Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Page 26
„Maðurinn sem fann upp poppið“ n Íslenskir tónlistarmenn heiðra Paul McCartney í Hörpu Þ etta er svona maður- inn eiginlega sem fann upp poppið, eða einn af þeim,“ segir tónlist- armaðurinn Magnús R. Einarsson um Bítilinn Paul McCartney. Hann skipuleggur nú, ásamt Tómasi Tómassyni og fleirum, afmælistónleika í tilefni sjötíu ára afmælis Bít- ilsins þann 18. júní næstkom- andi í Hörpu. „Áður en Bítl- arnir komu til sögunnar var popp bara um hvolpaástir en eftir að hann kom til sögunnar var hægt að yrkja um hvað sem er, gula kafbáta og fleira,“ bætir Magnús við. Með tónleikunum vilja þeir félagar heiðra McCartney sem þeir vilja meina að hafi haft gríðarleg áhrif, á ekki bara þeirra kynslóð, heldur einnig ungt fólk í dag. „Það eru allir að spyrja: Verður hann viðstaddur? En það finnst okkur ólíklegt,“ seg- ir Tómas hlæjandi. „Ef hann kemur til landsins þá tökum við hann inn bakdyramegin.“ Hugmyndin kviknaði upp- haflega hjá Davíð Steingríms- syni, veitingamanni á Bítla- staðnum Obladí Oblada, en hann er líklega einn mesti Paul McCartney aðdáandi á Íslandi, að sögn Magnúsar og Tómasar. Hann var í raun bú- inn að bóka Hörpuna undir tónleikana áður en hann setti sig í samband við þá. „Svo bara byrjuðum við að hringja og það voru allir til í þetta,“ segir Tómas. Meðal lista- manna sem koma fram á tón- leikunum eru; Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon, Eyjólfur Kristjánsson, Andrea Gylfadóttir og Gunnar Þórð- arson. Að sögn þeirra félaga er miðaverðinu haldið í al- gjöru lágmarki. „Við erum að gera þetta fyrir okkur og Ís- lendinga og þess vegna vild- um við hafa þetta í stórum og glæsilegum sal en miða- verðið eins lágt og hægt er. Við ætlum ekki að búa til eftirlaunasjóð fyrir okkur. Þetta er bara til að hafa upp í kostnaðinn,“ segir Tómas. Bítlarnir sjálfir fagna einn- ig fimmtugs- afmæli í ár og er það mein- ingin að halda jafnframt Bítla- viku þá viku sem tónleik- arnir verða haldnir. Hæfileika- ríkur bróðir Hugi Guðmundsson, bróðir Ölmu í kvennasveitinni The Charlies, fékk góða dóma á tónlistarhátíðinni MATA í New York. Í apríl var tónverkið Mat- ins eftir Huga flutt af hinum virta JACK strengjakvartett á tónlistarhátíðinni en verkið var eitt af aðeins 20 verkum sem voru valin úr hópi 500 umsókna og fékk verkið góð- ar viðtökur gagnrýnenda. Enginn bauð Andra í partí Útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson er geysivin- sæll maður og því kom það á óvart að heyra að honum hefði ekki verið boðið í eitt einasta Eurovison-partí á laugardaginn. Andri sagðist hafa beðið eftir boði þar til um miðjan dag á laugardeg- inum en þá hefði hann drifið sig út í búð til að kaupa snakk og gos og ákveðið að halda sitt eigið partí. Gunna Dís, samstarfskona hans í Virkum morgnum, sagði hann víst hafa fengið boð því hún hefði boðið honum til sín. Það að sitja með fjöl- skyldu Gunnu var hins vegar ekki alvöru Eurovision-partí að Andra mati sem vill hafa mikið fjör og mikil læti, sér- staklega yfir stigagjöfinni. Komin með byssuleyfi María Birta er komin með byssuleyfi. Þetta kom fram á Facebook-síðu hennar þar sem hún fagnaði því að hafa fengið tilkynningu þess efnis. María Birta hefur sinnt áhugamálum sínum af krafti síðustu vikur. Áhugamálin eru helst skotfimi, fallhlífar- stökk og flug. É g hef haldið tónleika til styrktar Styrktar- félagi krabbameins- sjúkra barna frá árinu 1997 en sökum anna vegna Kanans og náms- ins hafði ég ekki orku til að halda tónleika núna um áramótin. Þess vegna var ég himinlifandi að hafa fundið aðra leið til að safna pen- ingum fyrir félagið,“ segir at- hafnamaðurinn Einar Bárð- arson sem ætlar að bjóða upp tvær áritaðar myndir af tónlistarmanninum James Taylor til styrktar félaginu. James Taylor hélt tón- leika í troðfullri Hörpu á dögunum. „Eftir tónleikana minntist ég á það við hann að ég hefði styrkt þetta félag í nokkur ár og hvort hann væri nokkuð viðræðuhæfur um að árita myndir til þess að selja og gefa ágóðann til að styrkja félagið. Taylor er yndislegur maður og sagði að það væri ekki málið. Þetta var samt allt sagt í hita leiksins en eftir að kvöldinu var lokið bað ég að- stoðarfólk hans að koma því vinsamlegast áleiðis til hans að ég byggi bara rétt við flugvöll- inn. Hann gæti því komið við hjá mér á sunnudaginn og árit- að myndirnar.“ Á sunnudeginum var Ein- ar, líkt og aðrir landsmenn, að sleikja sólina. „Frænka mín frá Vestmannaeyjum og hennar fjölskylda voru í kaffi og klein- um. Við vorum bara úti á ver- önd þegar síminn hringdi. Ég var búinn að afskrifa þetta og var ekkert að hugsa um þetta. Svo þegar ég heyrði: Ein- ar, where do you live? var ég nokkrar sekúndur að átta mig á því að karlinn væri í síman- um. Hann vildi endilega kíkja við ef það væri í boði. Ég fagn- aði því náttúrulega og hálf- tíma seinna var hann mættur í kaffi og kleinur,“ segir Einar og bætir við að það hafi farið vel á með fjölskyldunni og Taylor. „Hann hafði áhyggjur af flug- inu en ég sagði honum að það væri óþarfi. Ég væri með menn á vellinum sem héldu vélinni þar til hann kæmi. Ég laug því náttúrulega en ég vildi að hann væri rólegur og gæfi sér tíma til að árita þessar myndir.“ Myndirnar tvær eru tekn- ar af ljósmyndaranum Pétri Þór Ragnarssyni. „Pétur hef- ur gríðarlega næmt auga fyrir litum og gefur að sjálfsögðu myndirnar í verkefnið,“ segir Einar og bætir við að mynd- irnar þurfi ekki að seljast sam- an. „Önnur myndin er af Jam- es Taylor og öllu bandinu en þetta eru langflottustu hljóð- færaleikarar sem hafa kom- ið inn fyrir 200 mílurnar. Hin myndin er einnig ótrúlega flott og mig langar bara að skora hér með á Jón Ólafsson vatnsbónda að kaupa hana á verði sem sæmir okkur báð- um, enda fer allt til styrktar börnunum. Á þeirri mynd sést nefnilega í tvær vatnsflöskur frá fyrirtækinu hans á svið- inu og það gerir hana ennþá skemmtilegri fyrir hann að eiga. En það sem gerir hana sögulega er að hún er tekin svo nálægt söngvaranum að það er hægt að lesa lagalista kvöldsins á gólfinu.“ Þeim, sem hafa áhuga á að bjóða í myndirnar, er bent á að hafa samband við Einar í gegnum Facebook eða net- fangið einarbardar@mac.com en uppboðinu lýkur formlega á föstudaginn í beinni útsend- ingu á Rás 2. indiana@dv.is n James Taylor og Einar Bárðarson styrkja krabbameinssjúk börn 26 Fólk Náðu vel saman Einar bjóst ekki við að James Taylor tæki hann á orðinu og kæmi í kaffi. Lifandi goðsögn Stebbi og Eyfi ásamt Einari Bárðar og James Taylor. Mætti óvænt í kaffi og kleinur Áritaði James tók vel í þá hugmynd að árita nokkrar myndir til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Í þágu krabbameinssjúkra barna Einar Bárðason og James Taylor leggja mikilvægu málefni lið. 30. maí 2012 Miðvikudagur Sjötugur Paul McCartney verður sjötugur þann 18. júní næstkomandi og af því tilefni verður slegið upp stórtónleikum í Hörpu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.