Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Page 4
Hvetur fólk til að kæra n Enn fleiri stíga fram og leggja fram kæru á hendur Berki Birgissyni F leiri einstaklingar hafa stigið fram og lagt fram kæru á hend- ur Berki Birgissyni á undan- förnum vikum. Þetta staðfest- ir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samtali við DV. Lögreglan segir málið vera í rannsókn og vill ekki gefa frek- ari upplýsingar á þessu stigi. „Þetta mál er í rannsókn en ég get staðfest að það hafa nokkrir aðrir aðilar kom- ið og kært og við hvetjum fleiri sem vilja koma og kæra að leggja fram kæru ef þeir telja að á sér hafi verið brotið,“ segir lögreglan. Í viðtali við DV á miðvikudaginn greindi ungur maður frá því að Börk- ur hefði krafið hann um 400 þúsund krónur eftir að hann taldi mann- inn hafa sagt sér ósatt. Í kjölfar- ið á hann að hafa tekið 18 ára unn- ustu hans í gíslingu og sagt hana vera tryggingu fyrir því að maðurinn borgaði skuldina. Parið þorði ekki að leggja fram kæru á hendur Berki fyrr en eftir að honum hafði verið gert að afplána eftirstöðvar dóms sem hann hlaut árið 2004 fyrir tilraun til mann- dráps. DV hefur undanfarið fjallað um afbrotaferil Barkar sem afplánar nú dóm fyrir eldri afbrot á Litla-Hrauni. Börkur er grunaður um að hafa orðið samfanga sínum að bana. Fyr- ir það sat hann í gæsluvarðhaldi þar til á fimmtudag. Hann er auk þess ákærður fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir, ólögmæta nauðung, frelsissviptingu og tilraunir til fjár- kúgunar. Einnig bíður hans ákæra fyrir brot gegn valdstjórninni, hót- anir og meiðyrði eftir að hann hrækti að dómara í Héraðsdómi Reykjaness við úrskurð um afplánun eftirstöðva áðurnefnds dóms. hanna@dv.is 4 Fréttir 15.–17. júní 2012 Helgarblað Á leið í dóm Börkur Birgisson mætti grímuklæddur í Héraðsdóm Reykjaness. Þ órður Guðmundsson, for- stjóri Landsnets, fékk 6 millj- óna króna uppbót vegna kjaraskerðingar sem hann þurfti að taka á sig í kjölfar ákvörðunar Alþingis um að enginn forstjóri ríkisfyrirtækis væri með hærri laun en forsætisráðherra. Milljónirnar fékk hann greiddar á síðasta ári. Lau- nauppbótin kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins fyrir árið 2011. Landsnet er að langstærstum hluta í eigu Lands- virkjunar sem á 65 prósent í fyrirtæk- inu. RARIK á svo 23 prósent og Orku- veita Reykjavíkur og Orkubú Vestfjarða eiga svo aðra hluti. Það er því svo að laun forstjóra í fyrirtæki í eigu opin- berra aðila hækkuðu. Sá eini sem fékk uppbót Þórður var með um 1,3 milljónir í laun á mánuði árið 2010, eða 15,1 milljón í árslaun. Launin hækk- uðu hinsvegar upp í 1,8 milljónir á mánuði, eða 21,2 milljónir á ári vegna launauppbótarinnar sam- kvæmt ársreikningi fyrirtækisins fyrir árið 2011, sem birtur er á vef- síðu þess. Önnur laun yfirstjórnar og stjórn- enda fyrirtækisins hækkuðu ekki í líkt og laun Þórðar. Samkvæmt ársreikn- ingi lækkuðu til dæmis laun stjórnar fyrirtækisins lítillega. Laun og hlunn- indi tveggja framkvæmdastjóra fyrir- tækisins hækkuðu hins vegar úr tæp- um 33 milljónum króna upp í tæpar 34 milljónir króna. Hækkunin nem- ur ekki hárri upphæð á mánuði, í það minnsta ekki ef horft er til hækkunar- innar sem Þórður fékk. Inni í launatölum Þórðar og tveggja framkvæmdastjóra Landsnets eru bif- reiðahlunnindi. Samkvæmt skýring- um í ársreikningi eru þessir þrír þeir einu sem njóta slíkra réttinda en auk þess að hafa bíl til afnota greiðir fyrir- tækið framlag í réttindatengda lífeyris- sjóði. Tekjurnar drógust saman Á sama tíma og Þórður fékk launa- uppbótina dróst hagnaður fyrirtæk- isins saman um 2,7 milljarða króna, úr 3,6 milljörðum í 839 milljónir króna. Skuldir fyrirtækisins hækkuðu einnig um 3,3 milljarða króna á sama tímabili. Rekstur félagsins gengur þrátt fyrir allt þetta vel og er staðan eins og hún birtist í ársreikningi ágæt. Stærsta skýringin á minni hagn- aði á milli ára er líklega sú að Lands- net þurfti að lækka gjaldskrá sína til að koma til móts við ofteknar tekjur vegna tímabilsins 2006–2010. Lands- net lækkaði gjaldskrár til stórnotenda í byrjun júní 2011 um 5 prósent og skil- aði það sér í minni tekjum á síðasta ári miðað við árið þar á undan. Tekj- ur fyrirtækisins hafa því dregist saman vegna ákvarðana sem teknar voru um gjaldskrá fyrirtækisins sem stönguðust á við lög og reglur. Ekki náðist í formann stjórnar Landsnets vegna málsins. n Tekjuskerðing ríkisforstjóra gekk til baka að stóru leyti Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Minni hagnaður Tekjur Landsnets hafa dregist saman vegna lækkunar á gjaldskrá fyrirtækisins. Ástæða lækk- unarinnar er ofrukkun upp á milljarða króna á tímabilinu 2006–2010. Góð hækkun Laun Þórðar hækkuðu um sex milljónir króna á milli ára. Laun yfirstjórnarinnar Hér má sjá upplýsingar úr ársreikningi Landsnets fyrir árið 2011 þar sem breytingar á launum yfirstjórnar fyrirtækisins sjást glögglega. Eins og sést í töflunni hækkuðu laun Þórðar um sex milljónir króna vegna launauppbótarinnar. Allar tölur eru í íslenskum krónum. Skýring 2011 2010 Laun stjórnar 5.040.000 5.066.000 Laun og hlunnindi forstjóra 21.181.000 15.145.000 Laun og hlunnindi tveggja framkvæmdastjóra 33.892.000 32.728.000 Fékk 6 milljóna launauppbót Jón Bjarki dæmdur Jón Bjarki Magnússon, blaðamað- ur hjá DV, var dæmdur í Hæstarétti á fimmtudag til að greiða 300 þús- und í miskabætur og 800 þúsund í málskostnað til Margrétar Lilju Guðmundsdóttur vegna skrifa í svokölluðu Aratúnsmáli. Hæsti- réttur staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um ómerkingu ell- efu ummæla þar sem í þeim hefðu falist ærumeiðandi aðdróttanir. Jón Bjarki var hins vegar sýknað- ur af kröfu um ómerkingu tveggja ummæla sem lutu að líkamsárás á öryggisvörð. Þá voru miskabætur lækkaðar. „Ég er að sjálfsögðu ekki ánægður með þennan dóm. Hann er fáránlegur og reyndar meira en það, hann er sprenghlægilegur,“ segir Jón Bjarki en athygli vekur að þetta eru nákvæmlega sömu orð og Geir H. Haarde lét falla þegar hann var dæmdur fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð fyrir landsdómi. Fólksflótti einna mestur frá Íslandi Ísland skipar þriðja sæti á lista yfir þau Evrópuríki þar sem fólksflótti er mestur en 1,3 prósent Íslendinga fluttu af landi brott í fyrra. Þetta kom fram í þætti á sjónvarpsstöð- inni Arte þar sem fjallað var um fólksflutninga í Evrópu á síðasta ári. Aðeins var meiri fólksflótti frá Írlandi og Litháen þetta ár ef mið- að er við höfðatölu. Samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir velferð- arráðuneytið í apríl er brottflutn- ingur frá Íslandi síst meiri nú en á öðrum samdráttarskeiðum. Þar er fullyrt að enginn fólksflótti sé brostinn á á Íslandi. „Frá því að samdráttarskeiðið hófst hér á landi í árslok 2008 hefur þeirri skoðun verið haldið mjög á lofti að brost- inn sé á fólksflótti frá landinu sem muni hafa alvarlegar félagslegar og efnahagslegar afleiðingar. Í sam- henginu hefur oft verið vísað til Vesturheimsferðanna á 19. öld og til efnahagskreppunnar í Færeyjum upp úr 1990 en þá fækkaði íbúum í Færeyjum um rúm níu prósent á sex ára tímabili. Ljóst er að slíkur samanburður er fjarri sanni,“ segir í skýrslunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.