Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Qupperneq 43
Sítróna er frábær húshjálp n Ballettæði í Hollywood Þ að vakti mikla athygli þegar leikkonan Natalie Portman lék í myndinni Black Swan og hlaut Óskarinn fyrir. Það var ekki bara stórleikur Natalie sem vakti athygli heldur líkamlegt form henn- ar en það var fyrrverandi ballerína, Mary Helen Bowers, sem þjálfaði hana fyrir hlutverkið. Natalie náði ótrúlegum árangri í undirbúningi sínum fyrir hlutverkið og átti það ekki síður þátt í því að hún fékk Ósk- arsverðlaunin eftirsóttu. Eftir að myndin var sýnd stopp- aði ekki síminn hjá Bowers og fleiri stjörnur vildu prófa æfingar hennar. Bowers, sem dansaði áður með ball- etthópi New York-borgar, hafði ekki undan og skrifaði því bók og gaf út mynddisk sem heitir Ballet Beautiful og hefur heldur betur slegið í gegn. Hún hefur þó haldið áfram að kenna í stúdíói sínu í New York en hún tekur jafnvel stjörnur og hópa í einkatíma í gegn- um samskiptafor- ritið Skype. Fyr- ir utan Natalie Portman hef- ur Bowers með- al annars þjálfað Zooey Deschanel, sem hefur ver- ið að gera það gott í þáttunum New Girls undanfarið, Kirsten Dunst, sem hefur leikið í ófáum stórmyndum, sem og Liv Tyler, sem aðdáendur Lord of the Rings þekkja vel. Hægt er að kynna sér æfingarnar nánar á balletbeautiful.com. Lífsstíll 43Helgarblað 15.–17. júní 2012 Reynir Traustason Baráttan við holdið V ið hver þrjú skref áfram skreið ég eitt skref niður. Ég kross- bölvaði sjálfum mér fyrir að hafa asnast til að klífa fjall sem var fyrst og fremst fyrir augað en helst ekki fyrir fætur. Ég var að nálgast tindinn eftir þrautagöngu sem tók á bæði sál og líkama. Með í för voru eiginkonan og göngufé- lagi auk fjögurra hunda. Hunda- hópurinn samanstóð af þremur tíkum og rakka. Tíkurnar voru allar þrælvanar fjallgöngum eftir að hafa farið oftar en 300 sinnum á fjöll á seinasta ári. Rakkinn var gestur í ferðinni. Hann hafði átt náðuga daga í faðmi fjölskyldu sem hélt sig gjarnan á jafnsléttu og helst í bíl. Þá svaf hann venjulega með silkikodda og með mýkingarkrem á þófunum. Á meðan tíkurnar dönsuðu á sínum sigggrónu þófum um steinana átti rakkinn í erf- iðleikum. Þófar hans voru mjúkir og meyrir og stóðust ekki oddhvasst grjótið. Rakkinn dróst reglulega aftur úr hersingunni sem mjakaðist í krákustígum upp Baulu. Það var ekki fyrr en 100 metra hækkun var eftir á efsta tind að fólk uppgötv- aði að karlpeningur hundahóps- ins var alblóðugur á framfótunum. Eftir stutta rekistefnu var ákveðið að ekki væri hægt að annað en að hlífa hundinum við frekara brambolti upp fjallið. Honum var hjúkrað og fætur hans plástraðir. Fjallið hafði sigrað rakkann. E ftir nokkur fundarhöld á grjót- hrúgunni í snarbrattri hlíðinni í 800 metra hæð myndaðist sameiginlegur skilningur á því að ekki væri annað í boði en að ég toppaði Baulu. Að öðrum kosti yrði farið á byrjunarreit og önnur atlaga gerð eftir nokkra daga. Hluti hópsins beið neðan við hátindinn á meðan tíkurnar þrjár héldu á toppinn með þeim ákafasta úr hópnum. Alblóðugur karlhund- urinn naut hjúkrunar á meðan. Lokaspretturinn upp fjallið tók ekki langan tíma. Fyrr en varði stóðum við á toppnum, sveipuð skýi. Út- sýnið var nákvæmlega ekkert en ég vissi sem var að fyrir fótum mér lá Borgarfjörðurinn í allri sinni dýrð. Þetta var hvorki fyrsti né síðasti fjallstindurinn sem toppaður var í skýjabólstra, svartaþoku eða dimm- viðri. G angan upp þetta 1.000 metra fjall var eflaust sú erfiðasta á öllum mínum gönguferli sem spannar orðið tvö ár. Alla leiðina upp hét ég því að þetta yrði fyrsta og síðasta ferð mín á fjallið. En á toppnum mildaðist afstaða mín. Ég ávarpaði tíkurnar þrjár á sigurstundinni og lýsti því að við ættum kannski eftir að snúa aft- ur. Engin þeirra sýndi viðbrögð. Niðurleiðin varð tiltölulega ljúf. Rakkinn með sárabindin á framfót- unum skrönglaðist niður flugbeitt stórgrýtið og fyrr en varði tók við mýkri jörð niður dalinn. Allir virt- ust vera jafnglaðir og fegnir þegar við snérum aftur í bílinn, fimm tímum eftir að gangan hófst. Þjáningarnar frá því í upp- göngunni voru að gleym- ast en sælan allsráðandi. Og það er einmitt þetta sem ger- ir fjallgöngur svo heillandi. Sælan yfir unnum sigr- um er í réttu hlutfalli við puðið og þján- inguna sem fylgir uppgöngu. Það er varla til betri tilf- inning en að toppa erfitt fjall. Baula, ég kem aftur seinna. Bölvað á Baulu Natalie Portman Þjálfun hennar fyrir hlutverkið leiddi af sér vinsælt æfingakerfi. Æfðu eins og Natalie Portman Fimm stærstu mistök kvenna n Komdu í veg fyrir hættulegustu kvillana með því að þekkja einkennin E inhversstaðar í heimin- um er kona greind með brjóstakrabbamein á tveggja og hálfrar mínútna fresti. Á hverri einustu mínútu fær kona hjartaáfall. Á 23 sekúnda fresti er mamma einhvers, dóttir eða systir grein með sykursýki. Lengdu líf þitt með því að skilja viðvörunarmerkin. 2 Að hunsa óútskýrða þyngdaraukningu Gæti verið merki um: Brjóstakrabbamein (einnig krabbamein í ristli, eggjastokkum og móðurlífi) Margar konur skrifa skyndilega þyngdaraukningu á hreyfingarleysi og óhollt mataræði. En stundum getur þyngdaraukn- ingin verið merki um að vandamálið sé eitthvað alvarlegra, líkt og brjóstakrabba- mein. Ef maginn á þér virðist útblásinn án þess að þú hafir breytt lífsstílnum skaltu tala við lækni. 4 Að taka öll lyfin á morgnanaGæti verið merki um: Of háan blóðþrýsting Of hár blóðþrýstingur er stundum kallaður „hinn hljóðláti morðingi“ því margir þeir sem eru með of háan blóðþrýsting vita það ekki fyrr en of seint. Samkvæmt doktor Oz vilja flestir læknar að sjúklingar taki lyfin sín á morgnana þar sem blóðþrýstingurinn er oftar hærri þá en seinnipartinn. En, segir Oz, samkvæmt nýlegri rannsókn virka mörg lyfjanna gegn of háum blóðþrýstingi betur á kvöldin. Þú skalt samt aldrei breyta lyfjagjöf nema í samráði við lækni. 3 Að hunsa tíða þörf til að pissa Gæti verið merki um: Sykursýki Ef þú þarft alltaf að vera á klósettinu gæti það verið skýrt merki um að þú sért með sykursýki. Finnurðu fyrir miklum þorsta? Ef þig grunar að þú sért með sykursýki skaltu tala við lækni og fá hann til að gera próf. 1 Að hunsa örmögnun Gæti verið merki um: Hjartaáfall Heilbrigt hjarta getur pumpað yfir fimm lítr- um af blóði á mínútu. Slæmar lífsstílsvenjur á borð við óhollt mataræði, hreyfingarleysi og reykingar veikja hjartað og gerir því erfiðara fyrir að flytja blóðið um líkamann. Hjartað verður útjaskað og þú líka. Samkvæmt rannsókn National Institutes of Health finna konur fyrir nýjum og óþekktum einkennum í allt að einum mánuði áður en þær fá hjartaáfall. Einkenni sem konur finna fyrir eru oft mjög ólík þeim einkennum sem karlmenn finna fyrir. Gríðarleg þreyta er algengt merki um að kona sé að fá hjarta- áfall. Vaknarðu þreytt? Áttu erfitt með að komast í gegnum daginn? Áttu erfitt með að sofna á kvöldin? Farðu til læknis og biddu um ómskoðun á hjarta. 5 Að hunsa lyktarskynsleysiGæti verið merki um: Alzheimer sjúkdóm Á hverjum 70 sekúndum er einstaklingur greindur með Alzheimer. Það er ekki alltaf hægt að útskýra minnisleysi með hækkandi aldri. Fyrsta svæðið í heilanum til að verða fyrir áhrifum sjúkdómsins er sá hluti sem snýr að lyktarskyninu. Talaðu við lækni og biddu um sérstakt lyktarskynspróf til að ganga úr skugga um það hvort þú sért með Alzheimer. Doktor OZ mælir með neyslu á ómega-3 fitusýrum til að verjast Alzheimer og bæta minnið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.