Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Síða 14
14 Erlent 30. maí 2012 Miðvikudagur
Svíar vilja yfirheyra Assange
n Hæstiréttur í Bretlandi úrskurðar um hvort Julian Assange verði framseldur til Svíþjóðar
J
ulian Assange, einn af stofnend-
um uppljóstranavefsíðunnar
Wikileaks, fær að vita í dag, mið-
vikudag, hvort hann verði fram-
seldur til Svíþjóðar en þar er hann
grunaður um nauðgun og kynferðis-
lega áreitni. Julian dvelur um þessar
mundir í Bretlandi. Hann hefur bar-
ist í tvö ár gegn því að verða fram-
seldur til Svíþjóðar en sænsk yfirvöld
vilja yfirheyra Julian vegna ásakana
tveggja kvenna, sem áður unnu sem
sjálfboðaliðar fyrir Wikileaks-síð-
una, um nauðgun og kynferðislega
áreitni.
Hæstiréttur í Bretlandi mun gera
grein fyrir niðurstöðu í máli Julians
í dag. Lögmenn Julians segja að evr-
ópsk handtökuheimild, sem gild-
ir fyrir öll lönd innan Evrópusam-
bandsins og sænsk yfirvöld byggja
framsalsbeiðni sína á, eigi ekki við
þar sem það var saksóknari sem gaf
út handtökuskipunina en ekki dóm-
ari eins og bresk lög kveða á um.
Undirréttur í Bretlandi hefur tvisvar
úrskurðað að Julian yrði framseldur á
grundvelli evrópsku handtökuheim-
ildarinnar.
Julian var handtekinn í Lundún-
um þann 7. desember 2010 eftir að
handtökuskipun hafði verið gefin
út á hendur honum í Svíþjóð. Hann
var tíu daga í fangelsi, en var leyst-
ur úr haldi eftir að tryggingargjald
var borgað og á þeim forsendum
að hann bæri rafrænt eftirlitsökkla-
band, tilkynna sig til lögreglunnar
daglega og ekki fara út landi. Hann
dvelur um þessar mundir á óðals-
setri í eigu stuðningsmanna Wiki-
leaks.
L
æknar og sérfræðingar í hita-
beltis-smitsjúkdómum við
Baylor-háskólann í læknis-
fræðum í Houston, segja í
langri grein sem þeir hafa sent
frá sér að Chagassjúkdómurinn svo-
kallaða sé „hin nýja eyðni Ameríku.“
Chagassjúkdómur er sjúkdómur
sem sníkjudýr af ættbálkinum Tryp-
anosoma valda og hafa þegar um 8
milljónir manna í Suður-Ameríku og
Bandaríkjunum smitast. Sjúkdómur-
inn er lífshættulegur fyrir um það bil
fjórða hvern sjúkling.
Vísindamennirnir segja að hin
hættulega útbreiðsla sjúkdómsins í
heimshlutanum minni um margt á
þegar HIV-sjúkdómurinn breiddist
fyrst út í byrjun níunda áratugarins.
Blóðsugur smita
Líkt og með eyðni getur liðið lang-
ur tími frá því að einstaklingur smit-
ast af Chagassjúkdómnum og þar til
fyrstu einkenni koma í ljós. Chagas-
sjúkdómur er illviðráðanlegur sjúk-
dómur sem hefur lagst harðast á íbúa
Bólivíu, Mexíkó, Kólumbíu og Mið-
Ameríkuríkjanna, auk þess sem meira
en 300 þúsund Bandaríkjamenn hafa
verið greindir með sjúkdóminn.
Chagassjúkdómur getur smitast
frá móður til barns eða með blóð-
gjöf. Þá hafa einnig komið upp tilfelli
þar sem fólk hefur smitast með því að
borða mat sem sníkjudýrin hafa kom-
ist í.
Um fjórðungur þeirra sem smitast
af sjúkdómnum mun þróa með sér al-
varleg einkenni þar sem hann leggst
á innyfli sjúklinganna sem byrja að
stækka. Það á einkum við um hjartað
og deyja flestir af völdum hjartaáfalls.
Sjúkdómurinn er meðhöndlaður með
ströngum þriggja mánaða lyfjakúr og
hefur aðeins tilætluð áhrif ef sjúk-
dómurinn greinist mjög snemma.
Lyfin við Chagassjúkdómnum
eru ekki eins dýr og lyf við eyðni,
en í fátækari ríkjum Suður-Ameríku
er talsverður skortur á þeim. Það er
einkum bláfátækt fólk í löndunum
sem hefur smitast af sjúkdómnum
og því hafa heilbrigðisyfirvöld ekki
varið miklum fjármunum í að þróa
ný lyf.
Ólöglegir innflytjendur fá ekki
læknisþjónustu
Læknarnir benda einnig á sam-
félagslegu áhrifin sem sjúklingar
verða fyrir. „Það er eins með eyðni
og þennan sjúkdóm að sjúklingarn-
ir eru brennimerktir í samfélaginu,“
segir í grein vísindamannanna.
Flestir hinna smituðu í Bandaríkj-
unum eru ólöglegir innflytjendur
og hafa þar af leiðandi ekki aðgang
að læknisþjónustu, sem gerir það að
verkum að sjúkdómurinn breiðist
hraðar út.
Einkenni sjúkdómsins eru breyti-
leg eftir því á hvaða stigi hann er.
Helstu einkennin eftir smit eru bólga
við bitfarið á húðinni. Eftir að bólgan
hefur hjaðnað er sjúkdómurinn ein-
kennalaus hjá um það bil 60–80 pró-
sent sjúklinga. Sem fyrr segir getur
hann verið lífhættulegur í um það bil
fjórða hverju tilfelli.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
„Það er eins með
eyðni og þennan
sjúkdóm að sjúklingarnir
eru brennimerktir í sam-
félaginu.
„Ný eyðNi
Ameríku“
n Átta milljónir manna hafa smitast af Chagassjúkdómi
„Kissing bug“
Þetta skordýr er ein
aðalástæðan fyrir út-
breiðslu sjúkdómsins
en tegundina má
finna allt norður frá
Mexíkó og suður til
Argentínu. Mynd reuterS
Hrun Facebook
heldur áfram
Hlutabréfaverð í Facebook hefur
fallið hratt frá því að fyrirtækið
var sett á markað. Á þriðjudag var
verðið komið undir 30 dali á hlut
og þýðir það meira en 20 prósent
fall frá upphaflegu verði bréfanna
þegar þau voru fyrst sett á markað.
Þrátt fyrir þetta mikla fall má gera
ráð fyrir enn meiri virðisrýrnun
bréfanna. MarketWatch nefnir
því til stuðnings að markaðsvirði
hlutabréfa í fyrirtækinu sé enn 55
sinnum hærra en gert er ráð fyrir
að hagnaður fyrirtækisins verði í
ár. Til samanburðar er verðmæti
Google á mörkuðum um 14 sinn-
um hærra en áætlaður hagnaður
fyrirtækisins á árinu.
Breivik fór í
lýtaaðgerð
Hryðjuverkamaðurinn Anders
Behring Breivik, sem játað hefur
að hafa ráðið 77 manns bana í
tveimur hryðjuverkaárásum í
Noregi, fór í lýtaaðgerð árið 2009.
Tilgangurinn með aðgerðunum
var að verða líkari aría. Þetta kom
fram í vitnisburði fyrrverandi vini
Breiviks fyrir dómstólum þar sem
réttað er yfir honum. Sjálfur segist
Breivik hafa farið í aðgerðina eftir
að pakistanskur karlmaður kýldi
hann í andlitið.
Flugvélabrak lenti
í íbúðahverfi
Nokkrir bílar skemmdust en eng-
inn meiddist þegar brak úr flugvél
Air Canada-flugfélagsins féll til
jarðar í úthverfi Toronto-borgar
í Kanada á mánudag. Flugvélin,
sem var af gerðinni Boeing 777,
var á leið til Japans með 318 far-
þega og 18 manna áhöfn þegar
atvikið átti sér stað. Flugvélinni
var gert að snúa við og lenda á
kanadískum flugvelli þar sem gert
var við vélina. Talið er að brakið
hafi komið úr einum af hreyflum
vélarinnar en slokknaði hafði á
honum stuttu eftir flugtak. Sam-
kvæmt kanadíska blaðinu Toronto
Star heyrðist mikill hávaði þegir
vélin tók á loft og segja sjónar-
vottar í samtali við blaðið að eldur
hafi komið úr einum hreyflinum.
„Ég sá eld koma aftan úr hreyflin-
um og ég hugsaði með mér „jæja,
eitthvað er eins og það á ekki að
vera“,“ segir maður sem vinnur í
nágrenni við flugvöllinn. Bíður úrskurðar Julian Assange er grunaður um kynferðisbrot í Svíþjóð.