameinaðir er börnum
í miðborg Reykjavíkur mismunað.“
Ákvörðun tekin vegna
fjárhagslegs ávinnings
Ragnhildur Erla Bjarnadóttir sviðs-
stjóri Leikskólasviðs Reykjavíkur-
borgar, segir Lindarborg, Baróns-
borg og Njálsborg alla vera litla
leikskóla sem hafi unnið saman að
fjölmenningarverkefnum. Allir séu
þeir miðbæjarleikskólar og fjárhags-
legur ávinningur af því að sameina
þrjá leikskóla sé umtalsvert meiri en
af því að sameina tvo leikskóla. Það
liggi sameiningu til grundvallar.
„Ákveðið var að leggja fram tvær
tillögur að þriggja leikskóla samein-
ingu, það væri aukinn styrkur fólg-
inn í því að ekki sé eingöngu ein
þriggja eininga sameining.“
Ragnhildur Erla svarar því neit-
andi, aðspurð, hvort einhver af
þeim leikskólum sem hefur dottið
úr sameiningarferlinu sé með hátt
hlutfall nýbúabarna í vist.
Um það hvaðan tekið var á
móti ábendingum um sameiningu
Grænuborgar við Lindarborg segir
hún: „Allar hugmyndir voru vegnar
og metnar og ef Grænaborg hefði
verið sameinuð öðrum leikskóla þá
komu allir til greina, það er Baróns-
borg, Njálsborg og Lindaborg, sem
er reyndar lengst frá Grænuborg.“
Börnum mismunað
Ragnhildur á Lindarborg segist ekki
hafa hugmynd um afhverju þessari
tillögu hafi verið breytt. Tillögur um
niðurskurð á Grænuborg hafi verið
með í skýrslum þar til á lokasprett-
inum. Allir leikskólastjórar leikskól-
anna þriggja hafa beðið um rök-
stuðning fyrir þessari breytingu en
ekki fengið.
„Við fáum að vita að ástæðan sé
sú að þessir leikskólar starfi allir að
fjölmenningu og það er rétt. Það er
hins vegar langt á milli leikskólanna
þriggja og um helmingur allra barna
eru af erlendu bergi brotinn. Eftir
sameiningu er börnum mismunað.
Grænaborg hefur sinn leikskóla-
stjóra á staðnum.“
Ragnhildur segist ennfremur
spyrja sig hverju það sæti að það sé
aðeins ein sameining í Vesturbæ.
Hagur barna í miðborginni versni
við þetta og þá sérstaklega nýbúa-
barna.
„Á þessum leikskólum er oft um
að ræða foreldra sem ekki tala og
skilja íslensku, auk þess að koma
frá ólíkum menningarsvæðum, þess
vegna leggjum við mikla áherslu
á foreldrastarf og þjálfun starfs-
manna í þeim efnum. Þetta starf er
viðameira en á leikskólum þar sem
fáir foreldrar eru af erlendu bergi
brotnir og það er mikilvægt að halda
þessu góða starfi áfram. Því er stefnt
í hættu með þessum breytingum.“
Þöglir erlendir foreldrar
Ragnhildur segir foreldrana með
erlendan bakgrunn ekki rífast við
stjórnmálamenn eða skrifa greinar
í blöðin.
„Þótt að hjá okkur sé annars
blandaður hópur foreldra þá er það
staðreynd að helmingur þeirra er
erlendur og við erum líka með er-
lenda starfsmenn. Þessi hópur er
þögull í dag meðan aðrir foreldrar
berjast fyrir réttindum barna sinna
hvað varðar þjónustu í borginni.“
Ragnhildur Erla segir leikskólana
fá úthlutað fjármagni í hlutfalli við
fjölda barna af erlendum uppruna
Telja börnum mismunað
Börn á Lindarborg að leik Leik-
skólastjóri Lindarborgar er ósáttur við
þau áform að sameina þrjá leikskóla
miðborgarinnar í einn. Allir hafa þeir hátt
hlutfall nýbúabarna og Ragnhildur segir
þjónustu við þau börn og foreldra þeirra
vera viðameiri en til íslenskra foreldra.
MYND SIGTRYGGUR ARI
n Samkvæmt 2. gr. laga um leikskóla er
eitt af meginmarkmiðum með starfsemi
leikskóla að jafna uppeldisstöðu barna
í hvívetna og menntamálaráðuneyti fer
með yfirstjórn og gætir þess að þessi
markmið séu haldin. Markmið laga um
leikskóla er meðal annars að tryggja
jafnræði allra barna – sérstaklega ef
gert sé ráð fyrir því að leikskólinn sé
fyrsta skólastigið og undirbúningur fyrir
grunnskólann.
Lög um leikskóla
Leikskólar þar sem hlutfall barna af
erlendum uppruna er frá 0–5%
Bakki 62 börn 2 börn NEI
Fífuborg 83 börn 4 börn NEI
Maríuborg 104 börn 3 börn NEI
Lyngheimar 102 börn 5 börn NEI
Sameiningar 0%
Leikskólar þar sem hlutfall barna af
erlendum uppruna er hærra en 40%
Barónsborg 35 börn 18 börn JÁ
Ösp 54 börn 41 börn JÁ
Njálsborg 50 börn 31 börn JÁ
Völvuborg 54 börn 36 börn NEI
Lindarborg 62 börn 26 börn JÁ
Fellaborg 49 börn 28 börn NEI
Sameiningar 67%
Sameiningar
Fjöldi
barna
Af erlendum
uppruna Hlutfall Sameining
Sjónarhóll 63 9 14% NEI
Vinagerði 62 9 15% NEI
Brekkuborg 82 12 15% NEI
Sunnuborg 88 13 15% NEI
Stakkaborg 74 11 15% NEI
Klambrar 87 13 15% NEI
Laufskálar 87 13 15% NEI
Laugaborg 84 13 15% JÁ
Furuborg 59 10 17% JÁ
Berg 41 7 17% NEI
Holtaborg 64 11 17% JÁ
Ægisborg 85 15 18% NEI
Gullborg 78 14 18% NEI
Sólhlíð 89 17 19% JÁ
Rofaborg 104 20 19% NEI
Drafnarborg 35 7 20% JÁ
Hálsaborg 60 12 20% JÁ
Hlíðarendi 24 5 21% JÁ
Vesturborg 72 15 21% NEI
Ásborg 121 28 23% JÁ
Steinahlíð 29 7 24% NEI
Bakkaborg 114 29 25% NEI
Fálkaborg 61 16 26% JÁ
Lækjarborg 64 17 27% JÁ
Seljakot 58 16 28% JÁ
Álftaborg 88 25 28% NEI
Tjarnarborg 45 13 29% NEI
Múlaborg 80 24 30% NEI
Seljaborg 58 19 33% NEI
Suðurborg 116 39 34% JÁ
Nóaborg 67 23 34% NEI
Arnarborg 66 26 39% JÁ
Hólaborg 60 25 42% JÁ
Lindarborg 62 26 42% JÁ
Barónsborg 35 18 51% JÁ
Fellaborg 49 28 57% NEI
Njálsborg 50 31 62% JÁ
Völvuborg 54 36 67% NEI
Ösp 54 41 76% JÁ
Fjöldi
barna
Af erlendum
uppruna Hlutfall Sameining
Maríuborg 104 3 3% NEI
Bakki 62 2 3% NEI
Fífuborg 83 4 5% NEI
Lyngheimar 102 5 5% NEI
Hamrar 122 6 5% NEI
Hulduheimar 89 5 6% NEI
Garðaborg 53 3 6% NEI
Geislabaugur 118 7 6% NEI
Kvistaborg 64 4 6% JÁ
Kvarnaborg 62 4 6% JÁ
Hof 105 8 8% NEI
Reynisholt 86 7 8% NEI
Hamraborg 85 7 8% JÁ
Foldakot 46 4 9% JÁ
Blásalir 88 8 9% NEI
Engjaborg 83 8 10% NEI
Rauðhóll 107 11 10% NEI
Hraunborg 64 7 11% JÁ
Rauðaborg 64 7 11% NEI
Grænaborg 81 9 11% NEI
Öldukot 45 5 11% NEI
Funaborg 53 6 11% JÁ
Sólborg 70 8 11% JÁ
Foldaborg 60 7 12% JÁ
Skógarborg 50 6 12% JÁ
Grandaborg 83 10 12% NEI
Heiðarborg 83 10 12% NEI
Dvergasteinn 65 8 12% JÁ
Brákarborg 78 10 13% NEI
Jörfi 100 13 13% NEI
Sæborg 84 11 13% NEI
Hálsakot 73 10 14% JÁ
Austurborg 94 13 14% NEI
Jöklaborg 108 15 14% NEI
Hlíðaborg 50 7 14% JÁ
Sólbakki 50 7 14% JÁ
Árborg 64 9 14% NEI
Hagaborg 99 14 14% NEI
Klettaborg 84 12 14% NEI
Heimsins börn
Upphaf leikskólagöngu er oft fyrsta reynsla barna af erlendum uppruna af íslensku
samfélagi og íslensku máli. Fyrir börn, þar sem báðir foreldrar eru útlendir, er leikskólinn
oftast aðalvettvangur þeirra til að læra íslensku. Til þess að geta notið skólagöngu
og annars þess sem íslenskt samfélag hefur upp á bjóða er nauðsynlegt að ná góðum
tökum á íslensku máli. Í Lindarborg fá börn, sem þurfa, íslenskukennslu hjá Jóhönnu
Jóhannsdóttur.
Þróunarverkefnið Heimsins börn er samstarfsverkefni þriggja leikskóla í miðbæ
Reykjavíkur og þjónustumiðstöðvar Miðborgar/Hlíða. Leikskólarnir eru Barónsborg,
Lindarborg og Njálsborg. Ástæða þess að farið var út í þetta verkefni var sú að inn-
flytjendum í Reykjavík fer sífellt fjölgandi og þá um leið börnum af erlendum uppruna,
og er fjöldinn mikill á þessum þremur leikskólum. Leikskólar eru taldir gegna mikilvægu
hlutverki í aðlögun barna af erlendum uppruna að íslensku samfélagi. Þróunarverkefnið
er hugsað til að styrkja starfsmenn leikskólanna þriggja, gera þá hæfari til að vinna í
nýju umhverfi og takast á við nýjar áskoranir. Styrkja á allt fjölmenningarlegt starf innan
skólanna og gera það sýnilegra. Lögð verður áhersla á þverfaglega samvinnu og að efla
samstarf hinna ýmsu faghópa innan leikskólanna og Þjónustumiðstöðvarinnar. Unnið
verður sérstaklega með viðhorf starfsmanna til fjölmenningarlegs samfélags með það
að leiðarljósi að auka þekkingu og draga úr fordómum.
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Sameiningar leikskóla í Reykjavík
Leikskólabörn með annað móðurmál en íslensku eru nú um átján af hundraði barna í leikskólum borgarinnar eða um 960 börn. Í sumum
leikskólum er allt að helmingur barnanna af erlendum uppruna svo sem í Fellaborg, Njálsborg, Barónsborg og Lindarborg.
„Ákveðið var að
leggja fram tvær
tillögur að þriggja leik-
skóla sameiningum, það
væri aukinn styrkur fólg-
inn í því að það sé ekki
eingöngu ein slík.
n Sameiningum í miðborginni mótmælt n Telja börnum af erlendum
uppruna mismunað n Þriggja leikskóla sameining er afar hagkvæm
n Engin sameining þar sem hlutfall barna af erlendum uppruna er 0-5%