Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Blaðsíða 40
40 Úttekt 15.–17. júní 2012 Helgarblað
Hvað varð um
Pamelu í Dallas?
Barðist við Bakkus
og týndi hártoppnum
n Refurinn J.R. er leikinn af
Larry Hagman. Samspil J.R.
og drykkfelldrar eiginkonu
hans, Sue Ellen, er með því
dramatískara sem sést hefur
í sjónvarpi enn þann dag í dag.
Hagman hefur aldrei tekist að hrista af sér
illmennisstimpilinn þrátt fyrir að hafa tekið
að sér hlutverk í Nip/Tuck og Nixon. Hann
háði harða baráttu við Bakkus og þurfti að
fara í lifrarskipti árið 1995. Larry lítur vel út í
dag og gott ef karlinn er ekki ásjálegri í dag
en fyrir 30 árum enda hefur hann fyrir löngu
hent hártoppnum sem hann festi á skallann
á sér um árabil. Þrátt fyrir að Larry leiki
hægri hák í Dallas þá er hann virkur meðlim-
ur í Demókrataflokknum í Bandaríkjunum
og styður ötullega við Barack Obama.
n Eiginkona Larrys, hin sænska Maj Hag-
man, er með Alzheimer og hefur Larry talað
opinskátt um sjúkdóminn. Þá sagði hann
nýlega frá því að hann væri með krabbamein
í hálsi. „Sem J.R. komst ég upp með allt,
mútur og framhjáhald. En krabbinn náði
mér. Ég vil þó að allir viti að krabbamein í
hálsi er algengur sjúkdómur og auðveldur
viðureignar.“
J.R. – Larry Hagman
Auglýsti magaþjálfa
n Charlene Tilton lék Lucy og var af gárung-
um uppnefnd „eitraði dvergurinn“. Lucy var
einkar ógeðfelldur karakter og með hræði-
legan smekk á karlmönnum. Fordekruð og
sjálfselsk. Lucy var nokkurs konar fyrirmynd
Paris Hilton og álíkra glamúrgella nútímans.
Eftir leik sinn í Dallas varð Charlene helst
þekkt fyrir að berjast við þyngdina og
auglýsti magaþjálfa af miklum móð í
auglýsingasjónvarpi. Nýlega kom hún fram
í raunveruleikaþættinum Fives The Farm
og í janúarmánuði keppti hún í breskum
skautaþætti, Dancing on Ice. Hún var kosin
úr þættinum í fimmtu viku af tólf.
Lucy – Charlene Tilton
Sendiherra Sam-
einuðu þjóðanna
n Aumingja Sue Ellen sem var
föst í ömurlegu og ástlausu
hjónabandi með J.R. Hún
hafði þó búrbonflöskuna
og Cliff Barnes sér til halds og
trausts á verstu stundunum. Linda Gray
fékk Emmy-verðlaun fyrir túlkun sína á
óhamingju Sue Ellen og var það verð-
skuldað. Eftir leik sinn í Dallas, lék Gray í
Lovejoy, Melrose Place og The Bold and The
Beautiful. Hún hefur einnig leikið á sviði,
til að mynda í The Graduate og Terms of
Endearment. Linda hefur einnig verið einn
sendiherra Sameinuðu þjóðanna og unnið
ötullega að góðgerðamálum.
Sue Ellen – Linda Gray
Bingóstjóri og
sápuleikari
n Patrick Duffy lékk hinn
vinalega en ögn einfalda Bobby.
Hann var skrifaður úr þáttaröðinni árið 1985
en bað um að koma aftur ári seinna. Það
varð til þess að hin fræga og undarlega:
„Þetta var allt draumur!“ atriði var skrifað
í þáttinn.
n Duffy hélt áfram að leika í sjónvarpi.
Hann lék í þáttunum Step by Step og The
Bold and the Beautiful. Hann stýrði einnig
bingó í sjónvarpi um tíma.
Duffy og fjölskylda hans eru búddistar og
mörgum er minnisstætt óhugnanlegt morð
á foreldrum hans árið 1986. Foreldrar hans
voru báðir myrtir í ráni og það var aðeins
stuttu síðar sem Duffy fékk aftur hlutverk
Bobbys í Dallas.
Bobby – Patrick Duffy
Kærð fyrir
morðhótun
n Aumingja Pam, hin fallega
en ógæfusama dóttir Barnes. Hjónaband
hennar og gulldrengsins Bobbys var
ekki samþykkt af hákunum á Southfork
og sérstakt horn í síðu hennar hafði
illmennið JR. Pamela var ögn slóttugri en
Bobby og eins og tíðkast í sápuóperum
reyndu þau hjón oft að brugga launráð en
áttu aldrei möguleika á móti hákarlinum
sjálfum með hattinn.
n Victoria Principal hefur fjórum sinnum
verið tilnefnd til Golden Globe-verðlauna;
1973 sem efnilegasti nýliðinn í The Life
and Times of Judge Roy Bean, og 1983,
1986 og 1988 fyrir hlutverk sitt sem
Pamela í Dallas.
n Principal hefur komið fram í fjölda
sjónvarpsþátta og -sería, t.d. Providence,
Titan, The Practice og Jack & Jill, að
ógleymdum teiknimyndaþáttunum
Family Guy þar sem hún var rödd dr.
Amöndu Rebeccu.
n Victoria hefur í dag helst helgað sig
skrifum um fegurð og framleitt vörur til
húðumhirðu. Árið 2009 komst hún þó í
fréttir þegar þerna á heimili hennar kærði
hana fyrir að miða á sig byssu. Þernan sagði
frá því að Victoria hefði hótað að drepa
sig eftir að hún var of lengi úti að ganga
með hundinn hennar. Málið náði aldrei fyrir
rétt og var látið niður falla. Hennar er sárt
saknað úr nýrri þáttaröð og menn spyrja
sig: Hvað varð um Pamelu í Dallas?
Pamela – Victoria Principal
Í Vísindakirkjunni
n Priscilla Presley, sem var
gift hinum eina sanna Elvis
Presley, var hluti af Dallas-
þáttaröðinni í þrjú ár og lék
Jennu, fyrstu ást Bobbys og
móður sonar hans. Jenna giftist
seinna hálfbróður Bobbys,
Ray Krebbs sem einnig er í nýju
þáttaröðinni. Presley lék seinna
í Melrose Place, Sin City og Naked
Gun-myndunum. Hún þykir fyrirtaks dansari
og tók þátt í þáttunum Strictly Come
Dancing og Dancing With The Stars. Priscilla
hefur helgað sig starfi með Vísindakirkjunni
seinni ár.
Jenna – Priscilla Presley
Virtur málari
n Ray er óskilgetinn
sonur Jocks og leikinn
af Steve Kanaly. Ray var
nokkuð flókinn karakter í þáttunum. Hann
giftist Jennu eftir að hún hafði fætt son
hennar og Bobbys, Lucas. Fyrir átti Jenna
dótturina Charlie, sem olli vandræðum
og var send í heimavistarskóla. Ray og
Jenna fluttu svo til Sviss í kjölfarið. Steve
býr í Ojai í Kaliforníu og er afar virtur
vatnslitamálari.
Ray Crebbs – Steve Kanaly
Á sjö börn og er
fjórfráskilinn
n Sauðurinn hann Cliff er bróð-
ir Pamelu og sonur erkióvinar J.R.,
Digger Barnes. Cliff var í endalausri baráttu
við J.R. og ástkona hans var Sue Ellen.
n Ken er mikill leikhúsmaður og hefur gert
það gott á sviði eftir árin í Dallas. Hann
veiktist af lungnakrabbameini en náði
góðum og merkum bata af veikindum
sínum. Fjölskyldulíf hans hefur verið í einum
öldudal. Hann á sjö börn og er fjórfráskilinn.
Árið 1989 komst Ken í fréttir vegna harm-
leiks. Edward P. Philips viðskiptafélagi
hans réðst inn á settið í Dallas í Lorimar-
kvikmyndaverinu vopnaður byssu. Skaut
inn á settið og sakaði Ken um að hafa svikið
sig í viðskiptum og eyðilagt hjónabandið.
Edward framdi svo sjálfsmorð á staðnum
með því að skjóta sig í höfuðið.
Cliff Barnes – Ken Kercheval
Skírð eftir goðsögn
n Valene var gift Gary, bróður
J.R. (þau giftust þrisvar í
þáttunum). Hlutskipti Valene
í Dallas var ekki sérlega öf-
undsvert en hún þurfti að glíma
við drykkju Garys og við J.R. um málefni
dóttur sinnar, Lucy, sem J.R. krafðist að yrði
alin upp sem sannur Ewing. Valene tókst
ekki að stöðva áætlanir J.R. og fékk ekki að
hitta dóttur sína árum saman.
Joan hefur ekki elst sérlega vel, hún hefur
leikið í Nip/Tuck og The Young and the
Restless. Nafn hennar vekur ávallt athygli
en faðir hennar nefndi hana Joan Van Ark,
vegna þess að hann var sannfærður um að
hún yrði heimsfræg.
Valene – Joan Van Ark
Enginn frami
eftir Dallas
n Gary, miðsonur Jocks og
Ellie, faðir Lucy og eiginmaður
Valene er svarti sauðurinn í Ewing-fjöl-
skyldunni. Alkóhólisti og níddur af eldri
bróður sínum J.R. Ted Shackelford hefur
ekki átt mikinn frama eftir Dallas. Lék í
Knots Landing, Dirty Sexy Money og The
Young and the Restless. Nýlega hafa borist
fregnir af því að Gary og Valene komi við
sögu í nýrri þáttaröð af Dallas en það hefur
ekki fengist staðfest.
Gary Ewing – Ted Shackelford
É
g vild' ég væri Pamela í Dallas,“
sungu Dúkkulísurnar á ní-
unda áratugnum. Yrkisefnið
var Pamela Barnes Ewing, for-
rík og fögur frú á Southfork-
búgarðinum í Dallas. Sápuóperan
Dallas var fyrsta sápuóperan sem
sýnd var í íslensku sjónvarpi og segja
má að hún hafi náð taki á íslenskri
þjóð sem fylgdist spennt með öllum
357 þáttunum sem sýndir voru á ár-
unum 1978–1991.
Og nú eru þau væntanleg aftur á
skjáinn. Glænýir þættir þar sem þau
Bobby, J.R., Sue Ellen, Lucy og Ray
snúa aftur verða sýndir á Stöð 2 og
hefjast sýningar í sumar.
Synir bræðranna J.R. og Bobby,
þeir John Ross og Christopher, eru
nú í forgrunni og sem fyrr er það bar-
áttan um yfirráð í Ewing-olíufyrir-
tækinu sem allt hverfist um. Nú eru
liðin 20 ár frá því skilið var við Ewing-
fjölskylduna og því við hæfi að rifja
upp helstu leikendur og segja frá því
hvað á daga þeirra hefur drifið.
Á níunda áratugnum áttu breyskir Texasbúar hug og
hjörtu landsmanna. Á hverju þriðjudagskvöldi fylgd-
ust þeir með Ewing-fjölskyldunni í hádramatísku
ráðabruggi með hinn mikla ref J.R. fremstan í flokki.
Nú eru þau væntanleg á skjáinn áratugum seinna
og margt hefur drifið á daga leikaranna. Einn er
kominn með nýja lifur, annar starfar sem sendiherra
fyrir Sameinuðu þjóðirnar og enn annar hafði ekkert
betra að gera en að stýra bingó um tíma.