Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Side 3
Fréttir 3Miðvikudagur 30. maí 2012
veiða 30.000 tonn af
makríl við namibíu
Ástæðan fyrir þessari misskipt-
ingu er sú staðreynd að vegna að-
skilnaðarstefnunnar í Suður-Afríku
er auði og gæðum Namibíu mjög
misskipt á milli hvíta minnihlutans
og svarta meirihlutans.
Veittu Namibíu aðstoð við
sjávarútveg
Gunnar Salvarsson segir að Þró-
unarsamvinnustofnun Íslands hafi
aðallega aðstoðað Namibíu á sviði
sjávarútvegsmála á þessu 20 ára
tímabili. Stærsti hluti þróunarað-
stoðarinnar snérist um að byggja
upp sjómannaskóla í Malvis Bay,
bænum sem verksmiðjutogari Sam-
herja, Sirius, stefndi til í siglingu
sinni áleiðis frá Kanaríeyjum í síð-
ustu viku. Á heimasíðu stofnunar-
innar segir um þetta: „Íslendingar
hófu þróunarsamvinnu við Nami-
bíu sama ár og landið fékk sjálf-
stæði frá Suður-Afríku 1990. Sam-
starfssamningurinn gildir til ársloka
2010. Í upphafi var samvinnan fyrst
og fremst á sviði sjávarútvegs. Ís-
lenskir sérfræðingar og sjómenn
hafa starfað við hafrannsóknir og
namibískir líffræðingar hafa verið í
þjálfun á Íslandi. Íslenskir kennarar
störfuðu í Namibíu við undirbúning
og kennslu í sjómannaskóla í bæn-
um Walvis Bay og var það helsta
samstarfsverkefni ÞSSÍ í landinu
um árabil.“
Þróunarsamvinnustofnun Ís-
lands er ríkisrekin stofnun sem fær
fjárveitingar á fjárlögum til að sinna
verkefnum sínum í Afríkuríkjum,
eins og Namibíu, Malaví og Mó-
sambík. Árið 2009 fékk stofnunin
0,41 prósent, tæplega 1.750 millj-
ónir króna, af þeim fjármunum
sem ríkistjórnin varði til þróunar-
aðstoðar. 290 milljónir af því runnu
til þróunaraðstoðar í Namibíu. Ís-
lenskir skattgreiðendur vörðu því
tæpum 300 milljónum króna árlega
til aðstoðar íbúum í Namibíu til að
byggja upp innviði sína og til að
íbúar landsins gætu lært að hjálpa
sér sjálfir, meðal annars á sviði sjáv-
arútvegsmála.
Á sama tíma og íslenska rík-
ið veitir fjármunum til þróunarað-
stoðar í Namibíu, peningum sem
meðal annars er ætlað styrkja sjáv-
arútveginn í landinu, stunda íslensk
útgerðarfyrirtæki eins og Samherji
stórfelldar fiskveiðar í landhelgi rík-
isins. Arðurinn af þessum fiskveið-
um Samherja skilar sér ekki til íbúa
Namibíu nema að hluta til, í formi
gjalda fyrir veiðiréttindin. Afgang-
urinn af hagnaðinum rennur til
Samherja sjálfs.
n Ísland veitti Namibíu þróunaraðstoð til 2010 n Misskipting auðs hvergi meiri en í Namibíu
„Þarna er
bláfátækt fólk
Skrifa undir trún-
aðaryfirlýsingu
n Starfsmenn á skipum Samherja
hafa verið látnir skrifa undir trún-
aðaryfirlýsingu þess efnis að þeir muni
ekki ræða um afla og aflaverðmæti
skipa útgerðarinnar. Þá felst einnig í
trúnaðaryfirlýsingunni að þeir megi ekki
senda upplýsingar um fjármál, laun
og hlutdeild í aflaverðmæti og annað
slíkt, á opinber netföng starfsmanna
Samherja, sem hýst eru á Íslandi. Þeim
tilmælum hefur verið beint til þeirra að
nota gmail-netföng eða önnur netföng
sem ekki eru opinberlega tengd Sam-
herja.
n Líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum
gerði Seðlabanki Íslands húsleit í
höfuðstöðvum Samherja vegna meintra
lögbrota við sölu á karfa til dótturfélaga
sinna í Evrópu. Talið er að Samherji hafi
selt karfa úr landi á undirverði og látið
hagnaðinn af sölunni þannig myndast í
öðrum löndum, sem væri brot á lögum
um gjaldeyrismál og skattalagabrot.
Samherji hefur haldið uppi vörnum í
málinu og neitað því að lögbrot hafi átt
sér stað. Í húsleitinni lagði Seðlabanki
Íslands meðal annars hald á mikið magn
gagna, meðal annars tölvupósta, í
tengslum við rannsóknina. Enginn eldur
á Öldugötu
Allt tiltækt slökkvilið var kallað að
Öldugötu 58 í Reykjavík um hálf-
fimmleytið á þriðjudag vegna
gruns um eldsvoða. Betur fór en
á horfðist og þegar slökkvilið kom
á staðinn reyndist ekki vera nein
hætta á ferðum. Í ljós kom að
eldurinn reyndist ekki vera inni í
húsinu og þegar nánar var að gáð
þótti líklegt að reykur hefði borist
úr brennandi laufi eða rusli úr
ræsi en fyrst var haldið að reykur-
inn kæmi úr þakskeggi hússins.
Lögregla og slökkvilið fóru af vett-
vangi skömmu fyrir fimm þar sem
engin hætta var á ferðum.
Marokkó
Máritanía
„Árlega er veiddur fiskur í heim-
inum fyrir um 80 milljarða dollara.
Niðurgreiðslur frá ríkjum heimsins
til sjávarútvegsfyrirtækja nema um
30 milljörðum dollara. Þessar nið-
urgreiðslur koma að sjálfsögðu frá
efnuðum þjóðum innan OECD og
renna til útgerðarfyrirtækja þess-
ara ríkja. En þessar niðurgreiðslur
eru fyrir hendi alveg sama hvar út-
gerðirnar ákveða að veiða fiskinn.
Ef fiskveiðar þeirra ættu sér að-
eins stað innan fiskveiðilögsögu
OECD-ríkja þá væru skattgreið-
endur innan OECD aðeins að fjár-
magna ofveiði sem myndi koma
niður á komandi kynslóðum þess-
ara ríkja. Eins og málum er háttað í
dag eru útgerðirnar niðurgreiddar
til að veiða bæði fisk á alþjóðleg-
um svæðum og eins innan illa var-
innar fiskveiðilögsögu fátækasta
hluta mannkyns. Sjávarútvegsráð-
herra Síerra Leóne hefur útskýrt
þetta vandamál með eftirfarandi
hætti. Vandamálið er að ríkis-
stjórnir þessara landa skortir að-
ferðir til að gæta fiskveiðilögsögu
sinnar og þess vegna þurfa sjó-
mennirnir þar að horfa upp á það
varnarlausir þegar erlendir, niður-
greiddir, togarar stunda ofveiði á
fiskistofnunum við strendur þeirra.
Eina aðstoðin sem hefur borist
kom frá kínversku ríkisstjórninni
sem sendi varðskip til Afríku. Svo
kaldhæðnislega vildi reyndar til
að fyrsta skipið sem það stöðvaði
við ólöglegar veiðar var kínverskt. Í
Síerra Leóne er minnsta kosti sjáv-
arútvegsráðherra; en í Sómalíu er
ekki einu sinni ríkisstjórn. Fiski-
mið landsins hafa verið þaulsetin
af erlendum skipum sem eru nið-
urgreidd að mestu.“
Paul Collier, hagfræðingur við
Oxford-háskóla. Úr bókinni „The
Plundered Planet: How to reconcile
prosperity with nature“.
Um ofveiði á fiski í Afríku
Vestur-
Sahara
Senegal
Namibía
n Kortið sýnir þau lönd við Vestur-Afríku þar sem Samherji stundar veiðar.
Það var í febrúar sem fyrirtækið gekk frá kaupum á kvóta úti fyrir stöndum
Namibíu. Útgerðin hefur skoðað að hefja veiðar við Senegal.
Veiðar
Samherja
Kona lamdi
löggur
Kona á sextugsaldri var á þriðju-
dag ákærð fyrir að ráðast á tvo lög-
reglumenn við skyldustörf. Árásin
átti sér stað í nóvember árið 2010.
Hún sparkaði í bringu annars lög-
reglumannsins en í höfuð hins.
Vísir greinir frá þessu. Þar segir að
lögreglumennirnir hafi handtekið
konuna við íbúðarhús í vesturbæ
Reykjavíkur vegna eignaspjalla og
flutt hana á lögreglustöðina við
Hverfisgötu. Þar réðst hún á lög-
reglumennina.
Veiðigjöldin
snarlækka
Veiðigjöld munu lækka úr 24 til
27 milljarða króna niður í um 15
milljarða, nái breytingartillögur
stjórnarliða á frumvarpi um veiði-
gjöld fram að ganga. Breyting-
arnar eru gerðar með það mark-
mið að létta gjöldum af litlum og
meðalstórum fyrirtækjum. Daði
Már Kristófersson, dósent við HÍ,
og Stefán B. Gunnlaugsson, við
HA, hitta atvinnuveganefnd í dag,
miðvikudag til að fara yfir málið.
Þeir hafa gagnrýnt frumvörp ríkis-
stjórnarinnar harðlega og hafa
sagt allt of hart gengið fram gegn
litlum og meðalstórum fyrirtækj-
um í sjávarútvegi. Stjórnarand-
stæðingar hafa sagt að með þessu
hafi ríkisstjórnin viðurkennt að of
langt hafi verið gengið.