Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Side 19
Neytendur 19Miðvikudagur 30. maí 2012 • Lögmaður félagsins mætir og ræðir mögulega málsókn á hendur yfirmönnum Sparisjóðsins í Keflavík, svo og stjórn og endurskoðendum sparisjóðsins. • Dagskrá samkvæmt samþykktum samtakanna. Kynnt verður rannsóknarvinna sem stjórnin hefur staðið fyrir. • Fjarfundarbúnaður verður í samvinnu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Háskólasetur Vestfjarða, Farskólann í Borgar- nesi, Símenntun Vesturlands og fleiri. Stjórn samtakanna Samtök stofnfjáreigenda í Sparisjóðnum í Keflavík Verða með aðalfund í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þann 30. maí næstkomandi kl.18.00 Spkefstofnfe.is | spkefstofnfe@spkefstofnfe.is K omin eru á markað snjall- símaforrit sem gera síma- eigendum kleift bæði að hringja og senda sms frítt. Forrit þessi eru bæði fyrir iP- hone- og Android-síma en til að nota þau þarf sá sem hringt er í einnig að vera með forritið og báðir aðila að vera tengdir við þráðlaust net eða 3G. Þegar forritið hefur verið sett upp í símanum sér notandinn strax í símaskrá sinni hvaða aðilar hafa einnig sett upp forritið hjá sér og þar með í hverja hann getur hringt frítt í. Það má því jafnvel ímynda sér að símreikningar heyri fljótlega sögunni til þar sem tækninni fleygir stöðugt fram. Fram að því má halda símareikningnum í lágmarki með því að setja upp slíkt forrit í símanum og fá vini og vandamenn til að gera slíkt hið sama. Þannig má spara töluverð- an pening, sér í lagi hjá þeim sem nota símann mikið. Hægt að nota í flestum símum DV fékk Alex Paul Gunnarsson, einn af stofnendum simon.is, til að benda á hvaða forrit bjóða upp á ókeyp- is símtöl og sms-skilaboð og hvaða kosti þetta hefur í för með sér fyrir neytendur. „Það eru nokkur svona forrit sem snjallsímaeigendur geta notað. Sum eru bara fyrir Android- síma og önnur fyrir iPhone en svo eru einnig til forrit sem eru á milli þessara síma,“ segir Alex og tekur sem dæmi forritin Viber sem hægt er að nota bæði í iPhone- og Android- símum og Skype sem hægt er að nota í flestum símum. Hvað varðar sms-skilaboð þá nefnir hann Google Talk og Whats- app og segir þau forrit sem virka eins og sms nema að þau fari í gegnum netið. Oftast ódýrara Forritin virka þannig að notand- inn hringir eða sendir sms yfir netið og greiðir því ekki fyrir símtalið hjá símafyrirtæki heldur einungis fyr- ir þann gagnaflutning sem símtalið eða skilaboðin taka. Sá sem hringt er í þarf þó einnig að hafa sett upp sama forrit í símanum og báðir aðilar þurfa að vera tengdir við þráðlaust net eða 3G. Aðspurður hvort sá gagnaflutning- ur sé mikill segir Axel svo ekki vera. „Oftast er þetta ódýrara. Ef þú kemst svo inn á þráðlaust net, sem er nánast alls staðar í dag, þá hringir þú alveg frítt. Þetta er því mjög sniðugt og sím- talsgæðin eru fín þó það sé að sjálf- sögðu háð skilyrðum. Ef þú ert innan 3G-svæðis eru gæðin nokkuð svipuð og í venjulegum símtölum, þó get- ur svartíminn verið aðeins lengri en á eðlilegum símtölum. Yfir WiFi eru gæðin nánast þau sömu,“ segir Alex. Fleiri munu nota þjónustuna Axel segist viss um þessi þjónusta muni aukast til muna. Gagnamagns- pakkar séu að verða algengari í GSM- þjónustuleiðum og séu nú innifaldir í flestum áskriftarleiðum hjá fjar- skiptafyrirtækjunum. „Það er í raun oft ódýrara að tala svona og það er hægt að tala á milli landa. Þetta verð- ur til þess að fleiri munu nota þjón- ustuna og þar af leiðandi mun fram- boðið aukast. Google er til dæmis byrjað með þjónustu sem kallast Google Voice sem er þó bara í boði í Bandaríkjunum ef ég man rétt. Ef þeir færu af stað um allan heim myndu þeir tröllríða þessum mark- aði,“ segir hann. n Nú getur þú hringt og sent sms-skilaboð yfir netið úr snjallsímanum „Þetta verður til þess að fleiri munu nota þjónustuna og þar af leiðandi mun fram- boðið aukast. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Símtöl og sms-skilaboð n Voypi - iPhone, iPad, iPod touch og Android 2.1 eða nýrri útgáfu. n Viber - iPhone, Android, Windows Phone 7 og Blackberry. Það virkar á iPod Touch sem og á Android-spjaldtölvum. n Skype - Android, iPhone, iPad, Windows Phone 7 og Symbian. Einnig er hægt að tala beint við fólk sem er með Skype í tölvu. n Google Talk - Android, Blackberry Einungis sms-skilaboð n Whatsapp - iPhone, Android, BlackBerry og Nokia. n Trillian - Android, BlackBerry Svona hringir þú frítt Snjallsímaforrit Ef þú setur upp Viber eða annað sambærilegt forrit í snjallsímann getur þú hringt eða sent sms-skilaboð frítt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.