Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2012, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2012, Qupperneq 11
 fjármálahrunsins, segir hann að hann telji að Kjartan hafi komist að viðskiptastöðu Styrmis vegna setu sinnar í bankaráði Landsbankans og sagt Davíð hvernig lægi í mál- inu. „Öldungis er alveg víst, að Kjart- an hefir sneflað upp viðskiptastöðu Styrmis í bankanum og lekið henni í foringjann. Davíð vilji að Lands- bankinn segi upp lánaviðskiptum og gangi að Styrmi. Sem þýddi auðvitað gjaldþrot. Geta menn leitt getum að til hvers leitt hefði fyrir ritstjórann.“ Styrmi boðið nefndarsæti Hótanirnar gegn Styrmi og Morgun- blaðinu komu aftur upp á vormán- uðum 1998 eftir að Landsbankamálið kom upp, þegar Sverrir hafði skrifað margar greinar í blaðið þar sem Dav- íð og Finnur Ingólfsson voru gagn- rýndir meðal annarra. Þessar tilraunir Davíðs og Kjartans til að loka Morg- unblaðinu fyrir Sverri Hermannssyni báru þó ekki árangur á þessum tíma þar sem ritstjórarnir Matthías Johann- essen og Styrmir Gunnarsson stóðu vörð um ritstjórnarlegt frelsi blaðsins að þessu leyti og hélt Sverrir áfram að birta greinar í blaðinu. Annar árang- ur af hótunum er hins vegar ekki eins mælanlegur, til dæmis hvort þær hafi haft þau áhrif að Sjálfstæðisflokknum og leiðtogum hans hafi verið hyglað á þessum árum vegna þeirra. Segja má að endi hafi verið bund- inn á þessar deilur forystu Sjálfstæðis- flokksins og ritstjóra Morgunblaðsins í byrjun júní 1998. Matthías Johannes- sen greinir frá fundinum í dagbókar- færslum sem birtar er á internetinu. Þennan dag sátu ritstjórar Morgun- blaðsins og stjórn Árvakurs krísufund vegna Landsbankamálsins og skrifa Sverris Hermannssonar í blaðið. Með- an á fundinum stóð bárust boð til Styrmis þess efnis að hans biði áríð- andi símtal. Davíð Oddsson hafði þá stungið upp á því að ritstjórinn tæki sæti í sérstakri auðlindanefnd, und- ir stjórn Jóhannesar Nordal, sem átti að fara yfir fiskiveiðistjórnarkerfið og kvótamál. Skömmu eftir þetta hringdi Davíð Oddsson í Styrmi og vék hann aftur að fundinum. Davíð vildi vita hvort Styrmir tæki sæti í nefndinni. Ritstjórinn jánkaði því. Þannig voru öldurnar lægðar á milli Davíðs og rit- stjóra Morgunblaðsins. Sverri úthýst; Styrmir skrifar enn Svo fór hins vegar á endanum, eft- ir að Davíð Oddsson var orðinn rit- stjóri Morgunblaðsins, að Sverri Hermannssyni var úthýst af síðum Morgunblaðsins þegar blaðið neitaði að birta grein eftir hann í febrúar 2010. Þetta var í fyrsta skipti sem að- send grein eftir Sverri fékkst ekki birt í Morgunblaðinu en í greininni gagnrýndi hann meðal annars Dav- íð Oddsson fyrir atlöguna að Styrmi Gunnarssyni á tíunda áratugnum. Sverrir birti greinina hins vegar á endanum í Fréttablaðinu. Með þess- ari synjun á grein Sverris má segja að endi hafi verið bundinn á tólf ára bar- áttu um að útiloka Sverri Hermanns- son frá síðum Morgunblaðsins. Styrmir Gunnarsson skrifar hins vegar ennþá reglulega grein- ar í Morgunblaðið, nánar tiltekið í helgarblað þess. Styrmir hætti sem ritstjóri um mitt ár 2008 og hefur síðan meðal annars einbeitt sér að ýmiss konar ritstörfum. Styrmir á eina af eftirminnilegustu tilvitn- unum í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis: „[É]g er búinn að fylgjast með þessu í 50 ár. Þetta er ógeðs- legt þjóðfélag, þetta er allt ógeðs- legt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“ Sögu þeirra hótana, sem Styrmir varð fyrir á tíunda ára- tugnum, og þá staðreynd að hann skrifar vikulegar greinar í blað sem er ritstýrt af manninum sem hótaði honum beint eða óbeint, er fróðlegt að skoða í ljósi þessara orða Styrm- is. Fréttir 11Miðvikudagur 22. febrúar 2012 „Þeir skyldu bara sjá til hvor lifði Þetta af“ Bréfið til Matthíasar Bréfið birt Sverrir skrifaði bréfið upp á heimasíðu sinni árið 2009 en lítið var um það rætt. Hann hafði geymt það í bankahólfi fram að þeim tíma. DV hefur undir höndum afrit af bréfinu. Ekta fiskur ehf - Hauganesi v/Eyjafjörð - Sími: 466 1016 - www.ektafiskur.is Ektafiskur hefur ætíð og eingöngu notað vottað matvælasalt frá Saltkaupum í allar sínar vörur! Þessigamligóði virðing gæði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.