Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Blaðsíða 14
Segir málinu ekki lokið
n Jón Ásgeir furðar sig á háum lögfræðikostnaði Glitnis
H
vernig er hægt að eyða 150
milljónum í það að frysta
gamlan Range Rover í Bret-
landi og einn tékkareikning?
spurði Jón Ásgeir Jóhannesson í
tölvupósti til blaðamanns DV þegar
hann var inntur eftir viðbrögð-
um við dómi sem féll yfir honum í
Hæstarétti á fimmtudag. Jón Ásgeir
var dæmdur til að greiða slitastjórn
Glitnis allan málskostnað vegna
kyrrsetningarmáls sem bankinn
höfðaði gegn honum árið 2010.
Hann segir að lögfræðikostnaður
Glitnis við málareksturinn sé langt
frá því sem eðlilegt geti talist.
Dómur Héraðsdóms Reykjavík-
ur frá 16. nóvember í fyrra var stað-
festur í Hæstarétti, en hann kveð-
ur á um að greiðsla Jóns Ásgeirs til
Glitnis árið 2010 að fjárhæð 150.000
sterlingspund teljist ekki vera fulln-
aðargreiðsla. Bankinn krefst 150
þúsund punda, sem jafngildir 80
milljónum króna, en jafnframt þarf
Jón Ásgeir að greiða Glitni 600 þús-
und krónur í málskostnað.
Jón Ásgeir segir málinu ekki vera
lokið. „Nú fer það aftur fyrir breska
dómstóla þar sem tekist verður á
um hvernig Glitni tókst að eyða
150 milljónum í lögfræðikostn-
að í það eitt að fá „freezing order“
á mig, sem var reyndar fengið með
því að ljúga til um staðreyndir. Á
þeim hluta verður tekið seinna,“
segir hann. „Verði þetta málalok
þá er ljóst samkvæmt enskum lög-
um að ég má selja þær eignir sem
eru frosnar til að standa straum af
lögfræðikostnaði. Þannig séð væri
þetta millifærsla á fronsum eign-
um til lögfræðistofu í London.
Slitastjórn Glitnis verður að skýra
hvernig sú aðferðafræði skilar sér
til kröfuhafa Glitnis,“ segir hann
enn fremur.
johannp@dv.is
14 Fréttir 15.–17. júní 2012 Helgarblað
Andrea hættir
sem formaður
Guðmundur Ásgeirsson tekur við
af Andreu Jóhönnu Ólafsdóttur
sem formaður Hagsmunasam-
taka heimilanna. Ný stjórn var
kjörin á aðalfundi samtakanna
31. maí síðastliðinn en stjórnin
skipti sjálf með sér verkum. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá sam-
tökunum. Björk Sigurgeirsdóttir
tekur við sem varaformaður, Sig-
rún Viðarsdóttir sem gjaldkeri og
Kristján Þorsteinsson sem ritari.
Stjórn samtakanna er skipuð sjö
aðalmönnum og sjö varamönnum
sem kosnir eru á aðalfundi.
Andrea vék sem formaður eftir
að hún ákvað að gefa kost á sér til
embættis forseta Íslands. Samtök-
in voru stofnuð 15. janúar 2009 og
skilgreina sig sem hagsmunasam-
tök á neytendasviði, til varnar og
hagsbóta fyrir heimilin í landinu.
Innbrot víða
um borg
Lögregla fékk tilkynningu um
innbrot á gististað við Laugaveg
að kvöldi miðvikudags. Þar hafði
fartölvu verið stolið af erlendum
ferðamanni. Málið er enn óupp-
lýst. Stuttu síðar var tilkynnt um
innbrot í bíl við Garðatorg. Þaðan
var stolið farsíma og tveimur tösk-
um með skjölum. Þjófurinn er enn
ófundinn. Þá voru þrír stöðvað-
ir við ölvunar og fíkniefnaakstur á
þriðjudag og aðfaranótt fimmtu-
dags. Einn þeirra gisti fanga-
geymslur þangað til hægt var að
ræða við hann en hinir voru látnir
lausir að lokinni sýna- og upplýs-
ingatöku.
Óskar hættur á
Fréttatímanum
Óskar Hrafn Þorvaldsson,
fréttastjóri Fréttatímans, lét af
störfum á blaðinu á fimmtudag.
Óskar Hrafn hafði þá fylgt blað-
inu allt frá stofnun þess en hann
er einn hluthafa blaðsins. Ég er að
fara að vinna að verkefnum sem
allt of snemmt er að segja til um
hvað verður úr og verð með ann-
an fótinn erlendis vegna þess,“
sagði hann í samtali við DV á mið-
vikudag um málið. Aðspurður
hvað verði um eignarhlut hans í
blaðinu nú þegar hann hverfur til
annarra starfa sagðist hann áfram
halda í hann. „Ég mun bara áfram
eiga hann. Þetta er allt gert í góðu,
engin illindi í þessu.“
Breytingar hafa verið í æðstu
stöðum á Fréttatímanum undan-
farið því stofnandi blaðsins og rit-
stjóri, Jón Kaldal, hætti í apríl síð-
astliðnum.
Þ
að var ekki erfitt að mæta
þeim þar sem ég er með
hreina samvisku í þessu
máli, en það var erfitt að
rifja þetta upp,“ sagði Frank
Michelsen úrsmiður við blaðamann
DV eftir að hafa borið vitni við aðal-
meðferð í Michelsenmálinu síðast-
liðinn miðvikudag.
Úr fyrir 50 milljónir
Tveir eru ákærðir fyrir aðild í rán-
inu, en þriðji maðurinn, Marcin
Tomasz Lech, afplánar nú fimm
ára fangelsisdóm á Litla-Hrauni
eftir að hafa verið fundinn sekur
um sína aðild að málinu. Fjórði
maðurinn hefur ekki verið hand-
tekinn en talið er að hann sé nú í
Póllandi.
Brotist var inn í skartgripavöru-
verslunina Michelsen í nóvember
2011 og komust ræningjarnir und-
an með þýfi að verðmæti 50 millj-
ónir króna. Ránsfengurinn saman-
stóð af úrum af dýrustu gerð, Rolex,
Tudor og Michelsen, en hann var
endurheimtur eftir að Marcin Tom-
az var handtekinn skömmu eftir
ránið.
Vantreystir fólki
Frank Michelsen bar eins og fyrr
segir vitni fyrir dómi á miðvikudag.
Hann gekk hnarreistur inn í dóm-
sal og horfði ákveðið á þá Grzegorz
Marcin Nowak og Pawel Jerzy Pod-
buraczynski sem hafa játað að hafa
rænt verslunina og beint leikfanga-
byssum, sem látnar voru líta sem
raunverulegastar út, að Frank og
öðru starfsfólki verslunarinnar. Þeir
Grzegorz og Pawel horfðu í gaupnir
sér og mættu ekki augnaráði Franks.
Allir starfsmenn verslunarinnar
báru vitni fyrir dómi á miðvikudag.
Allir sögðust þeir hafa hafa upplifað
mikið áfall við ránið og hafa upplif-
að mikið óöryggi í kjölfar þess. Sak-
sóknari spurði hvort atburðurinn
hefði enn áhrif á Frank í dag, átta
mánuðum eftir að ránið átti sér stað.
„Já, því miður,“ svaraði Frank. „Ég
vantreysti fólki, mér finnst óþægi-
legt ef einhver kemur inn [í versl-
unina, innsk. blm.] og er með hettu
og ef menn koma inn með látum.
Líka þegar ég heyri fólk tala austur-
evrópskt tungumál.“
Allt að 90 prósenta afsláttur af
úrunum
Frank segist glíma við svefntruflanir
vegna atvikisins og á það til að vakna
upp á nóttunni vegna þess. Fjár-
hagslegt tjón Franks er einnig mik-
ið en þrátt fyrir að hann hafi endur-
heimt úrin sem var stolið hafa þau
misst verðmæti sitt. „Sumt er selt og
sumt er ekki selt. Í samráði við Rolex
var ákveðið að úrin færu ekki á upp-
boð eða útsölu, heldur að þau yrðu
seld án þess að mikið beri á til að
skaða ekki merkið.“
Frank sagði misjafnt hversu mik-
ill afsláttur væri veittur af úrunum en
hann hafi verið að allt að 90 prósent-
um.
„Það var erfitt að
rifja Þetta upp“„Ég vantreysti fólki,
mér finnst óþægi-
legt ef einhver kemur inn
[í verslunina, innsk. blm.]
og er með hettu og ef
menn koma inn með lát-
um.
n Frank Michelsen úrsmiður er ekki hræddur við árásarmennina í dómsal
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Huldu andlit Ákærðu huldu andlit sín með hettu þegar fjölmiðar mynduðu þá í dómsal á
miðvikudag. Mynd: Eyþór ÁrnAson
Í versluninni sinni
Frank segir að úrin hafi
verið seld með mjög
miklum afslætti.
Mynd: siGtryGGur Ari
dæmdur til greiðslu Jón Ásgeir undrast háan lögfræðikostnað í málinu.