Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Qupperneq 29
Fólk | 29Miðvikudagur 23. mars 2011 Ár er liðið frá því að söngvarinn Ricky Martin kom út úr skápn-um. Hann tjáði sig um hversu kraftmikil lífsreynsla það hefði verið á GLAAD-fjölmiðlaverðlaunahátíðinni um helgina. „Ég hef farið mikinn andlegan leið- angur á síðustu 5 árum, en sérstak- lega á síðustu tveimur,“ sagði hann við blaðamenn á hátíðinni sem haldin var í New York. „Ég varð að deila því með öllum heiminum.“ Heimurinn tók líka heldur betur við sér. „Twitter-síðan mín fór úr 500 þúsundum í 1,8 milljónir not- enda!“ sagði hann um viðbrögð aðdá- enda sinna. Martin tók við Vito Russo-verð- laununum á hátíðinni sem veitt eru opinberlega samkynhneigðum ein- staklingum í skemmtanabransanum vestanhafs. Hann sagði það mikinn heiður að hljóta verðlaunin. „Í dag ber ég höfuðið hátt – og að vera hér? Að fá þessi verðlaun? Ég er rétt að byrja,“ sagði söngvarinn samkynhneigði. Brad Pitt og Angelina Jolie brostu breitt þegar þau fóru í bæjarferð með fjöl- skylduna í New Orleans á sunnudag. Öll börnin þeirra sex voru með í för en Angelina og börnin eru þar í heimsókn hjá Pitt sem um þessa mundir vinnur við gerð myndarinnar Cogan’s Trade. Brad og Angelina eignuðust sjálf börnin Shiloh, Knox og Vivienne en eldri börnin, Maddox, Pax og Za- hara, eru ættleidd. Fjölskyldan keypti í matinn saman og stoppaði auk þess í nokkrum búðum. Búast má við því að Cogan’s Trade verði stórmynd því í henni leika einn- ig Casey Affleck, Ray Liotta, James Gandolfini, Mark Ruffalo, Javier Bar- dem og Sam Rockwell. Dave Grohl kominn í hóp þeirra sem gagnrýna þáttinn vinsæla: „FJANDANS GLEE“ Dave Grohl, fyrrverandi trommari Nirvana og for-sprakki Foo Fighters, hefur bæst í hóp þeirra sem gagnrýna sjónvarpsþáttinn Glee og höfund þeirra Ryan Murphy. Ekki er langt síðan Murphy gagnrýndi bæði gít- arleikarann Slash sem og hljóm- sveitina Kings of Leon fyrir að leyfa honum ekki að flytja tónlist þeirra í þættinum. „Það er réttur hverrar hljóm- sveitar að þurfa ekki að vera í fjandans Glee,“ sagði Grohl í við- tali við The Hollywood Repor- ter fyrir stuttu. „Síðan er gaur- inn(Murphy) sem gerir þættina rosa móðgaður yfir því að allir séu ekki að grátbiðja um að fá að vera í þáttunum. Fari hann til fjandans fyrir að finnast að allir eigi að vera í Glee. Ég hef horft á tíu mínútur af þessum þætti og ég fíla hann ekki,“ bætti Grohl ósáttur við. Murphy átti opinberlega í orðaskaki við bæði Slash sem og Kings of Leon en hann fór ekki fögrum orðum um listamennina sem svöruðu í sömu mynt. „Glee- náunginn, þvílíkur fáviti,“ hélt Grohl áfram. „Slash var sá fyrsti sem sagði nei. Hann vildi flytja lög með Guns ´n´ Roses í þáttunum en Slash sagðist hata söngleiki. Þá sagði Murphy að auð vitað væri þetta svar hans þar sem hann væri bara útbrunnin rokkstjarna. Svo þegar þeir í Kings of Leon vilja ekki vera í þættinum þá kallar hann þá freka, litla hálfvita. Mað- ur er bara: Gaur! Kannski elska ekki allir Glee, þar á meðal ég.“ Ricky Martin um samkynhneigðina: Dave Grohl „Glee-ná- unginn, þvílíkur fáviti.“ Brosmild með börnin „Í dag ber ég höfuðið hátt“ www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Hamingjusöm fjölskylda Saman í New Orleans þar sem Pitt er við tökur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.