Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Side 4
4 Fréttir 30. maí 2012 Miðvikudagur
Mál Egils enn óafgreitt
n Ríkissaksóknari vill ekki tjá sig um málið
S
amkvæmt heimildum DV
hefur ekki verið tekin ákvörð-
un um það hvort ákæra verði
gefin út eða hvort málið gegn
Agli Einarssyni og unnustu hans
verði fellt niður. Engar upplýsingar
fást um málið hjá ríkissaksóknara,
en eins og kunnugt er hafa þau Eg-
ill og unnusta hans verið kærð fyrir
nauðgun. Lögreglurannsókn er lok-
ið og málið er að því er DV kemst
næst enn óafgreitt frá ríkissaksókn-
ara. Þegar DV leitaði upplýsinga
um málið á þriðjudagsmorgun var
hvorki hægt að fá upplýst hvort mál-
ið hefði verið fellt niður eða ákæra
gefin út og sagði Hulda Elsa Björg-
vinsdóttir, saksóknarinn sem fer
með málið, að hún ætlaði ekki að tjá
sig um málið í fjölmiðlum.
Egill og kærasta hans voru kærð
af átján ára stúlku í nóvember síð-
astliðnum fyrir nauðgun en stúlk-
an var gestkomandi á heimili þeirra
eftir gleðskap í miðbæ Reykjavíkur.
Ákvörðun um ákæru átti að liggja
fyrir í febrúar, en þá var málinu vís-
að aftur til lögreglunnar sem lauk
rannsókn sinni stuttu síðar og hefur
málið beðið endanlegrar afgreiðslu
síðan.
Þá liggur fyrir önnur kæra á
hendur Agli vegna nauðgunar, en
ekki fæst heldur gefið upp hvort gef-
in hefur verið út ákæra vegna þeirr-
ar kæru.
Í því máli sakar stúlka hann um
að hafa brotið gegn sér kynferðis-
lega þegar hún var aðeins fimmtán
ára, samkvæmt heimildum DV. Þá
var Egill á þrítugsaldri.
Egill hefur ítrekað haldið fram
sakleysi sínu opinberlega og sagði
meðal annars í yfirlýsingu til fjöl-
miðla eftir að málið kom upp að
hann hefði í hyggju að leita réttar
síns vegna rangra sakargifta.
Ekkert ákveðið Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um það hvort ákæra verði gefin
út eða hvort málið gegn Agli Einarssyni og
unnustu verði fellt niður.
V
ið erum bara að reyna að finna
tjald til að búa í, það er ekkert
annað í boði,“ segir Erla Heiða
Sverrisdóttir, íbúi á Hólmavík,
sem á næstu dögum missir íbúð sem
fjölskylda hennar hefur búið í og er í
eigu sveitarfélagsins. Mikill skortur er
á húsnæði á svæðinu og er það því svo
að Erla, eiginmaður hennar og þrjú
börn þeirra á aldrinum tveggja til sex
ára verða heimilislaus á næstu dögum.
Seldu íbúðina
Fjölskyldan hafði síðan í september
búið í íbúð í eigu sveitarfélagsins
Strandabyggðar sem Hólmavík heyrir
undir. Sveitarfélagið seldi íbúðina
og hefur engin önnur úrræði fyrir
fjölskylduna. „Við fengum þriggja
mánaða uppsagnarfrest en vorum
dregin á asnaeyrunum með það í tvo
mánuði að við myndum líklega fá aðra
íbúð sem sveitarfélagið á. Þeir hafa
hins vegar ákveðið núna að selja þá
íbúð til þess að byggja blokk sem þeir
byrja ekki á strax. Á meðan erum við á
götunni því það getur liðið langur tími
þar til það er tilbúið,“ segir hún.
Leitar að tjaldi til að búa í
Erla segir lítið af húsnæði vera í boði á
staðnum. „Það húsnæði sem er laust
er annaðhvort til sumarleigu eða til
sölu. Það geta bara ekkert allir keypt
sér húsnæði og við fáum til dæmis ekki
greiðslumat,“ segir hún. Tengdamóðir
Erlu býr á svæðinu en hún segir þau
ekki geta búið hjá henni. „Það er bara
ekki pláss, en ætli við tjöldum ekki í
garðinum hjá henni. Ég er bara á fullu
að leita að tjaldi fyrir okkur núna.“
Erla og maður hennar vinna bæði
í Rækjuvinnslunni á Hólmavík. Þau
fluttu í bæinn fyrir um fjórum árum
og kunna vel við sig þar og vilja síð-
ur flytja þaðan. „Ég er með strák með
ADHD-greiningu og við getum ekki
farið annað með hann, honum líð-
ur vel og þolir illa röskun. Þannig að
við getum ekki farið. Við erum bæði
í vinnu hér og það er svolítið erfitt að
kippa undan okkur fótunum.“
Sveitarfélagið getur lítið gert
Jón Gísli Jónsson, varaoddviti sveit-
arstjórnar Strandabyggðar, segir
sveitarfélagið lítið geta gert til að
hjálpa fjölskyldunni í húsnæðis-
hrakningum sínum. Sveitarfélagið
eigi fáar íbúðir. „Það er lítið af leigu-
húsnæði í boði, þetta eru bara vand-
ræði,“ segir hann. „Það eru einhver
sumarhús sem gæti verið mögu-
leiki að leigja,“ segir hann en segist
þó ekki vita hve mörg þeirra verði í
sumarleigu í sumar. „Það eru engin
úrræði fyrir þessa fjölskyldu frekar
en einhverja aðra sem eru í vand-
ræðum með húsnæði. Það er ekki
gott og þetta er erfitt mál.“ Hann
segir sveitarstjórnina ekki ætla að
beita sér neitt sérstaklega til að
hjálpa fjölskyldunni þar sem fátt sé
hægt að gera. „Ég er hræddur um að
það sé óskaplega lítið sem við get-
um gert.“
Mikill húsnæðisvandi á Hólmavík
Ingibjörg Valgeirsdóttir, sveitarstjóri
Strandabyggðar, segist ekki geta tjáð
sig um mál einstakra fjölskyldna
en hún staðfestir að það sé mikill
skortur á húsnæði á Hólmavík. Bæði
leiguhúsnæði og eignarhúsnæði. „Við
erum í miklum húsnæðisvanda hérna
á Hólmavík. Það er rosalega mikil
eftirspurn eftir húsnæði, bæði til leigu
og sölu, og lóðum,“ segir hún.
Ingibjörg segir það jákvætt
hversu margir vilji búa á staðnum
en vissulega séu margar fjölskyldur
í húsnæðisvanda. „Við erum á
fullu að leita leiða varðandi þessi
húsnæðismál. Það eru fjölmargar
fjölskyldur hér sem vantar húsnæði
og hafa búið inni á öðrum fjölskyldum
og hafa verið í vanda.“
Ingibjörg staðfestir að íbúð í eigu
sveitarfélagsins sé til sölu og það sé
til þess að fjármagna frekari uppbygg-
ingu á svæðinu. „Við höfum verið að
losa fjármagn til þess að geta farið í
að deiluskipuleggja og bregðast við,“
segir hún. Ýmislegt hafi verið gert til
þess að reyna að mæta vandanum.
„Fyrir ári fluttum við úr sveitarstjórn-
arskrifstofunni og breyttum henni
í íbúð til þess að geta mætt þessum
vanda. Ástandið hefur verið svona í
svolítinn tíma en við erum stöðugt að
vinna í því að leita lausna.“
n Á hrakhólum vegna húsnæðisskorts n Mikið vandamál á Hólmavík
Fjölskyldan
Flytur í tjald
Fjölskyldan Erla segir
fjölskylduna neyðast til
að flytja í tjald.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
„Ég er
bara á
fullu að leita
að tjaldi fyrir
okkur núna
Kveikti í
forsetanum
Bein lína DV.is kveikti svo sannar-
lega í Ólafi Ragnari Grímssyni því
nú hefur hann ákveðið að svara
spurningum landsmanna á Face-
book-síðu sinni.
„Höfum ákveðið að taka upp
fastan lið hér á Facebook og á
heimasíðunni www.olafurogdor-
rit.is þar sem allir geta sett fram
spurningar og ég svara, líkt og ég
gerði á Beinni línu á DV. Þar komu
fram margar efnisríkar spurning-
ar sem gaman var að svara,“ segir
Ólafur Ragnar sem fór mikinn á
Beinni línu DV.is fyrir skemmstu
þar sem hann svaraði spurningum
lesenda vefsins af miklum móð.
Þar gaf Ólafur til að mynda
ungum mönnum góð ráð í
kvennamálum og sagðist beygja
sig auðmjúkur undir dóm þjóðar-
innar.
Reykjanesbær í
skuldafeni
Þrjú af fimm stærstu sveitarfé-
lögum landsins uppfylla ekki skil-
yrði sveitarstjórnarlaga um fjár-
hagsstöðu. Greint var frá þessu í
kvöldfréttum Sjónvarpsins en þar
kom fram að skuldir aðalsjóðs og
fyrirtækja sveitarfélaga mættu ekki
fara yfir 150 prósent af árstekjum
sveitarfélaga. Reykjavík skuldar
110 prósent af tekjum, en Orku-
veita Reykjavíkur er ekki tekin inn
í þá útreikninga sökum reglu-
gerðar í sveitarstjórnarlögum um
skuldastöðu sveitarfélaga.
Kópavogur er vel yfir mörk-
unum, skuldar 244 prósent af
tekjum og hlutfallið er enn hærra í
Hafnarfirði þar sem skuldirnar eru
259 prósent af tekjum. Akureyri
skuldar 140 prósent af tekjum og
Reykjanesbær trónir á toppnum
en sveitarfélagið skuldar 300 pró-
sent af tekjum sem er tvöfalt meira
en leyfilegt er samkvæmt lögum.
Í kvöldfréttum Sjónvarpsins
kom fram að ekki hefði verið út-
fært hvernig eftirlitsnefnd um
fjármál sveitarfélaga myndi taka
á þessu.