Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Síða 18
18 Neytendur 30. maí 2012 Miðvikudagur Markaðskannanir sýna mikinn verðmun n Mikill munur á dýrustu og ódýrustu þvottavélum og sláttuvélum Þ að getur borgað sig að skoða vel þær gerðir af sláttu- og þvotta- vélum sem eru í boði á Íslandi en markaðskönnun sem Neyt- endasamtökin gerðu í byrjun mánað- arins sýna að töluverður verðmunur er á slíkum vélum. Á heimasíðu sam- takanna geta félagsmenn séð báðar kannanirnar og allar upplýsingar sem þar koma fram. Framboð og verð á sláttuvélum var kannað í 11 verslunum en sam- tals fundust 109 mismunandi vél- ar.13 þeirra eru handknúnar og eru á verðinu 9.900 til 30.000 krónur og 7 tegundir eru rafhlöðuvélar sem fást á bilinu 69.900 til 163.995 krón- ur. Stærsti flokkurinn er bensínvél- ar en sú ódýrasta er á 24.900 krón- ur á meðan sú dýrasta er á 252.000 krónur. Framboð og verð á þvottavélum var kannað í 14 verslunum og sam- tals fundust 128 mismunandi þvotta- vélar. Sú ódýrasta var seld á 64.900 krónur í Húsasmiðjunni en sú dýrasta á 341.910 krónur í Smith & Norland. Það skal þó tekið fram að það vélarn- ar eru afar mismunandi hvað varðar orkunotkun, þeytivinduhraða og af- köst enda var ekki verið að bera sam- an verð á sambærilegum tækjum. Í næsta Neytendablaði sem væntanlegt er í byrjun júnímánaðar verða síðan birtar gæðakannanir á þvottavélum og sláttuvélum. Á síðu samtakann er tekið fram að upplýsingum um raftæki sem eiga að upp til að auðvelda neytendum sam- anburð sé oft ábótavant. Hér er átt við upplýsingar um nýtni, þvottahæfni og þeytivinduafköst. Samtökin vekja at- hygli á að þessar upplýsingar eigi að vera á tækjum sem eru til sýnis í versl- un en of algengt hafi verið að þær vant- aði þegar markaðskönnunin var gerð Því sé ástæða til að hvetja forráða- menn verslana til að bæta hér úr. E ld sn ey ti Algengt verð 253,3 kr. 251,9 kr. Algengt verð 253,1 kr. 251,7 kr. Algengt verð 252,9 kr. 251,5 kr. Algengt verð 253,2 kr. 251,8 kr. Algengt verð 255,3 kr. 251,9 kr. Melabraut 253,1 kr. 251,7 kr. Urðu við öllum óskum n Lofið að þessu sinni fær veitinga- staðurinn Fiskmarkaðurinn. „Við fórum þangað vegna stórafmælis og má með sanni segja að við höfum öll verið alveg ótrúlega ánægð með það viðmót, þjónustu og mat sem við fengum þar. Maturinn var dásamlegur, allt fullkomlega eldað og bragðgott en það sem stóð kannski helst upp úr, fyrir utan það, var hversu liðlegt, þjónustulundað og greiðvikið þjónustufólkið var. Það fylgdist grannt með, pass- aði upp á að okkur skorti aldrei neitt og var reiðubúið að verða við öllum okkar óskum. Afmælisbarnið fékk meira að segja kokteil í boði húss- ins. Frábær staður, frábær matur og frábær þjónusta, þau eiga svo sann- arlega hrós skilið,“ segir ánægður viðskiptavinur. Mjólkurglas á 400 krónur n Lastið fær Gamli bærinn við Mý- vatn en DV barst eftirfarandi: „Við keyrðum í gegnum Mývatnssveit- ina um daginn og stoppuðum á Gamla bænum. Við ákváðum að fá okkur aðeins að drekka og keyptum mjólkurglas handa ungum syni okkar. Það mjólkurglas var nánast á andvirði bjórs en ég skil ekki hvað réttlætir það að selja smábarni mjólkurglas á 400 krónur!“ DV hafði samband við kaffihúsið og bar lastið undir Pétur Snæbjörnsson framkvæmda- stjóra. „Gamli bærinn er kaffihús og bar sem selur gestum sínum veit- ingar og aðstöðu til að neyta þeirra við borð og stóla og að sjálfsögðu salernisaðstöðu. Verðmyndun veit- inga á veitingahúsum er þannig að um 10–20 prósent fara í hráefni, 25–30 prósent fara í aðstöðu, borð, stóla, salerni, áhöld og uppþvott auk fjármagnsliða, 35–40 prósent fara í laun og svo bætist 7 prósenta virðisaukaskattur á allt saman. Þannig má segja að gestir veitinga- húsa séu ekki síður að kaupa sér aðgang að aðstöðu og þjónustu frekar en vöruna sjálfa sem þó er forsenda viðskiptanna. Okkur þykir leitt að viðkomandi hefur ekki áttað sig á þessu og bendum á þá ódýru leið að kaupa mjólkurfernu í næstu verslun og neyta hennar í eigin bíl eða á víðavangi,“ segir Pétur. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Verðmunur Það er töluverður munur á ódýrustu og dýrustu vélunum. M ögulegt er að fá flug til London um miðjan júní á 320 krónur með Iceland Express. Við það bætast þó skattar og gjöld og aðr- ar greiðslur og á endanum kostar því miðinn 11.900 krónur aðra leiðina. Má því fara fram og til baka frá Lond- on fyrir 26.800 krónur sem er töluvert lægra verð en hin flugfélögin bjóða upp á. Ódýrast er þó með WOW air til Kaupmannahafnar en þangað er hægt að fljúga fyrir 27.800 krónur. Það margborgar sig því að fylgjast vel með hvaða verð eru í boði sértu að spá í ferðalög og stökkva á slík tilboð þegar þau bjóðast. Ekki mörg sæti á 300 krónur Heimir Már Pétursson, upplýsinga- fulltrúi Iceland Express, segir að flug- félagið bjóða upp á slíkt verð öðru hvoru en þetta sé það gjald sem flug- félagið taki til sín. „Verðið er þrískipt; upphæðin sem sem félagið tekur, eldsneytisgjald og svo skattar. Þegar við getum boðið farið á svo lágu verði þá snýst þetta um að nýta vélina. Það er verið að fullnýta vélina og með þessu getum við leyft fólki að njóta þess að komast ódýrt til útlanda.“ Ef fólk fylgist vel með og er í netklúbbi félagsins fái það slík tilboð send öðru hvoru sem eru mjög góð. Aðspurð- ur hvort flugfélagið tapi ekki á þessu segir hann að svo sé ekki. „Vélin eyðir alltaf sama magni af eldsneyti svo þetta er bara spurning um að fá aðeins upp í eldsneytiskostnaðinn. Þetta er bara leggur sem við viljum fylla og klára,“ segir hann. Þegar hann er spurður hvað standi í vegi fyrir því að önnur flug- félög bjóði upp á svipað verð segir Heimir að félögin standi misvel en segist þó ekki geta svarað fyrir aðra. „Við erum með mjög vandaða tekju- stýringu hjá okkur sem skoðar hvert einasta flug, hvern einasta legg og markmiðið er að hafa sem mesta nýtingu. Ef það er góð nýting á vél- unum kemur það farþegunum til góða.“ Hann bendir þó á að það séu ekki mörg sæti svona ódýr og oft fáist aðeins annar leggurinn á slíku verði. Það þurfi þó ekki alltaf að vera stutt í þau flug og hann ítrekar því að mikil- vægt sé að fólk skoði vel og oft hvað er í boði. Til london fyrir 320 krónur n Finna má flugfargjöld á spottprís ef fólk er duglegt að leita og fylgjast með „Ef það er góð nýting á vélunum kemur það farþegunum til góða. Aukagjöld flugfélaga Á Túrista er fjallað um ferðalög en þar má finna fréttir ásamt ýmsum fróðleik og ráðlegg- ingum fyrir ferðalanga. Þar er meðal annars sagt frá því að þeir sem bóki far frá Íslandi á vefjum flugfélaganna séu vanir því að fá upp á skjáinn verð með öllu inniföldu strax á fyrstu síðu bókunarferlisins. Það sé hins vegar ekki svo á síðu EasyJet því þar á bæ bætist við, í lok pöntunar, bókunargjald upp á 10 pund eða 1.920 krónur og kreditkortagjald sem nemi 2,5 prósentum en að lágmarki 6 pund, sem gera 1.150 krónur. Fargjald fyrir einstakling hækki því að minnsta kosti um rúmar þrjú þúsund krónur áður en bókunin er staðfest. Þá er bent á að Ryanair hafi sama háttinn á og því sé gott að hafa þetta í huga þegar bókað er hjá þessum flugfélögum. Túristi bendir einnig á að aukagjöld flugfélaga geti reynst farþegunum dýrkeypt og valdið ruglingi. Þar segir að sum félögin rukki fyrir að taka frá sæti, önnur fyrir innritaðan farangur og kreditkortagjöldin geti einnig verið há. Þá sé eitt grófasta dæmið um slík aukagjöld hjá Ryanair en þar sé tekin þóknun fyrir prentun á brottfararspjöldum en sú þóknun nemur 60 evrum sem gera nærri 10.000 krónur. Þeir farþegar sem uppgötvi að þeir hafi gleymt að prenta út brottfararspjöldin sín geta ekki komist hjá gjaldinu með því að biðla til annarra flugvallarstarfsmanna um að prenta út fyrir sig því samkvæmt reglum Ryanair verður að prenta spjöldin út í síðasta lagi fjórum tímum fyrir brottför. Samanburður Samkvæmt vefsíðunni Túristi eru Kaupmannahöfn, London, Ósló, Boston og New York vinsælustu áfangastaðir Íslendinga en hér má sjá verðið á flugi til London og Kaupmannahafnar hjá flugfélögunum um miðjan júní: London 14. til 18. júní Iceland Express 26.800 kr. Icelandair 58.670 kr. Easy Jet 35.524 kr.* *13. TIL 17. júNí WOW air 32.839 kr. Kaupmannahöfn 15. til 18. júní Iceland Express 38.558 kr. Icelandair 46.950 kr. Easy Jet - WOW air 27.800 kr. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Flugfargjald Flugfélögin bjóða reglulega upp á ódýr far- gjöld sem vert er að fylgast með.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.