Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Side 17
Spurningin Hélt sambandinu leyndu Það er búið að vera þrjú ár í sjónum Gísli Örn Garðarsson – DVLárus Eiríksson – DV E r það Ísland? Ég held það sé Ís- land,“ sagði sjónvarpsþulurinn grátbiðjandi, í pínlegustu sjón- varpsútsendingu ársins. Hrafnhildur Halldórsdóttir var valin til að halda í hönd þjóðar- innar á árlegri ögurstund hennar, Eurovision. Þulurinn sveiflaðist á milli firrtrar ofsabjartsýni, þung- lyndis og þagnar. „Koma svo, gefa nú Íslandi,“ sagði hún, þegar fyrr- verandi Júgóslavíuríkið Makedónía átti eftir að gefa 12 stigin sín. Sigmar Guðmundsson, fyrrverandi Euro- vision-kynnir, hefði vitað að þetta Júgóslavíuríki myndi gefa Serbíu 12 stigin – fyrst Serbía hafði ekki fengið 10, 8 eða minna. Það var ekki séns að Serbía fengi ekkert frá nágranna sínum. „Við skulum ekkert örvænta,“ byrjaði hún, þegar Ísland hafði eng- in stig fengið frá þremur þjóðum. „Þetta kemur allt.“ Nokkrum sek- úndum síðar, þegar Rúmenía átti eftir 12 stigin, en hafði ekki gefið Moldavíu neitt, þrátt fyrir að Mold- avía hafi áður verið hluti af Rúmen- íu, bar þulurinn væntingar sínar á torg: „Og svo Ísland. Koma svoh!“ Vonin hafði ekki dvínað, af óljós- um ástæðum, þegar næsta land gaf stig. „Það er Austurríki næst. Ég er nú alveg viss um að við fáum stig frá Austurríkismönnum,“ sagði hún. Þannig var það, að í hvert skipti spáði hún því að Ísland fengi stig, og oftar en ekki 12 stig. „Þetta lítur ekki alveg eins vel út hjá okkur, en þetta hlýtur að fara að koma,“ sagði hún, þegar fimm lönd höfðu engin stig gefið Íslend- ingum. „Við erum ekki á þessum lista. Hvurs lags er þetta, nú hlýtur þetta að fara að koma hjá okkur,“ sagði hún, þegar sjötta þjóðin fúls- aði við íslenska framlaginu. „Hvað gera Belgar, erum við ekki þarna? Nei! Við erum heldur ekki þarna!“ örvænti hún, yfir sjöundu stigagjöf- inni. „Ég er nú alveg viss um að við fáum stig frá Aserbaídsjan. Það hlýt- ur bara að vera,“ grét hún yfir þeirri áttundu. „Já, við erum ekki þarna. En við hljótum að vera á hinum listanum, ég bara trúi ekki öðru,“ hélt hún áfram. „Malta fær átta stig frá Aserbaídsjan. Þá fáum við tíu, örugglega. Eða tólf!“ sagði hún, þótt ekkert benti til þess. „Hverjir fá tólf,“ spurði hún, þegar Ísland fékk ekki 10. „Er það Ísland?“ Nei. Það var ekki Ísland. Af hverju ætti Ísland allt í einu að fá tólf stig frá ólíklegustu þjóðum, þeg- ar engin þjóð hafði gefið neitt stig? Níunda landið sem gaf stig var Malta. „Ég verð ekki eldri, ef þeir gefa okkur ekki stig,“ sagði þulurinn, og hélt áfram að eldast. „Þá bara verð ég ekki eldri,“ hélt hún samt áfram. Átta stig fara til.... „Ísland! Ís- land!“ endurtók þulurinn hvíslandi. „Þetta hlýtur að koma, ég bið ykkur um að örvænta ekki þarna heima,“ bað þulurinn þegar San Marino skreytti íslensku þjóðina engum stigum. „Ísland ennþá núll! Oh,“ kvartaði hún, þegar Frakkar gáfu stig. „Koma svo!“ hvatti hún, áður en Frakkar gáfu öðrum þjóðum 10 og 12 stig. „Nú er alveg farið að fara um mann hérna,“ játaði hún, en gafst ekki upp. „Og svo koma svo!“ þegar tólfta þjóðin, Bretar, sýndi stigin. Þulurinn hélt svona áfram. Hún hvíslaði nafn landsins síns þegar þjóðir gáfu tólf stigin, örvænti og fylltist afneitun á víxl. Þeir sem verða fyrir áfalli eða sorg ganga í gegnum fimm stig. Afneitun er það fyrsta. Þar dvaldi Hrafnhildur lengi vel og sneri þang- að reglulega aftur. Annað stigið er reiði, sem þulurinn náði að hemja, en braust fram í stunum og bældum viðbrögðum við vonbrigðum. Það þriðja er sáttaumleitun. Þangað náði Hrafnhildur á þrettándu þjóð, þar sem hún taldi sig eiga inni hjá tyrknesku þjóðinni. „Þeir gefa okkur stig, ef þulurinn hérna vinur minn hefur staðið sína pligt.“ Fjórða stigið er þunglyndi, og það fimmta er að sætta sig við orðinn hlut. Á milli þessara stiga flakkaði íslenski Eurovision-kynnirinn í beinni útsendingu. „Þetta er sko langt frá því að vera búið,“ sagði hún í núllstöðu á fjórtándu þjóð, og taldi að áhrifa íslenskra ferða- manna myndi gæta í stigagjöf Grikkja. „Við erum nú dugleg að heimsækja Grikki og hljótum að hafa skilið eftir einhverja jákvæða strauma.“ Hvíslið breyttist á köflum í fráblásturshljóðið „Íhslandh!“ þegar 12 stigin voru gefin. Þulurinn fór yfir á reiðistigið. „Ísland, Nor- egur og Danmörk neðst með ekkert stig! Þetta gengur ekki!“ Á sautj- ándu þjóð, Búlgaríu, hafði Ísland ekki fengið neitt stig, en íslenski þulurinn hafði sveiflast aftur yfir í afneitun þegar 12 stigin voru eftir: „Er það Ísland? Ég held það sé Ís- land.“ En það var ekki Ísland. „Ísland! Ég held það sé Ísland!“ sagði hún samt aftur næst. Örvænting í beinni „Mér fannst ömmurnar frá Rússlandi standa upp úr.“ Guðbjörg Benediktsdóttir, 56 ára, sjálfboðaliði hjá Thorvaldsen‘s Basar „Sænska lagið.“ Maríanna Eva Sævarsdóttir, 20 ára, vinnur á Fiskmarkaðinum „Lagið sem vann fannst mér langflottast. Mér fannst líka að Ísland hefði getað verið með ferskara lag, eitthvað sem hefði meira af menningu okkar í.“ Reynaldo Cruz, 24 ára, hjólabrettakappi „Ég horfði ekki einu sinni á Eurovision svo að mér fannst ekkert standa upp úr.“ Haukur Már Hauksson, 21 ára, matreiðslunemi „Lagið sem vann fannst mér standa upp úr af því að það var búið að spila það svo mikið áður en Eurovision hófst; ég vissi ekki einu sinni að lagið hefði verið í keppninni.“ Alexandra Jónsdóttir, 18 ára, vinnur á The Laundromat Café Hvað fannst þér standa upp úr í Eurovision? Svarthöfði Umræða 17Miðvikudagur 30. maí 2012 1 Neitar að segja hvað varð um mál Gillzeneggers Rúmlega hálft ár liðið frá því ung stúlka kærði Egil Einarsson og kærustu hans. Saksóknari er hættur að tjá sig við fjölmiðla. 2 Johnny Tapia látinnHnefaleikakappinn Johnny Tapia, fimmfaldur heimsmeistari í þremur þyngdarflokkum, fannst látinn á heimili sínu á sunnudag. 3 Gruna Jens um að hafa skotið milljónum undan skatti Smugan greindi frá því að grunur leiki á að milljónum króna hafi verið skotið undan skatti í starfsemi Jens Kjartans- sonar lýtalæknis. 4 Skúli missti 50 lítra af blóði eftir árásina Ótrúlegt þykir að Skúli Sigurz lögmaður hafi lifað af hnífaárás Guðgeirs Guð- mundssonar. 5 Væg refsing fyrir nýárs-nauðgun Tveir breskir unglingspiltar voru dæmdir í rúmlega þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga 14 ára stúlku á nýárs- dag. Dómurinn þykir vægur. 6 Flöskuskeytið fannst í Kanada Krakkar af leikskólanum í Holti í Reykjanesbæ fundu flöskuskeyti í fjöruferð. Þau sendu svo sjálf skeyti sem fannst í Kanada. Mest lesið á DV.is Þ egar ég var beðin um að taka þátt í málsókn gegn bandaríska ríkinu þá gerði ég það fyrst og fremst til að reyna að vekja at- hygli á lögum sem eru hættuleg öllum sem hafa á einn eða annan hátt tekið þátt í að mótmæla einhverju sem þeim ofbýður. Eftir að hafa staðið í baráttu við bandarísk yfirvöld í meira en ár vegna tilrauna þeirra til að hakka sig löglega inn í öll mín persónulegu gögn á samskiptamiðlum vegna þess að ég aðstoðaði WikiLeaks á sínum tíma við að koma stríðsglæpum í Írak fyrir sjónir almennings, þá átti ég alls ekki von á að við myndum vinna mál- sóknina. Hið bandaríska lagakerfi er svo flókið og undarlegt að fæstir láta sig dreyma um að vinna mál á hendur ríkinu þegar ríkinu hefur tekist að smyrja hryðjuverkastimplinum á þau. Það kom mér því verulega á óvart þegar ég sá bréf í innboxinu mínu þess efnis að við sjömenningarnir svokölluðu hefðum unnið NDAA- málið. Málið var sótt af fólki sem ég ber djúpstæða virðingu fyrir, en þar á meðal eru Daniel Ellsberg (frægasti afhjúpari heimssögunnar, Pentagon Papers), Noam Chomsky (hann þarf ekki að kynna), Chris Hedges (fyrr- verandi rannsóknarblaðamaður frá NYT) og þrjár baráttukonur fyrir Wiki- Leaks, Manning og Occupy. Það kom mér reyndar líka skemmtilega á óvart að sjá í fjölmiðlum að Naomi Wolf hafi lesið upp í dómsal vitnisburð minn en hún er á meðal fjölmargra sem hafa léð þessari baráttu raust sína. Hvað er NDAA? En hvað þýðir þetta NDAA eiginlega og af hverju fagna þeir sem berjast fyrir mannréttindum um allan heim niðurstöðunni? Með lögfestingu NDAA fær Bandaríkjaher heimildir til að handtaka almenna borgara hvar sem er í heiminum og hneppa í varðhald án dóms og laga um ókomna tíð vegna gruns um aðild að hryðjuverkasamtökum, en eins og flestir vita þá hefur sú skilgrein- ing í reynd öðlast mun víðtækari skilgreiningu en flestir sættu sig við upphaflega. Athygli vekur að í dómnum kemur fram að viðvaranir utanríkismála- ráðuneytisins til mín um að mér sé ekki óhætt að ferðast til Bandaríkj- anna þrátt fyrir að eiga að njóta ein- hvers konar friðhelgi sem þjóðkjör- inn fulltrúi eiga við rök að styðjast, en Alþjóðaþingmannasambandið hefur jafnframt lýst yfir áhyggjum af þróun mála í Bandaríkjunum og árásum þeirra á friðhelgi og ferðafrelsi alþing- ismanna frá öðru landi. Einstaklingar geta breytt gangi sögunnar Mikilvægt er að minna á að vegna að- gerða nokkurra einstaklinga var hægt að stýra framvindu málsins í betri far- veg, almenningi til heilla, því ljóst er að NDAA-lögin eiga sér engin landa- mæri og með því að hindra framgang þeirra er heimurinn okkar aðeins betri um stund. Þá felur dómurinn í sér viðurkenn- ingu á að óheimilt sé að framfylgja tveimur greinum laganna þar sem þær standist ekki bandaríska stjórnar- skrá, þar með á meðal greinin um varðhald án dóms og laga. Vegna þessa skýlausa stjórnarskrárbrots féllst dómarinn, Katherine Forrest, á lögbannskröfu okkar. Niðurstöðu dómarans hefur verið fagnað af blaða- mönnum og aðgerðasinnum um heim allan vegna þess hve miklu máli hann skiptir í baráttunni fyrir mannréttind- um og málfrelsi. Friðhelgi einkalífsins í netheimum ekki til Ég tapaði hinu svokallað Twitter-máli eftir að hafa tekið það í gegnum þrjú dómstig með heilum her lögfræðinga frá EFF og ACLU sem tóku það að sér án endurgjalds vegna fordæmisgildis þess. Því er það svo að bandarísk yfir- völd hafa fengið aðgengi að persónu- legum gögnum um þingmann frá öðru landi vegna þess að lagaramm- inn utan um friðhelgi einkalífsins í netheimum er nánast ekki til og fáir láta sig persónufrelsi í netheimum varða. Þó var það mál af sama toga og ef FBI hefði fengið heimild til að fara heim til mín, gramsað í mínum pers- ónulegu sendibréfum frá m.a. kjós- endum mínum, skoðað hverjum ég hef fundað með og skoðað bankabæk- ur mínar. Ég hef svo sem ekki neitt að fela en þó svo væri hefði slík aðgerð FBI í raunheimum sennilega mætt töluvert meiri mótspyrnu íslenskra ráðamanna vegna þess að það hefði verið raunverulegri ógn gegn þjóð- kjörnum fulltrúa en þegar nákvæm- lega sömu aðgerðir eiga sér stað með stafræn gögn. Íslensk leyniþjónusta í anda FBI í burðarliðnum Það er mjög mikilvægt að við stönd- um vörð um mannréttindi hérlend- is. Núna stöndum við þingmenn frammi fyrir miklum þrýstingi um auknar rannsóknarheimildir lög- reglu sem hafa verið nefndar for- virkar rannsóknaraðgerðir. Það hef- ur komið í ljós þegar fjallað hefur verið um málið á nefndarfundum að þessar heimildir séu fyrst og fremst ætlaðar til að undirbyggja nýja deild innan lögreglunar sem kalla mætti leyniþjónustu í anda FBI. Það er ekki eitthvað sem ég held að sé okkur til heilla. Við meg- um ekki láta linnulausan hræðslu- áróður verða til þess að við fórnum réttinum til friðhelgi einkalífsins vegna þráhyggju um að hafa hér leyniþjónustu, nær væri að leggja þunga áherslu á að við tryggjum sambærileg réttindi friðhelgi einka- lífsins í netheimum og við höfum í raunheimum. „Það er mjög mikilvægt að við stöndum vörð um mann- réttindi hérlendis Kjallari Birgitta Jónsdóttir Hryðjuverkamenn leynast víða Ég er bæði móðir og faðir í dag Gísli Kr. Björnsson – DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.