Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Qupperneq 54

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2012, Qupperneq 54
Kærastan hleypur líka n Kári Steinn hitti gamlar íþróttakempur É g er mjög þakklátur fyrir að vera uppi í dag. Aðstaðan er orðin allt önnur og það er gott að geta fengið eitthvað almennilegt að borða á leikunum,“ segir hlaupa- garpurinn og verðandi ólympíufari Kári Steinn Karlsson en hann hitti Óskar Jónsson, fyrrverandi hlaupara og ólympíufara, á sér- stakri móttöku í breska sendiráðinu á dögunum en Óskar keppti á leik- unum í London árið 1948. „Það var mjög gaman að hitta þessar gömlu kempur og sérstaklega Óskar. Þótt að þessi íþrótt sé frekar einföld og snúist um það að vera fljótastur á milli A og B þá hefur samt margt breyst. Í dag er hægt að nálgast allar upplýsingar á netinu auk þess sem skórnir og inniaðstaða á veturna skipta heilmiklu máli. Óskar minntist sérstaklega á að maturinn hefði ekki verið upp á marga fiska. Hann var vanur íslensk- um sveitamat en fékk svo bara gras og kjöt af skornum skammti,“ segir Kári Steinn brosandi sem heldur til London eftir rúman mánuð. Kærastan hans, Aldís Arnar- dóttir, ætlar til London til að styðja sinn mann en hún hefur gaman af því að hlaupa sjálf. „Hún skokk- ar mikið og tekur þátt í götuhlaupi. Bara til að vera með. Mamma og pabbi ætla líka að koma út sem og frænka og mikið af vinum. Það verð- ur skemmtilegt að hafa þau með. Það er svo hvetjandi að heyra ís- lenskar raddir hvetja. Íslenskan veitir manni extra orku og þá sér- staklega þegar maður heyrir nafnið sitt kallað,“ segir Kári Steinn sem stefnir hátt. „Þetta eru mínir fyrstu ólympíuleikar og miðað við það að ég hljóp mitt fyrsta maraþon fyrir tæpu ári verð ég mjög sáttur við að vera í topp 30. Það væri draum- ur að bæta mig og setja Íslandsmet og að lenda í topp 30 væri frábært. Ég væri allavega til í að byrja á því markmiði.“ 54 Fólk 15.–17. júní 2012 Helgarblað É g sleit sambandinu,“ segir skoski leikarinn Tav MacDoug- all, fyrrverandi kærasti Lindu Pétursdóttur. Eins og frægt var áttu þau Tav og Linda í ástar- sambandi um nokkurt skeið en upp úr því slitnaði fyrir skömmu. Tav seg- ir sambandsslitin hafa verið erfið og segir að sér sárni mjög eftirköst þeirra. Það er þungt í honum hljóðið þegar blaðamaður nær sambandi við hann og hann segist taka sambandsslitin nærri sér. Hann segir þó að þau hafi verið nauðsynleg. Saman að eilífu Tav og Linda kynntust í gegnum sam- eiginlega vini í London. Í viðtali sem tekið var við Tav og Lindu í vetur kom fram að þau hafi kynnst í júní síðast- liðnum. Í fyrstu fóru samskipti þeirra fram í gegnum tölvupóst en smátt og smátt fóru þau að verða nánari og voru formlega byrjuð saman síðast- liðið haust. Tav og Linda voru í fjar- búð, en stuttur flugtími á milli Íslands og Skotlands einfaldaði samband þeirra og fóru þau mikið á milli land- anna tveggja. „Það var strax einhver tenging á milli okkar,“ sagði Tav þá og lýstu þau Linda fyrir blaðamanni sýn sinni á framtíðina. Þá kom fram að dóttir Lindu og Tav næðu vel saman og virtist allt leika í lyndi. „Það var svolítið skrýtið en þetta var svo eðlilegt og svo rétt allt saman,“ sagði Tav í því viðtali. Sleit á samskipti En nú kveður við annan tón. Tav seg- ist hafa verið tilbúinn til að skuld- binda sig og hafði hafið flutninga hingað til lands. Hann hafði sent bíl- inn sinn hingað frá Skotlandi og ver- ið tilbúinn til að flytja hingað. „Ég keypti meira að segja trúlofunarhring í New York,“ segir Tav. Hann segir að það hafi þó vantað eitthvað í sam- bandið. „Það vantaði eitthvað upp á traustið,“ segir hann. Þegar slitn- aði upp úr sambandi hans og Lindu sleit hann á öll samskipti milli þeirra og segir þetta hafa tekið mikið á. „Ég vil ekki hafa nein samskipti við hana og vil ekki að fjölskylda mín geri það heldur,“ segir hann og segir að hann hafi beðið hana um það. „Ég hélt að ég hefði kynnst hinni einu sönnu ást,“ segir hann. „En ekki er allt gull sem glóir. Ég er virkilega sár, en ég geng í burtu hnarreistur og horfi til fram- tíðar.“ Tav segist þó ekki vera kominn í annað samband og að hann hyggi ekki á það strax. „Ég var orðinn mjög náinn fjölskyldu hennar og dóttur,“ segir hann. Lífið heldur áfram í Skotlandi Tav er nú búsettur í Skotlandi og stundar leiklistina þar. Honum hefur gengið vel; hefur leikið aukahlutverk í nokkrum þekktum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum eins og Harry Pott- er og Taggart, auk þess að hafa leik- ið í leikhúsi og auglýsingum. Þegar til stóð að hann flytti hingað til lands hafði hann ætlað að reyna fyrir sér í leiklistinni hér. Þegar blaðamað- ur ræddi við hann á fimmtudag var hann að fara til Madrid þar sem hann var að sinna leiklistarverkefni. Hann varð fyrir því að heimasíðu hans var breytt og einhver óprúttinn ná- ungi sagði þar að Tav væri „Scottish gigolo“ í stað þess að titla hann leik- ara. Tav segist vita upp á hár hver var þar að verki og íhugar nú hvað hann muni gera í málinu. „Ég ætla að vera í Skotlandi fram í október og þá flyt ég kannski til Los Angeles og reyni fyrir mér í leiklistinni þar,“ segir hann að lokum. „Ég vil ekki ræða einkalíf mitt,“ segir Linda Pétursdóttir og vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. astasigrun@dv.is n Var búinn að kaupa trúlofunarhring n „Vantaði eitthvað upp á traustið“ Tav og Linda hæTT saman Keypti trúlofunarhring Tav segist hafa verið tilbúinn til að flytja hingað til lands til að vera með Lindu. Hann hafi meira að segja keypt trúlof- unarhring. Mynd Sigtryggur Ari Vill ekki tjá sig Linda Pétursdóttir vildi ekkert gefa upp um sambands- slitin við Tav þegar eftir því var leitað. Kallaður gigolo Rósa eign- aðist son Söngkonan Rósa Birgitta Ís- feld eignaðist á dögunum son. Þetta er annað barn Rósu en fyr- ir á hún dótturina Ísadóru sem er þriggja ára. Rósa er þekktu- st fyrir söng sinn með hljóm- sveitinni Sometime og í dúettn- um Feldberg. Hún vakti einnig athygli fyrir vaska framgöngu í Eurovision-keppninni í ár þar sem hún skartaði einmitt glæsilegri óléttukúlu. Komin á fullt Fyrirsætan Erna Gunnþórsdóttir er komin á fullt skrið aftur. Erna var áberandi á síðum tímarit- anna fyrir nokkrum árum en hafði haldið sig úr sviðsljósinu um nokkurt skeið. Hún notaði tímann vel því hún eignaðist tvö börn, kláraði stúdentinn, lærði hjúkr- unarfræði og starfar nú við það. Fyrirsætan prýðir forsíðu nýjasta Séð og heyrt og er því komin aftur á kunnuglegar slóðir. Emil og Ása í hjónaband Ása María Reginsdóttir og unnusti hennar Emil Hallfreðsson lands- liðsmaður í fótbolta trúlofuðu sig á gamlársdag og gifta sig með pomp og prakt á laugardaginn. Ása María og Emil búa í Verona á Ítalíu þar sem hann stundar at- vinnumennsku í boltanum. Flott par Kári Steinn og Aldís hafa verið saman í tæpt ár en hún ætlar með honum til London til að hvetja hann áfram á hans fyrstu ólympíuleikum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.