Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2012, Qupperneq 23
Smáauglýsingar
smaar@dv.is
sími 512 7004
Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00
BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900
FORD ESCAPE LIMITED 4X4
06/2005, ekinn 118 Þ.km, sjálf-
skiptur, leður ofl. Verð 1.570.000.
Raðnr.321941 á www.bilalind.is -
Jeppinn er á staðnum!
FORD F150 SUPER CAB SS
4WD 02/2006, ekinn 76 Þ.km, sjálf-
skiptur. Verð 3.330.000. Raðnr. 284091
á www.bilalind.is - Pikkinn er á
staðnum!
M.BENZ CLS 500 AMG
Árgerð 2006, ekinn 88 Þ.km, sjálf-
skiptur. Flott verð 5.990.000, gott
lán áhvílandi. Raðnr. 321734 á www.
bilalind.is - Kagginn er á staðnum!
VIKING 1706 EPIC
06/1999, fortjald, loftpúðafjöðrun ofl.
Verð 790.000. Raðnr.270846 á www.
hofdahollin.is - Er upptjaldað fyrir þig
í salnum!
BMW 120 DIESEL
04/2006, ekinn 136 Þ.km, 6 gíra. Verð
2.890.000, hátt lán. Raðnr.211167
á www.hofdahollin.is - Bíllinn er á
staðnum!
POLARIS Trg 800EFI
08/2008, ekinn 2 Þ.km, götuskráð, spil
ofl. Tilboðsverð 1.490.000, gott lán
áhvílandi, engin skipti! Raðnr.270812 á
www.hofdahollin.is - Hjólið er í salnum
KIA CEED ED DIESEL
12/2007, ekinn 49 Þ.km, dísel, 5 gíra.
Verð 2.090.000. Raðnr.118099 á www.
hofdahollin.is - Sá sparneytni er á
staðnum!
TOYOTA AVENSIS WAGON SOL
05/2007, ekinn 76 Þ.km, sjálfskiptur.
Gott verð 2.290.000. Raðnr.118078
á www.hofdahollin.is - Bíllinn er á
staðnum!
M.BENZ G 55 AMG KOMPRESSOR
Árgerð 2005, ekinn aðeins 65 Þ.KM,
600 hestöfl, leður, sjálfskiptur ofl. ofl.
Verð 12.900.000. Raðnr.281803 á www.
hofdahollin.is - Bíllinn er í glæsilega
sýningarsalnum okkar!
KIA OPIRUS
Árgerð 2006, ekinn aðeins 95 Þ.km,
bensín, sjálfskiptur, einn eigandi frá
upphafi! Verð 1.750.000. Raðnr.284017
- Kagginn er á staðnum!
MMC PAJERO DID GLX
03/2006, ekinn 104 Þ.km, dísel, sjálf-
skiptur. Verð 3.780.000. Raðnr.284023
á www.bilalind.is - Jeppinn er á
staðnum!
M.BENZ E240
Árgerð 1998, ekinn 218 Þ.km, sjálf-
skiptur, topp þjónustusaga. Mjög gott
verð 990.000. Raðnr. 284060 á www.
bilalind.is - Þýski fákurinn er á staðnum!
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík
FARÐU
AFTUR
Í BÍÓ
Í FYRSTA
SINN
Tangabryggja 14-16, 110 Rvk.
S. 567 4840 www.hofdahollin.is
RÝMINGARSALA!
Tangabryggja 14-16, 110 Rvk.
S. 567 4840 www.hofdahollin.is
RÝMINGARSALA!
Íbúð óskast
Íbúð óskast fyrir háskólanema, helst á
105 svæðinu eða nálægt. Vinsamlegast
hafið samband í 6617338 eða 7760179 .
Harmonikka til sölu
Antik harmonikka til sölu 120 bassa
ítölsk 3.kóra. Nú yfirfarin Upplýsingar í
síma 5670437 eða 8671837
Tek að mér
Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmiss
smærri verkefni. Upplýsingar í síma 847-
8704 eða á manninn@hotmail.com
R
ithöfundurinn og frétta-
konan Elín Hirst var á
meðal gesta á Eddu-
verðlaunahátíðinni sem
fram fór í Gamla bíói síðast-
liðinn laugardag. Elín var
glæsileg í silkikjól úr Chained
and dumped in the ocean-
línu fatahönnuðarins vinsæla
Munda Vonda. Mundi frum-
sýndi línuna á glæsilegri sýn-
ingu síðasta haust sem fór
einmitt fram í Gamla bíói eins
og Eddan.
„Elín hefur lengi klæðst
fötum frá mér. Ég hef stolt-
ur sagt frá því enda er þetta
merkiskona,“ segir Mundi í
samtali við DV. Það voru líka
hæg heimatökin fyrir Elínu að
fá kjól hjá Munda fyrir Edduna
því ekki nóg með að þau séu
skyld heldur er Elín að klippa
stuttmyndina Handbolti sem
Mundi er að vinna í samtarfi
við Vigfús Þormar Gunnars-
son. „Föt úr línunni eru svona
að byrja að detta í búðirnar
og svo fer það á fullt aðeins
seinna,“ segir Mundi.
Elín mætti ásamt Guðrúnu
Ebbu, dóttur Ólafs Skúlason-
ar biskups, og tengdadóttur
sinni, Vigdísi Margréti Jóns-
dóttur. Elín gaf út bókina Ekki
líta undan þar sem Guðrún
sagði frá ofbeldi föður síns í
æsku. Viðtalsþáttur Þórhalls
Gunnarsson í Ríkissjónvarp-
inu þar sem hann ræddi við
Guðrúnu Ebbu var tilnefnd-
ur til Edduverðlauna í flokki
frétta- og viðtalsþátta. Hann
tapaði þó fyrir Landanum.
Fólk 23Miðvikudagur 22. febrúar 2012
Mætti í Munda
n Elín Hirst glæsileg á Eddunni
Gleði hjá
Grétari
Rafni
É
g er ánægður. Við erum
ánægð saman,“ segir
knattspyrnukappinn
Grétar Rafn Steinsson í
samtali við DV en fréttir
af trúlofun hans og ensku
fegurðardísarinnar Francescu
Bamber bárust út á mánu-
dagskvöldið. Trúlofunin var
þó opinberuð á sérstakan
máta en systir Francescu,
Daniella, óskaði þeim til
hamingju á samskiptasíðunni
Twitter.
„Vil óska systur minni og
Grétari til hamingju með trú-
lofunina. Ég er svo spennt,“
skrifaði hún. Það eru þó fáir
Íslendingar sem fylgjast með
henni á Twitter en það var
kollegi Grétars hjá Liverpool,
Skotinn Charlie Adam, sem
„endurtístaði“ skilaboðunum
og þá fór allt af stað. „Þetta
var svolítið sérstakt en bara
fyndið og skemmtilegt,“ segir
Grétar aðspurður um hvernig
þetta fréttist. Charlie þekk-
ir Daniellu og Francescu frá
því að hann var leikmaður
Blackpool en þaðan eru syst-
urnar. Þær þekkja líka vel til í
fótboltanum en faðir þeirra,
Dave Bamber, spilaði í fimm-
tán ár sem atvinnumaður á
Englandi, meðal annars með
Blackpool, Stoke og Watford.
Grétar og Francesca hafa
verið saman frá því í lok árs
2010 en áður hafði Grétar
slitið samvistir við eiginkonu
sína Manuelu Ósk Harðar-
dóttur. Skilnaður þeirra hjóna
gekk svo gegn í nóvember
síðastliðnum en hann var
afar hávær og ljótur. Eins
og DV greindi þá frá hugð-
ist Manuela kæra Grétar Rafn
fyrir persónunjósnir en lög-
menn Grétars Rafns í skilnað-
armálinu réðu einkaspæjara
til að fylgjast með henni. Hún
hætti þó við kæruna.
Grétar og Francesca munu
að öllu óbreyttu flytja á nýjan
stað í sumar en Grétar sagði
í viðtali við DV á dögunum
að afar ólíklegt væri að hann
myndi gera nýjan samning við
Bolton. Samningur hans við
liðið rennur út í sumar. Hann
sagði að þreifingar væru nú
þegar hafnar og aldrei að vita
nema hann færi út í eitthvert
ævintýri.
Hann er í landsliðs-
hópi Íslands sem á að mæta
Svartfjallalandi í æfingaleik á
miðvikudaginn í næstu viku.
Grétar dró sig úr landsliðinu
á síðasta ári þar sem hann
stóð í hörðum skilnaði við
Manuelu. Grétar hefur ekki
spilað landsleik síðan í októ-
ber 2010 en spili hann gegn
Svartfellingum á miðviku-
daginn í næstu viku verður
það 42. landsleikur hans á
ferlinum.
n Trúlofaður hinni ensku Francescu Bamber
n Spilar loksins aftur landsleik í næstu viku
Sæt
saman
Grétar og
Francesca
á góðri
stundu.
Bjart fram undan Grétar spilar bráðum aftur landsleik og er trúlofaður.
Glæsileg Elín Hirst bar Mundann vel.