Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Side 36
36 15.–17. júní 2012 Helgarblað
Sakamál 19 morð var þýskur vörubílstjóri, Volker Eckert, sakaður um að hafa framið í Frakklandi, á Spáni og í Þýskalandi á árunum 1974–2006. Volker játaði á sig sex morð. Eckert var handtekinn í nóvember 2006 og fann lögreglan ljósmyndir og fleiri vísbendingar um sekt hans. „Ég er svo geggjaður að mér finnst léttir að vera handtekinn,“ sagði Eckert þegar hann var handtekinn. Hann framdi sjálfsmorð í klefa sínum í byrjun júlí 2007. Síðar fann lögreglan sannanir fyrir því að hann hefði myrt 9 konur í áðurnefndum löndum og Ítalíu að auki.U m s j ó n : K o l b e i n n Þ o r s t e i n s s o n k o l b e i n n @ d v . i s
xxx
S
ian Kingi, tólf ára nýsjálenskri
maóríastúlku, var rænt í
Noosa í Queensland árið
1987. Málið vakti mikla athygli
á sínum tíma og urðu lyktir þess þær
að hjón að nafni Barrie Watts og Val-
mae Beck voru sakfelld fyrir ódæðið.
Málavextir voru þeir að Kingi
hafði verið að hjóla í mestu mak-
indum skammt frá Pinnaroo-garði í
Noosa þegar illfyglið Valmae narraði
hana inn í nærliggjandi rjóður undir
því yfirskyni að hún væri að leita að
puddle-hundi sínum og væri hjálp-
arþurfi.
Inni í rjóðrinu beið Watts, sem
flestir geta verið sammála um að
var ekki merkilegur pappír, og greip
varnarlausa stúlkuna aftan frá og
neyddi hana inn í bifreið. Þar var
Kingi fjötruð og síðan ekið sem leið
lá tólf kílómetra leið til Tinbeerwah-
skógar.
Þegar þangað var komið skipti
engum togum að ódámurinn Watts
nauðgaði fórnarlambi sínu og stakk
síðan og kyrkti. Líkinu af Sian Kingi
henti sorapakkið síðan í nærliggj-
andi gilskorning þar sem það fannst
sex dögum síðar.
Réttað var yfir Watts, þeim sam-
viskulausa mannfjanda, árið 1995
vegna morðs á Helen nokkurri Mary
Feeney. Hún hafði síðast sést á lífi
einum mánuði áður en Sian Kingi
var myrt. Fyrir morðið á Helen Mary
var Watts dæmdur til 14 ára fangels-
isvistar. En það var ekki fyrr en árið
2007 sem mannfýlan viðurkenndi að
hafa orðið Sian Kingi að aldurtila.
Af Valmae Beck var það hins
vegar að segja að hún átti sex börn
áður en hún giftist Watts og seg-
ir ekkert frekar af þeim. Árið 1990
skildi hún við Watts og þegar að-
ild hans að morðinu á Sian kom í
ljós hafði hún breytt um nafn – Fay
Cramb. Hvort innrætið breyttist með
nýju nafni verður ekki metið hér, en
hvað sem því líður hafði hún sagt við
skilnaðinn við Watts að hún iðraðist
alls sem hún hafði gert með honum.
Valmae sótti um reynslulausn
í þrígang án árangurs en uppskar
aftur á móti eins og hálfs árs tíma í
viðbót við þann tíma sem þyrfti að
líða þar til hún gæti sótt um reynslu-
lausn. Það var fyrir aðild hennar að
morðinu á Helen Mary.
Watts og Beck fengu bæði lífs-
tíðardóm, en maðurinn með ljáinn
gat greinilega ekki beðið eftir að
koma klóm sínum í Beck því hún féll
í dá eftir hjartaaðgerð í maí 2008 og
skildi við 27. sama mánaðar án þess
að komast til meðvitundar.
annað morð
felldi þau
Þ
egar Patrick og Ingrid Van
Cleemput fluttu frá Belgíu til
Kaliforníu í Bandaríkjunum,
ásamt tveimur dætrum sín-
um, Claudiu og Söruh, árið
1997 hefðu þau ekki getað hugsað
sér betri nágranna en Richard Stone.
Fyrr en varði voru Stone-hjónin farin
að grilla með belgísku nágrönnunum
og jafnvel að fara með þeim í frí.
Það er gott að vera vitur eftir á, en
reyndar aðeins of seint í mörgum til-
vikum, og síðar lét nágrannakona
þeirra, Liana Shell, þau orð falla að
eitthvað hefði verið undarlegt – rangt
jafnvel – við það hvernig Richard lék
sér við Cleemput-stúlkurnar – hvern-
ig hann kitlaði þær og snerti.
Cleemput-hjónin vissu ekki þá
að Richard Stone, vingjarnlegi ná-
granninn, beitti Söruh kynferð-
islegu ofbeldi. Árin liðu og þegar
Sarah varð 14 ára gat hún ekki meir.
Þann 18. janúar 2002, þegar foreldr-
ar hennar voru farnir til vinnu, lagði
hún þrjár sjálfsmorðsorðsendingar
á eldhúsborðið. Síðan gekk hún upp
á herbergið sitt, vafði handklæði um
höfuð sér og setti nokkur handklæði
á gólfið og skaut sig í höfuðið.
„Spyrjið Dick“
Á eina orðsendinguna hafði Sarah
skrifað: „Þið haldið kannski að það
sé ekki eðlilegt að táningur geri
svona. Spyrjið Dick.“
Þrátt fyrir að Sarah hefði nefnt
Dick á nafn sáu foreldrar henn-
ar ekki tengslin, en það gerði lög-
reglan hins vegar því hún fékk vit-
neskju um að Richard – Dick – hefði
misnotað 12 ára vinkonu Söruh
með sama hætti.
Richard var handtekinn og
ákærður, en þrátt fyrir að Sarah
hefði svipt sig lífi var vinkona henn-
ar ekki reiðubúin til að bera vitni.
Saksóknara leist ekki á blik-
una og virtist sjálfgefið að Richard
Stone kæmist upp með viðurstyggi-
legt athæfi sitt.
En tveimur dögum fyrir vitna-
leiðslur, sem áttu að hefjast í
október 2002, fékk saksóknari
óvænt skilaboð sem urðu til þess
að hann gerði sér ferð til Beverly-
hæða ásamt rannsóknarlögreglu-
manni til að ræða við konu nokkra.
Frændi konunnar
Í ljós kom að Richard Stone var
frændi konunnar og hafði misnotað
hana kynferðislega þegar hún var
fimm til átta ára – og hún var reiðu-
búin að bera vitni.
Hún hafði fyrst heyrt af máli
Söruh þegar móðir hennar, Esther,
hafði sent henni blaðaúrklippur um
málið.
Eðli málsins samkvæmt fékk lög-
fræðingur Richards Stone vitneskju
um nýja vitnið og þróun mála og
innan viku viðurkenndi hann sekt
sína og fékk fjórtán ára dóm. En
sagan var ekki öll og næstu árin
veltu foreldrar Söruh því fyrir sér
hver hefði gefið sig fram á síðustu
stundu og tryggt að Richard svaraði
fyrir syndir sínar.
Það var ekki fyrr en í mars 2006
sem Cleemput-hjónin fengu raf-
rænan póst – email – frá saksóknar-
anum þar sem hann upplýsti hvert
hið óvænta vitni hafði verið; ör-
væntingarfulla húsmóðirin Teri
Hatcher.
Innan tíðar, í kjölfar greinar í
tímaritinu Vanity Fair, var heims-
byggðin búin að fá vitneskju um að-
ild Teri að máli Söruh, og hingað til
hulinn hluta sögu Teri.
Ótti og varnarleysi
„Þetta er nokkuð sem ég hef reynt
að fela allt mitt líf. Ég varð gjör-
samlega slegin vegna sársauka
þessarar stúlku,“ sagði Teri í við-
talinu. Hún sagði að minningarn-
ar um misnotkunina hefðu fylgt
henni hvert sem hún fór – meira
að segja liturinn á gólfteppinu í
bíl Richards – snerting hans og
orð hans.
Í viðtali við Opruh Winfrey
sagði Teri að hún hefði fundið til
„mikillar skammar“ því hún hefði
vitað hvað myndi gerast þegar
hún væri komin inn í bíl Richards,
en hún hefði farið inn í hann engu
að síður. „Ég vildi fara inn í bílinn
vegna þess, held ég, að ég vildi fá
þessa sérstöku athygli. Og það er
hluti af hryllingi sektarinnar, eins
og þú berir sök …“
Faðir Söruh vonar að hugrekki
Teri verði þess valdandi að fleiri
börn rjúfi þögnina áður en það er
orðið um seinan, og saksóknar-
inn deilir þeirri von með föðurn-
um.
Sú ákvörðun Teri Hatcher að
rjúfa þögnina og brjótast úr þeim
viðjum sem hún hafði verið í til
fjölda ára varð lóð á vogarskál
réttlætis og tryggði refsingu til
handa Richard Stone.
n Fjórtán ára framdi sjálfsmorð n Fræg leikkona felldi barnaníðing
ÓVÆnT ViTni
„Þið haldið
kannski að
það sé ekki eðlilegt
að táningur geri
svona. Spyrjið Dick.
Úlfur í sauðargæru
Richard Stone beitti
ungar stúlkur kynferð-
islegu ofbeldi.
Teri Hatcher Ákvað að
svipta hulunni af óþekktum
hluta bernsku sinnar.