Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2011, Page 10
„Þetta gengur eins og í sögu hjá okkur
og framar öllum vonum,“ segir Krist
inn Már Gunnarsson, meirihluta
eigandi og stjórnarformaður útivist
arvöruframleiðandans Cintamani,
um sókn fyrirtækisins á þýska mark
aðinn í samtali við DV. Kristinn, sem
hefur verið starfandi kaupsýslu
maður í Þýskalandi undanfarin 20
ár, keypti þriðjungshlut í Cintamani
í október í fyrra. Var hlutafé félags
ins þá aukið í þeim tilgangi að hefja
sókn á þýskan markað þar sem Krist
inn hefur verið umsvifamikill í versl
unarrekstri á undanförnum árum.
Útflutningur á vörum frá Cintamani
hefur gengið vonum framar það sem
af er ári og varð það til þess að Krist
inn jók hlut sinn í fyrirtækinu í 60
prósent fyrir um tveimur mánuðum.
Opna 19 verslanir
„Það er svo mikið að gerast í úti
vistargeiranum. Því hafa áætlanir
um sókn á þýska markaðinn geng
ið miklu hraðar en ég bjóst við. Það
þarf að breyta starfseminni á Íslandi
töluvert til að standa undir þessari
eftirspurn,“ segir Kristinn. Fyrirfram
pantanir fyrir haustið nema yfir 60
prósentum af allri sölu í heildsölu. Í
fyrra var þetta hlutfall sjö prósent.
Áætlanir gerðu ráð fyrir að koma
upp um tíu verslunum í Þýskalandi
á þessu ári sem myndu selja fatn
að frá Cintamani. Nú er hins vegar
búið að gera samninga við 19 aðila
sem munu opna verslanir auk þess
sem mjög stór verslun verður opn
uð í borginni Frankfurt í haust. „Það
verða ekki gerðir fleiri samningar í
bili. Ef salan gengur vel í verslunum
í haust geri ég ráð fyrir að sprengja
verði í útrás Cintamani árið 2012,“
segir hann.
Nafnið fer vel í Þjóðverja
„Cintamani virðist leggjast vel í
Þjóðverja. Merkið er öðruvísi og líka
nafnið. Það er auðvelt fyrir Þjóð
verja að bera nafnið fram og þekking
þeirra á Íslandi hjálpar líka til,“ segir
Kristinn. Einnig gangi rekstur Cin
tamanibúðarinnar í Bankastræti
mjög vel en stór hluti viðskiptavina
þar er erlendir ferðamenn sem koma
til Íslands. Góður árangur að und
anförnu hefur leitt til þess að Cin
tamani hefur bætt við sig tíu starfs
mönnum á Íslandi. Einnig er gert
ráð fyrir að bæta við þremur starfs
mönnum í Þýskalandi. „Fyrirtækið
er og verður íslenskt. Öll velta Cinta
mani mun fara í gegnum Ísland. Ég
vil að stjórnun og hönnun hjá fyrir
tækinu verði alfarið á Íslandi,“ segir
hann.
Eurovison-kynnir í Cintamani
Kristinn er búsettur í borginni
Düssel dorf í Þýskalandi þar sem
Euro visionkeppnin fór fram á laug
ardaginn. Þar rekur hann fyrirtækið
Arctic Group sem kemur að rekstri
um 230 verslana í Þýskalandi sem
selja vörumerki á borð við Coast,
Karen Millen og Oasis. Velti fyrirtæk
ið nærri fimm milljörðum íslenskra
króna árið 2009.
Þegar blaðamaður ræddi við
hann á föstudaginn sagði hann að
stemningin í Düsseldorf væri ótrú
leg. „Ég hef nokkrum sinnum heyrt af
íslensku keppendunum og þeir virð
ast vera okkur til mikils sóma,“ segir
hann. Öll hótel í Düsseldorf hafi ver
ið uppbókuð, bæði í borginni sjálfri
sem og í næsta nágrenni. Auk þess
voru öll tjaldstæði full. Kristinn seg
ist sjálfur hafa nælt sér í góða miða
á Eurovision og það sé ekki hægt að
missa af slíkum atburði þegar fólk
búi á sama stað og keppnin er hald
in. Til gamans má geta þess að Stef
an Raab, þýski Eurovisonkynnirinn
og höfundur sigurlagsins, hefur sést
í Cintamaniúlpu. Mary Donalds
son, krónprinsessa Dana, er þó lík
lega enn þekktasta manneskjan sem
hefur sést í fötum frá fyrirtækinu.
Logi Geirsson til Cintamani
Öll vinna við kynningu á Cintamani
í Þýskalandi er þó komin stutt á veg.
Kristinn segir að vissulega sé stefnt
að því að fá þekkta einstaklinga til að
auglýsa vörur fyrirtækisins í Þýska
landi. Hluti af því gæti orðið að fá ís
lenska handknattleiksmenn í Þýska
landi til að auglýsa Cintamani.
Einnig uppljóstrar hann að hand
knattleiksmaðurinn Logi Geirsson
sé einn þeirra sem hafi verið ráðnir
til liðs við Cinta mani á Íslandi og er
honum ætlað að sjá um markaðs
störf. Logi þekkir vel til í Þýskalandi
enda var hann atvinnumaður með
Lemgo á árunum 2004 til 2010.
„Það þarf að breyta
starfseminni á Ís-
landi töluvert til að standa
undir þessari eftirspurn.
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
10 | Fréttir 18. maí 2011 Miðvikudagur
Hrein Harpa kostar 44 milljónir króna á ári:
Þrifin kosta tugi milljóna
Samkvæmt rekstaráætlun tónlistar
og ráðstefnuhússins Hörpu er gert
ráð fyrir 44 milljóna kostnaði vegna
þrifa innandyra og á glerhjúpi húss
ins. Um 8 milljónir af þeim kostnaði
eru vegna þrifa á glerhjúpi hússins.
Pétur J. Eiríksson, stjórnarformað
ur Portus, eiganda hússins, barst þó
lægra tilboð í þrif hússins. Ræsting
arkostnaðurinn er einungis brot af
heildarkostnaði við rekstur hússins
en hann hleypur á rúmum 1,5 millj
arði króna samkvæmt kostnaðar
áætlun.
Tónlistar og ráðstefnuhúsið er
engin smásmíði en húsið er alls
28.000 fermetrar að stærð. Salirnir
fjórir, fundarherbergin í húsinu sem
og sýningarrými í forsal hússins
rúma samtals um 4.500 manns með
góðu móti. Þá eru tveir veitingastað
ir í húsinu, Kolabrautin og Munn
harpa, auk veisluþjónustu, aðstöðu
fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ís
lensku óperuna og starfsfólk hússins
og tveggja verslana.
Nokkrar milljónir fara í að halda
húsinu og risastórum glerhjúp þess
hreinum. Samkvæmt áætlunum
mun gluggaþvottur hússins kosta um
8 milljónir á ári, en þykir það hófleg
ur kostnaður. Þegar DV bar kostn
aðinn við gluggaþvottinn undir for
svarsmann gluggaþvottafyrirtækis
sagði hann kostnaðinn geta náð allt
að 28 milljónum króna á ári. Þeg
ar DV hafði samband stjórnendur
Hörpu sögðust þeir ekki hafa upp
lýsingar um áætlaðan kostnað vegna
gluggaþvottarins. adalsteinn@dv.is
Góðir skór - gott verð
Mikið úrval af nýrri vöru á alla fjölskylduna
Opið virka
daga 11-18
laugardag
11-16
Takkaskór
besta verði
ð
í bænum ?
Stærðir 31-46
kr. 5.495.-
www.xena.is
Grensásvegur 8 - Nýbýlavegur 12 - Sími 517 2040
SKÓMARKAÐUR
n Eigandi Cintamani segir árangurinn framar vonum n 19 verslanir
opnaðar í Þýskalandi í ár n Logi Geirsson í markaðsstarf hjá Cintamani
Cintamani að verða
vinsælt í Þýskalandi
Kuldahret
um helgina
Veðurstofan gerir ráð fyrir frosti
og snjókomu á Norðurlandi um
helgina og á höfuðborgarsvæð
inu gæti einnig snjóað á laugar
dag. Kuldahretið hefst á fimmtu
dag en þá verður snjókoma og hiti
við frostmark á Akureyri, gangi spá
Veðurstofunnar eftir. Á föstudag,
laugardag og sunnudag verður
allt að fimm stiga frost á Akureyri.
Einnig verður kalt í veðri á Vest
fjörðum og ekki er loku fyrir það
skotið að þar muni snjóa. Spáð er
snjóéljum á höfuðborgarsvæðinu á
laugardag þó að hiti verði rétt fyrir
ofan frostmark. Á sunnudag er gert
ráð fyrir fallegu veðri um allt land,
þó að áfram verði kalt í veðri.
„Veðurkortin hafa heldur mild
ast hvað hita varðar, fyrripart þess
arar viku, en því er ekki að neita að
köld eru þau frá og með föstudeg
inum næsta og um helgina. Fyrir
liggur að Norður og Austurland
ið verði í kaldasta og úrkomusam
asta veðrinu, snjókomu eða éljum,
en skaplegra verður það vestan og
sunnanlands, þó kalt verði á nótt
inni,“ sagði Sigurður Þ. Ragnarsson
veðurfræðingur á bloggsíðu sinni á
DV.is á þriðjudag.
„Bara rugl
frá a til ö“
Jón Ásgeir Jóhannesson hefur
vísað til föðurhúsanna fréttum
um að hann hafi orðið fyrir að
kasti á skemmtistaðnum Boston
á laugardagskvöld. Pressan
greindi frá því að hann hefði
fengið kampavín í andlitið á laug
ardagskvöld þegar hann var að
skemmta sér ásamt tveimur fé
lögum sínum. „Bara rugl frá a til
ö,“ sagði Jón Ásgeir þegar DV bar
fréttina undir hann.
Samkvæmt fréttinni lét Jón
Ásgeir það ekki á sig fá þó svo
að hann hefði verið vættur með
smávökva heldur hélt hann
gleðinni áfram og dansaði inn í
nóttina ásamt Gabríelu Friðriks
dóttur.
Sigríður Guðlaugsdóttir,
einnig þekkt sem Sigga Boston,
eigandi Boston, segir enga upp
ákomu hafa átt sér stað. „Þetta er
alltof djúpt í árinni tekið.“
Tugmilljónakostnaður Mikill umgangur verður um húsið ef allt gengur eftir með til-
heyrandi þrifum. MyNd SiGTryGGur Ari JóhANNSSON
Framar vonum Kristinn Már Gunnarsson,
eigandi Cintamani, jók hlut sinn í fyrirtækinu
í 60 prósent í vetur.
Sló í gegn Stefan Raab sló í gegn sem kynnir
í Eurovision um helgina. Hann hefur meðal
annarra frægra sést í úlpu frá Cintamani.
handboltakappi Logi Geirsson
hefur verið ráðinn af Cintamani á Íslandi en
honum er ætlað að sjá um markaðsstörf.
Verður íslenskt Stór hluti viðskiptavina verslunarinnar í Bankastræti er erlendir
ferðamenn. MyNd SiGTryGGur Ari