Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2012, Blaðsíða 20
E
ftir sautján mánaða hlé
frá keppni í blönduðum
bardagalistum, MMA,
snýr Gunnar Nelson,
færasti bardagaíþrótta-
maður landsins, aftur í búrið á
laugardaginn. Hann mætir þá
Úkraínumanninum Alexander
Butenko í aðalbardaga kvölds-
ins á Cage Contender 12 sem
fram fer í Dyflinni á Írlandi. Ís-
lendingar munu þó eiga ann-
an keppanda á kvöldina því í
næststærsta bardaga kvölds-
ins mætir ofurmennið Árni „úr
járni“ Ísaksson Íranum Rich-
ard Gorey. Bardagarnir verða
í beinni útsendingu á Stöð 2
Sport og er mikil spenna farin
að myndast í heimi bardaga-
íþrótta á Íslandi. Sportbarir
eru byrjaðir að auglýsa kvöldið
og mikil stemning að myndast.
Það er mikið undir hjá MMA á
á Íslandi á laugardaginn.
Magnaður mótherji
Gunnar Nelson ræðst ekki á
garðinn þar sem hann er lægst-
ur í endurkomu sinni. Mótherji
hans, Alexander Butenko, kall-
aður „járnhrammurinn“, er ein
bjartasta von austurblokkarinn-
ar í MMA. Hann hefur unnið tólf
bardaga og tapað fjórum á at-
vinnumannaferli sínum, þar af
tíu af síðustu ellefu. Hann er því
sjóðheitur. Butenko æfir með
Fedor Emelianenko sem er ein-
hver besti MMA-bardagamaður
í heimi.
Það sem meira er, Butenko
hefur unnið tíu af tólf bardög-
um sínum með því að fá and-
stæðinginn til að gefast upp (e.
submission). Það samsvarar 83
prósenta uppgjafarhlutfalli sem
telst ansi gott. „Það er eigin-
lega rugl,“ segir Haraldur Dean
Nelson, faðir og umboðsmað-
ur Gunnars, í samtali við DV.
Haraldur segir Gunnar spennt-
an fyrir bardaganum og verð-
ur áhugavert að sjá hvar hann
stendur eftir 17 mánuði frá
búrinu. Ljóst er að sigur á svona
sterkum andstæðingi, hvað þá
með hengingu eins og í síðustu
bardögum Gunnars, myndi
gera hann að enn stærra nafni
en Butenko hefur aldrei verið
stöðvaður í búrinu. Einu skipt-
in sem hann hefur tapað hefur
verið eftir ákvörðun dómara.
Passar vigtina
Gunnar hefur æft úti á Írlandi
undanfarnar vikur ásamt Árna
„úr járni“ Ísakssyni en fyrir bar-
daga æfa þeir stíft hjá þjálfara
sínum, John Kavanagh. Hljóðið
var gott í Árna þegar DV heyrði
í honum en járnmanninum
finnst ekkert skemmtilegra en
að berjast í búrinu. „Ég er allt-
af glaður í hjartanu þegar ég fæ
bardaga,“ segir Árni. „Þessi bar-
dagi leggst vel í mig. Ég hef æft
rosalega vel og er í mínu besta
formi. Ég er tilbúinn.“
Þessa síðustu viku fyrir bar-
dagann æfa strákarnir ekki
stíft, bara einu sinni á dag og
þá rólega. „Nú er maður bara
að passa vigtina. Maður æfir
rétt til þess að svitna aðeins,“
segir Árni. Erfiðlega hefur
gengið að fá bardaga fyrir
Árna en Richard Gorey var
fjórði kostur. „Hann lítur út
fyrir að vera mjög sterkur og
hefur góðan bakgrunn í júdó.
Þetta er mjög sterkur and-
stæðingur en ég tel mig betri
MMA-bardagamann þegar á
heildina er litið. Ég er í mínu
besta formi í langan tíma og
hef því ekki miklar áhyggjur,“
segir Árni.
Tapaði síðast
Eftir að Árni steig upp úr
mjög alvarlegum hné-
meiðslum hafði honum
gengið vel í endurkomunni.
Hann vann þrjá stóra bar-
daga í röð, alla með upp-
gjafartaki á andstæðinginn.
Hann tók þó bardaga með
skömmum fyrirvara í sept-
ember síðastliðnum og tap-
aði þar á tæknilegu rothöggi
gegn Frakkanum Gael Grim-
aud. Árni segist þó hafa lært
af þeim bardaga.
„Fyrir þann bardaga átti
ég verstu æfingavikur lífs
míns. Það var mikið um
meiðsli og svona. Ég vil samt
ekkert vera að afsaka mig. Ég
lærði mikið af þessum bar-
daga og þroskaðist. Þetta
er kannski klisja en ég er
ánægður með að hafa tapað.
Það neyddi mig til að hugsa
minn gang og nú er ég betri
bardagamaður fyrir vikið,“
segir Árni sem er fullmeð-
vitaður um hvað þetta kvöld
getur verið stórt fyrir MMA á
Íslandi, sér í lagi takist þeim
báðum að vinna. „Ég get al-
veg viðurkennt að ég er smá
stressaður,“ segir hann.
Barist í Dyflinni
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Bardagalistir
Carroll bjartsýnn eftir bikarsigur
n Er ánægður með frammistöðu sína að undanförnu
A
ndy Carroll, fram-
herji Liverpool, er
bjartsýnn á síðasta
hluta tímabilsins eft-
ir að Liverpool valtaði yfir
Championship-liðið Brig-
hton, 6–1, í ensku bikar-
keppninni um síðustu helgi.
Carroll segist vera að spila
betur, vera farinn að skora
mörk og sér fram á bjartari
tíma. Leikurinn um síðast-
liðna helgi var líka sá fyrsti
á tímabilinu sem hann, Luis
Suarez og Steven Gerrard
voru allir í byrjunarliðinu.
„Mér finnst ég vera að
standa mig. Ég er byrjaður
að skora mörk og spila vel í
leikjunum. Þetta er allt að
koma heim og saman hjá
okkur. Þetta er það besta
sem ég hef sýnt eftir að ég
flutti mig yfir til Liverpool,“
segir Carroll sem hefur að-
eins skorað sex mörk í öll-
um keppnum á tímabiilinu.
Hann er þó ánægður með
bætingu sína.
„Ég hleyp meira inni á
vellinum, er á réttum stað á
réttum tíma. Ég er ánægð-
ur, með meira sjálfstraust
og hlutirnir ganga upp. Allt
liðið spilaði vel gegn Brig-
hton og ég var hæstánægður
með að skora mark. Svo var
auðvitað gaman að sjá Luis
Suarez skora,“ segir hann.
Liverpool fær tækifæri
um helgina til að vinna sinn
fyrsta bikar í sex ár þegar lið-
ið mætir öðru Champion-
ship-liði, Cardiff, í úrslit-
um deildarbikarsins. „Það
er stór leikur og ég held að
allir í liðinu hlakki til. Von-
andi getum við unnið hann.
Ég hef aldrei spilað bikarúr-
slitaleik. Ég hlakka bara til
þess að mæta þangað.“
Hann segir Liverpool-lið-
ið hafa spilað vel undanfarn-
ar vikur en það hefur vant-
að upp á að skora mörkin.
Hann vonast þó til að mörk-
in gegn Brighton kveiki í lið-
inu og hjálpi því á lokakafla
tímabilsins.
„Við höfum sýnt að við
getum skorað mörk. Það
er flott að sjá liðin í kring-
um okkur eins og Arsenal
og Chelsea misstíga stig en
auðvitað þurfum við líka að
bjóða upp á sómasamleg-
ar frammistöðu.“ segir Andy
Carroll.
20 Sport 22. febrúar 2012 Miðvikudagur
Sex mörk Carroll er búinn að skora sex mörk fram að þessu. Mynd REuTERS
Lífróður
Hauka
Iceland Express-deildin fer
aftur af stað eftir bikarhelgi á
fimmtudaginn. Haukar, sem
eru nú aðeins fjórum stigum
frá öruggu sæti, halda lífróðri
sínum í deildinni áfram á
heimavelli. Þeir fá þó topp-
lið Grindavíkur í heimsókn
þannig að róðurinn gæti orð-
ið þungur. Sama kvöld tekur
Snæfell á móti Stjörnunni og
ÍR-ingar, sem eru í eins kon-
ar baráttu milli þess að falla
og komast í úrslitakeppni,
fara í Ljónagryfjuna og mæta
þar Njarðvík. Allir leikirnir
hefjast klukkan 19.15.
Bruce lík-
legastur
Veðmálafyrirtækin á Eng-
landi segja Steve Bruce, fyrr-
verandi knattspyrnustjóra
Sunderland, enn líkleg-
astan til að taka við starf-
inu hjá Úlfunum. Enn hefur
ekki verið ráðið þar eftir að
Mick McCarthy var látinn
taka pokann sinn. Fréttir um
síðustu helgi bentu til þess
að Úlfarnir væru að leita á
önnur mið en Bruce þykir
enn líklegastur. Það var vatn
á myllu Bruce þegar Úlfarnir
fengu leyfi til að ræða við
Gus Poyet, stjóra Brighton,
en liðið og stjórinn komust
ekki að samkomulagi. Úlf-
arnir eru í harðri fallbaráttu í
ensku úrvalsdeildinni.
Schumi ætlar
að berjast
Endurkoma sjöfalda heims-
meistarans í Formúlu 1,
Michaels Schumacher, hef-
ur ekki verið glæsileg. Hann
er þó enn við stýrið hjá
Mercedes, segist ekki hafa
tapað tommu af spennunni
sem fylgir því að setjast upp
í Formúlu-bíl og ætlar sér
að berjast í ár. „Ég hlakka til
að byrja og fyrir mína parta
hlakka ég til að berjast. Bíll-
inn er flottur og fyrstu próf-
anir hafa gengið vel. Þetta er
góð byrjun og við hlökkum
til að kynnast bílnum bet-
ur,“ segir Schumacher sem
hefur ekki enn unnið keppni
eftir að hann snéri aftur í
Formúluna.
n Gunnar Nelson og Árni „úr járni“ Ísaksson eiga tvo stærstu bardagana
Kominn aftur Gunnar Nelson snýr aftur í búrið eftir 17 mánaða hlé.
Mynd KRiSTinn MagnúSSon
Betri eftir tapið Árni tapaði síðast en segist vera betri bardagamaður
núna. Mynd SigTRygguR aRi JóhannSSon