Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 16. maí 2011 Mánudagur
Pétur Emil Gunnarsson, sem haft
hefur háar fjárhæðir af allnokkrum
Íslendingum, segist ætla að endur
greiða þeim sem hann hefur svikið
peninga af. DV náði tali af Pétri Emil
í gegnum síma hans í Bretlandi en
hann er búsettur þar í landi sam
kvæmt því sem hann segir sjálfur.
„Ég veit alveg hvað ég gerði,“ segir
Pétur Emil.
Líkt og DV hefur greint frá hefur
Pétur Emil stundað það að svíkja fé
út úr fólki með því að selja því miða á
leiki með Manchester United í Meist
aradeild Evrópu. Pétur Emil hefur
hins vegar ekki staðið við að afhenda
fólkinu miðana eftir að það hefur
lagt peningana inn á hann. Þannig
hafði Pétur Emil til dæmis 312 þús
und krónur af fjögurra manna vina
hópi sem hann sagðist ætla að af
henda fjóra miða á úrslitaleikinn í
Meistaradeild Evrópu á milli Man
chester United og Barcelona.
Lofaði endurgreiðslu
Samkvæmt einum úr vinahópnum,
sem ekki vill koma fram undir nafni,
höfðu fjórmenningarnir lagt sam
tals 312 þúsund krónur inn á Pétur
Emil áður en þeir gerðu sér grein
fyrir að hann væri að svindla á þeim.
„Við erum búin að leggja 312 þúsund
krónur inn á hann. Síðan þá er ég
búinn að vera í sambandi við hann.“
Viðmælandinn segir að Pétur
Emil hafi lofað að endurgreiða þeim
þessa peninga en að hann hafi ekki
gert það hingað til. „Ég er búinn að
segja honum það að hann fái ekki
frið frá mér fyrr en hann verður bú
inn að borga mér. Það er alltaf þetta,
ég borga á morgun, ég kemst ekki í
bankann og eitthvað svoleiðis. En
svo er hann búinn að viðurkenna
það núna fyrir okkur að hann er bú
inn að eyða þessum peningum. Við
eigum bara eftir að fá það upp úr
honum hvað hann gerði við pen
ingana,“ segir viðmælandinn sem
kærði Pétur Emil til lögreglunnar á
Akureyri.
Ætlar að endurgreiða fólkinu
„Ég er búinn að vera að semja við
þá sem ég gerði þetta við,“ segir Pét
ur Emil símleiðis frá Bretlandi. Við
mælandi DV, sem Pétur Emil hafði
fé af, staðfestir að Pétur Emil hafði
lofað að greiða þeim til baka þær
rúmlega 300 þúsund krónur sem
hann sveik af þeim, líkt og áður seg
ir. Viðmælandinn segir að Pétur Emil
hafi hins vegar ekki enn endurgreitt
þeim.
Blaðamaður: „Þannig að þú veist
upp á þig skömmina. Þú veist að það
sem þú gerðir var rangt. Af hverju
gerðir þú þetta þá?“
Pétur Emil: „Já, já, ég veit það al
veg ... Ég gerði bara mikil mistök og
ég mun leiðrétta þau.“
Blaðamaður: „Ætlar þú þá ekki
að endurgreiða þeim sem þú hafðir
af fé?“
Pétur Emil: „Það er ekkert annað
í boði; það kemur ekkert annað til
greina. Að sjálfsögðu geri ég það.“
Blaðamaður: „Ertu þá ekki búinn
að eyða þessum peningum?“
Pétur Emil: „Ehhhh, ég vil nú ekk
ert segja til um það. En þetta verður
allt greitt til baka.“
Blaðamaður: „Hvað rak þig áfram
í þessu?“
Pétur Emil: „Það skiptir engu máli
hvað rak mig áfram. Ég kem til með
að greiða þetta til baka og um leið og
ég er búinn að greiða þetta til baka þá
fæ ég vonandi frið í hjartað. Og fólkið
vonandi líka ... Það er ekkert rétt fyrr
en allt verður komið til baka. Punkt
ur.“
Pétur Emil vill alls ekki segja hvort
hann sé búinn að eyða peningunum
eða ekki. Einn af viðmælendum DV,
sem hefur verið í sambandi við Pét
ur Emil, segir hins vegar að hann hafi
viðurkennt að hafa eytt þeim rúm
lega 300 þúsund krónum sem hann
hafði af honum og vinum hans, líkt
og áður segir. Pétur Emil vill heldur
ekki svara því af hverju hann gerði
það sem hann gerði: Hafði fé af fólki
með þeim hætti sem um ræðir.
Svíkur fé af fólki en segist alltaf
endurgreiða því
Pétur Emil segist aðspurður hafa gert
ýmislegt af sér í gegnum tíðina en að
hann borgi fólki alltaf til baka. „Ég hef
gert áður eitthvað af mér en ég hef
líka alltaf borgað til baka.“ Pétur Emil
segist ekki skilja af hverju fjölmiðlar
á Íslandi fjalli um málið. Blaðamaður
segir Pétri Emil þá að fjölmargir séu
ósáttir við Pétur Emil þar sem hann
hafði haft af þeim fé og að þeir vilji fá
peningana sína til baka.
Blaðamaður: „Finnst þér skrítið
að þeir sem þú hafðir af fé séu ósátt
ir við þig? Þú hlýtur að skilja það.
Myndir þú ekki vera ósáttur ef ein
hver myndi stela peningum af þér.“
Pétur Emil: „Auðvitað, eðlilega.“
Blaðamaður: „Þú verður að setja
þig í spor mannanna sem þú ert bú
inn að svíkja.“
Pétur Emil: „Auðvitað. Ég er ekk
ert að segja það ... Þú getur birt það:
Að ég komi til með að greiða þetta til
baka.“
Gefur ekki upp fjölda
eða upphæðir
Pétur Emil segist hins vegar ekki vilja
gefa upp hversu marga hann hef
ur svikið né hversu háar upphæð
ir hann hefur haft af fólki. DV hefur
rætt við fimm aðila sem Pétur Emil
hefur haft af fé, samtals meira en 400
þúsund krónur. Blaðið hefur sömu
leiðis rætt við fleiri aðila sem Pétur
Emil hefur haft samband við með
það fyrir augum að selja þeim miða
á leiki í Meistaradeildinni.
Blaðamaður: „Hvað eru þetta
margir menn sem þú ert búinn að
svíkja?“
Pétur Emil: „Ég vil ekkert segja
um það.“
Blaðamaður: „Ég er búinn að tala
við nokkra, eina fimm?“
Pétur Emil: „Það er ekkert nokkra.
Rólegur sko. Ertu til í að gefa mér
nöfnin á þeim?“
Blaðamaður: „Ég get það ekki, ég
er bundinn trúnaði gagnvart þeim.
En við erum búin að segja frá vina
hópi frá Akranesi sem þú hafðir af
þrjúhundruð og eitthvað þúsund.“
Pétur Emil segir hins vegar að ekki
sé um að ræða fleiri milljónir króna.
„Ég veit alveg hvað þetta er mikið.
En ég ætla ekkert að vera að gefa það
upp ... En þetta er undir milljón.“ Að
lokum viðurkennir Pétur Emil að um
sé að ræða að minnsta kosti fimm
einstaklinga. „Þú sagðir að þú hefðir
talað við fimm... Það eru ekki fleiri en
það. Og þetta er undir milljón.“
Blaðamaður: „Lofar þú því? Þú ert
ekki að ljúga því að mér?“
Pétur Emil: „Ég lofa þér því.“
Bíður ákæru
Í síðustu átti að þingfesta fjárdrátt
arákæru gegn Pétri Emil í Héraðs
dómi Vesturlands. Ákæran var hins
vegar ekki þingfest þar sem ekki náð
ist að birta Pétri Emil ákæruna vegna
þess að hann hefur verið staddur er
lendis. Ekki er um að ræða ákæru
vegna þeirra mála sem um ræðir hér
– fjársvik með miða í Meistaradeild
Evrópu – heldur eitthvert annað mál.
Pétur Emil vill hins vegar ekki
segja hvað mál um ræðir eða af
hverju hann er ákærður í því. Hann
segir hins vegar að ef hann borgi til
baka þá verði hann ekki dæmdur í
því máli. „Það skiptir engu máli; ég
ætla ekkert að fara að segja þér það
... En ef ég borga til baka þar þá verð
ur það mál úr sögunni.“
Pétur Emil á því yfir höfði sér að
hann verði dreginn fyrir dóm í að
minnsta kosti tveimur málum hér á
landi.
Ætlar að gera eitthvað
í sínum málum
Aðspurður segir Pétur Emil, sem
hefur verið dæmdur áður að eigin
sögn, að hann sé hættur að reyna að
svíkja fé út úr fólki með því að selja
því miða á leiki í Meistaradeildinni.
Í umfjöllun um mál Péturs Emils á
vefmiðlinum Pressunni kom fram
að hann hefði haldið áfram að reyna
að hafa fé af fólki með því að selja því
miða á fótboltaleiki eftir að fjársvik
hans komust í hámæli í fjölmiðlum.
Pétur Emil segir hins vegar að þetta
sé rangt.
„Nei, nei, ég er löngu hættur því.
Nú bara stoppar þetta. Ég get líka
alveg sagt þér það að þetta er bara
búið.“
Blaðamaður: „Þú ert hættur
þessu núna?“
Pétur Emil: „Já, ég þarf að gera
eitthvað í mínum málum, það eru al
veg hreinar línur.“
Blaðamaður: „Hvaða þínum mál
um? Hvað áttu við?“
Pétur Emil: „Það skiptir ekki máli.“
Blaðamaður: „Ertu í neyslu eða
eitthvað svoleiðis?“
Pétur Emil: „Ehhh ... það má ... ég
veit það allavegana að maður sem að
er ekki ... Ég ætla ekki að segja neitt.“
Segist ekki vera skynlaus skepna
Blaðamaður: „Er eitthvað hæft í því að
einhverjir ofbeldismenn, handrukkar
ar, séu á eftir þér?“
Pétur Emil: „Ekki svo ég viti til.“
Blaðamaður: „Þú varst ekki að flýja
land út af því að slíkir menn eru á eftir
þér?“
Pétur Emil: „Nei, nei.“
Blaðamaður: „En þú veist að það
sem þú gerðir er rangt?“
Pétur Emil: „Auðvitað. Ég er ekki
skynlaus skepna sko.“
Segist ætla að endurgreiða þetta
í vikunni
Blaðamaður: „Og þú ætlar að borga
þetta til baka?“
Pétur Emil: „Það er ekkert annað
sem kemur til greina.“
Blaðamaður: „Þá er það skjalfest.
En þá verður þú líka að standa við það.“
Pétur Emil: „Algjörlega. Það er bara
þannig ... Ég verð að bera ábyrgð á
því sem ég gerði í þessu ... Þeir fá frið
í hjartað um leið og ég verð búinn að
borga þeim þetta.“
Blaðamaður: „Og hvenær ætlar þú
að byrja að borga þessu fólki til baka?“
Pétur Emil: „Það byrjar bara fljót
lega í þessari viku.“
Blaðamaður: „Ertu búinn að eyða
peningunum sem þú sveikst út úr
þessu fólki.“
Pétur Emil: „Ég vil ekkert gefa neitt
upp um það.“
Blaðamaður: „En hvar ætlar þú að
ná þér í peninga til að endurgreiða
þessu fólki?“
Pétur Emil: „Ég er vinnandi maður
líka.“
Þeir sem Pétur Emil hefur haft af
fé geta því átt von á því, samkvæmt
þessu, að hann byrji að endurgreiða
því í þessari viku.
n Meistaradeildarsvindlarinn segist
vita að hann hafi gert eitthvað rangt
n Segist ætla að endurgreiða þeim sem
hann sveik fé af n Fær frið í hjartað
þegar hann endurgreiðir fólkinu
n Hefur svikið hundruð þúsunda af fólki
„Ég er ekki skyn-
laus skepna“
„Ég gerði bara mikil
mistök og ég mun
leiðrétta þau.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Veit upp á sig
skömmina Pétur
Emil veit að það sem
hann gerði var rangt.
Hann segist ætla að
endurgreiða þeim
sem hann hefur haft
peninga af.