Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Qupperneq 23
Úttekt | 23Miðvikudagur 23. mars 2011 Telja börnum mismunað Foreldrar hafa áhyggjur af ójöfnuði barna: Ályktun frá foreldrafélagi Njálsborgar Foreldrafélag Njálsborgar mótmælir harðlega hugmyndum Reykjavíkurborgar um uppsagnir leikskólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra í nafni sameiningar. Það er enginn faglegur ávinningur af þessum tillögum, fjárhagslegur ávinningur er lítill sem enginn og alls ekki ásættanlegur fyrir þá áhættu sem tekin er með skólastarfið og menntun barnanna okkar. Á Njálsborg eru aðeins fjórir af ellefu kennurum leikskólakennara- menntaðir en með fyrirhuguðum uppsögnum er stefnt að því að lækka það hlutfall enn frekar. Það er augljóst að slíkt mun koma niður á kennslu – og uppeldisstarfi á Njálsborg og er í raun óskiljanleg aðför að gæðum leikskólastarfsins. Njálsborg er einn þeirra skóla sem leggur sérstaka áherslu á fjölmenningarlegt starf enda er þar mjög hátt hlutfall barna af ólíkum þjóðernum. Góður árangur við aðlögun og íslenskunám stafar ekki síst af styrkum tökum stjórnenda skólans á þessu verkefni. Með sameiningu er hætta á að yfirsýn stjórnenda minnki þannig að börn af erlendum upp- runa fái ekki tækifæri til jafns við önnur. Það er í sjálfu sér mannréttindabrot. Á Njálsborg er unnið frábært starf. Það endurspeglar metnað og hæfileika stjórnenda skólans en framkomnar tillögur fjalla í engu um hvernig starfið á að geta verið jafngott án þeirra. Þess vegna höfnum við tillögunum, en leggjum til að leikskólagjöld verði fremur hækkuð til að halda megi reyndustu og best menntuðu starfsmönnum leik- skólanna að störfum. og árlega sé metið hvernig það nýt- ist. Einnig njóta leikskólarnir ráð- gjafar frá leikskólaskrifstofu og þjónustumiðstöð í hverfinu. Leikskólabörnum með annað móðurmál en íslensku hefur fjölg- að töluvert á undanförnum árum og  eru nú um  átján af hundraði  barna í leikskólum borgarinnar eða um 960 börn. Í sumum leikskólum er allt að helmingur barnanna af erlendum uppruna svo sem í Fella- borg, Njálsborg, Barónsborg og Lindarborg.  Stefna sveitarfélags- ins er sú að leikskólastarfið þurfi að endurspegla þennan menningar- lega margbreytileika og taka mið af honum í  þjónustu við börn, foreldra og starfsfólk, og aukafjárveitingar eru veittar í samstarfi við þjónustu- svið borgarinnar miðað við fjölda barna af erlendum uppruna á hverj- um leikskóla. „Öll börnin í borginni eiga að fá jafn- góða þjónustu,“ segir Oddný Sturlu- dóttir, formaður menntaráðs Reykja- víkurborgar. „Í sameiningunum liggja tækifæri því þarna gefst kostur á að vinna þverfaglega með mikilvæg málefni barna af erlendum uppruna og þá má ef til vill bæta þjónustuna til þeirra enn frekar. Í leik- og grunn- skólum Reykjavíkurborgar er sér- hverju barni mætt óháð stöðu þess og uppruna. Gífurlega gott starf hef- ur verið unnið með börnum af er- lendum uppruna í leikskólunum þremur sem á að sameina. Það starf heldur áfram.“ Oddný segir tölfræði um sam- einingar og uppruna barna hlutast til af því að þau hverfi sem hagstæð- ast er að sameina í einkennist af fjöl- breytni. „Í miðborginni er mannlífið hvað fjölbreytilegast og það endur- speglast í leikskólum á þessu svæði. Það vill svo til að einmitt á þessu fjöl- breytta svæði mannlífs eru leikskól- arnir litlir og þá er hagstætt að sam- eina.“ Oddný bætir því við að á leik- skólasviði starfi ráðgjafar vegna fjöl- menningar í leikskólum. „Þessir ráð- gjafar eru til taks og meðal verkefna þeirra er að sinna ráðgjöf og fræðslu til leikskóla vegna barna og foreldra af erlendum uppruna. Þá er áfram úthlutað fjármagni vegna barna af erlendum uppruna til leikskóla borgarinnar og það framlag verður ekki skorið niður. Þeir leikskólar sem hafa hátt hlutfall barna af erlendum uppruna fá hlutfallslega meira fé út- hlutað.“ Oddný Sturludóttir leggur áherslu á að öll börn í borginni fái jafngóða þjónustu: Tækifæri í sameiningunni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.