Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Page 9
H ús Kára Stefánssonar, stjórnanda og stofnanda Ís- lenskrar erfðagreiningar, í Kópavogi er eitt af íburð- armestu húsum landsins. Samkvæmt fasteignaskrá er húsið 629 fermetrar að stærð og er það á eftirsóttum stað í bænum, með út- sýni yfir allt Elliðavatn. Enn er ekki ljóst hvenær Kára gefst færi á að flytja inn í húsið en það styttist þó óðum í það, sé mið tekið af gangi fram- kvæmda. Bíósalur á neðri hæðinni Húsið er um margt athyglisvert og ekki síst fyrir þann herbergjafjölda sem ætlaður er heimilisfólki. Sam- kvæmt upplýsingum úr fasteignaskrá og teikningum á vef Kópavogsbæj- ar verður nóg pláss í hjónaherberg- inu, en það er það tæplega fimmtíu fermetrar að stærð. Þess utan er svo fataherbergi upp á tæpa átta fermetra og baðherbergi sem er rúmir nítján fermetrar. Hjónaherbergið er talsvert stærra en bíósalurinn sem gert er ráð fyrir í teikningunum á neðri hæð hússins. Salurinn er skráður rúmir 38 fermetrar en hann er á sömu hæð og bókasafnið. Bókasafnið er hins vegar umtalsvert stærra, eða rúmir 62 fer- metrar. Þrátt fyrir að hjónaherbergi Kára sé tugir fermetra að stærð er það ekki eina herbergið í glæsihýsinu. Þrjú önnur svefnherbergi eru á teikning- unum auk vinnustofa og aukaher- bergja. Fataskápar og línskápur eru einnig á teikningunum. Einnig má nefna að klósett eru víða um hús- ið en þau eru fjögur talsins. Þá get- ur Kári valið á milli þriggja sturta og tveggja baðkara til að baða sig í. Ofan á húsþakinu eru þaksvalir með útsýni yfir Elliðavatnið. Mörg glæsileg hús eru á svæðinu en fá, ef einhver, eru með jafn gott útsýni yfir vatnið og hús Kára. Húsið er þannig hannað að hægt er að njóta útsýn- isins í mörgum af stóru herbergjum hússins. Málaferli og verkstopp Bygging hússins hefur vakið mikla athygli og hafa dómsmál verið höfð- uð vegna byggingarinnar. Kostnað- urinn við verkstoppið nam nokkrum milljónum króna, samkvæmt grein- argerð sem Kári lagði fram fyrir hér- aðsdóm í dómsmáli þar sem hann og verktakar sem komu að byggingu hússins tókust á um ýmsan kostnað. Sektirnar sem Kópavogsbær lagði á Kára vegna málsins námu 20.000 krónum á dag en í ágúst 2010, sama ár og dagsektirnar höfðu verið lagð- ar á, skilaði Kári inn verkáætlun og hóf framkvæmdir á ný. Í greinar- gerðinni kemur fram að dagsektirn- ar hafi samtals numið 6,2 milljónum króna. Kári hefur þegar borgað 60 millj- ónir króna fyrir byggingu hússins en verktakafyrirtækið Fonsi ehf., sem stefnt hefur honum fyrir dóm, telur sig eiga á annan tug milljóna til við- bótar inni hjá honum. Þetta er þó aðeins kostnaðurinn við að reisa húsið og má gera ráð fyrir milljóna- kostnaði til viðbótar við ýmsan frá- gang á húsinu og lóðinni í kring. Það má því allt eins gera ráð fyrir því að Kári eigi eftir að þurfa að punga út vel yfir hundrað milljónum fyrir höllina. n Með bíósal og bókasafn n 629 fermetra glæsihús Kára Stefánssonar komið vel á veg n Lóðin ein og sér metin á 36 milljónir Fréttir 9 Miðvikudagur 30. maí 2012 Langt komið Húsið er sérlega glæsilegt eins og sjá má á teikningum og myndum. Snýr að vatninu Frábært útsýni er af svölum og úr helstu herbergjum hússins yfir Elliðavatnið. Sérstakar útsýnissvalir eru á toppi hússins. Rúmgott Húsið er um 630 fermetrar að stærð en inni í þeirri tölu er 50 fermetra bílskúr sem rúmar tvo bíla. Lifir hátt Þegar hefur Kári borgað hátt í 100 milljónir fyrir húsið. Líklegt er þó að húsið muni kosta talsvert meira en það. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Bíósalur 38,5 m2 Bókasafn 62,4 m2Tækni-rými Geymsla Þvotta-hús Bað- herbergi Bað- herbergi Geymsla Herbergi 11,1 m2 Lín- skápu r Stigi Herbergi 18,3 m2 Herbergi 23,4 m2 Gangu r Opið miðrým i 1. hæð Stigi Stigi 2. hæð Bíla- geymsla 40,7 m2 WC Borðstofa 20,1 m2 Stofa 44,4 m2 Eldhús 21 m2 Auka- herbergi 14,9 m2 Vinnu- herbergi 17 m2 Fata- herbergi Master- svíta 44,8 m2 Master- bað 23,4 m2 Mið- rými Op OpOp Brú Svalir Svalir Stigi Stigi Stigi Gangu r 50 fermetra svefnherbergi Það dreymir eflaust marga um að eiga sinn eigin bíósal. Kári virðist vera einn þeirra og er tæplega 40 fermetra bíósalur á neðri hæð hússins. Fái hann hins vegar löngun til að lesa í staðinn fyrir að horfa getur hann smellt sér yfir í bókasafnið sem er að finna á sömu hæð. Bíó og bókasafn Það mun líklega fara vel um Kára í mastersvítunni á annarri hæð hússins. Það er þó nóg pláss annars staðar í húsinu ef hann vill fá tilbreytingu. Í húsinu eru fjölmörg önnur herbergi og rúmgóð stofa og vinnuaðstaða er einnig til staðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.